Morgunblaðið - 20.08.1983, Side 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
188. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983
Prentsmidja Morgunblaðsins
Líbanon:
Blóðbaði
spáð í Chouf-
fjöllum
Jcrúsalem, Beirút, 19. áf(úst AP.
DAGBLÖÐ í ísrael spáöu því í dag,
að til blóöbaðs kæmi í Líbanon þeg-
ar ísraelar drægju her sinn til baka
frá Chouf-fjöllum eins og ráögert er
á næstu vikum.
fsraelska dagblaðið Maariv
hafði það í dag eftir heimildum í
Jerúsalem, að allar tilraunir ísra-
ela til að koma á sáttum milli
kristinna manna og drúsa í
Chouf-fjöllum hefðu komið fyrir
ekki en ísraelar hafa ákveðið að
flytja her sinn þaðan á næstu vik-
um. Blaðið Yediot Aharonot sagði
líka, að allir, ísraelar, kristnir
menn, drúsar og alþjóðafriðar-
gæsluliðið, væru á einu máli um,
að „skelfilegt blóðbað yrði í
Chouf-fjöllum eftir brottflutning-
inn“.
Moskva:
Með sprengju
inn á sendi-
ráðslóðina
Moskvu, 19. ágúst. AP.
MAÐUR nokkur á fertugsaldri ók í
dag bfl sinum á miklum hraöa inn á
lóö breska sendiráösins í Moskvu og
kom seinna i Ijós, að heimatilbúin
sprengja var í bflnum, að því er tals-
maður sendiráösins sagði.
Maðurinn ók bílnum á miklum
hraða eftir götunni fyrir framan
sendiráðið og þegar hann kom á
móts við það, snarbeygði hann inn
um annað hliðið og inn á lóðina
fyrir framan húsið. Sovéskir her-
lögreglumenn, sem gæta hliðanna,
þustu á eftir bílnum, drógu mann-
inn út úr honum og „lömdu hann
sundur og saman" bæði inni á
sendiráðslóðinni og utan hennar,
að því er Stuart Jack, talsmaður
sendiráðsins sagði. Bresku sendi-
ráðsmennirnir báðu lögregluna
um að fara ekki svona illa með
manninn en því var ekki sinnt og
var maðurinn dreginn á brott eftir
barsmíðarnar.
Þegar sendiráðsmennirnir at-
huguðu bílinn, sem var skráður í
Rostovondon, 1.000 km fyrir sunn-
an Moskvu, fundu þeir í honum
heimatilbúna sprengju. Sovésk
lögregla flutti síðan bílinn og
sprengjuna á brott. Bresku sendi-
ráðsmennirnir segjast enga skýr-
ingu kunna á þessum atburði.
Viltu smakka melónu?
í góöa veðrinu á Akureyri síðastliðinn fimmtudag var suðrænn svipur á Ráðhústorgi. Þar var opinn líflegur ávaxtamarkaður undir berum himni og voru
vegfarendur lokkaðir til ávaxtakaupa meö melónusmakki. Morgunblaftið/KOE.
Hafa skipað einn sinn reyndasta hershöfðingja yfirmann herliðsins í Chad
orrustu- og sprengjuflugvéla og er
viðbúnaður þeirra í Chad nú sá
mesti, sem þeir hafa haft í Afríku
í rúm 20 ár.
Haft er eftir heimildum, að Líb-
ýumenn haldi áfram að senda her-
menn og hergögn til Faya-Large-
au í Norður-Chad og er talið, að nú
séu þar saman komnir 3.000 lí-
býskir hermenn og sami fjöldi
uppreisnarmanna. Kyrrt hefur
verið á vígstöðvunum í rúma viku
og ráða uppreisnarmenn og
stjórnarhermenn hvorir sínum
helmingi landsins. Langflestir
ibúanna, sem eru fimm milljónir
talsins, búa á yfirráðasvæði
stjórnarinnar.
Khadafy, Líbýuleiðtogi, sagði á
blaðamannafundi í gær, að Banda-
ríkjamenn lygju því, að hann hefði
afskipti af stríðinu í Chád, og
gerðu það til að dylja þannig
„stórkostlega íhlutun" sína í land-
inu. Soumaila, upplýsingamála-
ráðherra Chad, sagði um þessa
fullyrðingu Khadafys, að Líbýu-
leiðtoginn hefði mjög „teygjanleg-
ar hugmyndir" um landamæri
Líbýu og vel mætti vera, að hann
teldi Faya-Largeau vera í Libýu
þótt borgin hefði til þessa verið
talin vera 500 km fyrir sunnan
landamærin.
N’djamena, 19. ágúst AP.
FRANSKA stjórnin skipaði í dag einn sinn reyndasta hershöfðingja sem
yfírmann franska herliðsins í Chad. Líbýumenn halda áfram að senda
her og hergögn til Faya-Largeau og Frakkar hafa heitið að auka viðbún-
að sinn í landinu í sama mæli. Kyrrt hefur verið á vígstöðvunum í rúma
viku.
Jean Poli, hershöfðingi, var í I staðráðnir í að láta hart mæta
dag skipaður yfirmaður franska hörðu og verja Chadstjórn fyrir
herliðsins í Chad og þykir það uppreisnarmönnum og innrás Líb-
vera til marks um, að Frakkar séu | ýumanna. Jean Poli, sem er 54 ára
HISSENE Habre, forseti Chad, á
blaðamannafundi. Þar bauðst hann
til að ræöa viö Khadafy um brott-
flutning líbýsks herliös frá landinu.
Um annaö ekki. ap.
að aldri, er einn þeirra reyndasti
hershöfðingi, barðist i Alsír á sín-
um tíma og hefur gegnt herþjón-
ustu í Afríku í 30 ár. Frakkar hafa
nú ákveðið að senda til N’djamena
eina flugdeild Jagúar- og Mirage-
Keyrði inn í barinn
og drap fimm menn
Alice Springs, Astralíu, 19. ágúst. AP.
VÖRUBÍLSTJÓRI var dreginn
fyrir rétt í dag og ákærður fyrir
morö á fímm mönnum, sem létu
lífið er hann ók stórri bifreið sinni
inn á bar í Ayers Rock.
Auk fimmmenninganna sem
týndu lífi slösuðust 20, þar af 15
alvarlega, en 40 manns sátu að
drykkju á barnum þegar bíl-
stjórinn, Douglas Crabbe, sem er
36 ára, ók bíl sínum inn í húsið.
Tildrög málsins eru þau að
Crabbe var kastað út af barnum
eftir handalögmál við barþjón-
inn, þar sem glösum var kastað
áður en þeir veltust um gólf í
slagsmálum. Nokkrir viðstaddir
komu barþjóninum til aðstoðar
og höfðu Crabbe loks undir og
fleygðu honum svo út.
Einn þeirra sem komst lífs af
sagðist hafa staðið við barinn
þegar gífurlegur hávaði með til-
heyrandi brothljóðum hafi rofið
kliðinn á barnum. Hann rankaði
við sér þar sem hann
klemmdur undir bifreiðinni
braki úr byggingunni. Algjört
öngþveiti hefði orðið og gífurleg
hræðsla gripið um sig.
Flytja varð hina slösuðu 400
km vegalengd á næsta sjúkra-
hús, í Alice Springs, þar sem
ekkert sjúkrahús er í Ayers
Rock, sem er lítill ferðamanna-
bær í miðri óbyggð Ástralíu.
var
og
Frakkar albúnir að
láta hart mæta hörðu