Morgunblaðið - 06.08.1983, Page 19

Morgunblaðið - 06.08.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 19 Suður-Kóreumenn sökktu njósnaskipi Seoul, 5. ágúst. AP. TALSMAÐUR ríkisstjórnar Suð- ur-Kóreu tilkynnti í dag, aö varð- bátar landsins hefðu sökkt norður- kóresku njósnaskipi með aðstoö flugvéla og landsveita undan ströndum Suður-Kóreu. Veður víða um heim Akureyri 18 skýjaö Amsterdam 20 skýjaó Aþena 32 heiöskírt Barcelona 27 hálfskýjaó Berlín 14 rigning BrUssel 23 skýjaö Chicago 30 skýjaö Frankfurt 24 rígning Feereyjar 12 skýjaó Hong Kong 32 heiðskírt Jerusaiem 29 heiöskfrt Jóhannesarborg 21 heiðskírt Kaupmannahöfn 19 skýjaö Kairó 36 heióskfrt Las Palmas 25 léttskýjaó Ussabon 27 heióskfrt London 24 heiöskírt Los Angeles 31 heióskirt Madríd 33 skýjaö Miami 30 þungbúiö Moskva 27 heiðskfrt Nýja Delhi 34 skýjaó New York 31 rigning Osló 18 heióskfrt Paris 24 heiöskfrt Perth 19 heiöskfrt Reykjavík 10 úrk. f grennd Rio de Janeiro 21 skýjaö Róm 30 heióskfrt San Francisko 22 heiöskfrt Stokkhólmur 22 rigning Sydney 17 hsföskfrt Tel Aviv 30 heiöskírt Tókíó 34 heiöskírt Vancouver 22 skýjað Vín 16 rigning Varsjá 18 skýjaó Skipið var á siglingu til strand- arinnar Wolsong um 300 km suð- austur af Seoul, er varðmenn komu auga á það. Kjarnakljúfur er um 5 km í suður frá ströndinni. Talsmaður varnarmálaráðu- neytisins kvað ekki ljóst, hvort kjarnakljúfurinn hafi verið skotmark njósnaskipsins eða ekki. Það reyndi að koma köfur- um í land, en tilraunin mistókst. Lee Ki-Baek hershöfðingi, yfir- maður gagnnjósnastofnunar Suður-Kóreu, sagði hermenn landsins hafa fundið lík þriggja norður-kóreskra kafara. Þá hefði fundist fjarskiptabúnaður til notkunar neðansjávar, gúmbátur, skotfæri og e.k. eiturnálar í braki njósnaskipsins. Síðar í dag fannst lík eins kaf- ara í viðbót og kvað talsmaður varnarmálaráðuneytisins enn leitað að „kommúnistalíkum". Ekkert mannfall varð í liði Suð- ur-Kóreu. Þetta er í annað sinn síðan 19. júni, sem útsendarar komm- únistastjórnarinnar láta til sín taka. Þrír vopnaðir kafarar kom- ust inn í Suður-Kóreu 19. júní, en voru handteknir og síðan skotnir. Chun Doo-Hwan forseti lands- ins kvað kommúnistastjórnina reyna að rýja landið trausti, en síðar í ár eru ráðgerðir ýmsir al- þjóðlegir fundir í Suður-Kóreu. Eldar í Frakklandi Miklir skógareldar hafa að undanfornu geisað við Miðjarðarhafsströnd Frakklands. Hafa mörg þúsund hektarar lands eyðilagst í eldunum. Hvass vindur hefur gert slökkviliðsmönnum erfitt um vik. Verða þeir Kasparov og Smyslov dæmdir úr leik? Moskvu, 5. ágúst. AP. SOVÉSKA skáksambandið lagði til í morgun, að hinir fjórir þátttakendur í undanúrslitaeinvígjum áskorendakeppninnar um heimsmeistaratitilinn í skák og viðeigandi skáksambönd settust á rökstóla til þess að ákveða nýja keppnisstaði. stórmeistarinn Ribli myndu þá tefla um réttinn til að mæta heimsmeistaranum, Anatoly Karpov, í áskorendaeinvígi um heimsmeistaratitilinn. Stuttfréttir Þingið bannar flokk Tamila ('olombo, 5. ágúst. AP. ÞINGIÐ á Sri Lanka samþykkti í morgun, með 150 atkvæðum gegn engu, stjórnarskrárbreytingu, sem bannar starf stjórnmálaflokks Tam- ila, sem krefst aðskilnaðar við Sinh- ala og stofnun sérstaks ríkis. Ranasinghe Premadasa forsæt- isráðherra bar fram frumvarpið, en flokkur hans, Sameinaði þjóð- arflokkurinn (UNP), hefur 139 þingsæti af 168. Fulltrúar flokks Tamila á þingi mættu ekki til um- ræðna auk þess sem fulltrúi kommúnista og forsætisráðherr- ann greiddu ekki atkvæði. Enn eitt flugránið Miami, 5. ágúst. AP. FLUGI 236 DC-8 þotu bandaríska flugfélagsins Capitol Airlines frá San Juan í Puerto Rico til Miami var rænt í gærkvöldi og snúið til Kúbu. Þetta er í þriðja skipti, sem flugvél Capitol-flugfélagsins er rænt í ár og jafnframt níunda flugránið, sem framið er frá því 1. maí sl. Þá eru ótalin tvö rán, sem misheppnuðust, er farþegar yfir- buguðu flugræningja. Atvinnuleysi minna í júlí Washington, 5. ágúst. AP. Atvinnumálaráðuneyti Banda- ríkjanna tilkynnti í dag, að fjöldi at- vinnulausra þar í landi hefði í júli sl., í fyrsta sinn í langan tíma, verið minni en 10% vinnuhæfra. , Ráðuneytið kvað 9,5% vinnuhæfs fólks hafa verið atvinnulaust í júli. í tíu mánuði hefur tala atvinnulausra verið yfir 10%, en nú er fjöldi þeirra orðinn sá sami og var í júní í fyrra. í desember 1982 voru 12 milljónir Bandaríkjamanna atvinnulausar. Þar af hafa nú 1,7 milljónir fengið atvinnu. Ráðamenn eru bjartsýnir á það, að efnahagsbati leiði til fjölg- unar starfsmanna fyrirtækja eins og raunin er nú. Þeir hafa þó varað við því, að slíkt sé bundið við það, að vextir í Bandaríkjunum hækki ekki. Sovétmenn eiga fulltrúa í báð- um einvígjunum og báðir hafa neitað að tefla á mótsstöðunum, sem ákveðnir höfðu verið, Pasa- dena og Abu Dhabi. Borgaryfir- völd í Abu Dhabi drógu tilboð sitt til baka er ljóst var, að sovéski stórmeistarinn Smyslov sætti sig ekki við mótsstaðinn. Dæmdur Kalmar, 5. ágúst. AP. PÓLSKUR skipstjóri, sem skaut á eftir háseta sínum, sem synti frá borði til sænsku strandarinnar 11. júlí sl. og bað um hæli sem pólitískur flóttamaöur, var í dag dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa stofnað lífi hásetans í hættu. Atvikið átti sér stað, er skipið var á siglingu nærri Kalmar í Svíþjóð. í fangelsi Skipstjórinn sagði sér til máls- bóta, að hefði hann ekkert að- hafst, hefði beðið hans allt að tíu ára fangelsisdómur í Póllandi. Hann mun hafa skotið 5—8 skot- um að skipverjanum. Eitt þeirra skall í sjóinn nærri höfði hans og annað nærri sjópokanum. Þessi tillaga sovéska skáksam- bandsins er fram komin til þess að reyna að taka fram fyrir hendurn- ar á FIDE, alþjóðaskáksamband- inu. Sovétmenn hafa tilkynnt, að skákstjarna þeirra, Garri Kasp- arov, muni ekki mæta til leiks gegn Victor Korchnoi í Pasadena. Segja þeir öryggi Kasparov ekki nægilega tryggt í Pasadena, auk þess sem þar sé of heitt. Framkvæmdastjórn FIDE ákvað á fundi um sl. helgi, að hvika hvergi frá fyrri ákvörðunum sínum um mótsstaði, þ.e. Pasa- dena og Abu Dhabi. Florencio Campomanes, forseti FIDE, sagði í viðtali við júgóslavneskt dagblað í gær, að Sovétmenn gætu sjálfum sér um kennt og þeir hefðu tvo daga til þess að skipta um skoðun. Samkvæmt reglum FIDE verða þeir Kasparov og Smyslov dæmdir úr leik ef þeir mæta ekki til ein- vígjanna. Korchnoi og ungverski Afleiðing uppljóstrunar starfsmanns leyniþjónustunnar: Njósnakerfi Kúbumanna í Bandaríkjunum lamað Miami, 5. ágúst. AP. STARFSKMI kúbönsku leyniþjónust- unnar í Bandaríkjunum er nú öll í molum, að því er blöð í Miami segja. Skýringin er sú, að einn starfsmanna leyniþjónustunnar hljópst undan merkjum og flúði til Bandaríkjanna um miðjan júlí. Hefur hann undan- farnar vikur matað bandarísku leyni- þjónustuna á ítarlegum upplýsingum um starfshætti fyrrum vinnuveitenda sinna. Sagði í frétt blaðsins Miami Her- ald, að eftir uppljóstranirnar yrði kúbanska leyniþjónustan að skipta algerlega um vinnubrögð og stokka allt kerfi sitt upp frá grunni. Myndi taka langan tíma að koma starfsem- inni á ný í þær skorður sem hún var áður í, svo ítarlegar væru upplýs- íngarnar. Ennfremur segir í blaðinu, að þegar Kúbönum varð ljóst að Jesus Raul Perez Mendez hafði söðlað um, hefðu snör handtök verið viðhöfð. Skipt hefði verið um mannskap í sendinefnd Kúbu hjá Sameinuðu þjóðunum, svo og í sérstakri deild landsins í Washington, sem fer með málefni Kúbumanna í Bandaríkjun- um, til þess eins að losna við þá hneisu að láta vísa starfsfólkinu úr landi fyrir njósnir. Blaðið sagði ennfremur, að fyrir upplýsingar sínar hefði Mendez þeg- ið 100.000 dollara (2,8 milljónir ís- lenskra króna), bifreið og „þægilegt hús að búa í“ eins og það var orðað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.