Morgunblaðið - 06.08.1983, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983
Vestmannaeyjar:
Draupnir aflahæst-
ur humarbátanna
Vestmanna«7jum. 5. ápúst.
MIKIL vinna hefur verið í fisk-
vinnslustöðvunum hér í þessari viku
og góður afli horist á land. Ileldur
fáliðað er þó á ýmsum vinnustöðum
vegna sumarleyfa starfsfólks, en
horfið hefur verið frá því að loka
fyrir fiskmóttöku í ágústmánuði eins
og tíðkast hefur hér undanfarin
sumur.
Strax í vikubyrjun þegar fólk
var svona rétt að vakna eftir þjóð-
hátíðina, var landað 68 tonnum úr
Vestmannaey, 70 tonnum úr Hug-
in og 38 tonnum úr Helgu Jóh.
Vegna mikils afla og takmarkaðs
vinnuafls hafa skip orðið að sigla
með afla erlendis. Klakkur landaði
122 tonnum í Færeyjum á mánu-
dag og Sindri er á leið til Eng-
lands með 110 tonn af góðum fiski.
Þá var aflaskipið Breki í höfn í
gær og landaði 220 tonnum og var
megnið af þessum góða afla þorsk-
ur af Vestfjarðamiðum.
Það er því líflegt hér . ' nóg að
starfa fyrir alla, ekki bara í fiski,
heldur hefur verið rífandi vinna
hjá iðnaðarmönnum í sumar og
miklar framkvæmdir í gangi hjá
bæjarfélaginu, fyrirtækjum og
einstaklingum.
Humarvertíð lauk fyrir síðustu
helgi. 19 bátar stunduðu veiðarnar
héðan og lönduðu alls 307,5 tonn-
um af óslitnum humri sem gerði
94,6 tonn af slitnum humri. Þetta
er verulega betri afli en tvær und-
anfarnar humarvertíðir. Árið 1982
var aflinn 81 tonn af slitnum
humri en 65,8 tonn árið 1981.
Mestan afla var Draupnir með,
tæp 10 tonn af slitnum humri.
Ófeigur III og Hellisey voru með
rúm 8 tonn hvor bátur. Það mun
láta nærri að humaraflinn, sem
hér var lagður á land í sumar,
nemi um 12% af heildaraflakvót-
anum á vertíðinni.
Myndin er tekin í Atlavfk þar sem Stuðmenn skemmtu um verslunar-
mannahelgina.
Stuðmenn bæta við
stöðum og mannskap
STUÐMENN munu heimsækja
Vestfirði í fyrsta sinn um þessa
helgi og einnig munu þeir staldra
Náttúruverndarfólk leggur
á útivistarsvædum
stiga
Tónabíó:
Ný Charlie
Chan-mynd
frumsýnd
MEISTARI málsháttanna,
Charlie Chan, snýr nú aftur enn á
ný. Charlie Chan-myndirnar sem
slógu í gegn á þriðja, fjórða og
fimmta áratugnum, hafa skipað
þessum fræga leynilögregluspek-
ingi á bekk með sígildum leyni-
lögregluhetjum og nú gefst að-
dáendum tækifæri til að rifja upp
gömul og góð kynni, eða eins og
Charlie Chan gæti orðað það: „Oft
er skörp kímni skæðari en skað-
laust vopn.“
Með aðalhlutverk fara Peter
Ustinov sem Charlie Chan og
Angie Dickinson sem Dreka-
drottningin. Leikstjóri er Clive
Donner.
„BRITISH Trust for ('onservation
Volunteers" eru bresk sjálfboðaliða-
samtök sem vinna að umhverfisvernd.
Samtökin taka að sér alls kyns verk-
efni á hreskum náttúruverndar- og úti-
vistarsvæðum og vinna þau með hóp-
um sjálfboðaliða. Föstudaginn 19. ág-
úst koma hingað til lands sex af reynd-
ustu stjórnendum og verkstjórum
samtakanna. Hópurinn kemur hingað
að ósk Náttúruverndarráðs sem skipu-
leggur ferð þeirra, en hópurinn greiðir
sjálfur ferða- og fæðiskostnað sinn.
Gert er ráð fyrir að hópurinn
vinni að eftirfarandi verkefnum:
20.—22. ágúst: Stígagerð í Krísu-
vík. Gerður verður göngustígur í
hring frá bílastæði um hverasvæðið.
Um er að ræða stíga bæði á grónu
og ógrónu landi, á tiltölulega sléttu
landi og bröttu og einnig verða gerð-
ir trégöngustígar yfir sjálft hvera-
svæðið.
23.-25. ágúst: Stígagerð við
Gullfoss. Lagfæringar á aðalstíg frá
bílastæði og niður að fossinum til að
hindra að vatn renni eftir stígnum
og beri möl niður á gróna brekkuna.
Nýr stígur og þrep i núverandi
troðning upp frá bílastæði.
28. ágúst—1. sept. Unnið í Skafta-
felli. Meginverkefni í Skaftafelli
verður að gera við stíg frá tjald-
svæði upp brekkurnar áleiðis að
Svartafossi.
Nátíuruverndarráð óskar eftir
fólki sem hefur áhuga á að vinna
með hinum bresku sjálfboðaliðum.
Þarna gefst tækifæri til að læra ým-
iss konar gagnleg handbrögð um
leið og dvalið er á fallegum stöðum
og unnið að nauðsynlegum verkefn-
um til verndunar stöðunum. Gera
verður ráð fyrir að þátttakendur
kosti sjálfir ferðir sínar og fæði og
sjái sér fyrir viðlegubúnaði þar sem
þess er þörf. Skipulögð verða sam-
eiginleg matarinnkaup fyrir Bret-
ana og aðra sem þess óska og kostn-
aði deilt.
Þeir sem hafa áhuga geta leitað
frekari upplýsinga og tilkynnt
þátttöku á skrifstofu Náttúruvernd-
arráðs. Sérstaklega er mikilvægt að
þeir sem vilja vera með allan tím-
ann tilkynni þátttöku sem fyrst, þ.a.
hægt verði að skipuleggja sameig-
inleg matarinnkaup fyrir þann hóp
svo og útvega honum ferðir.
(Frétt frá Náttúruverndarráði)
við í Stykkishólmi á bakaleiðinni.
Þar mun hljómsveitin skemmta í
félagsheimilinu á sunnudagskvöld,
ásamt söngkonunni Ragnhildi
Gísladóttur og Sneglu-Halla, sem
kvað víst þekktur fyrir „fagran
limaburð og söng“, eins og segir í
fréttatilkynningu hljómsveitar-
innar. Þess má loks geta, að í ráði
er að bæta fleiri stöðum við áður
auglýsta hljómleikaferð, en mark-
miðið er að sækja heim hvern
landsfjórðung áður en ferðinni
lýkur um næstu mánaðamót.
Nýting hótelsins
aldrei verið betri
Stykkishólmi, 4. ágú.sl.
ÞRÁTT fyrir að veðurguðirnir hafi
ekki verið okkur hliðhollir á norðan-
verðu Snæfellsnesi hefur aldrei ver-
ið betri nýting á hótelinu í Stykkis-
hólmi en í júní og júlí á þessu ári, að
sögn hótelstjórans, Sigurðar Skúla.
Helgartilboðin sem hótelið hef-
ur boðið ferðamönnum með gist-
ingu og ferðum út í eyjar, hafa
verið vel nýtt og fólk mjög ánægt
með þau. Hótelið mun halda
áfram þessari starfsemi enn um
sinn. Mikið hefur verið af ferða-
fólki, sérstaklega erlendis frá og
virðist ferðamannastraumurinn
hingað til Stykkishólms aukast ár
frá ári.
Flugleiðir:
Boðið upp á útsýnisflug til
Vestmannaeyja um helgar
Athugasemd frá yfir-
matsmanni garðávaxta
EÐVALD B. Malmquist, yfirmats-
maður garðávaxta, hafði samband
við blaðið vegna ummæla sem
höfð voru eftir Sighvati Haf-
steinssyni, kartöflubónda í
Þykkvabæ, í Mbl. á föstudag. Eð-
vald sagði, að hann hefði hvorki
haft með birgðahald né talningu á
kartöflum að gera síðastliðið ár og
sé honum því þessi ádeila óvið-
komandi. Hann hefði hinsvegar
haft með þetta að gera þangað til
á síðasta ári. Eðvald vildi einnig
benda á í þessu sambandi, að í
reglugerð landbúnaðarráðuneytis-
ins frá 11. ágúst 1982 væri tekið
fram að ætíð skuli taka tillit til
vörugæða á þann hátt að láta
betri vöru sitja fyrir þeirri lakari.
Markaðurinn réði því þannig
nokkru um hvernig bændum gengi
að losna við framleiðslu sína.
FLUGLEIÐIR hafa tekið upp þá
nýbreytni að bjóða upp á morgunflug
til Vestmannaeyja um helgar þar
sem flogið verður yfir helztu
náttúrustaði á Suðurlandi.
Að sögn Sæmundar Guðvinds-
sonar hlaðafulltrúa Flugleiða mun
verða lagt af stað kl. 8 árdegis í
þetta útsýnisflug alla föstudaga,
laugardaga og sunnudaga þegar
veður leyfir. „Þeir staðir, sem
flogið verður yfir, eru Þingvalla-
vatn, Gullfoss- og Geysissvæðið,
Hekla og Eyjafjallajökul og tekur
flugið um 20 mínútum lengri tíma
en venjulegt flug til Vestmanna-
eyja eða alls 40—45 mín.,“ sagði
INNLENT
Sæmundur. Hann bætti því við að
ráðgert væri að halda þessu út-
sýnisflugi áfram, a.m.k. út ágúst-
mánuð.
Lækkun hámarkshraða
í gamla Vesturbænum
HINN 15. ágúst næstkomandi
gengur í gildi nýr hámarksöku-
hraði í gamla Vesturbænum, en
frá þeim degi má ekki aka þar á
yfir 30 km hraða. Borgaryfirvöld
tóku þessa ákvörðun að tilhlutan
umferðarnefndar, og er markmið-
ið að reyna að hemja umferð um
þetta gróna hverfi. Gamli Vestur-
bærinn nær yfir svæði sem tak-
markast af Kalkofnsvegi, Lækjar-
götu, Fríkirkjuvegi og Sóleyjar-
götu að austan, Hringbraut að
sunnan og Mýrargötu að norðan.
Til undirbúnings aðgerðum til
að vekja athygli ökumanna á
lækkun hámarkshraða, boða
íbúðasamtök Vesturbæjar til
vinnufundar í Gallerí Fjólu,
Framnesvegi 31, fimmtudaginn
11. ágúst kl. 19.30.
Rússnesk skóla-
skúta í Sundahöfn
Þessi mikla skúta kom til landsins í gærmorgun og liggur hún
bundin við bryggju í Sundahöfn. Skútan, sem ber nafnið Sedov, er
rússneskt skólaskip, fjögurra mastra, 6148 brúttórúmlestir að stærð
og er 117 metra löng. Að sögn Stefáns Eiríkssonar hjá Skipadeild
SIS, sem er með umboð fyrir skipið, var skútunni lagt upp hér til að
taka vatn og vistir og hvíla áhöfnina. Annars hefði hún mest verið í
námunda við sovéska veiðiflotann. llm borð er 231 maður og að sögn
Stefáns eru það mest menn á aldrinum 18—25 ára sem verið er að
kenna sjómennsku og þjálfa í fiskveiðum. Áætlað er að skútan leggi
í hann aftur á sunnudagskvöldið.
MoripinblaAiA/ KEE