Morgunblaðið - 20.08.1983, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983
Undir fjögur augu
Moammar Khadafy, Líbýuleiðtogi, og Mohamad Mzali, forsætisráð-
herra Túnis, ræðast við yfír kvöldverði í bænum Monastir í Túnis.
Khadafy var í þriggja daga opinberri heimsókn til landsins í vikunni.
Flugvél ferst
í Stóragili
Las Vegas, 19. ágúst AP.
FLUGVÉL í útsýnisflugi tiL Stóra-
gils fórst er flugmaðurinn reyndi
Veður
víða um heim
Akureyri 19 hilfakýjaó
Amelerdam 25 heióekirt
Aþena 30 heióakirt
Bercetona 26 akýjaó
BerKn 27 heióakfrt
BrUaael 30 heióakfrt
Buenoa Airea 19 heióakfrt
Chicisgo 30 heióekfrt
Dyflinni 22 haiöakfrt
Feneyjar 29 heióakfrt
Frankfurt 30 heióakfrt
Faereyjar 12 alakýjaó
Qenf 28 heióekfrt
Havana 30 akýjaó
Helainki 19 akýjaó
Jerúaalem 28 heióakfrt
Jóhanneaarborg 17 heióakfrt
Laa Palmaa 25 tóttakýjaó
Liaaabon 24 rigning
London 29 heióakfrt
Loa Angelea 25 akýjaó
Madríd 32 akýjaó
Malaga 29 heióekfrt
Maltorka 29 hálfakýjaó
Miami 31 akýjaó
Moakva 23 heióakfrt
New York 31 akýjaó
Oató 18 heióakirt
Paría 30 heióakfrt
Reykjavik 10 alafcýjaó
Róm 29 heiöakírt
San Franaiaco 22 ekýjaó
Stokkhólmur 21 heióakfrt
Tókýó 37 heióakfrt
Vancouver 22 akýjaó
Vlh 26 heióakfrt
að þræða meðfram þrumuveðrum
á leiðinni. Flaug flugvélin í kletta-
vegg í gilinu og fórust allir sem
um borð voru, níu ítalskir ferða-
langar og flugmaðurinn.
Svo virðist sem flugvélin hafi
flogið beint í klettavegginn í
1.770 metra hæð yfir sjávarmáli.
Flugvélin var frá Las Vegas-
flugfélaginu, sem stundar útsýn-
isflug til gilsins, en flugvélar
þess hafa farið rúmlega eitt-
hundrað flug til gilsins daglega í
ágústmánuði.
Veður til flugs var mjög óhag-
stætt þegar flugvélin fórst, al-
skýjað og þrumuveður á allri
flugleiðinni, sem er 300 km löng.
Varð af þeim sökum að fresta
leitarflugi nokkrar stundir frá
því flugvélarinnar var fyrst
saknað.
Flugrán
í Florida
Tampa, Flórída, 19. ágúst. AP.
ÞOTU í eigu „Delta Air“-flugfé-
lagsins var í gær rænt í flugi frá
Miami til Tampa í Flórída og flug-
stjóri neyddur til að snúa til Kúbu.
Sjötíu og fjórir farþegar voru um
borð í vélinni auk sjö manna
áhafnar. Flugræninginn mun hafa
haft brúsa með eldfímum vökva
meðferðis.
Skömmu eftir að þotan lyfti
sér til flugs frá Miami tilkynnti
flugstjórinn flugumferðarstjór-
um í gegnum talstöð að hann
yrði að víkja af fyrirhugaðri leið
og fljúga til Kúbu. Lenti hann í
Havana nokkru síðar, en flaug
þotunni aftur til Tampa í morg-
un. Að sögn talsmanns banda-
rísku flugmálastjórnarinnar hef-
ur flugræninginn verið settur í
varðhald.
Ný stefna Rússa?
Hugleiða að gera eld-
flaugar færanlegar
Washington, 19. ágúst. AP.
SOVÉTMENN hafa tilkynnt Banda-
ríkjamönnum að þeir ætli að gera
hluta kjarnorkuflauga sinna, sem
draga heimsálfa á milli, færanlegar,
til þess að „vega upp á móti aukinni
nákvæmni" sams konar vopna
Bandaríkjanna, samkvæmt frétt
Washington Post í dag.
Blaðið byggir frétt sína á heim-
ildamanni, sem kunnur er viðræð-
unum um fækkun kjarnorkuvopna
(START) í Genf, en fulltrúar
Rússa þar eiga að hafa sagt að
Rússar myndu standa Bandaríkja-
mönnum verulega að baki á þessu
sviði, þegar þeir síðarnefndu
tækju MX- og Trident D-5-flaugar
sínar í notkun frá og með 1986.
„Rússar segjast verða búnir að
leysa þetta vandamál þegar að því
kemur að MX-flaugarnar verða
tilbúnar," er haft eftir háttsettum
samningamanni. Lausnin sé í því
fólgin að gera flaugarnar færan-
legar.
Talið er að líklegasta flaugin,
sem Rússar geri færanlega, sé
PL-5-flaugin svonefnda, en þrjár
tilraunir með hana eru taldar
brjóta í bága við ákvæði SALT-II-
samkomulagsins.
Embættismaðurinn segir hins
vegar að það sé „jákvæð þróun" ef
Rússar snúi sér fremur að færanl-
egum flaugum, þar sem þær verði
almennt að vera smærri og beri
færri sprengjur en flaugar, sem
komið sé fyrir í sílóum. Þær séu
einnig ónákvæmari og séu því ekki
eins freistandi skotmörk og flaug-
ar í sílóum.
„Hatursdagur“
til hátfðabrigða
Bangkok, Thailandi, 19. ágúst. AP.
STJORNVÖLD í höfuðborg Kam-
bódíu, Phnom Penh, hafa ákveðið
að 20. maí verði „þjóðlegur haturs-
dagur“ í óvirðingarskyni við ríkis-
stjórn Rauðu khmeranna, að því er
SPK-fréttastofan í Phnom Penh
skýrði frá í dag.
Fréttastofan sagði að dagurinn
yrði til minningar um „svörtu ár-
in“, þegar Rauðu khmerarnir
réðu ríkjum í Kambódíu, en hon-
um væri einnig ætlað að hamla
við tilraunum Kínverja til að ná
aftur tökum á landinu. Kínverjar
veittu Rauðu khmerunum dygg-
an stuðning áður en þeim var
steypt í innrás Víetnama árið
1979.
Á fundi stjórnarinnar, þar sem
ákvörðunin var tekin, kom fram
að meira en tvær milljónir og sjö
hundruð þúsund manns hefðu
verið drepnir eða hefðu veslast
upp af hungri og þreytu á valda-
tíma Rauðu khmeranna. Var
sagt að þeir, sem lifðu af ógnar-
stjórnina, væru helzta heimildin
fyrir tölu fórnarlambanna.
ÁSK0RUN!
um heilsurækt og lengra líf
Noel Johnson er 84ára gamall Maraþonhlaupari
og heimsmeistari í hnefaleikum öldunga - með
meiru.
- Ég skora á hvern landsmann að hlaupa með mér frá Fellahelli í
Breiðholti að Lækjartorgi á sunnudaginn kemur -
Hlaupið hefst kl. 14.00 við Fellahelli, Breiðholti, og verður hlaupið um Breiðholts-
braut, Miklubraut, Snorrabraut og Laugaveg að Lækjartorgi. Sverrir Friðþjófsson
íþróttakennari ræsir hlauparana.
Hver þátttakandi, sem lýkur hlaupinu, fær viðurkenningarskjal, eintak af bókinni
„Vansæll sjötugur - en vígreifur áttræður" áritað af höfundi, Noel Johnson, en
bókin er nýkomin út hjá Bókamiðstöðinni.
Að sjálfsögðu fá allir þátttakendur 3ja mánaða birgðir af blómafræflum og hress-
ingu að vild í pylsuvagninum i Austurstræti að loknu hlaupi.
Bergþóra Arnadóttir og félagar taka á móti hlaupurunum á Lækjartorgi með sér-
stakri söng- og skemmtidagskrá.
Frumflutt verður nýtt lag hennar um BLÓMAFRÆFLA. Allir eru hjartanlega vel-
komnir á Torgið.
Þetta er ekki kapphlaup, heldur heilsurækt.
Vonast til að sjá sem flest ykkar.
NOELJOHNSON.
I/^ILIIO ódýr og vönduð heimilistæki
Idlillo■ 111 ii i
ARMULA8 S:19294