Morgunblaðið - 10.08.1983, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1983
• Einar Vilhjálmsson fangar sigri yfir heimsmethafanum á mótinu í
Stokkhólmi og um leið nýju íslandsmeti, 90,66 metrum, sem er hans
besti árangur til þessa.
íþróttafréttamenn í golf
HIÐ ÁRLEGA golfmót íþrótta-
fréttamanna, Glenelgin-open fer
fram á golfvelli GR, Grafarholts-
Úlfar sigraði
í Nissan-mótinu
SUNNUDAGINN 7. þ.m. fór fram
NISSAN-mótiö, sem var keppni
drengja 18 ára og yngri. Úrslit
urðu þessi:
Án forgjafar: högg
Ulfar Jónsson QK, 85
Arnar M. Olafsson GK, 89
Karl Ö. Karlsson GR, 93
Meó forgjöf: högg
Siguröur Siguröarson GR, 99-22 = 77
Gunnar Sigurósson GR. 94-15 = 79
Ulfar Jónsson GK, 85- 4 = 81
Opið öldungamót fór fram í
Grafarholti sunnudaginn 7. þ.m.
Úrslit uröu sem hér segir:
Hafsteinn Þorgeirsson GK og
Svan Friögeirsson GR 66 högg
Jóhann Benediktsson GS og
Baldvin Haraldsson GR 66 högg
Sverrir Norland GR og
Guömundur Ofeigsson GR 67 högg
velli, á morgun og hefst kl. 13.
Leiknar verða heilar 18 holur sem
er einn hringur á þessum stærsta
golfvelli landsins og veröur fróö-
legt að fylgjast meö hvort íþrótta-
fréttamenn eru eins góöir í aö
nota kylfurnar og þeir eru í aö
skrifa um notkun þeirra.
Þaö er White Horse-umboöiö á
íslandi, heildverslun Alberts Guö-
mundssonar, sem ber allan kostn-
að af mótinu og í tilefni 'þess mun
I.D. Ferguson, markaösstjóri White
Horse í Evrópu, koma til landsins
til aö fylgjast með mótinu. En þaö
veröa fleiri áhorfendur á þessu
móti því landsliöseinvaldurinn í
golfi, Kjartan L. Pálsson, mun
fylgjast grannt meö framvindu
mála þó svo þaó sé ef til vill full
seint í rassinn gripiö aö uppgötva
nýja menn í landsliöiö nú þegar
golfvertíöinni er aö Ijúka, en þaö
má vel vera aö hann hyggist hvetja
þá bestu til aó æfa í vetur þannig
aö menn veröi í góöu formi þegar
vellir koma undan snjónum í vor.
Hver veit?
Undankeppni í spjótkastinu í dag:
„Að komast í úrslitin
er viss sigur fyrir mig“
— segir Einar Vilhjálmsson sem keppir í dag í Helsinki
í dag kl. 10.00 hófst undankeppnin í spjótkasti karla á heimsleikun-
um í Helsinki. Undankeppnin fer ekki fram á aöalleikvanginum heldur
á velli þar nálægt. Til þess aö komast í sjálfa aðalkeppnina þurfa
keppendur aö kasta spjótinu yfir 80 metra. Þeir sem ekki ná þeim
árangri eru úr leik. Sjálf aöalkeppnin fer síðan fram á föstudaginn á
aöalleikvanginum, og hefst þá klukkan 10.10. Einar Vilhjálmsson er
meöal þátttakenda í spjótkastinu í dag og ef að líkum lætur þá ætti
hann aö vera nokkuð öruggur um aö komast í úrslitakeppnina. En
hvaö haföi Einar sjálfur aö segja um þaö.
— Maöur veröur aö vera raun-
sær. Þaó getur allt gerst á svona
mótum og enginn er öruggur. Ég
geröi þaö af ásettu ráói aó fara
ekki utan fyrr en á mánudag. Mér
líöur ekki vel aö þurfa aö vera lengi
á keppnisstaönum áöur en keppn-
in fer fram.
— Ég mun taka eitt skref í einu.
Fyrst stefnir maöur aö því aö kom-
ast inná aóalleikvanginn meö því
aö kasta yfir 80 metra í undan-
keppninni. Hún fer fram klukkan
10 aö morgni og þaö er óvenju-
legur keppnistími. Fyrir mig alla-
vega.
— Komist ég svo í aöalkeppn-
ina sem fer fram á föstudaginn þá
gildir bara harkan sex. Taka á hon-
um stóra sínum, en reyna jafn-
framt aö vera í fullkomnu jafnvægi
allan tímann.
— Á svona stórmótum gildir aö
hafa sálrænu hliöina í fullkomnu
lagi. Spennan er geysilega mikil
þegar mótin eru svona stór og
þarna eru jú allir bestu spjótkast-
arar heims.
— Ég mun að sjálfsögöu gera
mitt besta og reyna aö vera landi
mínu og þjóö til sóma. Þaö eitt aö
komast i úrslitin í keppninni er viss
sigur fyrir mig. Keppnistímabiliö er
búiö aó vera langt og strangt og
ég er ekki alveg viss um hvar ég
stend núna. Hvort ég er kominn
yfir toppinn í ár, eöa hvort ég á
eitthvaö eftir í pokahorninu. Ég
geröi mér svo sannarlega ekki
vonir um aö ná svona góöum
árangri í ár. Þetta átti aö vera
reynsluár. En vonandi, ef aö lukk-
an verður meö, gæti mér gengiö
vel.
Einar Vilhjálmsson er meö átt-
unda besta árangur i heiminum í
dag fyrir leikana í Helsinki. Þaö
veröur því fróölegt og um leiö
spennandi aö fylgjast meö því
hvernig þessum mikla afreksmanni
kemur til meö aö ganga á mótinu.
f Stokkhólmi á dögunum sigraöi
Einar sjálfan heimsmeistarann í
greininni, Petranoff, og náöi þá
sínu lengsta kasti, 90,66 metrum. i
upphitun í sex landa keppninni j
Edinborg náöi Einar aö kasta
91,50 metra löglegu kast sem var
mælt. En því miöur var þaö ekki í
sjálfri keppninni. En það sýnir aö
Einar getur gert stóra hluti. Heims-
afrekaskráin lítur svona út.
Tom Petranoff Bandar 99,72 m
Detlef Michel A-Þýsk. 96,72 m
Kheino Puuste Rússl. 94,20 m
Dajnis Kula Rússl. 91,88 m
Tafelmeier V-Þýskal. 91,44 m
Merwe S-Afríku 91,24 m
Sinersaari Finnl. 90,90 m
Einar Vilhjálmsson 90,66 m
Rourke Bandar. 90,58 m
Mike Barnett Bandar. 90,35 m
Per Olsen Noregi 90,30 m
— ÞR.
Þjálfar Knapp landsliðið?
Tony Knapp, sá hinn sami og
þjálfaöi íslenska landsliöiö í
knattspyrnu hér fyrir nokkru ár-
um og hefur nú aö undanförnu
gert garöinn frægan í Noregi, þar
sem hann þjálfar 2. deildar liöiö
Fredrikstad, lét svo um mælt í
norskum blööum aö vel gæti fariö
svo að hann tæki til viö aö þjálfa
íslenska knattspyrnulandsliöiö á
nýjan leik.
Knapp hefur að undanförnu gert
þaö mjög gott meö Fredrikstad í
Noregi. Liöiö er nú i efsta sæti
með þriggja stiga forustu og aö
undanförnu hafa þeir ekki leikiö
leik án þess aö skora aö minnsta
kosti fimm mörk í hverjum leik.
Knapp hættir að þjálfa Fred-
rikstad eftir þetta keppnistímabil
og aöspuröur hvað tæki þá viö hjá
Hildigunnur
fékk styrk
4. ÁGÚST sl. var úthlutaö
námsstyrk FSÍ til Hildigunnar
Gunnarsdóttur aö upphæö 6.600
Skr til skólavlstar viö Kennara-
háskólann í Stokkhólmí, námsár-
ið ’83—’84.
Hildigunnur hefur þjálfaö fim-
leika hjá ÍR undanfarin 4 ár, auk
þess aö hafa BA-próf í uppeldis-
fræðl og hafa sinnt dómarastörf-
um í fimleikum.
Hún fer til framhaldsnáms I
íþrótta- og uppeldisfræði meö
fimlelka sem sérgrein.
Dagana 29. júní—3. júlí var
haldiö dómaranámskeiö í fimleik-
um í Örebro.
Einn þátttakandi frá Islandi sótti
þetta námskeiö, Birna Björnsdótt-
ir.
27 manns tóku þátt í því frá Sví-
þjóö.
honum svaraöi hann því til aö helst
vildi hann vera áfram í Noregi en
þaö væri ekki loku fyrir þaö skotiö
aö hann færi til íslands og tæki þar
viö landsliöinu á nýjan leik.
Ekki hefur Mbl. neinar heimildir
fyrir því aó KSI hafi leitaö til Knapp
um aó hann tæki aö sér landsliöiö
en eins og fólk eflaust man eftir þá
var hann frægur fyrir það á sínum
tíma aö láta hafa eftir sér í fjölmiöl-
um ýmiskonar yfirlýsingar og vel
má vera aö hann vonist eftir því aö
KSÍ leiti til hans um þjálfun
knattspyrnulandsliös okkar.
— sus
• Tony Knapp langar grainilaga aftur til falanda, af marka má ummæli hana í
norakum blöóum.
íþróttir á bls. 40 — 41 — 42 —43