Morgunblaðið - 10.08.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1983
Financial Times
kemur út aftur
London, 9. ágú.st. AP.
HELSTA viðskiptablað Bretlands-
eyja, „The Financial Times“, kom út
í dag í fyrsta sinn á tíu vikum eftir
að verkfalli starfsmanna var aflýst.
Samningurinn, sem endi batt á
verkfallið, var undirritaður í síð-
ustu viku af framkvæmdastjórum
blaðsins og fulltrúum prentara.
Þar segir að kaupgreiðslur til
prentara muni hækka um þrettán
sterlingspund á viku, sem er átján
pundum minna en þeir höfðu farið
fram á. Eftir hækkun hafa prent-
arar við blaðið þrjú hundruð og
sautján pund á viku, eða meira en
þrettán þúsund íslenkar krónur.
Þegar „The Financial Times"
kom síðast út hinn 31. maí, kostaði
blaðið 30 penní, en kostar nú 35
penní.
Hersveit Afgana
réðst á eigið lið
Hætta við strendur Suður-Afríku
Olíuskipið Castillo de Bellvar skömmu áður en það brotnaði í tvennt, um þrjátíu kflóraetra út af vesturströnd
Suður-Afríku. Hstta var í dag talin á því að sviptivindar myndu þoka olíubrákinni nsr ströndinni. Stsrsti
dráttarbátur veraldar, John Ross, togaði skut skipsins hsgt og sígandi á haf út, til að forða því að hann sykki
nsr landi. Olíubrákin er um tuttugu kflómetrar á breidd, en síðan á laugardag hafa vindar lengst af verið
hagstsðir. Mengunarhstta við ströndina hefur ekki verið umtalsverð þar til í dag.
Islamabad, Pakistan, 9. igúst. AP.
AFGANSKAR öryggissveitir drápu
að minnsta kosti tuttugu sinna eigin
manna í misgripum, í sprengjuárás á
herstöð eina, sem talin var vera á
valdi sksruliða, að sögn vestrsnna
diplómta í dag.
Samkvæmt frásögn diplómat-
anna átti atburðurinn sér stað
þann 30. júlí í borginni Ghazni í
hundrað og tólf kílómetra fjar-
lægð suðvestur af höfuðborginni.
Arftaki Rios Montts
er harður stjórnandi
Mexíkóborg, 9. ágúst, New York Times.
HINN NYI forseti Guatemala, Oscar Humberto Mejia Victores,
hershöfðingi, er orðlagður fyrir hollustu sína við herinn og harð-
skeytta afstöðu til þjóðmála. Valdataka hans á mánudag er talin
munu hafa í för með sér formbreytingar frekar en straumhvörf í
stjórnmálahTi landsins, þar sem prédikunarstfll Rios Montts, fyrr-
verandi forseta, hefur orðið æ fleirum gremjuefni að undanförnu.
Mejia Victores fæddist í
Guatemala-borg árið 1930.
Hann innritaðist í herskóla
árið 1948 og var skipaður laut-
inant árið 1953. Einnig út-
skrifaðist hann sem hagfræð-
ingur frá háskólanum í San
Carlos í Guatemala. Forsetinn
nýi er sagður hafa hlotið þjálf-
un í herskólum í Panama og í
Maryland í Bandaríkjunum og
tali hann þar af leiðandi góða
ensku. Árið 1977 varð hann
varastarfsmannastjóri hersins
og yfirmaður aðalstöðva hers-
ins tveimur árum síðar. Eftir
byltinguna, sem kom Rios
Montt til valda, var hann út-
nefndur varnarmálaráðherra
landsins. Mejia Victores er
giftur og er tveggja barna fað-
ir. Hann er talinn gersneyddur
málgleði og félagslyndi af því
tagi er einkenndi fyrirrennara
hans. Líkt og meirihluti
Guatemala-búa er hann róm-
versk-kaþólskur.
„í samanburði við Mejia er
Rios Montt hrein dúfa,“ sagði
íbúi í Guatemala-borg við
fréttamann New York Times
nýlega. Stjórnmálamaður
nokkur lýsti hershöfðingjan-
um sem „afar íhaldssömum".
Sagt er að lífsviðhorf hans séu
táknræn fyrir yfirmenn hers-
ins, sem leggja áherslu á hefð-
bundnar dyggðir, öryggi, and-
kommúnisma og frjálslyndi í
viðskiptalífi.
í fyrstu yfirlýsingunni, sem
forsetinn gaf út í gær, sagðist
hann mundu gera allt sem í
valdi sínu stæði til að stemma
stigu við skaðsemdaráhrifum
kommúnista, sem ógnuðu
frelsi landsins og fullveldi.
Almennt er ekki búist við að
mannréttindastefna Guate-
mala muni taka breytingum
undir stjórn hins nýja forseta,
en hún hefur sætt mikilli gagn
rýni á undanförnum árum.
Sem varnarmálaráðherra átti
Mejia Victores sjálfur drjúgan
þátt í herferð stjórnvalda
gegn skæruliðum vinstri-
manna, er leiddi til þess að
þúsundir borgara týndu lífi
eða misstu heimili sín.
Oscar Humberto Mejia Victores,
hinn nýi forseti Guatemala.
Kínverjar vilja
fá (lugmanninn
Peking, 9. ágúst. AP.
KÍNVERSKA untanríkisráðu-
neytið lýsti því yfir í dag að
skila bæri aftur kínverska flug-
manninum ásamt orrustuþot-
unni MIG-21, sem hann flaug
til Suður-Kóreu á sunnudag.
Talsmaður ráðuneytisins
gat þess ekki hvort tilmælum
þessum hefði verið komið á
framfæri við yfirvöld í Suð-
ur-Kóreu. Heimildir í Seoul
herma að Suður-Kóreumenn
séu reiðubúnir til að koma að
máli við kínverska sendi-
menn og semja um að þot-
unni verði skilað.
„Ekki aðeins þotunni, held-
ur einnig flugmanninum ber
að skila til Kína,“ sagði tals-
maður utanríkisráðuneytis-
ins. Embættismenn í Suður-
Kóreu segja að flugmaður-
inn, Sun Tienchin, fjörutíu
og sex ára að aldri, hefði far-
ið fram á að honum yrði leyft
að biðjast hælis í öðru landi,
sennilega á Taiwan.
Vill aö menn
læri af öpum
E».st Un.smg, Mirhigan, Bandaríkjunum, 9.
MENN ættu aö læra af öpum og
ala börn sín upp með meiri hlýju
og Ifkamssnertingu en nú tíðkast,
að því er vísindamaður á ráðstefnu
sérfræðinga um frummenn sagði í
dag.
Samanburðarsálfræðingur frá
Tækniháskólanum í Georgia,
Terry Maple að nafni, sagðist
hafa mótað kenningu sína um
„náttúrulegt uppeldi" eftir að
hafa rannsakað apategundir svo
sem górillur og sjimpansa í tíu
ár. Kenningin, segir vísindamað-
urinn, setur fram líffræðilegt
líkan til skilnings á atferli apa
og til að leysa úr uppeldislegum
vandamálum. Maple segir að
hann og eiginkona hans hafi
stuðst við kenninguna við upp-
eldi tveggja dætra sinna, sem
eru eins árs og tveggja ára, og
ágú.st. AP.
hafi það haft „undraverð" áhrif.
Eitt sinn sagðist Maple hafa
veitt því athygli að eldri dóttir
sín væri taugaóstyrk, ef hún
væri hreyfingarlaus. „Ég mundi
þá að apar þurfa á hreyfingu að
halda svo ég kom henni fyrir í
poka á baki mínu meðan ég
sinnti húsverkum og virtist það
hafa róandi áhrif,“ sagði hann.
Maple benti einnig á að óráðlegt
væri að nota skammaryrði til að
ávíta börn fyrr en þau skildu
málið. Skynsamlegra væri að
fylgja fordæmi apa og halda
börnum í fjarlægð frá hlutum,
sem leitt gætu til vandræða.
Ennfremur hefði heilnæm áhrif
að halda á börnum, snerta þau
og veita þeim umhyggju fyrstu
tvö til þrjú árin eftir að þau
fæddust.
Kabúl. Ghazni, sem er við þjóð-
götu á leiðinni frá Kabúl til Kan-
dahar var vettvangur stórsóknar
stjórnarherja í síðasta mánuði.
Sagt er að þeir hafi yfirgefið borg-
ina fyrir tveimur vikum þrátt
fyrir að ekki hafi tekizt að útrýma
andstæðingum stjórnarinnar þar
algerlega. Sendimönnunum ber
saman um að loftárásin á herstöð-
ina kunni að hafa verið fyrirskip-
uð eftir að óáreiðanlegar fregnir
bárust um að skæruliðar væru að
gera árás á Bala Hirsar-virki Sov-
étmanna. Ein sprengjan í árás
stjórnarhersins missti marks og
sprakk á götu með þeim afleiðing-
um að meira en tíu óbreyttir afg-
anskir borgarar létust. Engar
fregnir hafa borizt af falli skæru-
liða í árásinni.
Haft var eftir vestrænum dipló-
mötum í Nýju Delhí í Indlandi í
dag að Sovétmenn hefðu gert að
engu undirritaða samninga um að
hörfa aftur frá Panjsher-dalnum í
Afganistan í síðasta mánuði.
Þvert á móti hefðu þeir svarað
með sprengjuárás á þorp, er þeir
voru minntir á að hafa sig á brott.
Veður
víða um heim
Akureyri 12 alskýjaó
Amsterdam 27 heiðskirt
Aþena 33 heiöskírt
Barcelona 24 alskýjaö
Berlin 28 heiöskírt
BrUtsel 27 heiöskýrt
Chicago 37 heiöskýrt
Deli 35 heiöskírt
Frankfurt 27 heiöskírt
Genf 26 skýjaö
Helsinki 23 heiöskírt
Hong Kong 33 heiöskírt
Jerúsalem 26 heiöskirt
Jóhannesarborg 6 skýjaö
Kaupmannahöfn 26 skýjaö
Kairó 33 heiöskirt
Lissabon 24 skýjaö
London 26 skýjað
Los Angeles 35 heiöskfrt
Madríd 29 heiöskýrt
Mallorca 29 léttskýjaö
Malaga 27 léttskýjað
Miami 34 heiöskirt
Moskva 24 heiðskírt
New York 35 rigning
Osló 25 skýjaö
París 29 skýjaö
Peking 31 heiöskfrt
Reykjavík 11 rigning
Rio de Janeíro 26 heiöskfrt
Róm 32 heiöskírt
San Francisko 25 heiðskirt
Stokkhólmur 29 heiöskírt
Tel Aviv 29 heiðskirt
Tókió 35 heiðskírt
Vancouver 24 skýjaö
Vin 29 heiöskirt
Þórshöfn 12 súld