Morgunblaðið - 20.08.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983
31
fclk í
fréttum
Allt tilbúið
fyrir komu
Glistrups
+ Mogens Glistrup, stofnandi
Framfaraflokksins danska, fer í
fangelsi 31. þessa mánaðar og hér
að ofan má sjá vistarveruna, sem
verður beimili hans næstu þrjú ár-
in. Klefinn, sem er í fangelsinu i
Horseröd, er tíu fermetrar að
stærð og innánstokksmunirnir
borð, stóll og rúmfleti. Það er ekki
Glistrup, sem kominn er í klefann,
heldur hann Erik Christensen,
fangelsiseftirlitsmaður, sem var að
ganga úr skugga um að allt væri til
reiðu þegar einhver kunnasti
stjórnmálamaður Dana nú um
stundir kemur til gistingar.
Leikararnir ákváóu að
hætta við MASH
Á heimili sínu í Los Angeles fær Loretta stundum tíma til að stunda
áhugamál sitt: að sauma út púða.
„ÉG VAR í marga mánuði að jafna
mig, mér fannst allt svo tómt og leið-
inlegt. Ég forðaðist að horfa á sjón-
varpið og það er fyrst nú, sem ég er
farin að sætta mig við að MASH er
ekki lengur hluti af lífi mínu.“
Það er Loretta Swit, eða Hot
Lips í MASH, sem þetta segir, en
hún sagði já, þegar leikararnir i
þættinum greiddu um það atkvæði
hvort hætt skyldi við allt saman.
Reyndin varð líka sú, að flestum
fannst nóg komið.
„Við vorum á toppnum og það
hefði verið leiðinlegt að sjá vin-
sældir þáttarins minnka. Það fer
best á því að hætta þegar hæst
stendur."
Loretta Swit er nú fertug að
aldri og hún hefur aldrei verið
gift.
„Foreldrar mínir hafa aldrei
skilið hvað að mér gengur, að ég
skuli ekki eiga fjölskyldu og börn.
Þeir gátu varla um annað talað,
svo að ég tók mig einu sinni til og
fór með þá til fjölskylduráðgjafa,
sem sagði þeim að ég væri alls
ekki til þess fallin að eiga fjöl-
skyldu."
Loretta hefur þó stundum verið
að því komin að ganga upp að alt-
arinu og þeir eru orðnir nokkuð
margir mennirnir í lífi hennar.
Hún segist þó alltaf hafa séð að
sér á síðustu stundu.
Loretta er nú að undirbúa
heimsreisu og af engu hefur hún
jafn mikla ánægju og að ferðast.
Til tveggja landa er hún þó ákveð-
in að koma aldrei, en það eru
Kanada og Noregur. Ástæðan er
sú, að Kanadamenn og Norðmenn
drepa seli og Loretta er mikið á
móti því, segir að selir séu í mikilli
útrýmingarhættu.
„Mennirnir í lífi mínu hafa verið
margir, en ég hef alltaf séð mig um
hönd á síðustu stundu."
COSPER
— Ég gleymdi ávísanaheftinu mínu úti í bíl, nú
skrepp ég út og næ í það!
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Kennsla hefst í dagskóla og öldungadeild samkvæmt stundaskrá 1.
sept. Nýnemar i dagskóla koml til umsjónarkennara 29. ágúst kl.
14. Stundatöflur veröa afhentar öörum nemendum dagskóla 30. og
31. ágúst kl. 15—17 gegn 500 kr. skólagjaldi.
Kennarafundur verður 24. ágúst kl. 10. Bóksalan veröur opin
29,—31. ágúst kl. 10—19.
Stööupróf veröa sem hér segir:
Spænska 22. ágúst kl. 17.
Danska 23. ágúst kl. 17.
Franska 24. ágúst kl. 17.
Enska 25. ágúst kl. 17.
Þýska 29. ágúst kl. 17.
Raktor.
ALUÞETTA
r
100 KRONUR
Velkomin á Iðnsýningu 83 í
Laugardalshöll.
Stórkostleg sýning á
íslenskriframleiðslu. 120
sýnendur kynna
framleiðslusínaog
þjónustu á um 4000 m2
sýningarsvæði.
Vörukynningar,
kynningarafslættir, tölvur,
vélmenni (eitt þeirra hefur
nú þegar lært svolítið í
íslensku), tískusýningar og
margtfleira.
Happagesturdagsins
hlýturvinning og
skemmtikraftartroða upp.
Gagn og gaman fyrir
aðeins100 krónur-fyrir
fullorðna, 40 krónurfyrir
börn 6-12 ára og frítt fyrir
þau yngstu.
Þiðlátiðlðnsýningu 83
ekki fram hjá ykkur fara.
S
ISLENSK FRAMTlD
ÁIDNADI EflGGD
ÐNSYNINGj^
19/8-4/9 * ■!
/ IAUGARDALSHÖLL yJL.|
FÉLAG ÍSLENSKRA ÐNFEKENDA 50 ÁRA