Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón: Sighvatur Blöndahl Súlur með jákvsðu formerki tákna hlutdeild (%) fyrirtækja í könnuninni, sem telja viðkomandi rekstrarþátt hafa aukist frá sama ársfjórðungi árið áður. Súlur með neikvsðu formerki tákna hlutdeild fyrirtskja í könnuninni, sem telja viðkomandi rekstrarþátt hafa minnkað. Skástrikuðu súlurnar sýna mismun ofangreindra svara þ.e. nettóniðurstöðuna. Spá fyrirtskjanna um 3. ársfjórðung 1983 miðað við 2. ársfjórðung. Framleiðslusam- dráttur í iðnaði á 2. ársfjórðungi NÝLEGA lauk ársfjórðungslegri könnun Félags íslenskra iðnrekenda og Landssambands iðnaðarmanna á ástandi og horfum í íslenskum iðn- aði á 2. ársfjórðungi 1983. Könnunin nsr til 73 fyrirtskja í 20 greinum iðnaðar. eru fyrirtski þessi með samanlagt rúmlega 22% heildarveltu iðnaðar. Forráðamenn fyrirtskjanna voru spurðir um framleiðslu- og söl- umál, ásamt áliti þeirra á þróun nokkurra mikilvsgustu rekstrar- þátta iðnaðar. Vísbending um átt breytinga f stað magns var í flestum tilvikum látin nsgja, og er könnunin því „kvalitatív" fremur en „kvantitatív". Helstu niöurstöður Hagsveifluvog iðnaðarins sýnir m.a. að: — Framleiðslusamdráttur var hjá iðnaðinum í heild, en ef ál er undanskilið var nokkur framleiðsluaukning. — Söluaukning átti sér stað hjá 68% aðspurðra, en samdráttur hjá aðeins 16%. — Forsvarsmenn iðnfyrirtækj- anna spá aukinni sölu og fram- leiðslu innlendra iðnaðarvara á næstu 3 mánuðum. — Birgðir iðnaðarvara eru lægri en á 1. ársfj. — Nýting afkastagetu er betri og heildarfjöldi starfsmanna i iðnaði meiri. — Áætlaður starfsmannafjöldi iðnfyrirtækjanna er óbreyttur næstu 3 mánuði. Sala — markaóshorfur Hagsveifluvogin sýnir sölu- aukningu á 2. ársfj. í ár miðað við sama tímabil á árinu 1982. Þannig telja 68% aðspurðra að salan hafi aukist hjá fyrirtækjum þeirra, en um 16% telja söluna hafa dregist saman. Hins vegar telur meiri- hluti aðspurðra, eða um 56%, að salan á tímabilinu apríl—júní hafi verið minni en 3 fyrstu mánuði ársins. Þess ber þó að geta, þar eð ál vegur nokkuð þungt í þessari könnun, að án áls er um söluaukn- ingu að ræða milli þessara tíma- bila. Um markaðshorfur á næstu 3 mánuðum eru forsvarsmenn iðn- fyrirtækjanna nokkuð bjartsýnir, 58% þeirra spá söluaukningu, en 9% spá sölusamdrætti á tímabil- inu júlí—september. Iðnaðarf ramleiðsla Samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar drógst heildarfram- leiðsla iðnaðarvara saman á 2. ársfjórðungi í ár í samanburði við framleiðsluna á 2. ársfj. í fyrra. Þannig telja 57% aðspurðra að framleiðslan hafi dregist saman, en 26% að um framleiðsluaukn- ingu hafi verið að ræða. Sé ál- framleiðslan hins vegar undan- skilin verður útkoman sú, að 46% aðspurðra telja framleiðsluna hafa aukist, en 24% framleiðsluna hafa dregist saman og má því samkvæmt þessu ætla að um framleiðsluaukningu hafi verið að ræða á 2. ársfj. í almennum iðnaði. Við samanburð á umfangi fram- leiðslunnar á 1. og 2. ársfj. í ár, kemur fram framleiðsluaukning samkvæmt hagsveiflukönnuninni. Þannig telja um 70% forsvars- manna iðnfyrirtækjanna fram- leiðsluna meiri á 2. ársfj. en á þeim fyrsta, en aðeins um 11% telja framleiðsluna minni. Framleiðsluhorfur eru taldar betri á næstu 3 mánuðum hjá meirihluta fyrirtækjanna í könn- uninni. Nánar tiltekið spá 54% að- spurðra framleiðsluaukningu, en 17% framleiðslusamdrætti. Atvinna og aðrir rekstrar- þættir iðnaðar í lok 2. ársfj. teljast fyrirliggj- andi framleiðslupantanir í iðnaði meiri en í lok 1. ársfj. Þá voru birgdir fullunninna vara og hráefna minni en í lok 1. ársfj. Jafnframt telja forsvarsmenn iðnfyrirtækj- anna að nýting afkastagetunnar hafi verið betri á 2. ársfj. í ár en á þeim fyrsta. Spurðir um fjölda starfsmanna, svara 55% aðspurðra, að starfsmannafjöldinn hafi auk- ist á tímabilinu apríl—júní. Að- eins 9% telja að starfsmönnum hafi verið fækkað. Þá kemur fram, að fjöldi starfsmanna í iðnaði á næstu 3 mánuðum er áætlaður óbreyttur samkvæmt skoðun 87% aðspurðra. | Innlan | Almenn ullan | Lndurseid lan 1978 1978 1980 1981 1982 Hlutfallsleg skipting út'ans Útvegsbankans 31.12. 1982. OPINBtRIR AOILAR SAMGÖNOUR tíVGOINGAH Otí LAN TIL LINSIAKLINtíA Innlán Útvegsbankans jukust um 66,1% 1982 Útlánaukningin var um 128,7% HEILDARINNLÁN Útvegsbanka íslands jukust um 66,1% á árinu 1982 og er það nokkru meiri aukn- ing en nam meðaltalsaukningu inn- lána viðskiptabankanna, sem var 59,8%. Þessar upplýsingar koma fram í ársskýrslu bankans, sem ný- lega var birt. Eins og áður jukust mest þau innlán, sem mesta ávöxtun gefa, en það eru verðtryggðir spari- reikningar og gjaldeyrisreikn- ingar. Innlán á gjaldeyrisreikn- ingum hækkuðu um 207,3% og á verðtryggðum sparireikningum um 176%. Innlán á almennum sparisjóðsbókum jukust um 42,6% og veltiinnlán hækkuðu aðeins um 25,4%. Annars sýnir meðfylgjandi tafla glögglega hver þróunin var. Heildarútlán Útvegsbankans jukust á árinu um 743,2 milljónir króna, eða um 128,7%. Árið 1981 hækkuðu útlán hins vegar aðeins um 45,1%. Útlán viðskiptabank- anna í heild jukust á síðasta ári um 91,6%, en árið á undan hækk- uðu þau um 76,1%. Heildarútlán Útvegsbankans á endursölu í Seðlabanka jukust um 117,8%. í ársskýrslunni segir, að þessi mikla útlánaaukning endurspegli í raun hina miklu erfiðleika atvinnuveganna og þá alveg sér- staklega sjávarútvegs. Eins og kemur fram á meðfylgjandi töflu jukust útlán bankans til sjávar- útvegs um 355,7 milljónir króna, eða um 132,1%. Hlutfallslega hækkuðu útlán hins vegar mest vegna olíuverslunar, eða um 319,4%, sem er 96,6 milljónir króna. Stafar sú hækkun að miklu leyti af skuldasöfnun sjávarút- vegsfyrirtækja. I ársskýrslunni segir að svoköll- uð sjálfvirk og óhjákvæmileg lán í bankanum hafi hækkað um 373,6 milljónir króna á árinu. „Þessi lán verður bankinn að veita án tillits til útlánagetu hans. Ef öll önnur lán bankans hefðu staðið í stað og GUÐNI Sigþórsson hefur verið ráðinn vöruafgreiðslustjóri Eim- skips frá og með 27. ágúst nk. Guðni tekur við af Ingólfi Möller, sem lætur af störfum fyrir aldurs sakir. Ingólfur Möller hefur gegnt starfi vöru- afgreiðslustjóra sl. 14 ár. Guðni Sigþórsson hefur starf- að hjá Eimskipafélaginu undan- einungis orðið þessi hækkun, hefðu útlán bankans án endursölu samt sem áður hækkað um 84,4%. Ljóst er að það hlýtur að valda erfiðleikum þeim bönkum, sem að- allega sjá atvinnulífinu fyrir rekstrarfé, að mikill hluti útlán- anna er í raun orðinn sjálfvirkur. Virðist vera orðið tímabært að taka til endurskoðunar reglur um Skipting útlána Aukniog Siavarutvequr 132,1% Kaupmenn 115,2% Oliuverslun 319.4% Samvmnufélog 76.9% lónaöur 108.5% Byggmgar og mannvirkiagerð 126.3% I Samgongur 90,5% j Opmberir aóilar 100.1% j Lán til emstaklinga u fl 91.2% Heildarútlán 128,7% ] Skipting innlána Aukfúrtf Veitiinnlán 25,4% Hlaupareikningar 22,3'/« Sparisjódsávlsanareikningar 34,2% Spariinnlán 65,2% Sparisióósbækur 42,6% Vaxtaaukareikningar, 3 mán (9,1 %) Vaxtaaukareikningar, 12mán. (4,7%) Vlsitölubundnar innstæóur 176.0% Gjaldeyrisreikningar 207,3% Heildannnlan 66,1% ] afurðalán þannig, að lánin dreifist meira á allar innlánsstofnanir í landinu." f upphafi árs 1982 var lausa- fjárstaða Útvegsbankans vel við- unandi en í marsbyrjun versnaði hún og hélt áfram að versna til áramóta. I ársbyrjun var lausafjárstaða bankans jákvæð um 36 milljónir króna, en í árslok neikvæð um 83,9 milljónir króna. farin 14 ár, fyrst sem stýrimaður á skipum félagsins og síðar sem verkstjóri í vöruafgreiðslu. Hann hefur gegnt starfi yfir- verkstjóra frá árinu 1977. Guðmundur Pedersen, sem gegnir starfi deildarverkstjóra, mun verða næsti aðstoðarmaður vöruafgreiðslustjóra og stað- gengill í fjarveru hans. Rekstrarniðurstaða ársins 1982 var neikvæð um 13,2 milljónir króna og er þá búið að afskrifa 3,4 milljónir króna af eignum hans. „Hafa ber þó í huga að reiknuð er nú í fyrsta sinn verðbreytingar- færsla sem er 33,3 milljónir króna og er hún færð til gjalda í rekstr- arreikningi. Árið 1981 varð um 24,2 milljóna króna hagnaður af rekstri bankans. Að óbreyttum reiknisskilaaðferðum frá fyrra ári hefði rekstrarhagnaður ársins 1982 numið um 15,8 milljónum króna." Þá greiddi Útvegsbankinn á síð- asta ári 5 milljónir króna í sér- stakan skatt, sem lagður var á síð- asta ári á innlánsstofnanir, en honum verður breytt á þessu ári í tekjuskatt. Eigið fé bankans í árs- lok var 195,9 milljónir króna og nam það 7,1% af niðurstöðutölum ef nahagsreikni ngs. Svíþjóð: Fjárfesting eykst um 4,6% í iðnaði Heildarfjárfesting í sænskum iðnaði er áætluð um 18,200 millj- ónir sænskra króna á þessu ári, en til samanburðar var hún lið- lega 17,400 milljónir sænskra króna í fvrra. Aukningin milli ára er um 4,6%. Fjárfesting í sænskum iðn- aði dróst hins vegar saman um 17% milli áranna 1981 og 1982, þannig að heldur virðist vera að rofa til þar í landi. Talsmað- ur iðnrekenda sagði á fundi með blaðamönnum á dögunum, að væntanlega yrði ástandið í sænskum iðnaði ekki komið í eðlilegt horf fyrr enn á miðju næsta ári, en heildarfjár- festing muni væntanlega aukast um 7-10% á næsta ári. Eimskip: Guðni Sigþórsson ráð- inn vöruafgreiðslustjóri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.