Morgunblaðið - 10.08.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1983
7
Handunnar Olíukolur
í steinleir.
VERÐ AÐEINS
GLIT KR. 148.-& 245,-
Höfðabakka 9,
Reykjavík. S. 85411
FERÐAUSTI
Skemmtikraftar um borð
í hverri ferð:
FARSKIP
AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166
„Friðargangan“ —
misheppnað fyrirtæki
„Friðargangan frá Keflavík er að minni hyggju misheppnað fyrir-
tæki, vegna þess hvernig að henni er staðið og vegna þess að í
hugmyndinni felst varhugavert ábyrgðarleysi um mikilsverðustu
atriði kjarnorkuumræðunnar. Það er af þeim sökum sem ég, sem
er eindreginn friðarsinni og hef óbeit á öllum hernaði, vil ekki
slást í hópinn“.
(Guðmundur Magnússon, blaðamaöur, í Tímanum 8. ágúst sl.)
Huglaus af-
staða og óheil
Guömundur Magnús-
son, blaöamaöur á Tíman-
um, reit nýlega grein í blað
sitt undir yfirskriftinni:
„Efasemdir um friðar-
göngu.“ Hann segir m.a.
orðrétt í upphafi greinar-
innar:
„Sá sem þessar línur rit-
ar á ekki erfitt meö að lýsa
yfir stuðningi við kjörorð
friðargöngunnar, aö und-
anskilinni hlutleysiskröf-
unni. Að mínu mati er
hlutleysi í utanríkismálum
huglaus afstaða og siðferði-
lega óheil. En þótt ég fallist
á meginkröfur göngunnar,
eins og ég vona að flestir
íslendingar geri, hef ég
ekki í hyggju að slást í hóp
göngumanna og treysti
mér ekki til að hvetja aöra
til þess. Fyrir því voru tvær
ástæður einkum. í fyrsta
lagi er ég andstæðingur
Samtaka herstöðvaand-
stæðinga og vil ekki aö-
stoða við aö koma stefnu-
miöum þeirra á framfæri.
Fyrirfram er augljóst að
samtökin hyggjast nota
gönguna til að láta í Ijós
andúð á varnarsamstarfinu
við Bandaríkin og aöildina
að Atlantshafsbandalag-
inu. Ég á von á því að slag-
orö í þá átt verði ekki síður
áberandi en hin opinberu
kjörorð göngunnar. í ann-
an staö hef ég ýmsar al-
varlegar efasemdir um
friðarhrevfinguna á Vestur-
löndum. Það er alkunna að
friðargangan frá Kefiavík
er liður í alþjóðlegum mót-
mælum sem í mikilvægum
atriðum er beint gegn ríkj-
andi varnarstefnu Vestur-
landa, stefnu sem ástæða
er til að ætla aö hafi tryggt
frið og frelsi í okkar heims-
hluta frá lokum síðari
heimsstyrjaldar. Gagnrýn-
islaus samstaða með frið-
arhreyfingunni er því feigð-
arflan."
„Pólitískir
einkahags-
munir“
Guðmundur Magnússon
segir ennfremur í grein
sinni:
Víkjum fyrst að þeim að-
ila sem að göngunni stend-
ur, Samtökum herstöðva-
andstæðinga. Þetta eru fá-
menn samtök og virkir fé-
lagar í þeim koma einkum
úr röðum Alþýðubanda-
lagsins og samtökum þar
til vinstri. Höfuð baráttu-
mál samtakanna um upp-
sögn varnarsamningsins
við Bandaríkin og úrsögn
úr NATO hafa aldrei öðl-
ast meirihlutafylgi með
þjóðinni, og ásta-ða er til
að halda að um þessar
mundir sé það aðeins fá-
mennur minnihluti þjóðar-
innar sem telur að Islend-
ingar komist af án varna
með aðstoð erlends her-
afla, og aðilar að varnar-
samtökum. Hafi forystu-
mann SH viljað efna til
samfylkingar til að vekja
athygli á þeim ógöngum
sem vígbúnaðarkapphlaup
stórveldanna er ratað í
hefðu þeir átt að leita til
margvíslegra félagssam-
taka og sjórnmálaflokka
og óska eftir samstarfi og
þá auðvitað á jafnréttis-
grundvelli. Sú leið sem þeir
hafa farið, að láta SH ein
standa að göngunni, enda
þótt þeir viti að allur þorri
manna er andvígur þeim
eða hefur jafnvel á þeim
imugust, er mjög ósann-
gjörn og líka vísbending
um að þeir meti pólitíska
einkahagsmuni sína meir
en kjörorðin sem þeir setja
I opinberlega á oddinn."
Alþýöu-
bandalagið í
hlutverki
unga-
hænunnar
Kitstjóri Tímans, sem
þekkir öðrum betur „unga-
hljóðið" í Alþýðubandalag-
inu, skrifar leiðara í blað
sitt í gær, hvar hann lýsir
leikrænum tilburðum
Svavars Gestssonar & Co. í
þá veru. að safna öllum
brotabrotum vinstri afia
undir væng Alþýðubanda-
lagsins, sem er þeirra meg-
inmarkmið á líðandi stund.
Hann segir orðrétt:
„Af hálfu leiðtoga AF
þýðubandalagsins er nú
unnið að því að samfylkja
þeim fjórum flokkum, sem
eru í stjórnarandstöðu,
undir forystu Alþýðu-
bandalagsins. Þetta er að
vísu ekki gert mjög áber-
andi. Aðallega er talað um,
að þessum flokkum sé
nauðsynlegt að vinna sam-
an, þar sem þeir eigi það
sameiginlegt aö vera and-
stæðingar stjórnarinnar.
Eftir að slík samvinna hef-
ur myndazt, ætlar Alþýðu-
bandalagið sér smám sam-
an aö ná forystunni.
Leiötogar Alþýðubanda-
lagsins gera sér góðar von-
ir um að Bandalag jafnað-
armanna og Kvennalistinn
gíni við þessu agni. Síðar
verði svo hægt að láta þau
renna saman við Alþýöu-
bandalagið, líkt og mál-
fundafélag jafnaðarmanna
á sinni tíð. Vel gæti komið
til mála, aö Alþýðubanda-
lagið breytti um nafn, enda
nafnbreyting ekki ótíö á
þeim fiokki.
Spurningin er hvort Al-
þýöufiokkurinn verður til-
kippilegur til slíkrar sam-
vinnu. Hjá honum er farið
að fenna í spor þeirra Héð-
ins Valdimarssonar og
Hannibals \ aldimarsson-
ar. Gott væri fyrir Alþýðu-
fiokkinn að rifja upp sögu
þeirra.
Fyrir Alþýöuflokkinn,
Bandalag jafnaðarmanna
og Kvennalistann er ekki
ófróðlegt að minnast þess,
hver urðu úrslit síöustu
borgarstjórnarkosninga í
Reykjavík. Ósigur fráfar-
andi borgarstjórnarmeiri-
hluta þá stafaöi öðru frem-
ur af því, að kjósendur litu
svo á, að forystan væri í
höndum Alþýðubandalags-
ins, þar sem það var lang-
stærst flokkanna, sem
mynduðu meirihlutann.
Margir kjósendur óttuðust,
að áhrif Alþýðubandalags-
ins yrðu of mikil af þessum
ástæöum og yrðu enn
meiri, ef sami meirihluti
I héldist áfram."
Þrjú umferðarslys
UNGUR maður slasaðist al-
varlega í bifhjólaslysi á Sel-
fossi um helgina. Hann var á
leið um Austurveg þegar
hann lenti í höröum árekstri
við bifreið sem kom á móti
honum. Slysið átti sér stað
síðdegis á sunnudag og sem
fyrr segir slasaðist ökumaður
hjólsins mjög mikið og er
hann enn í gjörgæslu.
Þá varð bifhjólaslys í Garðabæ
laust fyrir kl. 18 á mánudag. Þar
óku saman bíll og bifhjól með
þeim afleiðingum að farþegi á
hjólinu slasaðist. Það slys varð á
Bæjarbraut og slapp ökumaður
hjólsins án áverka.
Loks varð bifreiðaslys á Akur-
eyri kl. rúmlega 16. Þar óku sam-
an tvær bifreiðar. Var önnur á leið
vestur Hlíðarbraut en hin á leið
norður Hörgárbraut. Bifreiðirnar
skemmdust töluvert. Kona sem
var ökumaður annarrar bifreiðar-
innar slasaðist það mikið að flytja
varð hana á sjúkrahús, en tvö
börn, sem voru með henni í bif-
reiðinni, svo og ökumaður hinnar
bifreiðarinnar, munu hafa sloppið
að mestu ómeidd.
Allharður árekstur varð í gær á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu.
Vörubifreið hlaðinni túnþökum var ekið aftan á BMW-fólksbifreið og
skemmdist hún mikið. Engin slys urðu á fólki. Mynd Mhi. kax