Morgunblaðið - 20.08.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983
3
íslensk kvikmyndagerð í sumar
Hrafninn flýgur:
að
Steftit að því
frumsýna um
„Tveggja mánaða upptökutörn
er lokið, nú er bara að safna kröft-
um og drífa sig í að setja myndina
saman,“ sagði Hrafn Gunnlaugs-
son í samtali við blaðamann Mbl. í
gær. „Ég mun klippa hana í Sví-
þjóð og tek líklega í leiðinni smá-
kafla sem á að gerast í útlöndum,
sem er það eina sem vantar upp á.
Myndin hefur farið fjárhags-
lega langt fram úr áætlunum, og
er það veðráttan I sumar sem á
bar stærstan hlut að máli. Það
eru því fleiri en bændur sem
bera skarðan hlut frá borði þetta
vætusumar. Kannski er það að
ná inn senu og senu á filmu, ekki
svo ólíkt því og að safna heyi í
hlöðu. Við fengum ekki bara
rigningu heldur virkilegt slag-
veður. Þannig varð biðtími og yf-
irvinna leikara mikil, og mynd-
inni dýr. Ég er þó ekki frá því að
þetta veður eigi eftir að gefa
myndinni dulúðugan og magnað-
an persónuleika.
Hún fjallar um tvo bræður og
jol
gerist á bæjum þeirra. Staðsett-
um við annan bæinn við Drangs-
hlíð og hinn í Skipahelli skammt
frá Vík í Mýrdal. Ströndina milli
Dyrhólaeyjar og Reynisfjalls
hugsuðum við okkur vegalengd-
ina á milli þeirra og Kleifarvatn
notuðum við sem fjörð í ná-
grenni bæjanna, og tókum þar
stóra senu. Vinna við „Hrafninn
flýgur“ tekur eflaust nokkra
mánuði en ég stefni að því að
frumsýna hana um jól.“
Skilaboð til Söndru:
Síðustu atriðin voru
tekin í Grikklandi
Þrjár vikur eftir enn
„Atómsstöðvarmenn" voru
staddir í þjóðgarðinum í Skafta-
felli í gær og hafði biaðamaður
Mbl. upp á þeim í gegnum síma
bóndans þar.
Við erum hér með þrjátíu
manna hóp og verðum fram að
helgi,“ sagði Þórhallur Sigurðs-
son sem hafði verið kallaður í
símann. „Þetta gengur alveg
ágætlega, við erum hér að taka
atriði þar sem kirkja Fals bónda
er vígð og við það tækifæri barn
Uglu skírt, og höfum við reist
heila kirkju hér í túninu á
nokkrum dögum. Okkur leist nú
ekki vel á það í gær, þegar það
fór að rigna óskaplega, við erum
hér í tjöldum og það var helst til
blautt. En einn starfsmaður hét
á kirkjuna og það stóð á endum
að um leið og kirkjan var komin
upp birti í veðri og hefur verið
glampandi sólskin hér í allan
dag. Kunnum við sérstakar
þakkir fólkinu hérna í sveitinni,
sem hefur hjálpað okkur mikið.
Við eigum svo eftir um það bil
þriggja vikna tökur í viðbót, í
Reykjavík, Hvalfirði og víðar, en
endum svo aftur hér í Skaftafelli
upp úr miðjum september.
Myndin verður klippt fram að
áramótum og er ætlunin að
frumsýna í janúar.
Á skrifstofu
UMBA svaraði
Kristín Pálsdóttir:
„Við enduðum tök-
ur í lok júlímánað-
ar,“ sagði Kristín.
„Þær síðustu gerð-
um við í Grikk-
landi, en myndin
endar á því að aðal-
persónan flytur í
burtu frá íslandi og
byrjar nýtt líf.
Þetta hefur allt
gengið alveg ágæt-
lega og við erum
byrjuð að klippa.
Sú vinna tekur ef-
laust tvo mánuði og
ætlum við að reyna
að sýna myndina
rétt fyrir jólin."
Stuðmenn huga
að nýrri mynd
„Já, það er rétt við Stuðmenn
erum að fara að gera mynd,“ sagði
Egill Ólafsson í viðtali við Mbl. í
gær. „Um hvað hún verður get ég
ekki sagt ennþá, en myndin verður
tekin á næsta ári, á íslandi og
væntanlega á Indlandi og f fleiri
löndum.
Það sem gerir okkur þetta
kleift er að fyrsta myndin okkar
„Með allt á hreinu„ kom vel út
fjárhagslega, aðsóknin var mikil
og sáu hana um 105 þúsund
manns. Ekki er séð fyrir endan-
legan kostnað myndarinnar,
enda er það sjaldnast fyrr en
dreifingu er að fullu lokið. En
þessi mynd var dýr, og hanga
utan á henni ýmsir kostnaðarlið-
ir, sem kannski eru ekki við aðr-
ar myndir.
London Film Festival hefur
boðið okkur að sína myndina þar
og tókum við því. Sjónvarps-
stöðvar á Norðurlöndum falast
eftir myndinni til kaups, en frá
þeim samningum er ekki enn
frágengið. Það iiggur svo sem
ekkert á, við höfum í nógu að
snúast samt.“
Djúpivogur:
Ofurhugar á
furðufarartækjum
ItjÚpiTOlÖ, 13. á^ÚNt.
f G/KRKVÖLDI sló heldur betur
birtu á gráan hversdagsleikann hér á
Djúpavogi þegar tveir ungir ofurhugar
komu svífandi ofan úr skýjunum á
vægast sagt furðulegu farartæki,
vélknúnum svifdreka.
Þessir viðfelldnu ungu menn eru
úr leiðangrinum Iceland Break-
through Expeditions sem undan-
farna daga hefur verið að reyna að
komast fyrir Vatnajökul en ekki
haft heppnina með sér þar sem veð-
ur hefur verið óhagstætt til slíkra
ferða. Þessir ungu menn heita
Gerry Breen og Paul Vander-Molen
og er sá síðarnefndi leiðangurs-
stjóri. Þeir höfðu gert enn eina til-
raun til að komast yfir jökulinn á
svifdrekanum föstudaginn 12. ágúst
en urðu frá að hverfa og brugðu þá
á það ráð að fljúga austur með
ströndinni. Þeir ætluðu héðan í dag
um hálfþrjúleytið og fljúga þá
norðan Vatnajökuls til Kverkfjalla
þangað sem aðrir leiðangursmenn
voru komnir landleiðina.
Paul Vander-Molen sagði að ætl-
unin væri að fresta frekari tilraun-
um að komast yfir Vatnajökul en
fara niður Jökulsá á bátum og
fljúga m.a. niður Dettifoss. Hann
sagði einnig að þeir hefðu lent í
miklum erfiðleikum á jöklinum,
fengið versta veður og þurft að
grafa sig í fönn. Þeir félagar voru
með brotið púströr sem Ólafur
Ragnarsson gerði við og luku þeir
miklu lofsorði á hvernig hann hefði
leyst það verk af hendi.
Þeir félagar brugðu sér nokkrar
hringferðir yfir þorpið á flygildinu,
tóku tilhlaup niður hótelhæðina og
hófu sig á loft yfir voginn. Aðeins
þeir allra hugrökkustu af þorps-
búum þorðu að setjast aftan á hjá
þeim.
— Fréttaritari