Morgunblaðið - 20.08.1983, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 20.08.1983, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983 22 SÍS-styrkir til íþrótta gegn þjónustu og viðskiptum Greinargerð frá HSÍ vegna íþróttastyrks SÍS Þar sem framhald hefur orðið á skrifum Morgunblaðsins um styrkveitingu SIS til KKÍ, HSÍ og FRÍ, viljum við stjórnarmenn HSI gera frekari grein fyrir því sam- starfi og samskiptum sem tekist hefur með okkur og Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga. Samningur sem gerður var í kjölfar styrkveitingarinnar og undirritaður af þáverandi for- manni HSÍ með fullu samþykki annarra stjórnarmanna, er í 9 lið- um og fylgir afrit greinargerð þessari. Afritið er til birtingar í eðli- legum tengslum við þessa greinar- gerð þar er við hyggjumst gera grein fyrir framkvæmd hvers liðar fyrir sig. 1. grein. Tilnefnd sú upphæð sem íþróttastyrkurinn nemur, þ.e. 150 þúsund krónur árið 1983. Rétt er að geta þess að 1982 var HSÍ einnig handhafi íþrótta- styrksins sem þá nam sömu upphæð. Árið 1983 hlaut FRÍ einnig styrk og var þeirra hlut- ur 75 þúsund krónur. 2. grein. Blaðamönnum og leið- arahöfundi Morgunblaðsins hefur orðið tíðrætt um þessa grein og ætla að hún beri vott um nauðung. Þar er því til að svara að miklu veldur hver á heldur, enda hefur HSf alfarið ráðstafað styrknum að eigin geðþótta án nokkurra afskipta þeirra Sambandsmanna. 3. grein. Undanfarin ár hefur það færst í vöxt að fjármagna starfsemi landsliða með auglýs- ingum á búningum. Þannig hafa t.d. dönsku Tuborg-bjór- verksmiðjurnar auglýst á bún- ingum dönsku landsliðanna i handknattleik og sjálfsagt hef- Aths. ritstj.: Hér kemur enn einu sinni fram, að hvert orð, sem Mbl. hefur sagt um mál þetta, á við rök að styðj- ast. Við lestur þessa samnings koma í hugann orð fyrrverandi formanns HSÍ þess efnis, að íþróttahreyfingin verði að selja sig. Samningur SÍS og HSÍ er nauðungarsamningur um við- skipti og þjónustu við Sambandið og sölu á blaðamannafundum, þar sem áróðursfulltrúi Sambandsins hefur aðstöðu til að leika aðalhlut- verkið í skjóli valds og peninga. Stjórn HSÍ þarf víst ekki að hafa áhyggjur af því, hvort hún hafnar ur það fé sem fyrir auglýs- ingarnar hefur fengist, gert Dönum auðveldara að ná því að eiga fjórða besta handknatt- leikslið í heimi. HSÍ hefur veitt Sambandinu rétt til auglýsinga á landsliðs- búningum í þeim leikjum og á þann hátt sem alþjóðareglur og reglugerðir ÍSÍ leyfa. Má með sanni segja að þessi réttur sé það eina sem HSÍ lætur Sam- bandi íslenskra samvinnufé- laga í té. I beinum tengslum við þessar auglýsingar er rétt að geta þess að SÍS hefur leyst leikmenn og forráðamenn landsliða, sem sótt hafa okkur heim, svo og okkar eigin leikmenn út með gjöfum, ætíð myndarlegum en stundum stórglæsilegum. Einnig hefur SlS auglýst upp landsleiki okkar af miklum myndarskap, svo og prentað ieikskrár. Við teljum það því eðli- legt og sjálfsagt að fulltrúi aug- lýsingadeildar SÍS sitji frétta- mannafundi sem haldnir eru í tengslum við landsleiki. (Let- urbr. Mbl.) Möppur sem afhent- ar hafa verið öllum fulltrúum á HSÍ-þingi (sýnishom fylgir) lét SÍS útbúa fyrir okkur, bréfs- efni, nafnspjöld og nú er verið að prenta mótaskrá HSÍ fyrir næsta keppnistímabil. Allt það sem að framan er talið er okkur látið í té, auk þeirrar upphæðar sem um er getið í 1. grein. Mun- ar um minna og er þó margt ótalið. 4. grein. Stjórn HSÍ hefur ekkert sérstakt aðhafst er þessa grein varðar, en talið að auglýsingar á búningum landsliða bæru því blaðamanni frá Mbl. á slíkum fundum eða fulltrúa SÍS, þareð hún hefur því miður nú þegar ákveðið það sjálf með þessum samningi. Mbl. mun að sjálfsögðu sitja fundi HSÍ, þegar þeir verða ekki haldnir á vegum ároðursdeildar Sambandsins. Þegar hin ámælis- verðu ákvæði úr nauðungarsamn- ingnum haf verið felld á brott mun Mbl. með ánægju senda fréttamenn á fundi HSÍ. En hversu góður sem tilgangurinn er, í þessu tilfelli gott íþróttastarf, mun engum líðast að selja blaða- mannafundi, sem Mbl. situr. Sjá að öðru leyti aðrar aths. ritstj., sem birzt hafa hér í blaðinu undanfarið, svo og forystugrein Mbl. í dag. samstarfi sem þarna hefur tek- ist best vitni. 5. grein. Um fréttamannafund boðaðan í tengslum við afhend- ingu styrksins sá Sambandið alfarið um. 6. grein. Um þessa grein er þegar fjallað (3. grein), en rétt að ítreka að við höfum talið og telj- um það sjálfsagt að SÍS eigi full- trúa á fréttamannafundum þeim sem við stöndum að. (Leturbr. Mbl.) Stuðningur Sambandsins hefur orðið okkur það mikils virði og samstarfið ánægjulegt. Sama á við um ársþing HSÍ, við teljum það sjálfsagða kurteisi að bjóða fulltrúa SIS til þings- ins. Um 7., 8. og 9. grein hefur verið rætt, eða þær eru þess eðlis að þess gerist ekki þörf. Það er ljóst, að þessi skrif Morg- unblaðsins um íþróttastyrk SIS geta engan skaðað, nema, ef vera kynni, fjárvana íþróttahreyfingu. Ekki viljum við þó trúa um sinn að Samband íslenskra samvinnufé- laga oi' Handknattleikssamband fslands gera með sér svofelldan samniug um íþróttastyrk Sam- bands ns á árinu 1983: 1. Sa nband íslenskra samvinnu- félaga veitir Handknattleiks- sambandi íslands íþróttstyrk sinn á árinu 1983 að upphæð kr. 150.000,00 — krónur eitthundr- að og fimmtíuþúsund 00/100.- 2. Handknattleikssambandið notar þetta fé eins og því er unnt til kaupa á þjónustu og vönim hjá Sambandinu, kaupfélögunum og samstarfsfyrirtækjum þessara að- ila. (Leturbr. Mbl.) 3. Handknattleikssambandið heimilar Sambandinu að nota starfsemi og aðstöðu H.S.Í. og umsvif handknattleikslandslið- anna, bæði heima og erlendis, til auglýsinga og fræðslu um samvinnuhreyfinguna á hvern þann hátt sem Sambandið óskar og eðlilegt getur talist. Er þá miðað við þann hátt sem almennt tíðkast og fellur að gildandi lögum og reglum íþróttahreyfingarinnar um auglýsingar íþróttamanna. 4. Handknattleikssambandið skal svo sem kostur er vekja athygli á það hafi verið ætlunin, en hver er þá tilgangurinn? Sú hótun Morg- unblaðsins að senda ekki frétta- menn á fundi, þar sem fulltrúi SfS situr i okkar boði, getur skaðað íþrótt okkar. Það er staðreynd, að íþróttafréttaritarar geta í skrifum sínum haft áhrif á aðsókn að landsleikjum. Er Morgunblaðið að fara fram á að HSÍ hafni öðrum hvorum, fulitrúa SÍS eða frétta- manni Morgunblaðsins og skaðist að öllum líkindum fjárhagslega? (Leturbr. Mbl.) Þeir blaðamannafundir sem við höldum fara fram í okkar húsnæði og veitingar sem þar eru fram bornar keyptar af HSf. Um sölu á blaðamannafundum er ekki að ræða. Fréttamenn Morgunblaðsins sátu blaðamannafund KSf sem haldinn var um borð í einu skipa Eimskipafélags íslands og þáðu góðar veitingar frá Eimskip. Var þar um sölu á blaðamannafundi að ræða? Við teljum sjálfsagt, hvort sem HSÍ, KSI, KKf eða FRÍ eiga í hlut að þiggja og virða það sem vel er boðið. Handknattleikssambandið þarf á stuðningi að halda, nú eins og oft áður, ekki síst íþróttafrétta- manna sem löngum hafa stutt vel við bakið á þvi. Við höfum verið og erum þeirr- ar skoðunar að íþróttastyrkur þessari styrkveitingu Sambands- ins hjá fjölmiðlum og á meðal handknattleiksfólks, annars íþróttafólks og almennings. (Let- urbr. Mbl.) 5. I tengslum við blaðamanna- fund, sem Sambandið boðar til um veitingu styrksins, skal H.S.Í. sjá til þess, eftir öllum þeim leiðum sem Sambandinu eru tiltækar, að styrkveitingin veki þá athygli i fjölmiðlum sem verðugt er og viðgengist hefur um styrkveitingar til menningarmála. 6. Fulltrúi frá Sambandinu skal eiga kost á því að sitja alla frétta- mannafundi H.S.Í. á árinu og skýra þar frá þætti samvinnu- hreyfíngarinnar í sambandi við næstu viðburði hverju sinni. (Let- urbr. Mbl.) Handknattleiks- sambandið býður fulltrúa frá Sambandinu að sitja ársþing H.S.f. sem gestur þess. 7. Um auglýsingar og fræðslu um samvinnuhreyfinguna, sam- kvæmt samningi þessum, vísast að öðru leyti til áætlunar sem _ Sauðírkróki, 18. ígúst. Á MORGUN, sunnudag, 21. ágúst, verður Sjávarborgarkirkja í Borg- arsveit endurvígð. Fréttaritari Morg- unblaðsins leitaði til séra Hjálmars Jónssonar, prófasts á Sauðárkróki, og fékk hjá honum upplýsingar um kirkjuna og endurbyggingu hennar. Sjávarborgarkirkja var byggð 1853—54 og er timburkirkja. Hún var sóknarkirkja Sauðárhrepps og því kirkja Sauðkrækinga fyrstu áratugi bæjarins. Með vaxandi byggð varð kirkjan brátt of lítil og var mikill áhugi fyrir því að reisa nýja kirkju á Sauðárkróki. Með landshöfðingjabréfi, dagsettu 29. júní 1891, voru kirkjurnar á Sjáv- arborg og Fagranesi lagðar niður og skyldi byggð ný á Sauðárkróki í þeirra stað. Kirkjan á Sjávarborg er í eigu Þjóðminjasafns íslands sem hefur Sambands íslenskra samvinnufé- laga sé hvorki af flokks- né við- skiptapólitískum toga spunninn, heldur sé hann veittur í viður- kenningarskyni við þau störf sem unnin eru innan ÍSÍ að íþrótta- og æskulýðsmálum. Og varla getur Morgunblaðið leyft sér að halda því fram að umsókn HSÍ um styrkinn hafi verið til komin af flokks- eða viðskiptapólitískum ástæðum. Að lokum skal þess getið að samningur HSÍ við Samvinnu- ferðir-Landsýn, sem nú er að vísu útrunninn, var ekki gerður vegna þrýstings frá SfS heldur buðust okkur góð kjör og fyrirgreiðsla þar. Auk þess höfðum við sótt þangað ráðleggingar um fargjöld og ferðamáta löngu áður en samn- ingurinn var gerður. Með þökk fyrir birtingu, Friðrik Guðmundsson form. Jón Erlendsson varaform. Pétur Rafnsson Guðm. Fr. Sigurðsson Ólafur H. Steingrímsson Kjartan K. Steinbach Arnþrúður Karlsdóttir Þórður Sigurðsson Gunnar K. Gunnarsson Karl H. Sigurðsson gerð hefur verið og fulltrúar H.S.Í. hafa kynnt sér og fallist á. 8. íþróttastyrkurinn greiðist út með jöfnum greiðslum allt árið eftir nánara samkomulagi. Við hverja greiðslu gerir hand- knattleikssambandið Samband- inu grein fyrir umsvifum H.S.f. næstu 4 mánuði. Greiðslur eru þó háðar því að við samning þennan verði staðið. Greiðslur styrksins eru í höndum auglýs- ingastjóra Sambandsins og framkvæmdastjóra fjármála- deildar. 9. Auglýsingastjóri Sambandsins hefur umsjón með framkvæmd þessa samnings af hálfu Sam- bandsins, en H.S.Í. skal tilnefna mann af sinni hálfu til sam- starfs við Sambandið um fram- kvæmd samningsins. Af samningi þessum eru gerð tvö samhljóða eintök og heldur hvor aðili sínu eintaki. Reykjavík, 8. október 1982 F.h. Handknattleikssamb. fsl. Júlíus Hafstein F.h. Samb. ísl. samvinnufélaga Gunnsteinn Karlsson látið endurbyggja hana. Stefán Jónsson, arkitekt, hefur annast það en kirkjusmiður var Gunnar Bjarnason. Vígslubiskup hins forna Hóla- stiftis, séra Sigurður Guðmunds- son á Grenjaðarstað, vígir hina öldnu kirkju og verða viðstaddir prestar Skagafjarðarprófasts- dæmis, svo og séra Þórir Steph- ensen, dómkirkjuprestur og fyrr- um sóknarprestur á Sauðárkróki, en hann var hvatamaður að end- urbyggingu Sjávarborgarkirkju, sem hófst fyrir um það bil 15 ár- um. Þjóðminjavörður segir frá byggingu kirkjunnar og gerir grein fyrir endurbótum. Að vígsluathöfn lokinni verða kaffi- veitingar í safnaðarheimili Sauð- árkrókssóknar í umsjá Kvenfélags Skarðshrepps. — Kári Reykjavíkurvika: Útihátíð, Viðeyjar- ferð o.fl. Á DAGSKRA Reykjavíkurviku f gær voru seinni tónleikar ungs tón- listarfólks úr Reykjavík haldnir í Gerðubergi, en einnig hélt Æsku- lýðsráð unglingadansleiki f félags- miðstöðvum borgarinnar f dag eru fyrstar á dagskrá ferðir, annars vegar útsýnisferð í Biáfjöll, undir leiðsögn Einars Þ. Guðjohnsen, og hins vegar skoð- unarferð í Viðey, undir leiðsögn þeirra Örlygs Hálfdánarsonar og Sigurðar Líndal, prófessors. I Bláfjallaferðina verður lagt af stað frá Gerðubergi kl. 10.15 en frá Kjarvalsstöðum kl. 10.00. Við- eyjarferðin hefst siðan kl. 14.00 — 15.00. „Reykjavík fyrr og nú“, dagskrá í tali og tónum hefst kl.15.00 á Kjarvalsstöðum í dag. Stjórnandi dagskrárinnar er Helga Bachm- ann, en þau sem fram koma og flytja efnið eru Anna Einarsdótt- ir, Emil Guðmundsson, Valgeir Skagfjörð og Þórunn Pálsdóttir. Þá hefst kl. 14.00 útihátíð við félagsheimilið Þróttheima, en fyrir henni standa Æskulýðsráð, félagsmiðstöðin Þfottheimar og knattspyrnufélagið Þróttur. Á útihátíðinni verður sýnt fallhlífa- stökk, gestum boðið upp á ýmsar knattspyrnuþrautir, leikrit og heimsókn knattspyrnufélagsins „Augnablik". Þá verður dansleik- ur í kvöld og flugeldasýning um miðnætti við félagsmiðstöðina. Sjávarborgar- kirkja endurvígð SAMNINGUR um íþrótta- styrk Sambandsins 1983

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.