Morgunblaðið - 24.04.1983, Page 14

Morgunblaðið - 24.04.1983, Page 14
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1983 Barítta Carlsens skipstjóra við nittúruöflin vakti heimsathygli. Jafnvel voru búnar til tertur sem lýstu afrekinu. Skrúdgöngur, miðdegisverðarbod og hanastélsveizlur voru haldnar Carlsen til heiðurs. Hér sæmir Harry S. Truman forseti hann heiðursmerki. HVAR ERU ÞEIfí NU? Þegar Carlsen reyndi að bjarga Flying Enterprise MARGIR muna ugglaust enn eftir Carlsen skipstjóra á „Flying Knterprise", sem varð heimsfrægur fyrir þrjátiu árum, en neitaði að græða offjár á afreki sínu og heimsfrægð. Skip hans fór á hliðina í ofsaveðri og í 14 sólarhringa barðist hann hetjulegri baráttu til þess að bjarga því, en án árangurs. Kurt Carlsen er enn á lífi og býr í góðu yfirlæti í bænum Wood- bridge í New Jersey-ríki í Banda- ríkjunum. Hann er 68 ára að aldri og heldur enn góðu og nær dag- legu sambandi við ættjörð sína, Danmörku. Nýlega birtist viðtal við hann í danska blaðinu Aktuelt og hér verður efni þess rakið í að- alatriðum. Carlsen er mikill útvarpsáhuga- maður og stendur í sambandi við marga vini sína víða um heim, en einkum í Danmörku. „Ég var rétt áðan að tala við góðan vin minn, Ib Schou, fyrrverandi majór úr flughernum, sem er frá Suður- Sjálandi," sagði Carlsen í viðtal- inu. „Við skiptumst margir á fréttum og það er skemmtilegt að fylgjast með því sem er að gerast í gömlu Danmörku." „Ég yfirgaf ættjörðina í raun og veru strax árið 1937, þegar ég réð mig á eitt af skipum Lauritzen- skipafélagsins," heldur Carlsen áfram. „Og mér tókst aldrei að koma mér fyrir í Danmörku vegna stríðsins. En ég hef auðvitað farið heim mörgum sinnum. Ég hef alls ekki getað verið án þess að heim- sækja föður minn, sem nú er 94 ára gamall og á elliheimili i Hels- ingör, systur mína og aðra úr fjöl- skyldunni. Ég kem aftur í heim- sókn í apríl. Faðir minn er blind- ur, en fylgist þó vel með öllu.“ Skólaskipid „Danmörk“ „Hvort ég sakna Danmerkur?" spyr Carlsen. „Auðvitað. Stundum finnur maður mikið til heimþrár. Þegar skólaskipið „Danmark" heimsótti New Jersey fékk ég sting í hjartað. Hverjum hefði ekki liðið eins þegar þannig stóð á?“ Síðast þegar Carlsen var í Danmörku rakst hann á Gunnar Nu Hansen, sem lýsti hinum áhrifamiklu atburðum um ára- mótin 1951—’52 af mikilli innlifun í útvarpi. Carlsen bauð honum vestur um haf og vonast til að fá hann í heimsókn í vor. Carlsen hefur lengi verið út- varpsáhugamaður, eða allt frá því hann var átta eða níu ára gamall. Hann tók símritarapróf og áhuga- mál hans hefur tengst ævistarf- inu. „Ég hef verið á öllum tegund- um skipa: fyrst á seglskipum, síð- an gufuskipumog loks díselskip- um,“ segir Carlsen. En núna er ég á eftirlaunum. Ég er nýbúinn að mála húsið — það var nauðsynlegt — en annars tek ég lífinu með ró. En á hverjum degi, nema um helg- ar, kalla ég einhverja upp í tal- stöðinni og fær fréttir hvaðanæva úr heiminum, en einkum frá Danmörku." Heidraöur Carlsen ávann sér aðdáun fólks um allan heim fyrir þolgæði og seiglu, sem hann sýndi þegar „Fly- ing Enterprise" hlekktist á. Um hann var farið lofsamlegum orð- um í löngu máli í heimsblöðunum og í útvarpi og sjónvarpi og hon- um var margvíslegur sómi sýndur. Sjálfur Harry S. Truman forseti sæmdi hann heiðursorðu og þús- undir manna hylltu hann á Broad- way í New York, fyrir framan ráðhús borgarinnar. Borgarstjór- inn, Vincent Impellitteri, sæmdi hann heiðursmerki. Bezt kunni Carlsen þó að meta að kona hans gaf honum danskt buff með lauk að borða, en það hefur alla tíð verið eftirlætisrétt- ur hans. Almenningur í heiminum furðaði sig mjög á því að Carlsen hafnaði hverju einnar milljónar tilboðinu á fætur öðru. Blöðin og útvarps- og sjónvarpsstöðvar kepptust um að fá einkarétt á „Flying Enterprise“, sem fór á hliðina, skip ('arlsens skipstjóra. Margar tilraunir voru gerðar til að bjarga skipinu, en þær voru allar unnar fyrir gýg vegna ofsa- veðurs sem geisaði. Glenn í forseta framboð New Concord, Ohio, 22. aprfl. AP. JOHN H. Glenn öldungardeildar- þingmaður og fyrrverandi geimfari lýsti því yfir í gær, að hann myndi bjóða sig fram til forsetakjörs í Bandaríkjunum í næstu forsetakosn- ingum. Glenn er nú 61 árs gamall og varð þjóðhetja fyrir tveimur áratug- um vegna ferðar sinnar út í geiminn á braut umhverfis jörðu. Ér hann tilkynnti væntanlegt framboð sitt sagði hann: „Aðalskylda stjórnvald- anna er að varðveita iíf þjóðar okkar, sjálfstæði hennar og frelsi.“ Fimm aðrir menn verða í framboði sem forsetaefni fyrir demókrata- flokkinn. NÚ ER TÆKIFÆRIÐ AÐ TRYGGJA SÉR ÞENNAN VINSÆLA BÍL Á VERÐI SEM EKKI KEMUR AFTUR VERÐ FRA KR. 191.000 honda á íslandi — vatnagörðum 24 — sími 38772 — 39460

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.