Morgunblaðið - 11.05.1983, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983
25
Gífurlegt áíall fyrir
vertíðarflotann
— segir Ágúst Einarsson, hagfræðingur LÍU
„ÞETTA er auövitað gríðarlegt
áfall fyrir vertíðarflotann í heild,
en kemur nokkuð misjafnlega
niður á veiðisvæðum. Þannig
heldur Vesturland sama þorsk-
afla og í fyrra, en áfallið á Suður-
nesjum er tilfinnanlegast eða um
18.000 lesta samdráttur. Á Vest-
fjörðum er einnig nánast helm-
ings samdráttur,“ sagði Ágúst
Einarsson, hagfræðingur LÍIJ, í
samtali við Morgunblaðið.
„Það á eftir að reikna þessar
aflatölur inn í afkomu útgerð-
arinnar. Allar viðmiðunartölur
nú eru byggðar á aflatölum frá
síðasta ári. En það er ljóst að
þetta eykur verulega á halla-
rekstur útgerðarinnar. Ef við
tökum bátaflotann sem dæmi,
vantar nú tæpar 42.000 lestir
upp á að sama þorskafla og (
fyrra sé náð. Það er 30% sam-
dráttur fyrstu fjóra mánuði
ársins. Samdrátturinn í heild-
arbotnfiskaflanum hjá bátum
er nánast sá sami, þannig að
samdrátturinn er nær ein-
göngu í þorski. Þetta verður
líka að skoða í ljósi þess, að
veiðar hófust almennt miklu
fyrr nú en í fyrra. Því er kostn-
aður að baki þessa aflamagns
nú er miklu meiri en fyrir afl-
ann á sama tíma í fyrra og þar
að auki meiri sókn. Þetta er
mikil blóðtaka hjá bátaflotan-
um því þetta hefur verið sá
tími ársins, sem hugsanlega
hefur skilið eitthvað eftir í
rekstrinum til þess að mæta
erfiðum tíma, sem í hönd fer.
Þá er samdráttur í þorskafla
togaranna 14.500 lestir og er
það mikið áfall ofan á þau
vandkvæði, sem hann átti í í
fyrra. Þeir hafa að vísu bætt
sér þetta upp í magni með öðr-
um tegundum. Það er því víða
þröngt í búi nú.
Það er alveg ljóst að þær for-
sendur, sem að baki þjóð-
hagsspár liggja um 370.000
lesta þorskafla á árinu, geta
ekki staðizt. Því þarf að reikna
þessar tölur inn í þjóðhags-
spána og afkomu útgerðarinn-
ar, þannig að menn hafi réttar
tölur fyrir framan sig, þegar
menn eru seztir niður til að
ræða um efnahagsmál. Annað
er ekki raunhæft. Reiknum við
með 300.000 lesta þorskafla á
árinu verður samdrátturinn
frá 1981 167.000 lestir eða sem
samsvarar 1,5 milljarði upp úr
sjó eða rúmum 3 milljörðum í
útflutningtekjum. Samfara
þessu er lækkandi markaðs-
verð á saltfiski," sagði Ágúst.
A
Afall sjómanna gífurlegt
— segir Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands íslands, um aflasamdráttinn
„ÞAÐ er orðið Ijóst í dag, að sjó-
menn hafa orðið fyrir gífurlegu
áfalli vegna aflasamdráttar, ekki
aðeins á síðasta ári, heldur einnig
það, sem af er þessu ári. Það
kann kannski að hljóma undar-
lega í eyrum sumra, hvað varða
þann málflutning, sem við höfum
viðhaft varðandi afkomu sjó-
manna á hverjum tíma, þá vita
þeir ekki frá degi til dags hve
mikið þeir bera úr bvtum fyrir
atvinnu sína,“ sagði Oskar Vig-
fússon, formaður Sjómannasam-
bands íslands, er Morgunblaðið
innti hann álits á afkomu sjó-
manna í kjölfar aflasamdráttar.
„Hér er komin upp sú staða,
sem við höfum marg oft bent á
og því miður lítið verið hlustað
á. Þegar landsfeðurnir fjalla
um afkomu sjómanna telja þeir
að verðbætur þeirra i fiskverði
þurfi ekki að vera svo háar á
hverjum tíma, þegar vel fisk-
ast. Nú er þessi staða öfug,
hvað á að gera fyrir sjómenn
þá? f dag horfum við með mikl-
um ugg til framtíðarinnar. Við
höfum ekki reiknað út hve mik-
ið fjárlagslegt tap sjómanna er
vegna aflasamdráttar, en það
er ljóst að meginhluti bátaflot-
ans og þá aðallega við Faxa-
flóann nær ekki að fiska upp í
hlut. Því verða menn að sætta
sig við kauptryggingu, 14 til 15
þúsund krónur á mánuði fyrir
allt að 18 tíma vinnu á sólar-
hring. Þeir reka þó ekki upp
ramakvein en telja eðlilegt að
þeir njóti góðs af, þegar vel
gengur en nú eru þeir afskap-
lega uggandi um hag sinn.
Þetta á ekki aðeins við báta-
flotann. Þetta á við togaraflot-
ann líka. Aflasamsetning hans
í vetur er að mínu mati skelfi-
leg, byggist mikið á ofveiddum
karfa," sagði Óskar.
TÖLVUFRÆBSLA
RITVINNSLA I — ETC
Notkun ritvinnslukerfa viö vélritun hefur nú rutt sér til rúms
hér á landi. Tilgangur þessa námskeiðs er aö kynna rit-
vinnslutæknina og kenna á ritvinnslukerfiö ETC, sem er
tengt tölvu Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar.
Efni:
— Hvaö er tölva?
— Áhrif tölvuvæöingar á skrifstofu-
störf.
— Þjálfun á ritvinnslukerfiö ETC.
Námskeiöiö er ætlaö riturum sem vinna
viö vélritun bréfa, skýrslna, reikninga
o.fl. og nota eöa munu nota ritvinnslu-
kerfi tengd stórum tölvusamstæöum á
vinnustaö.
Leiöbeinendur á þessu námskeiöi er
Ragna Siguröardóttir Guöjohnsen, sem
er sérhæfö i kennslu á ritvinnslukerfi.
Leiöbeinandi:
Ragna
Siguröardóttir
Guð|óhn»en
Staóur: Armúli 36, 3. hæö. (gengiö inn frá
Selmúla).
Tími: 16.—20. maí kl. 09.00—13.00.
RITVINNSLA II —
FRAMHALDSNÁMSKEIÐ —
ETC
Tilgangur námskeiösins er aö kynna til
hlítar notkunarmöguleika ritvinnslukerf-
isins ETC meö þaö fyrir augum aö
þátttakendur veröi aö loknu námskeiö-
inu færir um aö vinna flókin texta-
vinnsluverkefni á ritvinnslukerfiö.
Farið verður yfir flókna eiginleika rit-
vinnslukerfisins ETC, svo sem töflugerð
og útreikninga innan þess texta sem
verið er að vélrita.
Námskeiöiö er ætlaö þeim sem þegar
hafa sótt Ritvinnslu I og sem nota ETC-
ritvinnslukerfið og vilja afla sér nánari
þekkingar og þjálfunar á kerfiö.
Laióbainandi:
Ragna
Siguröardóttir
Guöjóhnaen
ATHUGIÐ:
ÞETTA ERU SÍÐUSTU NÁMSKEIÐIN Á ETC-
KERFIÐ, SEM HALDIN VERÐA AÐ SINNI.
Tími. 24.-27. maí kl. 09:00—13:00.
Staður: Ármúli 36, 3. hæö (gengiö inn frá Selmúla).
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma
82930.
SUMllUV&MI
SlDUMÚLA 23
SlMI 82930
20 manns á námskeiði
í sjúkraflutningum
NÁMSKEIÐ fyrir sjúkra-
flutningamenn hefur undan-
farið staðið yfir í Reykjavík á
vegum Borgarspítalans og
Rauða kross íslands. Nám-
skeiðið sóttu 20 sjúkraflutn-
ingamenn víðs vegar að af
landinu. Allt starfar þetta fólk
við sjúkraflutninga, flest með
öðrum störfum og tóku margir
sumarleyfi sitt í þetta nám-
skeið, sem stóð yfir í 11 daga.
Námskeiðið hófst 26. apríl
og því lauk 6. maí og var kom-
ið víða við meðan á námskeið-
inu stóð. Á meðfylgjandi mynd
er hópurinn í heimsókn hjá
Almannavörnum.
Tilkynning
til garðeigenda í Reykjavík um nauðsyn aðgæslu viö
notkun sterkra eiturefna við garðúðun.
Fjölmargir garöeigendur láta ár hvert úöa garöa sína meö eiturefnum úr X- og A-flokkum eiturefna í
því skyni aö útrýma skordýrum. Af þessum efnum mun parathion algengast. Hér gengur þaö undir
verslunarheitinu Egodan-Parathion sem er 35% upplausn hins virka efnis (parathions). Efni þess eru
ekki einugis eitruö fyrir skordýrin sem þeim er ætlaö aö eyða, heldur koma verkanir þeirra fram hjá
öllum dýrum, sem fyrir þeim veröa, þ.á m. fuglum og þau valda gjarnan eitrunareinkennum hjá fólki.
Eigi er talið unnt aö komast hjá notkun þessara sterku efna enn sem komið er, svo sem í
gróðurhúsaræktun, en leyfi til notkunar þeirra í þágu almennings eru mjög takmörkuð og bundin
þeim einum sem hafa undir höndum sérstök leyfisskírteini frá lögreglustjórum, sem þeir skulu bera á
sér þegar úðun fer fram.
Jafnframt þessari aögát er nauðsynlegt, aö garöeigendur geri sér grein fyrir, aö æskilegt er aö
draga sem mest úr notkun hinna sterku eiturefna og fullreyna í þeirra staö önnur hættuminni efni,
sem leyft er aö selja almenningi (sjá yfirlit útgefiö af heilbrigöis- og tryggingarráöuneytinu 1. júní
1982).
Þeim garöeigendum, sem samt sem áöur vilja fá garöa sína úöaöa meö eiturefnum úr X- og
A-flokkum skal bent á eftirfarandi:
1. Aö ganga úr skugga um aö þeir sem framkvæma úðunina hafi undir höndum gild leyfisskírteini,
útgefin af lögreglustjóra.
2. Einungis má úöa í þurru og kyrru veöri.
3. Egodan-Parathion má aöeins nota meö styrkleikanum 0,03—0,08%, þ.e. 30—80 ml í 100 I vatns.
4. Úöun er þýöingarlítil og jafnvel gagnlaus nema á aöalvaxtarskeiöi lirfunnar, sem algengast er aö
eigi sér staö fyrstu 3 vikurnar í júní.
5. Virða skal aö öllu leyti aövörunarsþjöld þau sem skylt er aö hengja uþþ i göröum aö lokinni úöun
meö áöurnefndum eiturefnum.
Garöeigendum er bent á aö kynna sér rækilega hvaöa trjátegundir er óþarft aö úta til varnar gegn
skordýrum og ennfremur aö afla sér uþplýsinga um hvenær hægt sé aö komast af meö notkun
hættuminni efna til útrýmingar þeim.
Reykjavík 5. maí 1983.
Borgarlæknirinn í Reykjavík.