Morgunblaðið - 10.08.1983, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1983
39
Framferði
tollvarða
til skammar
Flugliði skrifar:
Mig langar til að minnast á
framferði tollvarða á Keflavíkur-
flugvelli gagnvart flugáhöfnum.
Þannig er að undanfarið hefur
það færst mjög í aukana að leitað
sé á áhöfnum flugvéla við komu
til Keflavíkurflugvallar og er þá
fólk jafnvel látið fletta sig klæð-
um. Það er að sjálfsögðu bæði
niðurlægjandi og bagalegt að
vera meðhöndlaður eins og
glæpamaður við hverja komu til
landsins. Framkoma sem þessi
gagnvart flugáhöfnum þekkist
hvergi annars staðar, jafnvel
ekki í verstu lögregluríkjum, að
fólk sé tekið inn í sérstaka klefa,
þuklað þar hátt og lágt og látið
fletta sig klæðum. Að hverju er
svo verið að leita veit ég ekki.
Varla eru það fíkniefni, þess
háttar leit væri gerð með hass-
hundi en kannski búast tollverðir
við að finna hjá áhafnarmeð-
limum áfengi eða tóbak innan
klæða. Að hverju svo sem þeir
leita þá er þetta framferði með
öllu óforsvaranlegt. Hefur það
færst svo mikið í aukana að fólki
blöskrar, enda vart hægt að líða
slíka framkomu og niðurlægingu.
Okkur dettur
ædi margt í hug
Þröstur skrifar:
Síðast datt okkur í hug hvort
ekki væri hægt að hafa alíslenska
dagskrá í ríkisútvarpinu. Hávaði
og alls kyns fíflalæti í hljómlist
finnst okkur ekki viðeigandi. Við
eigum listamenn á öllum sviðum
sem sambærilegir eru erlendum
og þurfum því ekki að sækja í er-
lenda grafreiti eftir efni í íslenska
útvarpið. Látum vera þó innanum
komi eftirminnilegt erlent efni,
eins og til dæmis Robertson með
sína sterku rödd, syngjandi lög
eftir Stefán Foster, það er nokkuð
sem hlustandi er á.
Utvarpsþáttur
Ásgeirs góður
0192-2998 hringdi:
Mig langar til að þakka Ríkis-
útvarpinu fyrir mjög góða tónlist-
arþætti, sem Ásgeir Tómasson
hefur haft umsjón með. Hlusta ég
mikið á útvarp, bæði í bílnum og
hér heima.
Þó að ég sé kannski ekki alls
kostar ánægður með útvarpið, má
þar margt gott heyra eins og þessa
þætti Ásgeirs. Mætti ekki gera
með honum fleiri þætti, hann ger-
ir tónlistinni góð skil og hefur gott
lagaval.
Hver orti?
Þóra Jóhannsdóttir, Aðalgötu 9, Sauðárkróki skrifar:
Velvakandi minn.
Enn skrifa ég og er erindið að vanda það sama. Ljóðið sem ég
sendi nú lærði ég fyrir löngu síðan, en var búin að gleyma. Það kom
síðan fram í hugann aftur, en nú er mér ómögulegt að muna hver
höfundurinn er. Mikið væri gaman ef einhver gæti upplýst mig um
höfundinn og eins lagfært, ef ég man það ekki rétt.
Nú hnígur sól að svölum ránarbeði
og sveipar vestrið gullnum roðablæ.
Það hugfró veitir harma þrungnu geði,
að horfa á slíkt, sú minning lifir æ.
Og gott er nú á góðri aftanstundu
að geta verið úti í skógarsal
og skoðað blíða, blómum þakta grundu
er breiðir faðminn móti sjúkum hal.
Og aftanblær með angurþýðum rómi
svo unaðsljúfur hjalar grösin við.
t værð og ró hann vaggar hverju blómi
svo vinarblítt með fögrum strengjaklið.
Yfir skóginn færist kyrrð og friður,
í faðmi hans er allt að verða hljótt.
En einlægt heyrist elfarinnar niður,
sem ei til hvíldar leggst um þögla nótt.
Nú er liðinn þessi dýrðardagur,
sem dropi einn hann féll í tímans haf.
Hann endaði svo yndislega fagur
og ótal mörgum bjarta minning gaf.
Úr vestri er horfið gullna geislabandið,
það geymir hafmey nú á brjóstum sér.
En rökkurslæða lögst er yfir landið
og ljúfur blær til værðar genginn er.
Ég reika heim svo hjartanlega glaður,
hér hefur sál mín öðlast nýjan þrótt.
Mér ástkær verður ávallt þessi staður,
hér öllu vil ég bjóða góða nótt.
Lög úr Grease 2
Guðbjörg hringdi:
Fyrir nokkru sá ég í blaði, að
einhver skrifaði og sagði að ekki
yrði gefin út plata með lögum úr
kvikmyndinni „Grease 2“. Ég hef
hinsvegar frétt hjá hljómplötu-
verslunum að þetta sé ekki rétt,
plata með lögunum úr þessari
mynd verði gefin út, þó einhver
bið verði á að hún komi í hljóm-
plötuverslanir hér heima.
Nú ef þetta er misskilningur hjá
mér, væri vel þegið að einhver sem
fróðari er um máiið léti í sér heyra
Og þannig líður lífs og tímans straumur,
við lifum harm og gleði sama dag.
Þó ævin sýnist eins og myrkur draumur,
hún enda kann sem fagurt sólarlag.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Af því mun hann bíða hnekk.
Rétt væri: Af því mun hann bíða hnekki.
(Það er hnekkir (ekki hnekkur) sem hann
bíður).
Sýnishorn af
matseöli kvöldsins
FORRÉTTUR
Reyksoöinn silungur meö spinatkremi
AÐALRÉTTUR
Léttsteikt hreindýrasteik meö lyngsósu
eöa
Pönnusteikt lambafillet meö gljáöum radísum og rjóma-
sósu „Dijon “
EFTIRRÉTTUR
Heslihnetukaka meö kiwi-ávexti og karamellusósu
Hvíldarstaöur í hádeginu
Höll aö kvöldi
Velkomin
ARNARHOLL
Á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu.
Boröapantanir í síma 18833.
STÁLHF
SINDRA
ÞAÐ
BYGGIST
A
ÞESSU
T raust og ending hvers mannvirkis byggist
á góðu hráefni og vandaðri smíði.
ÞIÐ FÁIÐ
steypustál, járnbindivír, mótavír,
gluggagirði, þakbita, þakjárn, pípurí
hitalögn og vatnslögn í birgðastöð okkar
Borgartúni 32, sími 2 72 22.
Allt úrvals efni á hagkvæmu verði.