Morgunblaðið - 10.08.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1983
21
Valborg er sólgin í lax, en það getur komið sér illa að vera of gráðugur. Hér sést hún fóst í laxanetum skömmu
áður en henni var komið til bjargar.
Mjaldurinn enn á ferð
Alaborg, 9. ágúst. AP.
MJALDURINN Valborg, sem Danir nefna svo,
hefur nú enn á ný sótt heim frændur okkar. Og nú
velta þeir því fyrir sér, hvort hún muni sækja um
danskan ríkisborgararétt.
Hvalurinn festist á grynningum i Limafirði
fyrir allöngu, en tókst að losa sig. Þá festist
hann í laxanetum í firðinum, en var bjargað. í
síðustu viku var mjaldurinn kominn í Kattegat
og töldu menn hann stefna á kaldari hafsvæði
eins og dýrategundinni er eiginlegt.
En á sunnudaginn sást aftur til hans á Lima-
firði og segir Knud Rasmussen líffræðingur
hvalinn kominn til að vera um kyrrt.
Eitraði fyrir
ættingjana
Kempen, 8. ágúst. AP.
MARIA VELTEN, 67 ára gömul ekkja, var handtekin sl. laugardag af
vestur-þýsku lögreglunni fyrir morð á 77 ára gömlum föður sínum,
tveimur eiginmönnum, 78 ára gamalli frænku og 74 ára gömlum unnusta
sínum.
Velten játaði að hafa eitrað
fyrir allt þetta fólk, en föður sinn
myrti hún árið 1963 með skor-
dýraeitri og þar með fór skriðan
af stað. Sex árum síðar eitraði hún
fyrir frænku sína, 1976 kom röðin
að seinni eiginmanni Velten,
tveimur árum síðar var það unn-
ustinn, þá fyrri eiginmaðurinn í
ERLENT
Segir uppreisnarmenn ekki
óvinveitta Bandaríkjastjórn
Washington, 9. ágúst. AP.
EINN AF foringjum uppreisnarmanna í E1 Salvador, Guillermo
Ungo, segir félaga sína æskja vinsamlegra samskipta við Bandarík-
in. Ungo sagði uppreisnarmenn sækjast eftir „vinum, en hvorki
óvinum né drottnurum". Kvað hann það vera „brjálæði" að ætla sér
annað, að því er segir í haustblaði Foreign Policy Magazine.
Bandaríkjastjórn telur, að heldur hvaðanæva að. Til upp-
þeirra nú fyrir skömmu tjáð sér
vilja nefndarmanna til að heim-
sækja landið. Jarquin kvað þá
vera velkomna.
Annar diplómat Nicaragua,
Saul Arana, kvað það mest í
nösunum á Bandaríkjamönnum,
að þeir vildu ræða við ráðamenn
þar. Sagði hann við blaðamenn,
að það væri sennilega ekki langt
þangað til Bandaríkjastjórn
sendi hermenn til Mið-Ameríku.
sigur uppreisnarmanna í E1
Salvador muni aðeins leiða til
marxískrar stjórnar líkt og í
Nicaragua. „Kommúnistar líta
landið hýru auga og leggja nú
höfuðáherslu á að ná þar yfir-
ráðum,“ sagði Nestor Sanchez,
aðstoðarvarnarmálaráðherra
Bandaríkjastjórnar í málefnum
Ameríku. Ungo neitaði slíku og
kvað uppreisnarmenn leita að-
stoðar „ekki aðeins frá Kúbu,
byggingar landsins þurfum við
að fá aðstoð frá hinum vestræna
heimi, þar á meðal frá Banda-
ríkjunum".
Þá sagði sendiherra Nicar-
agua í Bandaríkjunum, Antonio
Jarquin, að Henry Kissinger,
fyrrum utanríkisráðherra og nú
formaður sérlegrar nefndar
Bandaríkjaforseta um málefni
Mið-Ameríku, hefði á fundi
Vilja úrskurð
alþjóðadómstóls
<>sló, 9. ágúst. Frá fréltaritara Mbl. í Norejji, Kolf Lövström.
lltanríkisráðherra Dana, Dffe
Ellemann-Jensen sagði í viðtali við
norska blaðið Aftenposten, að hann
Fleygði sér fram
af Notre Dame
París, 8. ágúst. AP.
FRANSKA lögreglan tilkynnti í
dag, að 25 ára gömul frönsk
stúlka hefði svipt sig lífi í gær með
því að fleygja sér fram af turni
Notre I)ame-dómkirkjunnar í Par-
ís.
Stúlkan féll 100 m niður á 29
ára gamla kanadíska stúlku og
létust þær báðar samstundis. Þá
slösuðust tveir ferðamenn smá-
vægilega.
Þetta er í 23. skipti sem ein-
hver ræður sér bana með því að
fleygja sér fram af turni dóm-
kirkjunnar, en hún er nú um 800
ára gömul. Árið 1964 framdi
frönsk stúlka sjálfsmorð á þenn-
an hátt og kramdi um leið til
bana bandarískan ferðamann.
hefði boðið norsku ríkisstjórninni að
láta alþjóðalög ráða við skiptingu
hafsvæðisins milli Jan Mayen og
Grænlands.
Norski utanríkisráðherrann
Svenn Stray sagðist hins vegar
ekkert kannast við slíkt tilboð, en
reiknaði með að samningaviðræð-
ur landanna mundu hefjast að
nýju í haust, en síðast var fundað
í málinu í janúar sl.
Fulltrúar Danmerkur og Noregs
hófu viðræður um skiptingu hafs-
ins milli Jan Mayen og Grænlands
árið 1980. Ráðamenn í Noregi telja
miðlínu réttmætasta. Danir telja
hins vegar, að 200 sjómílna land-
helgi Grænlands eigi að vera virt
að fullu þar sem Jan Mayen sé
óbyggð eyja.
Piltur skotinn á
Norður-írlandi
lklfa.sl, 9. ájrúst. AP.
f dag voru liðin 12 ár frá því, að
bresk yfirvöld ákváðu að hafa mætti þá
í gæsluvarðhaldi án dómsúrskurðar
sem grunaðir væru um hermdarverk.
Af þessu tilefni var efnt til óeirða á
Norður-írlandi í dag.
Lögreglan skaut í átökunum til
bana ungling, Thomas Riley. Hann
var ungur kaþólikki frá vesturhluta
Belfast. Kiley var að sögn viðstaddra
óvopnaður og er annar kaþólikkinn
sem skotinn er til bana með skömmu
millibili á Norður-Irlandi. Martin
Malone, 18 ára, var skotinn af varn-
arsveitum Ulster (UDR) 30. júlí sl.
Lögreglan kvað fjóra lögreglu-
þjóna og fjölda borgara hafa slasast
í átökunum. Þá hefðu 64 verið hand-
teknir.
Getnaðarvörn
fyrir karlmenn
('leveland, 9. ágúst. AP.
LARRY L. Ewing, prófessor í æxl-
unarlíffræði við John Hopkins-
háskólann í Bandaríkjunum, sagði
blaðamönnum í gær, að hann hefði
fyrir hönd starfshóps við háskól-
ann sótt um leyfi til heilbrigðisyf-
irvalda til prófana á nýrri tegund
getnaðarvarnar fyrir karlmenn á
mennskum „tilraunadýrum“.
Starfshópurinn hefur reynt
hina nýju getnaðarvörn síðustu
12 árin á rottum, kanínum og
resusöpum. Það tekur um 2 ár að
fá leyfi frá bandarískum heil-
brigðisyfirvöldum til tilrauna á
mönnum.
Getnaðarvörnin er krem, sem
borið er daglega á magann til að
letja framleiðslu sáðfrumna. Það
hefur sams konar áhrif og pillan,
þ.e. magn kynhormóna í blóði er
aukið. Hormónin hafa síðan
áhrif á stjórn heiladinguls á
sæðisframleiðslu.
Kremið er m.a. gert úr hor-
mónunum testosteróni og estra-
díol, sem er afbrigði estrógens.
nóvember sl. Frúin kvaðst tvívegis
hafa reynt að eitra fyrir seinni
eiginmann sinn árið 1973, en hann
hefði því miður lifað það af.
Maria Velten er sex barna móð-
ir og lýst sem afar vingjarnlegri
konu af nágrönnum og ættingjum.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Jan .......... 22/8
Jan ........... 5/9
Jan ............ 19/9
ROTTERDAM:
Jan .......... 23/8
Jan ........... 6/S
Jan .......... 20/9
ANTWERPEN:
Jan .......... 24/8
Jan ........... 7/9
Jan .......... 21/9
HAMBORG:
Jan ......... 12/8
Jan .......... 26/8
Jan ........... 9/9
Jan .......... 23/9
HELSINKI:
Helgafell .... 15/8
Helgafell ..... 9/9
LARVIK:
Hvassafell ... 19/8
Hvassafell ... 29/8
Hvassafell ... 12/9
Hvassafell ... 26/9
GAUTABORG:
Hvassafell ... 18/8
Hvassafell ... 30/8
Hvassafell ... 13/9
Hvassafell ... 27/9
KAUPMANNAHÖFN:
Helgafell .... 18/8
Hvassafell ... 31/8
Hvassafell ... 14/9
Hvassafell ... 28/9
SVENDBORG:
Helgafell .... 19/8
Hvassafell .... 1/9
Hvassafell ... 15/9
Hvassafell ... 30/9
ÁRHUS:
Hvassafell ... 15/8
Hvassafell .... 1/9
Hvassafell ... 15/9
Hvassafell ... 30/9
GLOUCESTER MASS.:
Jökulfell .... 10/8
Skaftafell ... 19/8
Skaftafell ... 17/9
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ... 20/8
Skaftafell ... 19/9
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101