Morgunblaðið - 24.04.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1983
55
Blómlegt skáklíf
á Seltjarnarnesi
Skák
Margeir Pétursson
TAFLFÉLAG Seltjarnarness hefur
starfað af miklum krafti í vetur í
Valhúsaskóla. I>að heldur uppi
reglubundnum æfingum á veturna
og gengst einnig fyrir mótum.
Margt sterkra skákmanna er í fé-
laginu og það er nú í þriðja sæti í
1. dcild í deildakeppni Skáksam-
bands íslands, stendur aðeins
sveitum Taflfélags Reykjavíkur að
baki. Nýlega var haldið Skákþing
Seltjarnarness og voru þátttakend-
ur alls um 40 talsins. Skákmeistari
Seltjarnarness 1983 varð Guð-
mundur Halldórsson, rúmlega tví-
tugur viðskiptafræðinemi, sem
hlaut G'/2 vinning af 9 miigulegum í
efsta flokki. Hann var vel að sigr-
inum kominn eftir harða keppni
við Hilmar Karlsson.
Úrslit í efsta flokki:
1. Guðm. Halldórsson TS 6% v.
2. Hilmar Karlsson, TS 6 v.
3. Gunnar F.Rúnarsson TR5% v.
4. Jón Á. Halldórsson, TS 5 v.
5.-6. Jón Þ. Jónsson, TS 4lÆ v.
5.-6. Gunnar Antonss., TS 4‘Æ v.
7.-9. Ágúst Ingimundars., TR4 v.
7.-9. Tómas Björnsson, TR 4 v.
7.-9. Óli Valdimarsson, TR 4 v.
10. Snorri Bergsson, TS 1 v.
Það var ekki fyrr en í síðustu
umferðinni að Guðmundi tókst
að ná forskoti á Hilmar. Guð-
mundur tapaði aðeins einni
skák, fyrir Ágústi Ingimundar-
syni, gamalreyndum meistara-
flokksmanni úr TR. Hilmar
Karlsson, sem nú teflir til úr-
slita um íslandsmeistaratitilinn,
tefldi af sínu alkunna öryggi á
Seltjarnarnesmótinu og tapaði
engri skák. En hann tefldi ekki
nægilega hvasst, vann aðeins
þrjár skákir en gerði sex jafn-
tefli og varð því af efsta sætinu.
Guðmundur Halldórsson, ný-
bakaður skákmeistari TS.
(Ljósm. KÖE)
f B-flokki var teflt eftir
Monrad-kerfi. Röð efstu manna
varð þessi:
1,—-2. Baldvin Viggósson 7‘Æ v. af 9
1.—2. Björn Sv. Björnsson 7‘Á v.
3.-5. Haraldur Haraldsson 6 v.
3.-5. Hrannar Arnarson 6 v.
3.-5. Guðni Harðarson 6 v.
Baldvin var úrskurðaður sig-
urvegari á stigum.
Unglingameistari Seltjarn-
arness varð Snorri Bergsson,
sem vanná alla andstæðinga
sína, átta að tölu.
Tómas Björnsson varð hrað-
skákmeistari, hlaut 12 v. af 15
mögulegum. Guðmundur Hall-
dórsson hlaut jafnmarga vinn-
inga en varð lægri á stigum.
Þriðji varð Snorri Bergsson með
10'/2 v.
Stjórn Taflfélags Seltjarnar-
ness starfsárið 1982—1983 skipa
Garðar Guðmundsson, formað-
ur, Gylfi Gylfason, varaformað-
ur, Sólmundur Kristjánsson,
gjaldkeri, Jón B. Lorange, ritari,
Baldvin Viggósson, meðstjórn-
andi og varamenn eru Haukur
Richardsson og Jón Gunnar
Jónsson.
Auk aðalliðs TS sem er í
toppbaráttunni í 1. deild gerir
féiagið út B-sveit sem nýlega
sigraði í 3. deild og teflir því í 2.
deild næsta ár. Að Taflfélagi
Reykjavíkur undanskildu er TS
eina félagið sem hefur tvö lið í
deildakeppninni.
í maímánuði leggst starfsemi
félagsins að mestu leyti í dvala,
en hefst síðan aftur af fullum
krafti í september. Öll starfsem-
in fer fram í Valhúsaskóla.
Á Seltjarnarnesmótinu voru
veitt fegurðarverðlaun fyrir
beztu vinningsskákina. Þau valdi
Jón Pálsson, alþjóðlegur meist-
ari í bréfskák, og komu þau í
hlut Gunnars Freys Rúnarsson-
ar fyrir skák hans við Ágúst
Ingimundarson:
Hvítt: Gunnar Freyr Kúnarsson
Svart: Agúst Ingimundarson
Spænski leikurinn
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5
— a6, 4. Ba4 — d6
Steinitz-afbrigðið.
5. (H) — Bd7, 6. d4 — b5, 7. Bb3
— Rxd4, 8. Rxd4 — exd4, 9. c3!
Auðvitað ekki 9. Dxd4 — c5,
10. Ddl — c4 og hvítur er fallinn
í gildru sem nefnist Örkin hans
Nóa.
— dxc3, 10. Rxc3 — Be6, 11. Be3
— Rf6, 12. Bc2 — C6, 13. f4 —
Be7, 14. Df3 — Dc7, 15. h3 —
Bc8?, 16. e5! — Rd7, 17. exd6 —
Bxd6, 18. Hael — 0-0, 19. Bd4 —
Hd8, 20. Bxg7! — Kxg7, 21. Dg4+
— Kh8, 22. Dh4 — Rf8, 23. f5 —
Bc5+, 24. Khl — Hd4, 25. Df6+
— Kg8, 26. Dg5+ — Kg8, 27. f6 —
Rg6, 28. He8+ og svartur gafst
upp því mátið blasti við.
Nú kynnum viö allar gerðir af SK0D/I ásamt hinum glæsilega nýja Skoda 3APÍD
Sérstakt kynningarverð frá kr. 111.600.
* W gengl 01.04'83
Komiö á staðinn, kynnist Skoda
og látið Halla svara öllum ykkar
spurningum.
JÖFUR HF.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
A