Morgunblaðið - 13.04.1983, Page 21

Morgunblaðið - 13.04.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983 21 Fjórtán högg í sama knérunn: 50% verðbótaskerðing Alþýðubandalagið gekk til þing- kosninga 1978 undir þremur kjör- orðum: 1) „Samninga í gildi“ (sól- stöðusamningar), 2) „Kjósið ekki kaupránsDokka" og 3) „Kosningar eru kjarabarátta". Síðan hefur það, með og ásamt Framsóknarflokki, setið stanzlaust f ríkisstjórn, ef undan er skilin skammtíma starfs- stjórn Alþýðuflokksins. Á þessum stjórnarferli tvíflokkanna hefur verið gripið með löggjöf fjórtán sinnurn inn í gerða kjarasamninga með skerðingu verðbóta á almenn laun, samtals nálægt 50% verðbóta- skerðing, sem kortlögð er á með- fjlgjandi súluriti. Fyrsta skerðingin, 4,40%, var framkvæmd þegar í desember 1979. Síðan hafa „Ólafslög", sem þessir flokkar stóðu að, skert verðbætur á laun reglubundið, og annað slagið verið hert á skerð- ingunni með bráðabirgðalögum. Kaupmáttur kauptaxta lækk- aði um 1% 1979, 4,9% 1980, 1% 1981, stóð nokkurn veginn í stað 1982, en spáð er a.m.k. 7% kaup- máttarskerðingu 1983. Sú spá launa nær einnig til kaupmáttar elli- og örorkulífeyris, en hinsvegar er spáð 4,5% kaupmáttarrýrnun slíkra bóta ef tekjutrygging fylg- ir. Ráðherra tryggingarmála er Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins. Ferill verðbótaskerðingar, eða súluritin er hana tíunda, varðar vinstristjórnarveginn 1978—1983. Ellert B. Schram á vinnustaðafundi. Frarabjóðendur flokkanna halda áfram að sækja vinnustaði til að kynna fólki sjónar- mið og stefnur vegna kosninganna á laug- ardaginn eftir viku. Þessi mynd var tekin þegar Ellert B. Schram, 4. maður á lista Sjálfstæð- isflokksins í Reykja- vík, sótti fund hjá starfsmönnum Mjólkursamsölunnar í Reykjavík í hádeg- inu í gær. Ljósra. EBB. Óánægja með fram- boðsfund á Patreks- firði 9. apríl Patreksnrði, 12. aprfl. MIKIL óánægja er meðal fólks með framboðsfund er heldinn var laugardaginn 9. aprfl í Félagsheimili Pat- reksfjarðar. Um 150 manns sóttu fundinn. Ekki voru leyfðar fyrir- spurnir nema skriflegar og vitnaðist það reyndar ekki fyrr en í enda fundarins. Kom þá fram að annars röggsöm- um fundarstjóra hafði láðst að tilkynna að einungis yrðu leyfðar skriflegar fyrirspurnir og virðist það harla einkenni- legt að enginn frambjóðenda skyldi taka eftir þessu í upp- hafi fundar. Það einkenndi mjög fram- söguræður hvað komið var lít- ið inn á mál er varða byggð- arlagið sjálft, heldur rætt al- mennt um ástand þjóðmála. Alls tóku 13 frambjóðendur til máls og höfðu allir lítinn tíma (7—10 mínútur í hverri um- ferð). Það er einungis einu sinni fyrir hverjar kosningar haldinn sameiginlegur fundur frambjóðenda á hverjum stað og er það lágmarkskrafa kjós- enda að geta komið með fyrir- spurnir þar sem allir málsað- ilar eru saman komnir. gþ- á að vera sem minnstur og hinn þjóðkjörni handhafi fram- kvæmdavaldsins á að leggja sig fram um að afsala sér sem mestu af valdi sínu. í drögum að mál- efnagrundvelli BJ, sem út voru gefin í janúar, er þó ekki að finna neina sérstaka stuðningsyfirlýs- ingu við frjálshyggju og þátt ein- staklinga i atvinnurekstri. Þar segir hins vegar, að samvinnu- rekstur „gegni mikilvægu hlut- verki til valddreifingar í íslensku atvinnulífi" (!) og opinber rekstur „gegni mikilvægu hlutverki i blönduðu hagkerfi". Afnema skal einkarétt Ríkisútvarpsins til út- sendinga á útvarpsrétti, en þó skal Ríkisútvarpið hafa „einkarétt til útsendinga á auglýsingum"; „sett verði ströng verðlagslöggjöf þar sem skorður verði reistar við því að fjármagn sé flutt milli ólíkra rekstrarþátta". í drögum að málefnagrundvelli BJ segir: „Ný vandamál kalla á nýjar lausnir, nýja aðlögun í anda jafnaðarstefnunnar. Bandalag jafnaðarmanna hafnar aftur- hvarfi til frumskógarþjóðfélags markaðshyggjunnar og upplausn- arbyltingu og alræði Marx-Lenin- ismans." Samkvæmt kosninga- stefnuskránni vill BJ að á næstu árum verði megináhersla „lögð á smærri iðnað og þjónustu, enda eru það rétt viðbrögð á tölvuöld til þess að ungt fólk fái næga atvinnu við sitt hæfi og komið verði í veg fyrir skelfingar atvinnuleysis". BJ vill „samfélag, þar sem smáar ein- ingar og dreift vald nýtur sín til hlítar; þar sem valdi er dreift til sveitarfélaga og þar sem bætt skilyrði eru sköpuð fyrir smærri atvinnustarfsemi". BJ vill að leitað verði leiða til að nýta orkulindir landsins á hag- kvæman hátt, m.a. í orkufrekum iðnaði, fullt tillit sé tekið til verndunar umhverfis við val á virkjunar- og stóriðjukostum og sérstakrar varkárni sé gætt í sam- skiptum við erlenda fjármagns- aðila. Áður en ráðist er í meiri- háttar fjárfestingu til orkuöflunar skal tryggja markað fyrir orkuna, en sveitarfélög eða samtök þeirra eiga að sjá um orkudreifingu og bera alla ábyrgð á þeirri starf- semi. Hvernig fellur þessi stefna að núverandi skipan þessara mála? Þessi stefnumörkun er því miður svo loðin og óljós að í hana verður að ráða. Þegar hafist var handa um virkjun við Búrfell, var orkusala tryggð fyrirfram til Alu- suisse með þeim hætti að nægir til að greiða kostnað við orkuverið á ákveðnu árabili. Er BJ hlynnt því að staðið verði að gerð orkusölu- samninga með svipuðum hætti í framtíðinni, enda sé gætt „sér- stakrar varkárni"? Úr því að flokkurinn lýsir ekki beinni and- stöðu við meirihlutaeign útlend- inga í stóriðjufyrirtækjum, verður að álíta að BJ telji hana aðgengi- legan kost. Sé hins vegar litið á þá áherslu sem BJ leggur á „smærri iðnað“ og „smáar einingar", hljóta menn að álykta sem svo að stór- iðjurekstur sé ekki ofarlega á óskalista flokksins. Lesandinn stendur frammi fyrir svipaðri eyðu þegar hann rýnir í stefnu BJ í utanríkismálum. Utan- ríkisstefna íslands á að miðast við „að stuðla að friði og gagnkvæmri afvopnun; samstöðu með lýðræði og andstöðu við einræði; kröfu um ítrustu mannréttindi öllum mönnum til handa og andstöðu við mannréttindabrot í öllum mynd- um; og þátttöku íslands í þróunar- aðstoð við þriðja heiminn", segir i kosningastefnuskrá BJ og ísland á að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi þar sem „ofangreind meginsjón- armið séu höfð að leiðarljósi". í drögum að málefnagrundvelli BJ er sagt að flokkurinn styðji að- ild íslands að Atlantshafsbanda- laginu. Segir einnig að BJ styðji aðildina að bandalaginu „við óbreyttar aðstæður og horfur í heimsmálum" og flokkurinn telji að „einhliða afvopnun sé síst til þess fallin að draga úr viðsjám og hættu á vopnaátökum". Hvergi er minnst á varnarsamning íslands og Bandaríkjanna og vekur furðu að flokkurinn sjái ekki ástæðu til að hafa skýra afstöðu í því máli. Ummæli Vilmundar Gylfasonar um varnir landsins og stefnu BJ verða ekki skilin á annan veg en þann, að innan flokksins sé grundvallarágreiningur um þetta efni og ekki hafi tekist að semja orðalag sem allir geti fellt sig við. Ekki er heldur tekin afstaða til þeirra hugmynda sem reifaðar hafa verið undanfarin misseri um virkari þátttöku íslendinga sjálfra á sviði herfræðilegra mála. Almennt má segja, að stefna Bandalags jafnaðarmanna eins og hún er kynnt í prentuðum gögnum frá flokknum, veki fleiri spurn- ingar en hún svarar. Hugmyndir flokksins í efnahagsmálum sem áður var getið, eru jafnvel losara- legri en í stóriðju- og varnarmál- um. Er kannski ekki undarlegt þótt fáu sé svarað, því að hópurinn sem stendur að flokknum hefur tæplega haft tíma til að móta sameiginlega stefnu. Af þeim sök- um er þess ekki heldur að vænta að stefna flokksins muni skýrast mikið fram að kosningum. Flokk- urinn hefur í raun aðeins einn málsvara, Vilmund Gylfason. Það er til lítils gagns fyrir hinn al- menna kjósanda að heyra Vil- mund lýsa skoðunum sínum en bæta því svo við, að flokkurinn hafi að vísu ekki tekið af skarið um hitt eða þetta málefnið. Aðrir frambjóðendur BJ verða að láta ljós sitt skína og segja álit sitt á þeim málefnum sem ber hæst og krefjast úrlausnar. BJ er flokkurinn á móti flokk- unum. Ætli BJ að standa við það fyrirheit sem í þessari setningu felst og komi flokkurinn manni eða mönnum á þing, sýnist hann dæmdur til stjórnarandstöðu — nema setninguna um flokkinn á móti flokkunum eigi að skilja á þann veg að atkvæði greidd BJ í kosningunum séu ekki greidd fjór- flokkunum! Helgarpósturinn birti viðtal við Vilmund Gylfason 22. október 1982, tæpum mánuði fyrir úrsögn hans úr Alþýðuflokknum. Þá var Vilmundur spurður: Áttu beina samleið með Alþýðuflokknum eins og hann er í dag? Svar Vilmundar var einfalt: „Já“ og hann sagði einnig í þessu viðtali: „Kosningar eru sáttmáli þeirra sem kjósa og hinna, sem eru kosnir og sáttmál- inn er þannig að annar aðilinn kýs, en hinir þurfa að standa við það sem þeir ætla að gera. Aðeins þannig gengur þetta."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.