Morgunblaðið - 20.08.1983, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983
Borgarstjóri Reykjavíkur ásamt verðlaunahöfum, við afhendingu fegrunarverðlauna, að Höfða í fimmtudaginn.
MW./ÓUC.M.
Seljugerði og 9 fyrirtæki hlutu:
fegrunarverðlaun borgarinnar
REYKJAVÍKURBORG hefur um árabil veitt viðurkenningar þeim aðilum
sem sýnt hafa framtak við fegrun borgarinnar og allt frá árinu 1969 hefur
verið tilnefnd fegursta gaU borgarinnar. í gær, á afmslisdegi Reykjavíkur,
var Seljugerði tilnefnd fegursta gatan, og er hún sú tíunda í röðinni. Einnig
fengu 9 fyrirtski í borginni viðurkenningar fyrir góðan árangur í að snyrta
og fegra umhverfi sitt
Við þá götu sem hlýtur titilinn
„Fegursta gata Reykjavíkur" er
settur upp skjöldur, og heldur gat-
an skiidi sínum i tiu ár, nema um-
hirðu hafi hrakað svo að ástæða
þyki til að taka skjöldinn niður.
Niu götur bera nú fegrunarskjöld-
inn og í gær bættist sú tíunda í
hópinn. Það var Seljugerði í sunn-
anverðu Háaleitishverfi sem dóm-
nefnd, skipuð þeim Vilhjálmi G.
Vilhjálmssyni, Pétri Hannessyni
og Hafliða Jónssyni, kaus fegurstu
götu Reykjavíkur 1983. Viður-
kenningunni veitti viðtöku afmæl-
isbarn götunnar, Sesselía Gunn-
arsdóttir, en hún á sama afmæl-
isdag og borgin.
í greinargerð dómnefndar segir
m.a. að húsin við Seljugerði hafi
verið byggð fyrir u.þ.b. 10 árum og
lóðir þeirra séu fremur rúmgóðar
og hafi allar verið ræktaðar upp af
mikilli smekkvísi og með fjöl-
breytilegum gróðri. f greinargerð-
inni segir ennfremur að það hafi
vakið athygli skoðunarmanna
hvað lóðir í borginni hafi verið í
góðri umhirðu þrátt fyrir óvenju-
lega erfitt veðurfar, sem valdið
hafi öllu ræktunarfólki erfiðleik-
um.
Niu fyrirtæki í Reykjavík fengu
einnig viðurkenningar fyrir góðan
árangur í að snyrta og fegra um-
hverfi sitt og voru það bensínaf-
greiðsla Olíufélagsins hf. við Æg-
issíðu 102 og Hjólbarðaviðgerð
Jóns ólafssonar á sama stað, sem
fengu viðurkenningu fyrir „vel-
heppnaða hönnun á húsi og lóð og
snyrtilega umgengni á bensínstöð-
inni og á hjólbarðaverkstæðinu
jafnt inni sem úti“, eins og segir á
viðurkenningarskjalinu. Kaffi-
vagninn, Grandagarði 10, fékk við-
urkenningu fyrir „að hafa skapað
óvænta, llflega og hlýlega gróður-
vin á hafnarbakkanum". Spari-
sjóður vélstjóra, Borgartúni 18,
fékk viðurkenningu fyrir „frum-
legt og vel hirt útisvæði" og véla-
verkstæði J. Hinrikssonar hf.,
Súðavogi 4, fékk viðurkenningu
fyrir „snyrtilega umgengni á lóð
og skemmtilegar tilraunir til
listsköpunar". Gunnari Guð-
mundssyni hf., Dugguvogi 2, var
veitt viðurkenning fyrir „sérstaka
snyrtimennsku á lóð og góða um-
hirðu á stórum þungaflutnings-
tækjum" og Fiskimjölsverksmiðj-
unni að Kletti var veitt viðurkenn-
ing fyrir „þrifaleg hús og snyrti-
lega lóð“. Loks voru Bílasmiðjunni
Kyndli hf., Smiðshöfða 9, veitt
verðlaun fyrir „sérstaklega góða
umhirðu á útisvæði fyrirtækis
sem starfar við bílaréttingar og
bílamálun" og geymsluhúsi Sam-
ábyrgðar íslands á fiskiskipum að
Vagnhöfða 14, veitt viðurkenning
fyrir „snoturlega frágengið úti-
svæði“.
Dómnefndina um útnefningu
snyrtilegustu fyrirtækjanna skip-
uðu þau Guðrún Ólafsdóttir,
Vilhjálmur Sigtryggsson og Gísli
Kristjánsson. Þau greindu svo frá
í greinargerð sinni að akstur um
iðnaðarhverfi borgarinnar í leit að
snyrtilegum athafnasvæðum
fyrirtækja hafi verið seinlegt og
fremur dapurlegt verk og þar sé
ekki um auðugan garð að gresja.
Eigi þar jafnt hlut að máli stór og
gróin fyrirtæki sem smá og virtist
dómnefndinni sem hvorki tima né
fjármunum væri varið í að fegra
og snyrta hús né lóðir fyrirtækj-
anna. Hvetur dómnefndin til þess
að allir sem hlut eiga að máli geri
nú þegar átak, svo að iðnaðar- og
verslunarhverfi borgarinnar megi
verða með meiri menningarbrag
en nú er.
Fegursta gata Reykjavíkur 1983, SeljugerðL
MbL/KEE