Morgunblaðið - 06.08.1983, Side 25

Morgunblaðið - 06.08.1983, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 25 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Einkamál Ógiftur eldri maöur óskar eftir aö kynnast traustri, lífsglaöri konu, 50 ára eöa eldri, sem vantar félaga og vin. Ekki veröur öörum bréfum svaraö en þeim sem eru undirrituö fullu skírnar- og fööurnafni, ásamt heimilis- fangi. Tilboö sendist Mbl merkt: .E — 8918". Fariö veröur meö 1350 þús. Til sölu kartöfluupp- tökuvól (Grimme) Upplýsingar í síma 99-5946 eftir kl. 20.00. Grindavík Glæsilegt parhús viö Leynis- braut 12 um 100 fm. Verö 1350 þús. 90 fm efri hæð viö Austurveg. Sér inng. Verö 680 þús. 120 fm viólagasjóöshús viö Noröurveg. Verö 1350 þús. 122 fm raöhús viö Efstahraun í Grindavik. Ekki fuligert. Verö 1250 þús. Gott einbýlishús vió Hvassa- hraun um 130 fm. Eign í sér- flokki. Verö 1,9 millj. Viöiagasjóöshús viö Suöurveg. Verö 1200 þús. Sandgerði Mjög góö 3ja herb. neöri hæö meö sér inng. vió Suöurgötu. Verö 800 þús. 125 fm einbýlishús viö Hjalla- götu. Verö 1650 þús. Gott eldra einbýlishús viö Suö- urgötu. Mikiö endurnýjaö. Verö 1300 þús. 120 fm efri hæð viö Vallargötu. Sér inng. Verð 900 þús. Garöi 143 fm nýlegt einbýlishús viö Geröarveg. Aö nokkru fullgert. Skipti á ódýrari eign hvar sem er á Suöurnesjum möguleg. Verö 1,2 millj. Eldra einbýlishús viö Garö- braut. Ekkert áhvílandi. Verö 920 þús. Eignamiölun Suöurnesja, Hafn- argötu 57, Keflavík. Simi 92- 3868. Grindavík Til sölu raöhús í smíöum, 116 fm meö bilskúr. Einnig til söiu ein- býlishús. Uppl. í síma 92-8294. Krossinn Samkoma í kvöld kl. 20.30 að Alfhólsvegi 32, Kópavogi. Allir hjartanlega velkomnir. Leiguskipti — Akureyri — Reykjavík Til leigu stór 3ja herb. íbúö á besta staö á Akureyri í skiptum fyrir ibúö í Reykjavík. Uppl. í síma 91-19967 eftir kl. 19.00 og 96-22555. UTIVISTARFERÐIR Dagsferðir Laugardagur 6. ágúst kl. 09.00: Vígsluhátíð í Básum. 5—6 tíma stans í Þórsmörkinni. Verö kr. 400. Sunnudagur 7. ágúst Kl. 08.00 Þórsmörk. Verö kr. 400. Papahellar aö Ægissíöu skoöaðir á heimleið. Kl. 13:00 Húshólmi — Gamla Krísuvik. Verö kr. 250. Frítt f. börn. Brottför frá bensínsölu BSÍ. Sjáumst! Útivist Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Hjálpræöisherinn sunnudag kl. 20.00. Bæn kl. 20.30 Hjálpræöissamkoma. Lautinantarnir Sissel og Edgar Andersen tala. Velkomin. radauglýsingar — radauglýsingar — raöauglýsingar tilboö — útboö Tilboö óskast í eftirtaldar bifreiöir, skemmdar eftir árekstra: Fiat Ritmo árg. 1981 Toyota Corolla árg. 1980 Fiat 227 Van árg. 1980 Mazda 929 árg. 1978 Mazda 121 árg. 1977 Ford Escort RS 2000 árg. 1974 Volvo 144 árg. 1972 VW 1300 árg. 1972 VW 1300 árg. 1972 Bifreiðirnar verða til sýnis mánudaginn 8. ágúst að Réttingaverkstæði Gísla Jónssonar, Bíldshöfða 14. Tilboöum sé skilaö á skrif- stofu vora fyrir kl. 16.00 þriöjudaginn 9. TRYGGINGAR 1 82800 fundir — mannfagnaöir ___________J til sölu Tegrasaferð verður farin á vegum NLFR sunnudaginn 7. ágúst. Lagt verður af staö frá Búnaðarbank- anum Hlemmi kl. 11 f.h. Skráning í ferðina er í síma 16371. NLFR Plastfyrirtæki til sölu 2 filmuvélar (plastbakkavélar) lllig RDKM, árg. '73. Illig R-650 OST, árg. ’67. Tvær móta- sprautuvélar og 10 mót, 10 ha. loftpressa, hnífur og kvörn og mikið af verkfærum. Óunnið hráefni fyrir ca. 100 þús. kr. Verð 900 þús. Útborgun ca. 300 þús. Fyrirtækið þarf ca. 100 fm húsnæði. Þarf að flytjast frá núverandi stað. Uppl. í síma 26630 á daginn og 42777 á kvöldin og um helgar. \ fornt höfðingjasetur og skáld- setur. Þar er víður, grænn og grös- ugur dalur með laxá, sem liðast um engið og fögur er fjallasýn með eyjum úti í hafi. — En á ann- exíuleiðinni frá Heydölum að Stöð var þá veglaus ófæra þar sem sæta varð sjávarföllum því að „Brim brestur við björgum" — háskaleg leið. En í Grímsey liggur heims- skautsbaugur yfir hjónarúmið, ósýnilegur nema á landakorti. í Grímsey og í Myrkárdal ortu prestar fallegustu páskasálma. Þar er e.t.v. mestur munur ljóss og myrkurs, skammdegis og vors. Á þessum erfiðu ferðum á veg- lausu landi, nær óspilltu frá forn- öld, draup íslenskan hægt og hægt, blíð og björt, eins og dögg, einnig úrsvöl, ekka þrungin, inní brjóst unga prestsins, tveggja ey- þjóða manns, stórveldisþjóðar og vopnlausrar þjóðar. Má vera að eyþjóðir beri kviku sævarins í brjósti sínum, geymi þá tilfinn- ingu jafnvel inni í innstu dölum, að haf umlykur land þeirra. Það býr í sál þeirra. Utsærinn vekur útþrá, leiðir burt, leiðir heim. — Þegar ég sá, að séra Róbert var orðinn rithöfundur á íslensku, þá kom mér enn í hug það sem Goethe sagði um eyþjóðir. Eiginlegt efni þessarar greinar er það að minnast á rithöfundinn Róbert Jack. Mér þykir íslensk tunga svo mikils virði, að full ástæða væri til þess að veita því athygli og viðurkenna, að maður, sem fæddur er og uppalinn hjá milljóna-þjóð og hefur alheims- málið, enskuna leikandi létt á tungu og ber það í brjósti og sál, hefur lagt svo mikla rækt við tungu vora að hann tekur að mál- fari til langt fram mörgum ís- lenskum höfundum, sem hlotið hafa verðlaun og viðurkenningu, sumir fyrir þýðingar, jafnvel á óþverra bókum fyrir börn og ungl- inga eða almenning. Ævisaga sr. Róberts er bráð- skemmtileg, hreinskilin og holl. Meðal annars segir hann frá því, þegar hann læknaðist fyrir kraftaverk. Þá var hann barn. Einhver hefði nokkrum dögum áð- ur sagt um þennan dreng: Hann læknast aldrei. — Þau orð ætti enginn maður að segja um sjúkan mann, því að lífið er í hendi Guðs. Róbert litli lá inni í sjúkrastofu. Hann var með beinátu í öðrum fætinum, viðþolslaus af kvölum. Þá var nótt. í þjáningu sinni sá hann Jesúm Krist standa hjá rúmi sínu. Þján- ingin hvarf, sæl tilfinning gagntók hann allan, og hann féll í svefn. Og hann varð fótboltamaður og síðar þjálfari. Nú prófastur í Húnaþingi og Strandasýslu. Á sama tíma voru foreldrar hans að biðja fyrir honum. Faðir hans dró einn biblíumiða. Þar stóð: Sonur þinn lifir. Svo gjörsamleg var lækningin, að drengurinn varð síðar knatt- spyrnu-maður og seinna þjálfari. Nú er hann prófastur yfir Strandasýslu og Húnaþingi. Það var ekki „Félagi Jesús" eða „töfra- full tilviljun" sem læknaði barnið, heldur Frelsarinn Jesús, sem frelsaði drenginn úr þeim hörðu sjúkdómsfjötrum. Séra Róbert segir í ævisögu sinni frá fjölmörgum atvikum og atburðum utan lands og innan og dregur upp lifandi myndir. Allir, sem ég hef hitt og lesið hafa, ljúka upp einum munni um það, að bókin sé bráðskemmtileg. Væri það nú ekki fullt eins rétt- mætt að verðlauna þetta verk, eins og t.d. þýdda bók, þar sem lýst er meðferð arabískra verka- manna á þeim óláns konum, sem vondir menn hafa til sölu handa Arabalýð í Mexíkó? — Skyldi bók séra Róberts ekki vera fullt eins hollur lestur. Ég spyr í alvöru hvort Róbert Jack ætti ekki fullt eins vel skilin íslensk bókmennta- verðlaun eða skáldalaun fyrir bók sína eins og þeir klámrita- og guð- níðs-höfundar, sem efstir eru á blaði hjá verðlaunaveitendum og taldir hafa til þess unnið að ís- lenska þjóðin kosti þá með bestu skilyrðum og fullu kaupi í marga mánuði í húsi Jóns Sigurðssonar til þess að bæta kílóum af pappír og klámfengnu tungutaki og guð- níði við fyrri skrif, ef að líkum lætur. Það er óbætanleg smán fyrir Is- lendinga að launa það engu þegar útlendur prestur með vald á al- heimstungu, sem honum er í blóð borin, skrifar samt ævisögu sína fyrir fámenna þjóð á vorri fornu og vandasömu tungu og tekst það skínandi vel. Það er alveg furðuleg bók- menntastefna í þessu landi að veita því enga athygli, launa það engu og láta sem ekkert sé. Hugleiða mætti málfar Dana og annarra Norðurlandabúa, sem koma hér líka ungir, eins og sr. Róbert — og ýmsir þeirra mætir menn. Hvar var framförin í máli þeirra? — Þótti þeim það ómaks- ins vert að læra almennilega að tala mál hinnar fámennu þjóðar? — Hve margir þeirra náðu valdi á íslensku svo að þeir hefðu getað skrifað bók á því máli? Hvort tveggja er, að ekki er sú list öllum Iagin að semja bækur, en hitt þó eigi síður, að það er á fárra manna færi að verða jafnvígir á tveimur tungumálum svo að dugi til þess að ná stíl, sem sprettur djúpt inn- an frá. Þeir menn unna lítið sínu máli, íslenskunni, sem ekki kunna að meta bókmennta-afrek prófasts- ins að Tjörn. Ritlaun til hans fyrir ævisöguna ættu að verða Islendingum sjálf- um hvatning til þess að týna ekki tungu sinni í eigin landi. — Loft- vogin fellur ört. „Þeir ættu að hirða um arfinn sinn, sem erfa þessa tungu.“ (Þ.Erl.) Þá er að kveðjum komið. Það verður víst að óska þér til ham- ingju með það, sr. Róbert, að vera kominn á skilamanna afrétt, eink- um ef eitthvað kemst enn til skila af þínum Sindbaðs-æfintýrum á mynd-auðugri íslensku þinni. „Blessun yfir barnahjörð" og heimili þitt, störf og ritstörf. Frú Vigdís og börn — til hamingju með daginn. Kveðja frá húsi mínu. Rósa B. Blöndals Zukofsky- námskeið Tón- listarskólans í Reykjavík og Flugleiða TÓNLISTARSKÓLINN í Reykjavík og Flugleiðir gangast fyrir hálfs mánaðar námskeiði sem hófst í gær, fostudag. Eru þátttakendur á milli 70 og 80, þar af átta erlendir. Nancy Elan, konsertmeistari Colonial Symphony Orchestra, New Jersey, Karen Olson, lág- fiðluleikari í sömu hljómsveit, og James Sleigh, sem var um tíma lágfiðluleikari í Sinfóníuhljóm- sveit íslands, koma til að aðstoða við þjálfun strengjaleikara og æf- ingar á kammertónlist. Bernard Wilkinson hefur umsjón með blás- urum og Eggert Pálsson með slag- verki. Námskeiðið fer fram í Haga- skóla í Reykjavík. Æft verður að venju 6 tíma á dag og lýkur nám- skeiðinu laugardaginn 20. ágúst með tónleikum. Verkefni verða: Myndir á sýningu eftir Muss- orgsky, Tod und Verklárung eftir Strauss og L’Ascension eftir Messiaen. Það síðastnefnda er hljómsveitarfrumflutningur hér á landi og er gert í tilefni þess að 1983 er 75 ára afmæli Oliver Messiaen. ^fVskriftar- síminn er 830 33

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.