Morgunblaðið - 20.05.1983, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1983
7
Garðhúsgögn
í fjölbreyttu úrvali.
Hagstætt verð.
Góöir greiösluskilmálar.
TT'
i. ji
Bláskógar
ÁRMUU 8
SÍMI'. 86080
EINSTAKLINGSMEÐFERÐ
í REICHÍSKU NUDDI
Upphaflega þróaö af austurríska geölækn-
inum Wilhelm Reich. Þetta er 90 mínútna
alhliöa líkamsnudd, þar sem rík áhersla er
lögö á öndun til aö losa um hömlur á lík-
amlegri og sálrænni orku.
Nánari kynning og skráning í síma 12980
kl. 18.30—19.30.
TOSEPH MEYER
M.T., Bouldar School of Mastago Thorapy Tsachar and Hsad Maaaags Thsr-
apist at tha Aapsn Athlstic Club, Aspsn, Colorado.
FERILL NÝKRÓNUNNAR
1. janúar 1981 18. marz 1983
Rýrnun verðgildis nýkrónu frá 1.1.1981 ti T8.3.1983 miðað við meðalgengi skráðar
erlendrar myntar.
Hvert stefnir í undirstöðuatvinnuvegum?
• Miöað vjö breyttar aflaforsendur báta og togara á
þessu ári, er rekstrartap hjá bátunum 420 m.kr., minni
togurum 240 m.kr., stærri togurum 68 m.kr., loönubátum
150—200 m.kr., eöa samtals rúmar 900 m.kr., aö sögn
Kristjáns Ragnarssonar, formanns LÍÚ.
• Siguröur Haraldsson, skrifstofustjóri SÍF, telur tap viö
vinnslu þorsks í salt vera 18—20%, „og er þá ekki tekið
tillit til aukins kostnaöar við hreinsun selorms“.
• Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, framkvæmdastjóri SH, telur
aö verðlækkun á frystum karfa skekki fyrri áætlanir um
rekstrarstööu frystiiönaðar, og stefni nú í 1,5% taprekstur
á frystingunni á heildina litiö.
Þaö er því ekki björgulegt um aö litast í helzta undirstööu-
atvinnuvegi þjóöarinnar, sem nú sætir minnkandi afla,
einkum á þorski, í 100% verðbólgu.
Á meðan
Rómaborg
brann ...
Það er rétt að stjórnar-
myndun hefur oft tekið
lengri tíma en nú er liðinn
frá kosningum. I»að er
einnig rétt að því betur
sem væntanlegir sam-
starfsaðilar ganga frá sam-
komulagi um efnahagsað-
gerðir, þ.á m. fram-
kvæmdaatriðum aðgerða,
þeim mun líklegra er að ná
megi árangri — í þeirri við-
leitni að sporna gegn hruni
í helztu þáttum þjóöar-
búskaparins. En meðan
stjórnmálamenn þrátta
vefur vandinn utan á sig —
og búast má við hrikalegri
verðhækkunarskriðu upp
úr næstu mánaðamótum,
ef ekkert vcrður að gert
Hætt er við að þá hriikkvi
enn vænn biti úr nýkrón-
unni, sem ekki hefur of
mikið vægi, eins og er, í
vasa launamannsins.
Forsjármenn fiskvinnslu
og útgerðar hafa sent frá
sér athugasemdir við
niðurstöður Þjóðhagsstofn-
unar, varðandi rekstrar-
stöðu í sjávarútvegi 1983,
sem þó vóru skuggalegar.
Benda þeir á að útreikn-
ingar stofnunarinnar hafi
byggzt á óbreyttum afla-
brögðum frá fyrra ári, sem
vart sé á að treysta, og
horfi því fram hjá afla-
samdrætti og versnandi
aflasamsetningu. lȇ taki
hún heldur ekki inn í
dæmið nýlega verðlækkun
á karfaafurðum í Banda-
ríkjunum. Forsjármennim-
ir komast að þeirri dapur-
legu niðurstöðu sem til-
greind er í tvídálki Stak-
steina í dag.
Verðbólgan nálgast
100% markið, erlend
skuldasöfnun tekur fjórð-
ung útflutningstekna í
greiðslubyrði eina saman,
vaxandi taprekstur setur æ
fleiri fyrirtækjum stólinn
fyrir dyrnar með framtíð-
arrekstur, atvinnubrestur
hefur þegar sagt til sín —
og stjórnmálamenn hafa
ekki enn komizt yfir sam-
starfsþröskuld stjórnar-
mvndunar.
Tímasóun
Málgagn Framsóknar-
flokksins, Tíminn, fjallar í
gær um stjórnarmyndun-
artilraunir félaga flokks-
formanns, Svavars Gests-
sonar:
„Svavar Gestsson hefur
staðið þannig að stjórnar-
myndunartilraunum sín-
um, að undrun vekur, og
vita margir ekki hvort þeir
eiga að hlæja eða gráta yfir
þeim ósköpum. Bera allar
aðgerðir hans þess cinna
helzt vitni, að hann lifi í
einhverjum draumaheimi
fjarri pólitískum veruleika
dagsins. Það er ekki að-
eins, að hann láti eins og
hann trúi því, að hann hafi
einhvern möguleika til að
i mynda ríkisstjórn, sem all-
ir vita að hann hefur auð-
vitað ekki, heldur ber hann
sig líka svo kjánalega að,
að sumir Alþýðubandalags-
menn fullyrða, að þar hljóti
aðrir að standa á bak við
sem vilji formanninum
ekkert gott.
Spurningalisti Svavars til
forystumanna annarra
þingflokka er helzta póli-
tíska grín dagsins, ekki sízt
þar sam honum hefur láöst
að láta fylgja með svör
sjálfs sín og Alþýðubanda-
lagsins við þessum spurn-
ingum ...“
„Skrýtnar
aðfarir“
Alþýðublaðið segir í for-
ystugrein í gær:
„Vinnubrögð Svavars
Gestssonar, formanns Al-
þýðubandalagsins, sem nú
hefur hið formlega stjórn-
armyndunarumboð frá for-
seta í sinni hendi, eru um
margt dálítið furðuleg. Al-
þýðuhandalagið, sem að
forminu til á að leiða
stjórnarmyndunarviðræð-
ur, byrjar á því að óska eft-
ir afstöðu annarra flokka
til fjölmargra lykilatriða,
en setur ekki sjálft fram
sína skoöun á einu einasta
atriði. Þetta eru skrýtnar
aðfarir ...“
Sama er hvar borið er
niður í blöðum, öðrum en
Þjóðviljanum, hvarvetna
koma vinnubrögð Svavars
Gestssonar mönnum eins
fyrir sjónir."
TS'iíamatkadutinn
s-ý-tettifýötu 12- 1S
Ath.: Vantar nýlega bíla á
staðínn.
Sýningarsvæði úti og inni.
Mazda 626 2000 1982
Ljósgrænn, sanseraður, aklnn aóelns 12
þús. km. Beinsk 5 gira. Varö 220 þós. Sklptl
möguleg é ódýrari btl
Honda Accord 1981
Blásans 5 gira, aklnn aöaina 1( þúa.
Verö kr. 215 þús.
Wagoner 1974
S|áltsk. meö öllu, þrúnn, 8 cyl, ekinn 77 þús.
Nýtt lakk. Powerstýri. Verö 120 þús. Skiptl á
ódýrarl bíl.
Subaru 1800 1982
Rauður, ekinn 26 þús. Sisalistar o.fl., ný
endurryövarinn. Gullfallegur bill. Verö 250
þús.
Willys Golden Eagle 1979
Brúnsanseraöur 8 cyl. (304), sporttelgur,
splittaö drlf o.fl. Ekinn 51 þús. Úrvalabill.
Verö kr. 300 þús. Skipti möguleg.
Citroen GSA Pallas 1982
Blásanseraöur, aklnn aöeins 3 þúa. km.
Grjótgrind o.fl. Varö 203 þúa.
Daihatsu Runabout
Grásans, eklnn 39 þús km. Verö 125 þús.
Einnlg Dalhatsu Charade 1982. Verö 168
þús.
SÁÁ .
Félagar!
Sjálf boðaliða vantar til starfa
Nú er framundan lokaspretturinn í skuldabréfasöfnun samtakanna,
og mikil vinna fyrirsjáanleg næstu daga.
Til þeirrar vinnu þarf mikinn fjölda sjálfboðaliöa
úr samtökum okkar.
SÁÁ félagar og annað áhugafólk látið skrá ykkur til starfa
í síma 82399.
Verum þess minnug að það munar um allt- og að margar hendur
vinna létt verk.
Stjórnin.