Morgunblaðið - 21.08.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983
Vetrardagskrá sjónvarpsins í burðarliðnum:
Þættir með
Burton í hlut-
verki Wagners
„Sjónvarpsdagskra vetranns er i burðarliðnum og ekki fullgerð ennþá,“
sagði Ellert Sigurbjörnsson dagskrárritstjóri sjónvarpsins í samtali við Mbl.
í gær. „En í september, október og nóvember fara í gang fastir innlendir
þættir, svo sem Stundin okkar á sunnudögum, Kastljós, Skonrokk, Sögu-
hornið og þegar þingið hefst, hefst Þingsjá og ýmsir umræðuþættir. Enska
knattspyrnan hefst á ný í september, og erlendir framhaldsþættir eru hver af
öðrum að fara af stað.
Á sunnudögum verða teknir til
sýninga frægir þættir um ævi
Richards Wagner með Richard
Burton í aðalhlutverki, gaman-
þættir eins og Já Ráðherra og Til-
hugalíf verða áfram í vetur. Dall-
as verður líka áfram en þó verður
gert fjögurra vikna hlé í septem-
Dragnótaveiðar
á Faxaflóa:
ber og sýndur ítalskur fram-
haldsmyndaflokkur á meðan.
„Húsið á sléttunni" kemur aftur í
nóvember, og á miðvikudögum
verða fyrst um sinn þættirnir
„Amma og átta krakkar", sem
gerðir eru eftir bókum Anne-
Cath. Vestly. Fleira er ekki enn
fastákveðið.
Balbo myndin sem ítalir færðu
fslendingum að gjöf á dögunum
verður á dagskrá sjónvarpsins
fjórða eða fimmta september."
Skemmdarverk á jarðýtum fyrir tugþúsundir
SKEMMDARVERK fyrir tugþúsundir króna voru unnin á tveimum Carterpillar-jarðýtum á sorphaugum Hafn-
arfjarðar á fimmtudagskvöldið eða aðfaranótt fdstudagsins. Allar rúður í jarðýtunum voru brotnar og voru
notaðir til þess sverir rafsuðuvírar. Þeim var kastað í rúðurnar og létu skemmdarvargarnir ekki staðar numið fyrr
en allar rúður voru brotnar.
Lögreglan í Hafnarfirði biður alla þá sem upplýsingar geta gefið um skemmdarverkin, vinsamlega að láta sig
vita.
Ráðherrar Framsóknarflokksins:
Sjálfstæðisflokksins hefur ráðið
sér aðstoðarmann, það er Geir
Haarde, hagfræðingur og formað-
ur Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, en hann er aðstoðarmað-
ur Alberts Guðmundssonar fjár-
málaráðherra.
Kröfluvirkjun:
Borun 22.
holu lokið
VIÐ Kröfluvirkjun er nú lokið borun
holu númer 22, sem er stefnuboruð og
verður hún látin blása innan skamms.
Þá er lokið viðgerð á holu númer 13
og boruð verður ein bein hola til við-
bótar þar í sumar. Holur 21, 22 og 23
verða ekki tengdar fyrr en ákvörðun
um uppsetningu vélasamstæðu 2 verð-
ur tekin.
Að sögn Einars Tjörva Elíasson-
ar, yfirverkfræðings, er stefnubor-
un mjög handhæg, þegar skera þarf
lóðréttar sprungur eða bora undir
fjöll og á ýmsan annan hátt. Er
þetta önnur stefnuboraða holan við
Kröflu, en sú fyrri var boruð í
fyrra. Þá sagði Einar að hola 13,
sem boruð var 1980, hefði verið orð-
in afkastalítil. Væri hún skammt
frá Hveragili, en þar mætti ekki
bora vegna náttúruverndar. Því
hefði verið gripið til þess ráðs, að
stefnubora út út holunni og undir
Hveragil og skera Hveragilssprung-
una á 1.500 metra dýpi. Væri þetta í
fyrsta sinn, sem þetta væri gert hér
á landi og hefði þetta tekizt mjög
vel. Væri þess vænzt, að afköst hol-
unnar ykjust verulega og væri þetta
gert fyrir helming kostnaðar við
borun nýrrar holu.
Einar sagði, að ekki væri enn
fyllilega ljós árangur þessara bor-
ana, ætlunin væri að hleypa holu 22
upp fljótlega og viðgerðu holunni
nokkru síðar. Þá væri verið að
byrja á síðustu holunni, sem yrði
bein hola, 1.800 til 2.000 metra djúp
og boruð á Hvíthólum. Ekki yrði
um orkuaukningu í virkjuninni
vegna þessa, þar sem holurnar
hefðu ekki verið tengdar og yrði það
ekki fyrr en ákvörðun yrði tekin um
uppsetningu vélasamstæðu 2. Auk
þess væri ætlunin að kanna af-
kastagetu holanna betur áður en
þær yrðu tengdar, vegna þess að
tenging þeirra væri dýrt fyrirtæki.
Hola 13 væri tengd, en holur 21, 22
og 23 biðu þessarar ákvörðunar.
MEÐ ráðningu Jóhanns Einvarðs-
sonar, fv. alþingismanns á Reykja-
nesi, aðstoðarmanns Alexanders
Stefánssonar félagsmálaráðherra,
hafa allir fjórir ráðherrar Fram-
sóknarflokksins í ríkisstjórninni
ráðið sér aðstoðarmenn.
Aðstoðarmaður Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra
er Helga Jónsdóttir, lögfræðingur,
aðstoðarmaður Halldórs Ás-
grímssonar sjávarútvegsráðherra
er Finnur Ingólfsson, viðskipta-
fræðingur og formaður Sambands
ungra framsóknarmanna, og að-
stoðarmaður Jóns Helgasonar
landbúnaðar- og dóms- og kirkju-
málaráðherra er dr. Bjarni Guð-
mundsson, búfræðingur.
Aðeins einn hinna sex ráðherra
fyrir Rússland. Það er ekki nema
von að þetta sé dauft, þetta er
orðinn svo rosalegur floti. Karf-
inn þolir ekki allan þennan flota,
það kemur ekki til, og stofninn
er nú farinn að láta undan. Ef
flotanum verður haldið svona
stórum áfram verður þetta allt
„sviðin jörð“. Hann er 30 skipum
of stór, það eru alveg hreinar
línur. Það er því ekki um annað
að ræða en að fækka eða sætta
sig við stöðugt minnkandi afla á
skip. Við erum komnir með sama
sóknarþunga og fyrir útfærslu
landhelginnar, þetta eru orðin
svo fullkomin skip,“ sagði ólafur
Örn.
Tveir bátar
sviptir leyfi
í eina viku
TVEIR bátar, sem leyfi höfðu til
dragnótaveiða á Faxaflóa, voru fyrir
skömmu sviptir því í eina viku. Var
það vegna þess, að þeir höfðu landað
þorski með kola, en það er ólöglegt
samkvæmt þeim skilyrðum, sem
leyfin eru háð.
Að sögn Þórðar Eyþórssonar,
deildarstjóra í sjávarútvegsráðu-
neytinu, eru veiðileyfin meðal
annars háð þeim skilyrðum, að
bolfiskafli megi ekki vera umfram
15% af heildarafla bátanna miðað
við viku í senn. Færi svo yrði um-
frambolfiskaflinn gerður upptæk-
ur. Sagði Þórður, að á heildina lit-
ið væri að meðaltali aðeins um 7%
af afla dragnótabáta annar fiskur
en koli. Hins vegar væri oft nokk-
uð af þorski í aflanum í upphafi
vertíðar og gerði það mönnum erf-
itt fyrir. Þess vegna hefðu menn
líklega Ieiðzt út í það að reyna að
„fela“ þorskinn.
Frá slökkvistarfinu.
Morgunbladið/Júlíus
Eldur á Njálsgötu
TALSVERÐAR skemmdir urdu af
eldi í íbúöarhúsi á Njálsgötunni í
fyrrinótt. Tilkynnt var um eldinn til
slökkviliðsins klukkan 3.50 og þegar
það kom á staðinn var eldur í stiga-
gangi og innri forstofu og reykur mik-
ill. Húsið, sem er númer 4a við
Njálsgötuna, er steinhús, en timb-
urklætt og einangrað með spóni.
Að sögn slökkviliðsins gekk
slökkvistarf vel. Reykkafarar fóru
inn í húsið með háþrýstidælur og
var yfirborðseldur fljótlega slökkt-
ur. Rífa þurfti upp talsvert af þilj-
um til að slökkva eld í einangrun,
en eldinn lagði eftir henni upp á
efri hæð hússins. Ekkert fólk var í
húsinu.
Talsverðar skemmdir af eldi
urðu á stigagangi og innri forstofu,
en reykskemmdir á öðrum hlutum
hússins. Slökkvistarfi var lokið kl.
5.20, en slökkvilið var á vakt við
staðinn fram á morgun. Ekki er
kunnugt um eldsupptök.
Talstöðvarspjall við tvo aflaskipstjóra
Ásgeir Guðbjartsson
á Guðbjörginni:
Þetta gengur
ekki nógu vel
„ÞETTA gengur ekki nógu vel,
það er óhætt að segja það. Þetta
er ákaflega gloppótt og ofan í
ekki neitt. Við erum búnir að
vera rúma viku úti og komnir
með 150 tonn af þorski. Þetta er
óvanalega stór og góður þorsk-
ur,“ sagði Ásgeir Guðbjartsson,
skipstjóri á Guðbjörgu ÍS, er
blm. Morgunblaðsins ræddi við
hann í talstöð á Vestfjarðamið-
um í gær.
„Það koma þó neistar í þetta,
það koma sæmilegir sólarhring-
ar og svo hefur verið alveg
steindautt inn á milli. Var til
dæmis ekkert að hafa í tvo daga
í túrnum. Þetta var þó anzi gott
í síðasta mánuði, ég held við höf-
um náð tæpum 880 tonnum og
við erum ánægðir með það. Ætli
við séum ekki komnir í rétt rúm
4.000 tonn frá áramótum. Við er-
um ánægðir með þetta. Þorskur-
inn er svo takmarkaður og dálít-
ið blandaður smáfiski, ekki bara
hjá okkur Vestfirðingunum, það
er sama hjá öllum, sem eru á
* þessum miðum. Það er minna
um þorskinn nú en verið hefur,
en ég er alltaf jafn bjartsýnn.
Það kemur alltaf einn og einn
góður sólarhringur, upp í 40
tonn af þorski, og það er alveg
viðunandi, en svo fer þetta niður
í ekki neitt. Það eru einhver skil-
yrði í sjónum, sem gera það að
verkum, að maður gæti haldið að
það væri ekki einn einasti fiskur
í sjónum. Stundum fæst ekki
neitt á bleyðunum, en einum til
tveimur sólarhringum síðar geta
fengizt 20 tonn í hali á sömu
bleyðu. Þetta er annars fremur
tregt núna en slízt upp með góðu
veðri. Maður getur ekki alltaf
búizt við því að vera alltaf með
fullt skip, það er óþarfa heimtu-
frekja. Maður getur verið
ánægður með 100 tonn á viku,
það jafnar sig sæmilega út yfir
árið,“ sagði Ásgeir.
Ólafur Örn Jónsson
á Snorra Sturlusyni:
Flotinn 30
skipum of stór
„ÞAÐ er lítið að frétta af veiðun-
um hjá okkur. Við erum hér á
karfa út af Reykjanesinu. Það er
ekkert annað að hafa en karfa,
það litla, sem eftir er af honum.
Við erum á áttunda degi og
gengur ekki neitt, við erum með
130 til 140 tonn, það er allt og
sumt og ég held það sé frekar
tregt hjá öðrum, sem eru hér og
þeir eru margir," sagði Ólafur
Örn Jónsson, skipstjóri á Snorra
Sturlusyni, er blm. Morgun-
blaðsins spjallaði við hann í
talstöð.
„Hvort við erum á skrapi? Það
eru ekki til neinir þorskhausar
lengur, svo þetta er allt orðið
skrap. Ef maður ætlar ekki að
koma með dallinn tóman að
landi erum við dæmdir á karf-
ann og nú er lítið annað að gera
en að sigla með aflann þegar
ekki er hægt að vinna karfann
Hafa allir ráð-
ið aðstoðarmenn