Morgunblaðið - 10.08.1983, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1983
25
Hveragerði:
Þýski myndlistarmaðurinn
Helmut Plontke sýnir í Eden
llveragerði, 6. ágúst.
ÞÝSKUR myndlistarmaöur, Helmut
Plontke, hefur opnað sýningu á
verkum sínum í listamannaskálan-
um í Eden í Hveragerði. Mun hún
standa til 16. ágúst nk. Mikill fjöldi
mynda er á sýningunni og eru þær
allar til sölu. Myndirnar eru smáar
og án ramma, þar eð erfitt er að
flytja stórar myndir milli landa.
Verð myndanna er við flestra hæfi.
Fréttaritari Mbl. var boðið að
sjá sýninguna og ljósmynda lista-
manninn og einnig að glugga í
gagnrýni þá er hann hefur hlotið í
erlendum blöðum.
Þar kemur fram að Helmut
Plontke er af mörgum talinn í
hópi athyglisverðustu nútíma
listamanna í Þýskalandi. Hann
hefur hlotið alþjóðlega viðurkenn-
ingu og verk eftir hann eru í lista-
söfnum víða um heim. Höfuðvið-
fangsefni hans er helstefna mann-
kynsins, sem þegar hefur sett
sjálft sig á lista yfir tegundir í
útrýmingarhættu. Segja má að öll
hans list sé helguð baráttu fyrir
friði í heiminum.
Helmut Plontke hefur haldið
áttatíu einkasýningar, þar á með-
al í New York, París, Berlín,
Moskvu, Briissel, Munchen,
Helmut Plontke ásamt konu sinni.
Chicago, Madrid, Jerúsalem og
Amsterdam.
Listfræðingurinn Marc Emans í
París kallar Helmut Plontke
meistara sem bera megi saman við
Goya og Alfred Kubin. Hann seg-
ir: „Eins og þessir málarar, túlkar
hann hið margslungna og dular-
fulla völundarhús sem einkennir
list nútímans með handbragði og
innlifun meistarans."
D. Fromont, listfræðingur í
Brússel, tekur í sama streng, hann
segir: „Þessi þýski grafíklistamað-
ur Helmut Plontke er að mínu
áliti einn hinna dýpstu sjáenda í
hópi listamanna nútímans. Hann
er þegar byrjaður, ekki aðeins í
heimalandi sínu, Þýskalandi, held-
ur einni utan þess, að fylla það
sæti sem honum fyllilega ber —
víð hlið hins fræga málara Kub-
ins.“
Eins og áður sagði mun sýning
þessa aldna listamanns standa til
16. ágúst. Tel ég víst að marga fýsi
að sjá hans fagra handbragð og
viðurkenndu list. Þessar myndir
eru taldar í háum gæðaflokki og
sýningin meiriháttar listviðburð-
ur hér á hjara veraldar.
Sigrún
klukku og hversu langar hvíldirn-
ar urðu. Konurnar styttu sér
stundir við prjónana meðan þær
voru ekki að líknarstörfum. Á
tímabili virtust tveir hlauparanna
vera að dragast aftur úr en eftir
að þeir mættu gulum bíl sem kom
norðan að, hertu þeir sig greini-
lega og allur hópurinn rann sam-
an norður veginn. Þegar rútan
nálgaðist gula bílinn fékkst skýr-
ingin, en þar var maður að taka
kvikmynd fyrir sjónvarpið. Á
meðan á því stóð réttu hlaupar-
arnir úr sér, þöndu brjóstið og
juku hraðann. Brekkan á nýja
veginum niður í Blöndudalinn var
grýtt og erfið yfirferðar. Hlaupar-
arnir sögðust fegnir að vera
komnir í byggð og fegurra lands-
lag en flatneskjuna á heiðinni.
Rútan brunaði niður að Svína-
vatni og við gatnamótin var beðið
við endamarkið með hressingu.
Hlaupararnir voru vel hressir
andlega þegar þangað kom eftir 31
kílómetra áfanga þann daginn.
Göngulagið var þó greinilega
skrykkjótt og margir sárir lík-
amshlutar sögðu til sín. Beint var
haldið til Húnavalla og allir
hlaupararnir hoppuðu í bað og
heita pottinn. Síðan var tekið til
við miðdegismatinn, heita súpu og
hlaðið borð af smurðu brauði sem
konurnar útbjuggu. Eftir það var
hvíldarstundin vel þegin. Einn
hlauparanna hafði gefið deginum
einkunnarorðin „þetta er ljóta
vitleysan", en var nú tilbúinn að
taka þau aftur, svo sæt var hvíld-
in. Á meðan voru rútan og annála-
ritarinn send niður á Blönduós til
að kanna síðasta spwjlinn gegnum
þorpið niður að sjó og til að til-
kynna lögregluyfirvöldum um
ferðir hlauparanna næsta dag.
Símað var til Morgunblaðsins um
áfanga næsta dags en auk þess var
hringt frá sjónvarpinu og leitað
frétta.
f hópnum ríkti gleði og eftir-
vænting því nú var að verða ljóst
að Kjalarskokkinu myndi ljúka
næsta dag, að mestu áfallalaust.
Ákveðið var að koma aftur að
Húnavöllum daginn eftir hlaupið,
fara í bað og borða þar saman.
Starfsfólk Eddu-hótelsins var eins
og áður boðið og búið að leysa
hvern vanda og uppfylla hverja
ósk leiðangursmanna. Oft var haft
á orði í hópnum að þvílíkri þjón-
ustu hefðu menn hvergi kynnst.
Fyrsta og vonandi eina slys
ferðarinnar gerðist um þessar
mundir. Sonur eins hlauparans
sneri sig illa og brákaði ökkla.
Farið var með hann á Blönduós til
rannsóknar en frekari aðgerða
ekki talin þörf. — í kvöldmat var
fiskbúðingur, hrísgrjón og niður-
soðnar baunir með kaffi og kökum
á eftir. Meðan karlarnir þvoðu
leirtauið blönduðu konurnar sér
kvölddrykkinn og kvöldið leið við
ánægjulegar samræður í setustofu
hótelsins. Farið í háttinn um mið-
nætti en ákveðið að vakna í fyrra
lagi.
8. ágúst
Á fætur snemma eða kl. 7.30.
Tveir karlmenn sendir með hraði í
morgunverðartilbúning. Hitt liðið
vakið kl. 8. Spenna og eftirvænt-
ing lágu í loftinu. Greinilegt var
að álagið á vöðva, sinar, liði og
bein mátti ekki verða öllu meira
því að alls konar smámeiðsli voru
að gera vart við sig. Teygjubindi,
plástrar, smyrsl og ísbakstrar
voru í fullri notkun en enginn vildi
kvarta verulega. Menn vildu
þrauka hver við sitt og njóta þess
að komast á leiðarenda. Öllum
fannst vafalaust það eitt að kom-
ast á leiðarenda vera sætur sigur,
því menn voru nú búnir að leggja
á sig miklu meira en nokkurn tíma
áður á sínum hlaupaferli. Að baki
voru 276 kílómetrar og rúmlega 24
framundan síðasta áfangann
niður hjá Svínavatni, Laxárvatni
og að sjó vestan Blönduósa.
Morgunverkin gengu greiðlega
að vanda og nú ætluðu allir sem
vettlingi gátu valdið að vera með í
rútunni og njóta endalokanna.
Litli drengurinn sem meiddi sig
daginn áður hafði sofið vel og var
hress. Matarbirgðir leiðangursins
voru að þrotum komnar og virtust
sumir fegnir því að þessu frum-
stæða lífi færi að ljúka. Ætlunin
var að leggja af stað kl. 10.00 frá
suðurenda Svínavatns og vera á
Blönduósi kl. rúmlega 12. Þennan
áfanga átti að fara varlega svo
engin ný meiðsli kæmu í ljós.
Þó allt gengi vel var lagt af stað
í hlaupið heldur á eftir áætlun, kl.
10.21. Var blásið í púströrið við
suðurenda Svínavatns. Síðasti
áfanginn hófst og létt var yíir
hópnum þrátt fyrir ýmsa auma
líkamshluta. Veðrið var allsæmi-
legt, suðvestan gola, alskýjað og
rigningarskúrir til fjalla. Hann
hékk þurr alla leiðina og menn
týndu smátt og smátt af sér hlýj-
ustu fötin. Hitastig var ekki vitað
en golan var hlý. Ávaxtasafi var
drukkinn með reglulegu millibili
og konur og börn hvöttu hlaupar-
ana sjö til dáða. Umferð um veg-
ina var lítil en talsvert var um
hrossahópa á vegarbrúnum og
hlupu þeir á undan hlaupurunum
með bægslagangi. Hraðanum var
haldið niðri til þess að ekkert
kæmi nú fyrir síðasta spottann og
menn hlupu hægar en þeir þóttust
geta. Heldur var þó hraðinn auk-
inn og rétt úr kryppunni þegar
fréttamaður og ljósmyndari frá
Morgunblaðinu komu akandi á
brúnum Subaru. Hlaupið var ann-
ars tíðindalítið og dagurinn fékk
einkunnarorðin „góður kafli". —
Þegar sást niður að sjó hljóp gáski
í menn og „Hafið bláa hafið“ var
kyrjað fullum hálsi. Nokkrir út-
lendingar á gangi með bakpoka
störðu spurnaraugum á þennan
furðulega hóp. Þegar sjónvarps-
myndatökumaður á gulum Volvo
kom í ljós í brekkunni niður að
Blönduósi var hægt svolítið á ferð-
inni svo hann næði góðum mynd-
um en síðan var spretturinn tek-
inn niður í gegnum þorpið á aust-
urbakka Blöndu. Ferðalangar og
stöku þorpsbúar fylgdust með
hlaupurunum. Farið var framhjá
pósthúsinu, hótelinu, kirkjunni og
alveg niður í grýtta fjöruna. Á
sjávarbakkanum biðu konur
hlauparanna með endamarkið og
púströrið og fögnuðu þeim með
hrópum og lúðrablæstri. Einn
hlauparinn, gamall sundkappi, lét
ekki staðar numið í fjörunni held-
ur geystist út í Norður-Atlants-
hafið. Fögnuðurinn var mikill.
Þetta hafði tekist! 302 kílómetrar
höfðu verið hlaupnir á 23 klst. og
26 mínútum, að frátöldum hvíld-
um.
Að lokum kysstu konurnar
karla sína og sæmdu þá rauðum
nellikum. Aukaverðlaun voru
endurskinsmerki til að nota við
hlaup næsta vetrar. Þá var brunað
að Húnavöllum, farið í bað og
heita pottinn og síðan snædd dýr-
indis máltíð framreidd af starfs-
fólki hótelsins.
Stefnan var tekin suður aftur
eftir 10 frábæra daga undir ein-
kunnarorðunum: „allir á réttum
Kili“.
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
KDMA Át MORGUN
Auglýsing
um aöalskoðun bifreiöa og bifhjóla í Hafnarfiröi,
Garöakaupstaö og Bessastaðahreppi frá 15.
ágúst—7. október 1983.
Skoðun fer fram sem hér segir:
Mánud. 15. ágúst G-10401 til G-10600
Þriðjud. 16. ágúst G-10601 til G-10800
Miövikud. 17. ágúst G-10801 til G-11000
Fimmtud. 18. ágúst G-11001 til G-11200
Föstud. 19. ágúst G-11201 til G-11400
Mánud. 22. ágúst G-11401 til G-11600
Þriðjud. 23. ágúst G-11601 til G-11800
Miövikud. 24. ágúst G-11801 til G-12000
Fimmtud. 25. ágúst G-12001 til G-12200
Föstud. 26. ágúst G-12201 til G-12400
Mánud. 29. ágúst G-12401 til G-12600
Þriðjud. 30. ágúst G-12601 til G-12800
Miövikud. 31.ágúst G-12801 til G-13000
Fimmtud. 1. sept. G-13001 til G-13200
Föstud. 2. sept. G-13201 til G-13400
Mánud. 5. sept. G-13401 til G-13600
Þriðjud. 6. sept. G-13601 til G-13800
Miövikud. 7. sept. G-13801 til G-14000
Fimmtud. 8. sept. G-14001 til G-14200
Föstud. 9. sept. G-14201 til G-14400
Mánud. 12. sept. G-14401 til G-14600
Þriöjud. 13. sept. G-14601 til G-14800
Miövikud. 14. sept. G-14801 til G-15000
Fimmtud. 15. sept. G-15001 til G-15200
Föstud. 16. sept. G-15201 til G-15400
Mánud. 19. sept. G-15401 til G-15600
Þriðjud. 20. sept. G-15601 til G-15800
Miövikud. 21. sept. G-15801 til G-16000
Fimmtud. 22. sept. G-16001 til G-16200
Föstud. 23. sept. G-16201 til G-16400
Mánud. 26. sept. G-16401 til G-16600
Þriöjud. 27. sept. G-16601 til G-16800
Miövikud. 28. sept. G-16801 til G-17000
Fimmtud. 29. sept. G-17001 til G-17200
Föstud. 30. sept. G-17201 til G-17400
Mánud. 3. okt. G-17401 til G-17600
Þriöjud. 4. okt. G-17601 til G-17800
Miövikud. 5. okt. G-17801 til G-18000
Fimmtud. 6. okt. G-18001 til G-18200
Föstud. 7. okt. G-18200 og yfir
Skoöun fer fram viö Suðurgötu 8, Hafnarfirði frá
kl. 8.15—12.00 og 13.00—16.00 alla framantalda
daga.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiðum til skoöunar. Viö skoöun skulu ökumenn
leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir
því, aö bifreiðagjöld séu greidd, aö vátrygging fyrir
hverja bifreiö sé í gildi og aö bifreiðin hafi veriö
Ijósastillt eftir 1. ágúst sl. Athygli skal vakin á því aö
skráningarnúmer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver aö koma ökutæki sínu til skoðun-
ar á auglýstum tíma, veröur hann látinn sæta sekt-
um samkvæmt umferðarlögum og ökutækið tekið
úr umferð hvar sem til þess næst án frekari aðvör-
unar.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga aö máli.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
og í Garðakaupstað.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu,
5. ágúst 1983.
AUGLVSlNGASrOfAKHlSIlNAH Hf