Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 27 Gjaldeyriskaup bankanna neikvæð um 1024 milljónir GJALDEYRISKAUP bankanna voru neikvæð um 1.024 milljónir króna fyrstu fimm mánuði ársins, þegar keyptur gjaldeyrir var samtals að fjárhæð um 8.543 milljónir króna, en seldur gjaldeyrir hins vegar að fjárhæð um 9.567 milljónir króna. Til samanburðar má geta þess, að gjaldeyriskaupin voru neikvæð um 1.024 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þá var verðmæti keypts gjaldeyr- is um 8.615 milljónir króna, en verðmæti selds gjaldeyris hins vegar um 9.637 milljónir krónav Á árinu 1982 voru gjaldeyr- iskaup bankanna neikvæð um samtals 1.172 milljónir króna, þegar keyptur gjaldeyrir var samtals að fjárhæð um 14.036 milljónir króna, en seldur gjaldeyrir hins vegar að fjár- hæð um 15.208 milljónir króna. Ef litið er enn lengra aftur í tímann, eða til ársins 1981, þá voru gjaldeyriskaup bankanna jákvæð um 401 milljón króna. Keyptur gjaldeyrir var sam- tals að fjárhæð um 9.244 millj- ónir króna, en seldur gjaldeyr- ir hins vegar um 8.843 milljón- ir króna. Hólmfríóur Gunnarsdóttir ||k fl Guðmundur Atlason Friðrik Óskarsson Hafskip: Starfsmenn sendir erlendis til starfa og þjálfunar í FRAMHALDI af opnum svæða- skrifstofa Hafskips hf. erlendis hafa nokkrir starfsmenn aðalskrifstofu félagsins verið sendir út til starfa og þjálfunar í alþjóðlegum viðskiptum, að sögn Jóns Hákonar Magnússon- ar, framkvæmdastjóra markaðs- og flutningasviðs Hafskips. Nú í sumar var t.d. Hólmfríður Gunnarsdóttir flutt úr farm- skrárdeild Hafskips til starfa á skrifstofunni í Kaupmannahöfn, þar sem hún er fulltrúi Árna Árnasonar, framkvæmdastjóra. Hólmfríður er 25 ára og hefur starfað hjá Hafskip í ýmsum deildum síðan 1979, en áður var hún hjá Landssambandi iðnað- armanna. { júní sl. var Guðmundur Atla- son sendur til starfa í skrifstofu Hafskips U.K. í Ipswich í Bret- landi. Guðmundur er 25 ára og hefur starfað í tjónadeild félags- ins síðan í maí 1981. Hann er full- trúi framkvæmdastjóra Hafskips í Ipswich. Guðmundur og Hólmfríður hafa einnig það hlutverk að aðstoða þá viðskiptavini félagsins, sem vilja eiga aðgang að íslenskumælandi fulltrúum Hafskips erlendis. Þá var umboðsmaður Hafskips í Vestmannaeyjum, Friðrik óskars- son, sendur í starfsþjálfun til Ipswich í byrjun sumars og fram í lok ágúst. Friðrik er 35 ára og rek- ur Skipaafgreiðslu Friðriks Óskarssonar í Vestmannaeyjum, en hann hefur verið umboðsmaður Hafskips þar síðan 1974. Tilgang- urinn með þessu er að gefa Friðrik kost á að kynna sér starfssemi skipafélags á erlendri grundu og alþjóðleg viðskipti. Áður en Frið- rik snýr til Eyja heimsækir hann einnig skrifstofu Hafskips hf. í Hamborg. „Hestabit er hagabót“ Sigurvegari f gæðingakeppni á Rangárbökkum 1983. — eftir Gunnar Bjarnason ráðunaut — svo hét bæklingur, sem Magnús sýslumaður Ketilsson, systursonur Skúla fógeta, samdi og lét dreifa um landið um aldamótin 1800. Mér kom þetta til hugar, er allt fjölmiðlamold- viðrið um hrossabúskap okkar ís- lendinga hófst núna í júlímánuði, eftir að fréttastofa Ríkisútvarpsins hafði haft samtal við mig um hesta- mennsku og hrossarækt þ. 14. júlí, og finnst mörgum að tilefnið, sem ég gaf með ummælum mínum, hafi ver- ið harla lítið til þessara hamfara. Mig langar til að benda á nokk- ur atriði í þessu sambandi lands- mönnum til íhugunar. 1. Ég tel ekki ástæðu til að fara mjög mörgum orðum um útflutn- ingsbann á kynbótahestum og kynbótahryssum, sem er mikið áhugamál hrossa- ræktarráðunautsins. Morgunblað- ið birti samtal við mig um þetta á fyrra ári, og upplýsti ég þar, að íslenzki hrossastofninn erlendis er nú orðinn hart nær 40 þúsundir í 10 löndum Evrópu utan íslands. Erlendu „auðkýfingarnir" virðast fara í taugarnar á hrossa- ræktarráðunautnum, en þeir virð- ast ekki ergja hrossabændur og aðra hrossaseljendur svo mjög. Ég á bágt með að trúa því, að einangrun okkar í þessu landi valdi almennt slíkri forheimskun, að menn telji það fært eða æski- legt að mynda hér einhverskonar „BRIMTJALD" (sbr. Járntjald) umhverfis landið í þessum efnum, en það hefur Búnaðarfélag íslands undir forystu hrossaræktarráðu- nauts síns raunar gert nú síðustu 2 áratugina. Þegar heimurinn hefur gert sér grein fyrir, að einhver búfjárteg- und býr yfir æskilegum og óvenju- legum hæfileikum, þá sækjast þjóðirnar eftir að fá undaneldis- dýr af þessum kynjum. Ef slíkt er gert ómögulegt af eigendum kynj- anna, þá leita menn uppi lík og skyld kyn og rækta fram þessa eiginleika. Ef við hefðum strax í upphafi hrossaútflutnings, árið 1856, sett útflutningsbann á æxl- unarhæf hross, þá hefðu unnendur íslenzkra reiðhesta nú á síðustu þremur áratugum, eftir að mér hafði tekizt að kenna þeim að meta gæðingskosti íslenzku hross- anna, notað Shetlandseyja-hesta, Exmoor- eða Wales-hesta til að rækta þessa eiginleika, ef við hefðum aðeins selt þeim geldinga í þessi 100 ár, sem við höfum selt hross til útlanda. Þessir hrossaverndar-spekingar geta á málfundum sínum velt því fyrir sér, hverju við íslendingar töpum, þótt nágrannaþjóðir okkar á meginlandinu eignist gæðinga undan Stíganda frá Kolkuósi, Mósa frá Álfhólum eða öðrum „Við eigum að starfa með eigendum og unn- endum íslenskra hesta hvar sem er í heiminum, fræða þá og aðstoða til að rækta og framleiða gæðinga. Slíkt verkefni á engin landamæri, eng- in járntjöld.“ góðum kynbótahestum, sem við höfum selt þeim, án þess að neyða nokkurn hestabónda til viðskipt- anna. Stefna mín er landsmönnum kunn og ekki flókin í túlkun: Vió eigum að starfa með eigend- um og unnendum íslenzkra hesta hvar sem er í heiminum, fræða þá og aðstoða til að rækta og framleiða gæðinga. Slíkt verkefni á engin landamæri, engin járntjöld. Gæð- ingakynið okkar er hluti af ERFÐA- FJÁRSJOÐI evrópskrar náttúru, og við getum orðið stórir í samstarfi við aðrar þjóðir um gæðingarækt og ástundun þessarar gæðinga-íþróttar, en ef við ætlum að sýna á okkur „nautshausinn og hornin“, þá verð- um við litlir og vesældarlegir búrar. Vel getur svo farið, að Þjóðverj- ar eða annarra þjóða hestarækt- endur taki af okkur forystuna í lengri eða skemmri tíma. Þá er aðeins við okkur sjálfa að sakast. Þá getur verið að ræktunarforysta okkar sé ekki nógu vel af Guði gerð, eða þjóðina og stjórnvöld hennar skorti skilning á þessum menningarþætti landsins. Þá þarf að athuga málin og finna leiðir til að gera betur. Arabar létu Eng- lendinga og seinna aðrar þjóðir taka forystu um ræktun arabíska gæðingsins. Við skulum reyna að vera meiri og betri ræktunarmenn en Arabar. 2. Um hrossaeign landsmanna, fóðurþarfir hrossa og hrossabeit, vil ég benda á eftirfarandi: a. Varla eru hrossabændur slík- ir fávitar, að þeir kunni ekki sjálf- ir að meta, hvaða bústofn er þeim hagkvæmastur. Fyrir einum 40 árum hefði Búnaðarfélag íslands haldið haustfundi í hrossahéruð- um til að ræða þessi mál við bændur, áður en gefnar væru út yfirlýsingar um niðurskurð á verðmætum bústofni. b. Þótt ýmsum búfræðingum finnist lítið til um 6—700 tonna framleiðslu og neyzlu hrossakjöts í landinu, þá mega skattgreiðend- ur þó gjarnan hugleiða, að þar koma engar niðurgreiðslur úr vasa þeirra inn í dæmið. Það sama snýr að skattgreiðendum, þegar um út- flutning lífhrossa er að ræða, þá þurfa þeir heldur engar útflutn- ingsbætur að greiða, en þær eru frá helmingi verðs upp í % hluta, þegar um er að ræða útflutning sauðfjár- og nautgripaafurða. c. Það hefur ekki heldur verið tekið með í dæmið í þessum um- ræðum, að um 20.000 reiðhross í landinu eru fóðruð á um 20 þús. tonnum af heyi. Sl. vetur var þetta verðmæti upp á einar 45 millj. króna. Hverjir ætli hafi selt þetta hey? Varla Dagsbrúnar-verka- menn eða sjómenn. Auk þess munu hafa verið greiddar milljón- ir króna fyrir sumarbeit á rækt- uðu landi. d. Enn má þjóðin íhuga, að í hvert skipti, sem hross tekur hey- fóður eða haga á láglendi af mjólkurkú eða sauðkind, lækka framlög skattgreiðenda til út- flutningsuppbóta, og auk þess má telja víst, að fjöldi af þeim hundr- uðum manna, sem njóta hér sumarferðalaga á hestum um landið, myndi að öðrum kosti nota gjaldeyri til utanferða. e. Menn mega íhuga þá stað- reynd, að nú eru skrásettir um tvöfalt fleiri reiðhestaeigendur í landinu en bændur. Að síðustu vil ég varpa fram þessari ósvöruðu spurningu: Ef fósturjörðinni blæðir nú meir en á fyrri og verri harðindaskeiðum, hver heldur þá sannanlega á þeim hnífnum, sem stungið er næst hjartanu?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.