Morgunblaðið - 10.08.1983, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1983
íslandsmótið í hestaíþróttum:
Rok og rigning
í aðalhlutverki
Hestar
Valdimar Kristinsson
SJÖTTA íslandsmótinu í hesta-
íþróttum lauk síðastliðið sunnu-
dagskvöld með einni allsherjar
verðlaunaafhendingu. Stóð mótið
yfir í tvo daga og var þátttaka góð
í aliflestum greinum.
Veður var hið versta báða dag-
ana, rigning og rok og á laugar-
dagskvöldið jaðraði við að slydda
væri í rigningunni. Setti þetta
óneitanlega leiðinlegan svip á mót-
ið og voru menn orðnir frekar
slæptir í mótslok.
Það sem helst vakti athygli
var frammistaða ungra og lítt
þekktra keppanda og máttu
ýmsir kunnir knapar sem staðið
hafa framarlega á undanförnum
árum gera sér það að góðu að
fara heim án verðlauna. Sýnir
þetta mót glögglega þá breidd
sem orðin er í hestamennskunni
og greinilegt er að enginn getur
verið viss um sigur fyrirfram.
Hinir ungu slá í gegn
Það voru einkum tveir ungir
keppendur sem sköruðu fram úr,
þeir Sævar Haraldsson sem varð
stigahæstur í samanlögðu og auk
þess varð hann íslandsmeistari í
fjórgangi á Háf frá Lágafelli og
Þórður Þorgeirsson sem varð ís-
landsmeistari í tölti á hestinum
Snjalla frá Skarði (hesturinn
heitir Snjall) og vakti sá hestur
feikna athygli og er hann aðeins
fimm vetra gamall. Er hér á
ferðinni mikið snillingsefni,
óhemju hágengur og fjaður-
magnaður klárhestur með tölti.
Eftir forkeppni í fjórgangi var
Þórður í fyrsta sæti ásamt Sæ-
vari á Háfi, en vegna mistaka
mætti hann ekki í úrslitakeppn-
ina og lenti því í fimmta sæti. Er
ekki að efa að hann hefði bland-
að sér í toppbaráttuna ef ekki
hefði hann litið skakkt á klukk-
una. En þrátt fyrir þetta sigraði
Þórður í íslenskri tvfkeppni sem
er samanlagður árangur úr tölti
og fjórgangi. Sigurður Marínus-
son varð íslandsmeistari í fimm-
gangi á Storki frá Kirkjubæ og
sigraði hann jafnframt í skeið-
tvíkeppni sem er nýtt fyrirbrigði
á íslandsmóti.
Skeið-tvíkeppni er saman-
lagður árangur úr fimmgangi og
gæðingaskeiði. í ólympískri tví-
keppni sem er samanlagður
árangur úr hlýðniæfingum og
hindrunarstökki, sigraði Erling
Sigurðsson á hinum landsfræga
Hannibal frá Stóra-Hofi og er
þetta annað árið í röð sem þeír
félagar vinna þennan titil. Gæð-
ingaskeiðið sigraði Páll B. Páls-
son stóðhestatemjari og hlaut
þar með íslandsmeistaratign í
þeirri grein. Keppti hann á
hryssunni Kolbrá frá Kjarnholt-
um og var hann vel að sigrunum
kominn og má jafnframt geta
þess að hryssan hefur hvort-
tveggja í senn, mikið rými og
fallegt skeiðlag. Af öðrum góð-
um má nefna Gunnar Ágústsson
en hann hlaut að vísu enga ís-
landsmeistaratitla en var hins-
vegar í úrslitum í úrslitakeppn-
unum þrem, tölti, fjórgangi og
fimmgangi og verður það að telj-
ast góður árangur út af fyrir sig.
Af unglingunum voru mest
áberandi þeir Hörður Þór Harð-
arson og Haraldur Snorrason í
eldri flokki og í yngri flokki
systkinin þau íva Rut Viðars-
dóttir sem sigraði í tölti og varð
stigahæst og Bogi H. Viðarsson,
en hann sigraði í fjórgangi.
Hörður varð íslandsmeistari í
fimmgangi á Hafsteini og í tölti
á Háfeta frá Dalvík. Haraldur
varð stigahæstur í íslenskri tví-
keppni og jafnframt stigahæstur
í eldri flokki unglinga.
Breytingar til bóta?
Að þessu sinni var notað nýtt
fyrirkomulag við útreikninga á
stigum þannig að ekki var notuð
margföldun til að fá stig úr for-
keppni en þess í stað deilt og
fundin út meðaleinkunn. Aðeins
tíu efstu hestar fá svo stig eftir
gamla kerfinu og eru þessir tíu
gjaldgengir í samanlögðu stiga-
keppnina. Þegar svo í úrslitin er
komið er raðað í sæti og í lokin
hefur hvert sæti ákveðið vægi
eða gefur ákveðin stigafjölda
sem síðan er notað í útreikning í
stigakeppninni. Þessar breyt-
ingar voru gerðar til þess að
létta störf ritara á dómpalli, en
þess má geta að mikið verk var
að finna út stigahæstu keppend-
ur með gamla fyrirkomulaginu.
Ekki er komin mikil reynsla á
þetta nýja reikningsfyrirkomu-
lag þannig að erfitt er að segja
hvort um sé að ræða góða breyt-
ingu eður ei, en óneitanlega
saknar maður gömlu punktanna
eins og stigin voru yfirleitt köll-
uð. Það sem neikvætt gæti orðið
er útilokun á keppanda frá stiga-
keppninni sem ekki nær tíunda
sæti í einhverri grein. Tilgang-
urinn með þessu var að koma í
veg fyrir að lítið spennandi hest-
ar með mikla skeiðgetu eigi
möguleika á toppsæti í stiga-
söfnun. Snjall knapi á góðum
hestum getur gert smávægileg
mistök í einni keppnisgrein og
þar með misst af lestinni jafnvel
þó hann sé stigahæstur í raun.
En nóg um það.
Framkvæmd mótsins gekk
svona þokkalega en ekki meira
en það að á laugardag hófst
keppni klukkustund á eftir áætl-
un en þegar allt var komið i gang
gekk þetta sæmilega en óneit-
anlega var þetta stíf dagskrá frá
klukkan tíu til níu og þá átti að
vera kvöldvaka og hrossaverslun
sem reyndar var hætt við en í
stað keppt í 150 og 250 m skeiði
fram í myrkur.
Leistur á nýju íslandsmeti
Aðstæður voru heldur í lakara
lagi, hringvöllurinn var mjög
erfiður og átti rigningin stóran
þátt í því, skeiðbrautin var
hinsvegar mjög góð og skilaði
góðum tímum í bæði gæðinga-
og kappreiðaskeiði. Var meðal
annars sett íslandsmet í 150
metra skeiði og var þar að verki
Leistur frá Keldudal og Aðal-
steinn Aðalsteinsson var við
stjórnvölinn, tíminn var 13,8 sek.
Nokkur meðvindur var og töldu
sumir hann of mikinn, en að
sögn forráðamanna mótsins var
vindur mældur á mótsstaðnum
og kváðu þeir vindin hafa verið
undir þrem vindstigum.
Vera kann að einhverjum
finnist þessi skrif full neikvæð,
veðrið var eins og verst getur
verið og hefur það áhrif á flesta
ef ekki alla þætti mótsins og
hafa ber það í huga þegar fella á
dóm um samkundu þessa.
En úrslit urðu annars sem hér
segir:
Tölt (fullorðnir):
1. Þórður Þorgeirsson á Snjalla frá Skarði.
2. Hjörleifur Jönsson á Stiganda frá Grðf.
3. Gunnar Ágústsson á Hvin frá Hvassa-
feUi.
4. llóskuldur Hildibrandsson á Svani frá
Hallkelshólum.
5. Herbert Ólason á Kládfusi frá Stóra-
Hofi.
Fjórgangur (fullorðnir):
1. Sævar Haraldsson á Háfi frá Láftafelli.
2. Gunnar Ámistsson á Hvin frá Hvassa-
felli.
3. Páll B. Pálsson á Óðni.
4. Hóskuldur Hildibrandsson á Svani frá
Hallkelshólum.
5. Þórður Þorgeirsson á Snjalli frá Skarði.
A forsíðu mótsskrárinnar var teikning eftir Halldór heitinn Pétursson úr
sögunni Helgi skoðar heiminn. Hefur Helgi hér gert hlé i „heim.srei.su"
sinni vegna veðurs og er þessi mynd táknræn fyrir veðrið á Faxaborg um
helgina.
Sævar Haraldsson kom skemmtilega i óvart með því að vinna titilinn
„Sigurvegari mótsins". En hann varð einnig fslandsmeistari I fjórgangi á
hestinum Háfi frá Lágafelli sem hann situr bér á myndinni.
íslandsmeistari í tölti 1983. Þórður Þorgeirsson á Snjalla frá Skarði, en
hann var sá hestur sem vakti mesta athygli á mótinu.
Páll B. Pálsson sigraði I gæðingaskeiði á hryssunni Kolbrá
Þeir Herbert Olason og Kládíus taka enga sénsa og fljúga hátt yfir eina
hindrunina en þeir urðu hlutskarpastir í hindrunarstökkinu.
Fimmgangur ( fullorðnir):
1. Sigurdur Maríusson á Storki frá Kirkju-
bæ.
2. Gunnar Ágústsson á Perlu frá Kjart-
ansstöðum.
3. Erling Sigurðsson á Gretti frá Syðri-Brú.
4. Siguröur Halldórsson á Sörla frá Húsa-
felli.
5. Páll B. Pálsson á Nönnu frá Heilu.
Gædingaskeid:
1. Páll B. Pálsson á Kolbrá frá Kjarnholt-
um.
2. Sigurður Marínusson á Storki frá Kirkju-
bæp.
3. Tómas Ragnarsson á Berki frá Kvíabekk.
Hlýdniæfingar B (fullorðnir):
1. Viðar Halldórsson á Blesa frá Kirkjubæ.
2. Erling Sigurdsson á Hannibal frá Stóra-
Hofi.
3. Olil Amble á Glað frá Skarði.
Hindrunarstökk:
1. Herbert Ólason á Kládíusi frá Stóra-
Hofi.
2. Grlinf; Sigurðsson á Hannibai frá Stóra-
Hofi.
3. Sigurður Halldórsson á Sörla frá Húsa-
felli.
Stigahæstur í íslenskri tví-
keppni (tölt og fjórgangur) Þórð-
ur Þorgeirsson á Snjalli.
Stigahæstur í skeiðtvíkeppni
(gæðingaskeið og fimmgangur)
Sigurður Maríusson á Storki.
Stigahæstur í ólympískri tvík-
eppni (hlýðniæfingar og hindr-
unarstökk) Erling Sigurðsson á
Hannibal frá Stóra-Hofi.
Sigurvegari mótsins (stiga-
hæsti keppandi úr öllum grein-
um samanlagt) Sævar Haralds-
son og keppti hann á hestunum
Háfi frá Lágafelli og Núma frá
Eyrarbakka.
Tölt, unglingar 13—15 ára:
1. Hörður Þór Harðarson á Háfeta frá
Dalvík.
2. Haraldur Snorrason á Smára úr Skaga-
firði.
3. Anný B. Sigfúsdóttir á Hálegg frá Geld-
ingaholti.
4. Sigmar Bragason á Glóa frá Vatnsleysu.
5. Hinrik Bragason á Erli frá Miðhúsum.
Fjórgangur, unglingar 13—15 ára:
1. Sigmar Bragason á Glóa frá Vatnsleysu.
2. Haraldur Snorrason á Smára úr Skaga-
firði.
3. Hinrik Bragason á Erli frá Miðhúsum.
4. Anný B. Sigfúsdóttir á Hálegg frá Geld-
ingaholti.
5. Sigríður Aðalsteinsdóttir á Sörla frá Sig-
mundarstöðum.
Fimmgangur, unglingar 13—15
ára:
1. Hörður Harðarson á Hafsteini.
2. Ingunn Reynisdóttir á Hvöt frá Sigmund-
arstöðum.
3. Hinrik Bragason á Fjalari úr Borgarfirði.
4. Sigríður Aðalsteinsdóttir á Madonnu frá
Sveinatungu.
5. Jóhann B. Ágústsson á Hlébarða frá
Bóndhól.
Hlýðnikeppni, unglingar 13—15
ira:
1. Ingunn Reynisdóttir á Hvöt frá Sigmund-
arstöðum.
2. Anný B. Sigfúsdóttir á Hálegg frá Geld-
ingaholti.
3. Sigríður Aðalsteinsdóttir á Madonnu frá
Sveinatungu.
Stigahæstur í íslenskri tví-
keppni (tölt og fjórgangur) og
sigurvegari mótsins í unglinga-
flokki 13—15 ára Haraldur
Snorrason á Smára.
Tölt, unglingar 12 ára og yngri:
1. íva Rut Viðarsdóttir á Stjörnublakk frá
Reykjavík.
2. Bryndís Pétursdóttir á Rökkva.
3. Bogi H. Viðarsson á Blesa frá Kirkjubæ.
4. Arnar Þór Ragnarsson á Starra frá
Starrastöðum.
Fjórgangur, unglingar 12 ára og
yngri:
1. Bogi Viðarsson á Blesa frá Kirkjubæ.
2. íva Rut Viöarsdóttir á Stjörnublakk frá
Reykjavík.
3. Bryndís Pétursdóttir á Rökkva.
4. Arnar Þór Ragnarsson á SUrra frá
Starrastöðum.
Stigahæst í íslenskri tvíkeppni
og sigurvegari mótsins í flokki
unglinga 12 ára og yngri, fva Rut
Viðarsdóttir á Stjörnublakk frá
Reykjavík.
150 metra skeið:
1. Kolbrá frá Kjarnholtum, eigandi og
knapi Páll B. Pálsson, tími 14,4 sek.
2. Hrund frá Keldudal, eigandi Leifur Þór-
arinsson, knapi Tómas Ragnarsson, tími
14,5 sek.
3. Fjalar, eigandi Ragnar Hinriksson,
knapi Hinrik Bragason, tími 15,1 sek.
250 metra skeid:
1. Sproti frá Torfastöðum, eigandi Hall-
grímur Hallgrímsson, knapi Reynir Að-
alsteinsson, tími 23,3 sek.
2. Máni frá Stórholti, eigandi Haraldur
Siggeirsson, knapi Sævar Haraldsson,
tími 23,5 sek.
3. Rakel frá Steinastöðum, eigandi Árni
Ingólfsson, knapi Jón Árnason, tími 23,6
sek.