Morgunblaðið - 10.08.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1983
35
fclk í
fréttum
Dóttir Robert Redfords
í haldi vegna morðs
+ Shauna Redford, 23 ára gömul dóttir leikarans
Robert Redfords, var í fyrri viku handtekin, grunuð
um að hafa myrt mann að nafni Sid Wells, jafnaldra
sinn og elskhuga um nokkurt skeið.
Þau Sid og Shauna höfðu búið saman í nokkurs
konar kommúnu með öðru fólki í borginni Boulder
í Colorado og þó þau hafi áður elskast út af lífinu,
var nú svo komið, að þau hötuðu hvort annað.
Fyrir nokkru kom til mikils uppgjörs á milli
þeirra og Shauna tók saman allt sitt hafurtask og
fluttist í burtu. Daginn eftir fannst Sid látinn i
herbergi sínu og hafði hann verið skotinn eða
skotið sig í höfuðið með skammbyssu.
í fyrstunni hallaðist lögreglan að því, að Sid
hefði framið sjálfsmorð, en við rannsóknina kom
ýmislegt í ljós, sem benti til þess, að hann hefði
verið myrtur. Þegar fólkið í kommúnunni hafði
verið yfirheyrt var Shauna svo handtekin og sök-
uð um morðið.
„Auðvitað hefur dóttir mín ekki framið neitt
morð. Þetta er bara skelfilegur misskilningur og
Shauna Redford, sen nú hefur verið handtekin fyrir
morðið á fyrrum elskhuga sínum, Sid Wells.
ég er viss um, að hún verður látin laus fljótlega.
Ég hef ráðið til mín góðan lögfræðing og er ekkert
mjög áhyggjufullur. Bara leiður og dapur vegna
dóttur minnar," sagði Robert Redford.
Richard Pryor:
180 milljónir á ári
fyrir gamanleikinn
Richard Pryor í síðustu mynd sinni, „Leikfanginu**, ásamt Jackie Gleason.
COSPER
+ Bandaríski svertinginn og gam-
anleikarinn Richard Pryor gerði nú
nýlega samning við Columbia-
kvikmyndafélagið, sem tryggir hon-
um næstum því 900 milljónir ísl. kr.
í laun næstu fimm árin, og er hann
þar með kominn í hóp þeirra kvik-
myndaleikara, sem best eru launað-
ir.
Richard Pryor er kunnur úr
mörgum myndum en nú er vænt-
anleg með honum „Superman III"
þar sem hann fer með aðalhlut-
verkið ásamt Christopher Reeve.
Reeve leikur að sjálfsögðu ofur-
mennið Clark Kent en Pryor kem-
ur fram í gervi skúrksins.
í Hollywood þykir velgengni
Pryors vera með mestu ólíkindum
enda var öðruvísi komið fyrir hon-
um fyrir aðeins tveimur árum. Þá
var hann næstum því búinn að
brenna sig lifandi þegar hann var
að matreiða ofan í sig blöndu af
kókaíni og einhverju öðru álíka
hollu.
— Ég stansaði af því að ég hafði alveg gleymt
að þú varst með.
„Ég þarf ekki að hafa áhyggjur
af peningum framar og þess vegna
ætla ég ekki að leggja mig niður
við einhverjar miðlungsmyndir í
framtíðinni. Fólk er stundum að
segja við mig, að ég sé svo breytt-
ur, en það er bara vegna þess, að
það þekkir mig ekki. Það veit ekki
hve langt ég var í raun leiddur hér
áður fyrr af öllum eiturlyfjunum
og áfenginu. Nú er það hins vegar
búið," segir Pryor.
Richard Pryor er fimmkvæntur
og stendur nú í því að skilja einn
ganginn enn. Kennir hann konu
sinni um, segir að hún sé sjúk af
afbrýðisemi og spyrji hann í þaula
um allar hans ferðir milli þess
sem hún ausi peningunum út á
báðar hendur á dýrustu stöðunum
í Los Angeles. Vinir hans og kunn-
ingjar veðja á, að hann muni taka
aftur upp sambúð með fjórðu konu
sinni, Deborah, sem hann gekk að
eiga árið 1977.
Orðsending frá
Getraunum
Getraunir hefja starfsemi sína aö nýju eftir sumarhlé
meö leikjum ensku deildakeppninnar laugardaginn
27. ágúst. Fyrsti seöillinn hefur veriö sendur aðilum
utan höfuöborgarsvæöisins.
Félög í Reykjavík og nágrenni vitji seöilsins á skrif-
stofu Getrauna í íþróttamiðstööinni í Laugardal.
Nú mælum við
barnaherbergið
og gefum barnlnu okkar vönduö og hentug húsgögn.
Hér er tegund 2024, bekkur meö hillum yfir, til í furulit.
Stærö: hæö 167, lengd 197, breidd 75. Verö meö dýnu
og 3 púöum 9.430.-, útborgun 2.000,- og rest á 6 mán-
uðum. Bekkurinn stakur kostar 6.290.-.
Hér er gagnlegur hlutur þar sem vantar klæöaskápa í
herbergi. Teg. 2033, er til í furulit. Stæröir eru: hæö 167,
lengd 274, breidd 75. Verö meö dýnu og þrem púöum.
13.290.-, útborgun 3.000.- og rest á 7 mánuðum.
Hringdu til okkar eöa líttu inn, viö höfum geysilegt
úrval húsgagna sem henta vel í lítil barnaherbergi.
HAGSYNN VELUR ÞAÐ BESTA
HUSGAGNAHÖLLIN
BILDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410