Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 Hjartans þakkir sendi ég öUum þeim, sem á einn eða annan hútt glöddu mig á nírœðisafmœli mínu 25. júlí sL Hávarður Helgason, Seyðisfirði. Kennaranámskeið Rauöi kross íslands heldur kennaranámskeiö í al- mennri og aukinni skyndihjálp dagana 20.—31. ágúst. Kennt verður í kennslusal RKÍ, Nóatúni 21, 2. hæö. Kennslan fer fram frá kl. 09—17 alla daga nema sunnudaga. Námskeiösgjald er kr. 2.800. Þátttaka tilkynnist í síma 26722. Rauöi kross íslands Til sölu I Honda Accord EX, árg. 1981, rauösans., ekinn ; aöeins 18 þ.km. jStóðvegnafjar- 1 veru ónotaður í bílskúr í meira en ár og þannig í reynd aöeins 1 árs gamall. Óvenjufallegur bíll. Verö aöeins 275 þús. Til sölu og sýnis á Borgarbílasölunni, Grensásvegi 11. L-300 MINI BUS 9 MANNA verð kr. 371.000 (Gengl 5.7'83) HEKIAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir BJÖRN BJARNASON í þennan hóp vill norski llægriflokkurinn að Norómenn komist — en þó ekki fyrr en eftir 10 til 20 ir. Myndin sýnir hluta fundarmanna þegar leiðtogar Evrópubandalagsins hittust nýlega. í fremstu röó röð: Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, Francois Mitterrand, Frakklandsforseti, og Gaston Thorn, forstjóri Evrópubandalagsins. Noregur og Evrópubandalagið NEFND Á vegura norska Hægriflokksins hefur samið álitsgerð um afstöðu Noregs til Evrópubandalagsins (Efnahagsbandalags Evrópu). Niðurstaða nefndarinnar hefur verið túlkuð i þann veg, að Hægri- flokknum sé kappsmil að Noregur gerist aðili að bandalaginu. Við- brögðin við þessari túlkun urðu i þann veg meðal annars hji samstarfs- flokkum hægri manna í rfkisstjórn Noregs, að talsmenn Hægriflokks- ins hafa lagt i það iherslu að það sé markmið flokksins að flýta sér hægt í þessu máli. Líta beri i ilitsgerð flokksnefndarinnar sem vís- bendingu um það sem kunni að gerast á næstu 10 til 20 irum. Forystugrein Aftenposten um þetta mál ber yfir- skriftina „Ótímabær agúrka" og vísar til þess að málið hafi verið blásið út i fjölmiðlum vegna fréttaleysis á sumarleyfistíma. Hvað sem því líður og áhrifum skýrslunnar á norsk stjórnmál er athyglisvert að kynnast þeim rökum sem vega þyngst hjá flokksnefnd hægri manna, en aðildin að Evrópubandalaginu hefur verið meðal viðkvæmustu mála í norsku stjórnmálalífi síð- an meirihluti Norðmanna hafn- aði þátttöku í bandalaginu í þjóðaratkvæðagreiðslu 1972. Nefndin leggur áherslu á þrjú meginatriði: Aukið stjórnmála- samstarf Evrópubandalagsþjóð- anna, tilhneigingu innan banda- lagsins til að styrkja innri markað og hættuna af því fyrir frjáls milliríkjaviðskipti og þörf olíuframleiðslulandsins Noregs fyrir nánari orkusamvinnu við bandalagsríkin. Telur nefndin að Norðmenn geti því aðeins leyst jæssi mál með viðunandi hætti að þeir gerist aðilar að Evrópubandalaginu. Stjórnmálasamstarf Evrópu- bandalagsþjóðanna hefur þróast utan ramma Rómarsáttmálans sem er stofnsamningur Evrópu- bandalagsins (EB). Á áttunda áratugnum hefur stjórnmála- samstarfið orðið mikilvægasti samstarfsvettvangur ríkjanna í utanríkismálum við hlið Atl- antshafsbandalagsins. Er það samdóma álit allra sem líta yfir samstarf aðildarríkja EB und- anfarin ár, að það hafi gengið mun betur að móta sameiginleg viðhorf til mikilvægra alþjóða- mála en efnahagsmála, þar sem ríkin takast á um stórt og smátt. Norðmenn hafa af því áhyggjur, að þeir kunni að standa utan við mikilvægar ákvarðanir í utanríkismálum sem snerta hagsmuni þeirra og öryggi fái þeir ekki einhvers konar aðild að stjórnmála- samstarfi EB. Um það grund- vallarviðhorf er ekki ágreining- ur milli norskra stjórnmála- flokka. Svenn Stray, utanríkisráð- herra Hægriflokksins, tókst að ná samkomulagi við stjórnar- nefnd EB um að með óbeinum hætti fylgdust norsk stjórnvöld með ákvörðunum sem teknar eru á fundum utanríkisráðherra EB-landanna. Nefnd Hægri- fiokksins telur að þetta samkomulag sé ekki nægilega víðtækt, ekki sé við því að búast að frá Noregi geti áheyrnar- fulltrúar tekið þátt í fundum EB um alþjóðamál og aukaaðild að bandalaginu sé útilokuð. Aðeins full þátttaka Norðmanna í Evr- ópubandalaginu tryggi þeim nægan rétt í stjórnmálasam- starfinu. Flokksnefndin bendir á að það kunni að verða hættulegt fyrir norsk iðnfyrirtæki sem fram- leiða fyrir EB-markað að iðnað- arstefna bandalagsins sem er í burðarliðnum tekur talsvert mið af gagnkvæmum forréttindum EB-ríkjanna. Þrátt fyrir frí- verslunina geti Norðmenn lent í samkeppnierfiðleikum í EB- löndunum vegna þeirra hindr- ana sem í slíkum forréttindum felast. Og þá sé þess tæplega að vænta að möguleikar Norð- manna til að selja fisk í EB- löndunum verði rýmri. f við- skiptum standi Norðmenn því aðeins jafnfætis samkeppniaðil- um innan bandalagsins að þeir gerist aðili að því. Nefnd Hægriflokksins bendir á þá staðreynd að þegar Norð- menn ákváðu að hafna aðild að EB hafi olíuvinnsla undan ströndum lands þeirra ekki ver- ið byrjuð. En olían hefur aukið þörfina fyrir náið samstarf milli Norðmanna og EB-þjóðanna. Þar séu gagnkvæmir hagsmunir í húfi sem leiði óhjákvæmilega til nánari tengsla í efnahags- og stjórnmálum. „Þróun orkumála auk stöð- unnar í öryggismálum kann að ráða mestu um breytingar á nú- verandi tengslum og samvinnu milli Noregs og EB-landanna. Þegar fram líða stundir kunna orkumálin að stuðla mest að því að Noregur takist á herðar meiri skuldbindingar í efna- hagssamvinnu við EB, jafnvel með aðild að bandalaginu," segir nefnd Hægriflokksins. Eins og áður segir vakti nefndarálitið mikla athygli þeg- ar það var birt. Til að lægja öld- urnar efndi nefndin til fundar með blaðamönnum. Nefndarfor- maðurinn, Thor Knudsen, þing- maður, lagði á það áherslu að nefndin væri að ræða atburði sem kynnu að gerast á næstu 10 til 20 árum. Alit hennar væri lagt fram til að menn gætu rætt einstakar hliðar málsins með eitthvað í höndunum. Málið verður nú tekið fyrir á fundum innan Hægriflokksins en ekki lagt fyrir landsfund hans fyrr en 1985. f næstu stórþingskosn- ingum verður því meðal annars tekist á um þetta mál og nefnd á vegum stærsta stjórnarand- stöðflokksins, Verkamanna- flokksins, vinnur einnig að at- hugun þess.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.