Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 Heyskapur gengur illa á Suður- og Vesturlandi: Jóhann Pálsson, Dalbæ, Hrunamannahreppi: „Hægt að ná þessu upp i um tíma ef tækifæri gefs Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö. Gengismunur og fjármagnsupptaka Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri SÍF, segir í viðtali við Morgunblaðið sl. fimmtudag, að sala saltfisks til Evrópu muni að óbreyttu leggjast niður. SÍF hafi reynt að halda í sölusamninga í Bandaríkjadölum, en gengi dalsins gagnvart portúgalskri, spánskri og ítalskri mynt hafi hækkað svo, að nauðsynlegt reyndist að lækka söluverð um 20% á sl. tveimur og hálfu ári. Samkeppnisþjóðir á saltfisk- mörkuðum, sem selja afurðir sínar í eigin mynt, er hækkað hefur mun minna gagnvart gjaldmiðli kaupenda, hafa hinsvegar styrkt samkeppnis- stöðu sína. Saltfiskframleiðendur hafa við þessar aðstæður krafizt þess, að fá að halda þeim geng- ismun, sem framleiðsla þeirra skapaði í tengslum við síðustu gengislækkun krónunnar. „Saltfiskframleiðendur hafa lagt öll spil á borðið," sagði Friðrik Pálsson, „og fara á þessu stigi ekki fram á annað en að njóta þess, sem þeir hafa afl- að ... Millifærsla peninga, eins og allt of oft hefur átt sér stað um gengismunarsjóð, er algjör- lega ófær nú og brýnna en oft áður, að stjórnvöld efni marg- gefin loforð um að nýta verð- jöfnunarsjóð fiskiðnaðarins betur." Staða saltfiskframleiðslunn- ar er slæm eftir slaka vetrar- vertíð. Viðblasandi útlit gerir illt verra. Fréttafrásagnir af at- vinnuhorfum og stöðu fisk- vinnslu í sjávarplássum, eins og Grindavík, eru hættumerki, sem ekki er hægt að loka augum fyrir. Eðvarð Júlíusson, for-| stjóri Hópsness í Grindavík, segir í viðtali við Morgunblaðið í fyrradag: „Það stefnir hér allt í eymd og volæði vegna aflabrestsins og í ofanálag á nú að fremja enn einn stórþjófnaðinn í formi upptöku gengismunar. Sam- dráttur er verulegur orðinn hjá flestum fyrirtækjum og búið að segja bæði sjómönnum og land- mönnum upp í nokkrum mæli ... Nú er ástandið þannig hér í Grindavík, að flest fyrirtækin eru lokuð og menn geta ekki borgað laun, fasteignir lækka í verði og fólk er að flytja burt.“ Eðvarð Júlíusson segir enn- fremur: „Ætli það láti ekki nærri að af Reykjanessvæðinu verði hirt- ar um 60 milljónir í gengismun af saltfiski á sama tíma og ver- tíð hefur að miklu leyti brugðizt á svæðinu ... Verði gengismun- ur tekinn af okkur á hSnn auð- vitað að fara í verðjöfnunar- sjóð. Annað er ekki réttlætan- legt." Halldór Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, segir í viðtali við Morgunblaðið í gær, „að enginn ágreiningur væri innan ríkisstjórnarinnar um ráðstöf- un gengismunar". Þessi stað- hæfing kemur illa heim og sam- an við ummæli Ólafs G. Ein- arssonar, formanns þingflokks sjálfstæðismanna, en hann seg- ir orðrétt í viðtali við Morgun- blaðið sama dag: „Ég held að það sé kominn tími til að snúa af þeirri braut, sem uð höfum gengið í sambandi við gengis- munarsjóðinn og ætlast til þess af þessari ríkisstjórn, að hún taki tillit til þeirra aðstæðna, sem nú ríkja, bæði að því er varðar skreiðina og sérstaklega saltfiskinn ...“ ólafur greinir jafnframt frá því í Mbl. í dag að Sverrir Hermannsson, iðnað- arráðherra, hafi gert tillögu um það í ríkisstjórn að sama fjár- hæð og tekin verði af saltfisk- verkun í formi gengismunar renni í verðjöfnunarsjóð og komi þar atvinnugreininni til góða — og sú tillaga hafi verið studd af Matthíasi Á. Mathie- sen, viðskiptaráðherra. Morgunblaðið tekur undir orð formanns þingflokks sjálfstæð- ismanna og tillögu iðnaðarráð- herra. Pólitísk tilfærsla fjár- muna milli atvinnugreina er meira en vafasöm. Atvinnu- grein og fyrirtæki, sem hag- ræða fjárfestingu og rekstri hyggilega og stuðla að arðsemi fjármagns sem þau nýta, þ.e. skila meiru í þjóðarbúið en framleiðslan tekur til sín, eiga ekki að sæta refsingu 1 formi upptöku fjármuna í þágu ann- ars rekstrar eða fyrirtækja, sem skila neikvæöri rekstrarút- komu. Leiðin til bættra lífs- kjara liggur ekki í meðgjöf með taprekstri, heldur í þeirri verðmætasköpun framleiðslu sem er umfram tilkostnað. Réttlæta má tímabundna að- stoð, innan hófsemdarmarka, vegna óhjákvæmilegra sveiflna í sjávarútvegi, bæði í hráefnis- öflun og verðþróun á erlendum mörkuðum, en þar henta verð- jöfnunarsjóðir betur en bein fjármunatilfærsla milli at- vinnugreina. Aðstæður í salt- fiskverkun á líðandi stund, og raunar einnig í skreiðarverkun, réttlæta enganveginn opinbera blóðmjólkun þeirra í upptöku gengismunar, sem hefur orðið til hjá þessum rekstri. Það er kominn tími til, eins og for- maður þingflokks sjálfstæð- ismanna sagði efnislega, að snúa af braut slíkrar upptöku og pólitískrar millifærslu fjár- muna. „HANN hefur gengið illa, þetta er afar erfitt viö að eiga þegar þurrk- kaflarnir eru jafn stuttir og þeir hafa verið. Þetta hefur verið mara- þonvinna fram eftir allri nóttu þeg- ar gefið hefur. Ekki svoleiðis að maður sé að kvarta yfir því, það verður að nota hverja stund í svona þurrkleysi. Ég er tæplega hálfnaður með heyskapinn eins og málin standa í dag,“ sagði Jóhann Páls- son, bóndi í Dalbæ I í Hruna- mannahrcppi, í samtali við Mbl. er hann var spurður . Jóhann býr með 34 mjólkurkýr, en er með 70 gripi í fjósi auk nokkurra kinda. — Hvernig er sprettan? „Sprettan er ágæt en dálítið misjöfn á milli bæja. Þessar miklu rigningar hafa gert það að verkum að tún eru víða ófær og svo blaut að varla þornar um á einum þurrkdegi. Ég held að eins og sumarið hefur verið þá af- sanni það þær hugmyndir sumra um að hægt sé að spara verulega í áburðargjöf. Það sýnir sig í svona árferði að það þýðir ekki neitt. Ég rækta mikið grænfóður en það lítur afskaplega illa út með það, það sprettur illa. Lítið grænfóður gerir það að verkum að illa lítur út með mjólkur- framleiðsluna í haust, því venju- lega hefur mjólkurframleiðslan á haustin byggst mikið á græn- fóðrinu og hægt hefur verið að spara mikið hey á haustin með grænfóðurgjöf.“ — Hvernig verkar þú heyið? „Ég þurrka allt mitt hey en set grænfóðrið í vothey. Grænfóðrið er úrvals vothey, það er að vísu dýrt en mjög gott. En illa lítur út með það í ár, því miður." — Það er erfitt að vera bóndi í dag. „Já, svo sannarlega er það erf- itt að búa í dag, það hefur aldrei verið erfiðara. Það er fyrst og fremst vegna þess hve allar rekstrarvörur eru orðnar dýrar. Þar er skemmst að minnast_ áburðarverðsins. Ég tel að' áburðurinn sé orðinn hættulega dýr. Sumir bændur eru hættir að geta keypt hann og það er fyrsta skrefið hjá mönnum til að fara á hausinn. En einnig eru varahlut- ir, bensín og olíur orðið ákaflega dýrt.“ — Þú heldur að veðrið breyt- ist ekki? „Menn halda alltaf í vonina. En ef þessi mánuður líður eins og júlí þá fara menn að verða svartsýnir. En það er hægt að ná þessu upp á gífurlega stuttum tíma ef tækifæri gefst, en það kostar brjálæðislega vinnu. Enda er það allt í lagi, ekki fer ég neitt í burtu. Ég held að hann birti til á laugardaginn. Hann hlýtur að láta okkur hafa helgardjobb og síðan kemur nýtt tungl og þá hlýtur þetta að fara að lagast." Jóhann Pálsson bóndi í Dalbæ I í dyrun Heyskapurinn var í fullum gangi á bc miðvikudag er Ijósmyndari Mbl. átti þ viðsjárvert heyskaparveður. Visa ísland: Nýtt greiðslu- kortafyrirtæki VISA ÍSLAND heitir nýtt þjónustu- fyrirtæki á sviði greiðslukorta sem formlega hefur starfsemi sína á mánudag. Sameignarfélag 5 banka og þrettán sparisjóða sem að þjón- ustufyrirtækinu standa var stofnað 15. aprfl síðastliðinn. Jóhann Ágústsson, formaður stjórnar félagsins, sagði á fundi með blaðamönnum og öðrum sem stjórn félagsins skipa í gær, að til- gangur félagsins væri að annast útgáfu VISA-greiðslukorta, en þau verða fyrst í stað einungis til notkunar erlendis. Innan tiðar er síðan ætlunin að setja á markað alhliða greiðslukort, sem geta gilt jafnt innanlands sem utan. Félagið er aðili að Visa Intern- ational, sem að sögn Jóhanns, er stærsta og öflugasta greiðslu- kortafyrirtæki heims, með yfir 100 milljónir korthafa. Það er samstarfsvettvangur 14.000 banka og sparisjóða í 160 löndum, með yfir 130.000 útibú eða afgreiðslu- staði. Kort þess eru gjaldgeng hjá um 4 milljónum verslana og þjón- ustufyrirtækja um allan heim. Landsbanki íslands hefur síðan 1981 haft Visa-þjónustu með höndum, en Visa fsland tekur nú við henni. Kortin verða gefin út í nafni hvers aðildarbanka félags- ins, en sparisjóðirnir munu hafa sameiginíegt kort. Afgreiðslustað- ir Visa íslands eru 120 talsins, dreifðir um landið. Stjórn félagsins skipa: Jóhann Ágústsson, Landsbanka íslands, formaður, Sólon R. Sigurðsson, Búnaðarbanka íslands, varafor- Sýnishorn af nýja greiðslukortinu, Visa ísland. maður, Sveinn Hannesson, Iðnað- arbanka Islands hf., ritari, Jó- hannes Siggeirsson, Alþýðubank- anum hf., Margeir Daníelsson, Samvinnubanka íslands hf., og Sigurður Hafstein, Sambandi ísl. sparisjóða. Einar S. Einarsson, áður aðal- bókari Samvinnubankans, hefur verið ráðinn forstöðumaður Visa íslands. Stjórnarmenn Visa ísland kynna hið nýja fyrirtæki og þjónustu þess.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.