Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 175. tbl. 70. árg. LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vextir og tollar með hæsta móti New York, .r».ágúst. AP. BANKAVEXTIK í Bandaríkjunum, sem stigið hafa jafnt og þétt síðustu þrjá mánuðina, eru nú hinir hæstu sem um getur í heilt ár og Banda- ríkjadollari hefur fylgt í kjölfarið. Er hann nú svo hátt skráður að annað eins hefur ekki verið lengi. Þrátt fyrir að dollarinn félli lít- illega í lok vikunnar, var hann þó í gær hærri en í annan tíma miðað við franska frankann og itölsku líruna og ef borið er saman við vestur-þýska markið og hollenska gyllinið, hefur dollarinn ekki verið jafn hátt skráður í 9 ár. Seðla- bankar Austurríkis, Belgíu, Frakklands, Italíu, Japans, Vest- ur-Þýskalands, Hollands og Sviss hafa setið sveittir við að selja doll- ara til þess að stemma stigu við hinni miklu hækkun gjaldmiðils- ins. íhlutun bankanna var metin í gær og talið að þeir hefðu selt alls um milljarð dollara í vikunni. Þessi mikla hækkun dollarans gagnvart öðrum gjaldmiðlum hófst seinni hluta fimmtudags er bandaríski hagfræðingurinn Al- bert Wojnilower spáði því að skammtímavextir í viðskiptum banka í milli myndu hækka úr 9,5% í 11% á næstunni. Spáin ýtti skriðunni af stað. Chad: Bandaríkin auka aðstoð Washington, 5. ágúst. AP. BANDARÍSKA utanríkisráðuneytið tilkynnti í gær þá ákvörðun stjórn- valda, að bæta 15 milljónum dollara við fyrri styrki og peningagjafir Bandaríkjamanna til stjórnvalda í (’had. „Þetta gerum við til þess að stjórnin í Chad eigi raunhæfari möguleika á því að brjóta á bak aft- ur skæruliðasóknina sem studd er af Líbýumönnum,“ sagöi f fréttatil- kynningu sem gefin var út af þessu tilefni. Talsmenn ráðuneytisins sögðu jafnframt, að hvernig peningun- um yrði varið færi eftir því hvern- ig málin þróuðust í Chad á næst- unni. Stjórnarher Habres forseta var í mikilli sókn, uns skærulið- arnir hófu miklar loftárásir fyrr í Hundaæði Talsvert hefur borið á hundaæði í Tyrklandi upp á síðkastið, einkum í bænum Krzurum í austurhluta landsins, en þar hafa fjórir tekið þessa hryllilegu og ólæknandi veiki nýlega. Á meöfylgjandi mynd má sjá eitt fórnarlambanna, hirðingjann Ismet Muglay, sem bíöur dauða síns í ein- angrunarbúri. Hann var settur í það eftir að hafa sloppið úr sjúkrarúmi og gengið berserksgang á sjúkrahúsinu í Erzurum í nokkrar klukkustundir. pótti mesta mildi að hann smitaði engan. Það eru þrjár vikur síðan sýktur hundur beit Ismet úti í haga og hann á skammt eftir ólifað. Talið er að um 300 manns deyi úr hundaæði ár hvert í Tyrklandi. símamynd AP. Baskar myrða lögreglu- þjón Ovarzun, Spáni, H. julí, AP. BYSSUMENN, að því að talið er úr röðum ETA, eða aðskilnaðar- hreyfingu Baska á Spáni, skutu í gær lögregluþjón til bana á götu úti í borginni Oyarzun. Var lög- regluþjónninn 27. fórnarlamb ársins í pólitísku ólgunni sem ríkir á Spáni, einkum og sér í lagi í Baskahéruðunum. Tilræðismennirnir voru fjórir talsins og óku þeir á brott á ofsahraða. Fyrir utan borgina kastaðist bifreið þeirra út af veginum, en þeir sluppu með skrekkinn og hurfu á braut á tveimur jafn- fljótum. í bílflakinu fann lög- reglan hríðskotabyssur og skammbyssur af þeirri tegund sem hryðjuverkamenn ETA nota jafnan. vikunni. Þá tilkynntu Bandaríkja- menn að þeir myndu senda Habre 10 milljónir dollara auk 30 „re- deye“-flugskeyta, sem eru mjög handhæg í notkun. Hissine Habre, forseti Chad, sagði seint í gærkvöldi, að sprengjuflugvélar Líbýumanna hefðu gert nýjar og fólskulegar árásir í gærkvöldi. Sagði Habre þær hafa varpað sprengjum á borgina Oum Chalouba og hefði mannfall verið mikið, ekki síst í röðum kvenna og barna. í gær komu einnig tvær fransk- ar herflutningaflugvélar til höfuð- borgar Chad. Voru þær hlaðnar vopnum og vistum. Sprenging í mosku drap fjölda manns Tripoli. Líbanon, 5.ágúst. AP. GEYSILEGA öflug sprengja sprakk fyrir utan bænahús múhameðstrú- armanna í Tripoli í gær og létust 18 manns, en 44 særðust, auk þess sem tjón á nærliggjandi húsum og bif- reiðum var gífurlegt. Lögregían í borginni taldi líklegt að tölurnar myndu hækka áður en upp væri staðið. Svo öflug var sprengjan, að þriggja metra djúpur gígur myndað- ist í götuna þar sem hún sprakk. Sprengjunni hafði verið komið Blóðbað í Avignon: Sjö féllu fyrir byssum ræningja Avignon, Krakklandi, 8. agúst. TILRAUN tveggja vopnaðra stigamanna til að ræna öllu fémætu á gisti- húsi einu í frönsku borginni Avignon, endaði með skelfilegu blóðbaði í gærdag. Skutu ræningjarnir sjö manns til bana áður en þeir lögðu á flotta og síðast er fréttist hafði aðeins annar þeirra náðst. Atburðarásin var þannig, að um klukkan tvö eftir hádegið ruddust bófarnir inn á Sofitel-gistihúsið, vinsælt ferða- mannahótel á bökkum Rónar. Kröfðust þeir þess af þremur starfsmönnum hótelsins að þeir opnuðu fjárhirslur þess, en eng- inn þeirra reyndist hafa lykla- völd. Neyddu þeir þá fólkið með sér upp á þriðju hæð hússins, þar sem íbúð hóteleigandans var. Á leiðinni urðu á vegi þeirra fernt til viðbótar, þ.á m. kornung hjón sem höfðu nýlokið við að skrá sig í gistihúsið. Tóku ræn- ingjarnir fólkið allt í gíslingu. Því næst myrtu þeir alla gísla sína og að sögn lögreglunnar var ástæðan engin. Fimm lík fund- ust í kös í einu herbergi, en hin tvö í nærliggjandi herbergjum. Að ódæðinu frömdu, flýðu morð- ingjarnir niður á jarðhæð og óku á brott. Lögreglunni var strax gert viðvart og hún var fljót að koma auga á flóttamennina þar sem þeir óku greitt um stræti Avignon. Hóf lögreglan eftirför og í þann mund er þeir náðu bif- reiðinni, snarstansaði hún og ódæðismennirnir tóku til fót- anna. Þrátt fyrir ákafa eftirför, tókst lögreglunni aðeins að góma annan hrottann, en þó ekki fyrr en hann hafði kastað skamm- byssu sinni í nefið á einum lög- reglumanni og slasað hann. Simamynd AP. Lík hinna sjö fórnarlamba hótelræningjanna I Avignon liggja hér inn- pökkuð í móttökusal gistihússins nokkru eftir voðaatburðinn. fyrir í blárri Volkswagen-bifreið fyrir utan bænahúsið og sprakk hún er mikill fjöldi múhameðstrú- armanna streymdi út um dyr hússins að bænagjörð lokinni. 75 kg af sprengiefni voru notuð í sprengjuna, sem auk þess var tengd við nokkur fallbyssuskot sem sprungu samtímis og dreifðu blý- og stálbitum um allt. í kjöl- farið hófu skæruliðaflokkar með og á móti Sýrlendingum að skipt- ast á skotum og varð af talsverð skothríð, en fréttir bárust þó ekki af frekara manntjóni. Robert C. McFarlane, sendi- fulltrúi Bandarikjastjórnar í Mið- austurlöndum, hélt áfram þreif- ingum sínum í gær. Hann átti þá fund með Shafik Wazzan, forsæt- isráðherra Líbanons. Wazzan sagði fréttamönnum, að McFar- lane hefði borið með sér ýmsar nýjar hugmyndir, bæði úr banda- rískum og ísraelskum smiðjum, og sagði hann ýmsar þeirra gagnleg- ar. „Þær hafa hins vegar ekki krystallast og því þarf að halda viðræðunum áfram," sagði Wazz- an. Það er mál manna, að ráða- mönnum í Israel og McFarlane hafi greint á um margt. 1 dag heldur McFarlane til Sýr- lands þar sem hann mun eiga fund með Hafez Assad Sýrlandsforseta. Talsverð eftirvænting ríkir um út- komu fundarins, því ríkisfjölmiðl- arnir í Sýrlandi hafa látið allt annað en friðlega að undanförnu, kallað McFarlane „yfirforingja Bandaríkjanna í Beirút" og verk- efni hans sé að koma Miðaustur- löndum öllum undir bandaríska stjórn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.