Morgunblaðið - 21.08.1983, Síða 47
„Stúlkan (við fisksalann): Get
ég fengið keypta lúðu?
Fisksalinn: Nei, engin lúða til
sölu.
Stúlkan: Ég er send frá S ...
(háttstandandi embættismaður)
Fisksalinn: Nú, já — sjálfsagt.
Hvað áttuð þér að fá mikið?"
2. október birtir sama blað grein
um tillögu er fulltrúar verka-
manna bera fram í bæjarstjórn
Reykjavíkur. Þeir Jón Baldvins-
son, Þorvarður Þorvarðarson og
Ólafur Friðriksson bera fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórnin samþykkir að
fela borgarstjóra, að leitast fyrir
um það, hvort ekki sé unnt að fá
eitthvert botnvörpuskipanna til
þess að fiska handa bæjarbúum
næsta mánuði."
Tillagan var samþykkt í einu
hljóði.
Borgarstjóri skýrir svo frá því á
aukafundi stuttu síðar að aðeins
einn útgerðarmaður hafi reynst
fáanlegur til samninga um slíkar
veiðar og var tilboð hans sam-
þykkt þótt sýnt væri að bærinn
hlyti af því „töluverðan halla". Út-
gerðarmaðurinn var Elías Stef-
ánsson. Hann var kunnur maður á
sinni tíð. Vel þokkaður, fram-
kvæmdasamur. Féll frá rúmlega
fertugur. íslandsbanki eignaðist
peningaskáp Elíasar.
Víkjum þá að fisksölunum.
Margir þeirra lifa enn í minningu
samtíðarmanna. Er það sannast
sagna að fáum einum þeirra hafa
verið gerð þau skil sem verðugt
væri. Helst má telja að margt hef-
ir verið ritað um Pétur Hoffmann,
og einnig greint frá Jóngeir í
Hafnarfirði, en Jón Guðnason,
Eggert Brandsson, Steingrímur
Magnússon, bræðurnir Guðmund-
ur og Ólafur Grímssynir, Halldór,
faðir Jónasar Halldórssonar, og
Hafliði Baldvinsson hefðu kunnið
frá mörgu að greina. Nú mun
Steingrímur einn þeirra enn á lífi
og til frásagnar.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983
47
Jónas Guðnasonar verður lengi
minnst vegna forgöngu um stofn-
un sjómannasamtaka í Reykjavík.
Slíkt hið sama má segja um Egg-
ert Brandsson. Þeir voru báðir
traustir forystumenn í fylk-
ingarbrjósti. Jón rak um langt
skeið fiskverslun með Steingrími
Magnússyni.
Hver man ekki Jón & Stein-
grím? Hafliði Baldvinsson er enn í
minni margra, kvikur og bjartur
yfirlitum, bróðir Jóns Baldvins-
sonar og faðir Helga fisksala við
Hlemmtorg.
En þeir eru enn margir í hópi
gamalla Reykvíkinga er enn muna
bræðurna Guðmund og Ólaf
Grímsson. Þeir voru bræður
Gríms í íshúsinu og Markúsar
stýrimanns. Það hýrnar yfir borg-
arbúum er þeir rifja upp söngva
þeirra bræðra. Guðmundur var
talinn í hópi efnilegustu söng-
manna og lék hann það tíðum að
syngja í kapp við plötur Péturs Á.
Jónssonar, og gaf sig hvergi þótt
klifrað væri hátt upp tónstigann.
Var jafnan fjör og kátína þar sem
þeir fóru. Þá var Halldór faðir
Jónasar sundkappa söngvinn
mjög. Söng hann jafnan sálma og
söngljóð og lyfti harðkúluhatti
sínum í kveðjuskyni, þegar sá
gállinn var á honum. Fríður mað-
ur Halldór. Steingrímur Magnús-
son var hvað mestur fagurkeri um
val á sígildri tónlist. Hann var
fastur viðskiptamaður í plötubúð-
um. Margar ferðir mun hann hafa
átt frá fiskhreistri og þunnildum á
flatningsborði og gengið til Katr-
ínar Viðar í verzlun hennar í
Lækjargötu eða hvert annað þar
sem fiðlukonsertar eða strengja-
sveitir göfugrar ættar hljómuðu.
Fræg og fleyg voru orð Stein-
grims við bankastjórann er kvaðst
enga peninga hafa til útlána.
Steingrímur kvaðst þá vera vanur
að loka sjoppunni ef þannig stæði
á hjá sér í fiskbúðinni.
Pétur Pétursson þulur
Sömu óþurrkarnir
Enn hefur lítið ræst úr með heyskapinn á Suður- og Vesturlandi. Bændur og búalið nota
hverja einustu stund þegar færi gefst til að þurrka hey, en óhægt er um vik vegna bleytu
á túnum. Myndina tók Kristján E. Einarsson ljósmyndari Mbl. í Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi á fimmtudag er ein slík stund gafst.
Með drifi á öllum hjólum!
• Spameytinn 1500cc vél
• Dríf á öllum hjólum
• 6gíraráfram
• Þægindi fólksbílsins
• Notagildi jeppans
• Útlit framtíðarbílsins
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SIMI44144
Verö kr.
380.000
með útvarpi