Morgunblaðið - 06.10.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
5
Ritsafnið íslenskir annálar verður prýtt þúsundum mynda og teikninga, og í
fyrsta bindi, sem tekur yfir árin 1400 til 1449, eru á annað hundrað teikningar.
Hér er ein þeirra, sem sýnir hvernig listamaðurinn hugsar sér síðustu augnablik-
in í ævi Jóns Gerrekssonar: Biskup er kominn í sekk, grjót er bundið við og
honum drekkt í Brúará.
Fyrsta bindi íslenskra annála komið út:
íslandssagan 1400 til
1449 rakin frá ári til
árs í máli og myndum
ÍSLENSKIR annálar 1400 til 1449
nefnist fyrsta bindi ritverks eftir And-
ers Hansen blaðamann, sem Bóka-
klúbbur Arnar og Örlygs hefur gefið
út. Bókin er á þriðja hundrað blaðsíð-
ur í stóru broti, prýdd hátt á annað
hundrað teikningum, sem Haukur
Anders Hansen.
Halldórsson myndlistarmaður hefur
gert sérstaklega fyrir útgáfuna. í bók-
inni eru atburðir íslandssögunnar
raktir ár fyrir ár á fyrrgreindu tíma-
bili, og auk þess skotið inn skýringa-
ritgerðum, birtir eru orðréttir kaflar úr
þjóðsögum, annálum og fleiri heimild-
um, og birt eru fjölmörg gömul bréf
um jarðakaup, deilumál, kaupmála og
fleira frá fyrri hluta 15. aldar.
f kynningu útgefanda á íslenskum
annálum segir svo meðal annars:
„I ritsafninu „fslenskir annálar"
verða atburðir íslandssögunnar
raktir lið fyrir lið frá ári til árs. I
þessu fyrsta bindi, sem nú kemur út,
er tekið fyrir tímabilið 1400 til 1449,
sem tvímælalaust má telja eitt
merkilegasta tímabil Islandssög-
unnar, þótt 15. öldinni hafi til þessa
verið gerð tiltölulega lítil skil. Á
fyrri hluta 15. aldar gerðist það til
dæmis, að Svartidauði gekk yfir
landið, og lagði tugþúsundir lands-
manna í gröfina. A þessum tíma
gerðist það að Englendingar hefja
siglingar hingað til lands í stórum
stíl, bæði til verslunar og fiskveiða.
Margir fræðimenn hafa nefnt tíma-
bilið „Ensku öldina" af þessum sök-
um, og víst er að á þessum tíma voru
áhrif Englendinga hér síst minni en
áhrif Dana og Norðmanna. Fimmt-
ánda öldin er einnig öld margra
glæstustu höfðingja landsins, svo
sem Árna milda Ólafssonar hirð-
stjóra og biskups í Skálholti, Björns
Jórsalafara og Lofts ríka Gutt-
ormssonar á Möðruvöllum.
Á fyrri hluta 15. aldar gerðist það
einnig að íslendingar fóru að Jóni
Gerrekssyni biskupi í Skálholti og
drekktu honum í Brúará. Á þessum
tíma gerist það að f slendingar fara í
síðustu ferð til Grænlands, sem vit-
að er um á miðöldum, og er í bókinni
mikil og merk saga af þeirri ferð.
Enn má nefna að á þessum tíma
gekk bólusótt hér á landi, og er talið
að átta þúsund manns hafi látist af
hennar völdum."
Hvatarfundur um
jafnréttislögin
HVÖT, félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík, heldur hádegisfund laug-
ardaginn 8. október í Valhöll, Háalcit-
isbraut 1.
Á fundinum fjallar Esther Guð-
mundsdóttir, formaður Kvenrétt-
indafélags fslands, um jafnréttis-
lögin og tillögur til breytinga á lög-
unum.
Esther á sæti í ráðgjafarnefnd
Jafnréttisráðs, en nefndin vann á
síðasta ári að tillögum að breyting-
um á jafnréttislögunum og sjálf-
stæðiskonur hafa einnig rætt breyt-
ingartillögur á lögunum innan sinna
raða.
Á fundinum verður stofnaður
friðarhópur sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík og mun Bessí Jóhanns-
dóttir, formaður Hvatar, gera grein
fyrir starfi hópsins. f þessum mán-
uði hefst fræðslunámskeið á vegum
Hvatar um friðar- og öryggismál
undir leiðsögn Sólrúnar Jensdóttur
Esthcr Guðmundsdóttir.
sagnfræðings. f lok fundarins á
laugardag fer fram kosning fulltrúa
Hvatar á landsfund.
geö\s\ns
VAvet
is\egum
sunnudagskvöld
kl. 19.00
EKKI EFTIR
HVER MAN
Steina
Pétri
Kristjáns
Magnúsi og Jóhanni
Þuriéi
Sigurðardóttur
Bjögga Shady Rúnari Engilbert
Owens Júl. Jensen
Þessir frábæru topp-söngvarar syngja nú öli gömlu
góöu stuðlögin virkilega vel og er þaö mál manna aö
þeir hafi sjaldan sungiö betur en einmitt nú.
Hvers vegna
ekki
aö koma, sjá
og heyra í
staö þess
aö sitja
heima
og láta
sig
dreyma?
>Wa\T
Það er stórhljómsveit
Gunnars Þórðarsonar
ásamt strengjakvartett
sem leikur undir af
míkilli snilld.
Þetta eru tónleikar sem
allir, sem hafa gaman af
góöri tónlist og sann-
kölluöu stuði, veröa aö
mæta á.
BREIÐHOLTSBLÓM
E
c utjcx.non
MATSEÐILL
Forróttur:
Skelfisksalat með dillsósu og glóð-
uðu brauði.
Aðalréttur:
Sinnepssteiktur grísahryggur
„Romana", borinn fram með rist-
uðum ananas, bökuðum jaröepl-
um, belgbaunum, gulrótum, hrásal-
ati og rjomapaprikusósu.
Borðapantanir í stmaj
77500 kl. 9-5.
Sunnudags-
kvöld:
Ath.: Vegna fjölda áskor-
ana höfum viö ákveðiö að
hafa Bítlaæðið á sunnu-
dagskvöldið fyrir þá sem
ekki komast á föstudög-
um og laugardögum.
Aóeins þennan
eina sunnudag.
Verið velkomin í Broadway á „brjálað“ bítlaæði