Morgunblaðið - 06.10.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
13
Pólýfónkórinn
og kórskólinn
hefja vetrarstarf
Frumflutningur hérlendis á tveim
þekktum kórverkum á dagskrá
HÉR FER á eftir í heild fréttatil-
kynning frá Pólýfónkórnum um
vetrarstarf o.fl.
Eftir umfangsmikið tónleika-
hald og glæsilega hljómleikaför til
Spánar 1982 tók Pólýfónkórinn líf-
inu með ró á síðasta starfsári, en
tekur nú upp þráðinn að nýju með
endurnýjuðum krafti, bæði við
þjálfun söngfólks og flutning fag-
urra tónverka, sem eru hér ókunn.
Ráðgert er að flytja hina fögru
jólaoratoríu Heinrich Schtitz í
desember en Stabat Mater Rossin-
is á næsta vori með hljómsveit og
einsöngvurum. Áður hefur kórinn
flutt stærsta kórverk hans, hina
fögru Helgimessu (Petit Messe
Solonelle). Þar eð verkið eftir
Schutz, sem var fyrirrennari
Bachs, er að talsverðu leyti fyrir
karlakór, er flutningur þess háður
því að takist að styrkja karlaradd-
ir kórsins verulega, en tekið er við
góðu söngfólki í allar raddir kórs-
ins.
Tæplega 100 manns er nú skráð-
ir félagar Pólýfónkórsins og hafa
tilkynnt þátttöku í vetrarstarfinu.
Æfingar fara fram í Vörðuskóla
við Barónsstíg eins og áður, og er
æft 2 kvöld í viku, mánudag (ten-
ór, bassi) eða þriðjudag (sópran,
alt) og miðvikudaga samæfingar.
Ingólfur Guðbrandsson hefur
stjórnað Pólýfónkórnum frá
stofnun og heldur því nú áfram
með aðstoð Harðar Áskelssonar,
organista. Elísabet Erlingsdóttir,
sópransöngkona og fleiri þekktir
söngkennarar munu aðstoða við
raddþjálfun kórsins ásamt söng-
stjóra.
Offramboð af tónlist og
hækkaðar kaupkröfur hljóð-
færaleikara veikja
starfsgrundvöllinn
Flutningur hinna stærstu kór-
verka með hljómsveit og einsöngv-
urum er kostnaðarsamt fyrirtæki,
sem borið hefur verið uppi af að-
gangseyri og framlögum einstakl-
inga en ekki opinberum styrkjum.
En kostnaðurinn hefur hækkað
miklu meira en aðgangseyririnn,
og nú er svo komið að nærri er
útilokað að efna til hljómleika af
þessu tagi nema í samvinnu við
opinbera aðila og samtök hljóð-
færaleikara. f góðri samvinnu við
hljóðfæraleikara og aðra kóra
tókst að flytja Mattheusarpassí-
una óstytta í fyrsta sinn á íslandi
og gefa út í heild á hljómplötum,
og lítur Pólýfónkórinn svo á, að
þar hafi menningarverðmætum
verið bjargað frá glötun.
Spænskur styrkur — en
enginn íslenzkur
Kórinn naut styrks frá Spán-
verjum til hljómleikaferðar um
Andalúsíu í fyrra, þar sem m.a.
voru frumfluttir kaflar úr óra-
toríu Jóns Leifs, Eddu, og voru
ummæli öll hin lofsamlegustu.
Þekktur gagnrýnandi i Sevilla
komst svo að orði eftir lokahljóm-
leikana: „Þetta fólk ætti ekkert að
gera annað en ferðast um heiminn
og syngja!" Nú hafa tilmæli borizt
frá Spánverjum um þátttöku í
tónlistarhátíðinni í Granada 1984,
en þar söng kórinn einmitt í fyrra
meðan tónlistarhátiðin stóð yfir
og hlutu tónleikarnir meiri aðsókn
en nokkurt annað atriði á hátíð-
inni.
Stjórn Pólýfónkórsins leitaði
snemma í vor eftir samstarfi við
listahátíðarnefnd Reykjavíkur um
aðild að listahátíð 1984. Svar hef-
ur enn ekki borizt, og á fundi, sem
boðaður hafði verið með nefndinni
og stjórn kórsins í síðustu viku
mætti enginn úr listahátíðar-
nefnd. Pólýfónkórnum hefur samt
boðizt fyrirgreiðsla við tónleika á
Ítalíu, þ.á m. í Rómaborg. Ef næg-
ur stuðningur fæst innan lands og
utan, er stefnt að því að flytja H-
moll messu Bachs bæði á íslandi
og á Ítalíu árið 1985 á 300 ára
afmæli Bachs og ári tónlistarinn-
ar í Evrópu. Kórstarfið er mjög
fjölbreytt og lifandi, og verður nú
einnig ýmislegt gert til að efla fé-
lagslífið með þátttakendum.
Kórskólinn — ódýr
leið til söngnáms
Endurnýjun söngfólks í Pólý-
fónkórnum hefur einkum komið
úr kórskólanum, sem nú hefur
verið starfræktur í áratug við
ágæta aðsókn, og hafa þar komið
fram mörg ágæt söngvaraefni. Má
til gamans geta þess, að í fyrsta
árgangi kórskólans var t.d. Krist-
inn Sigmundsson, baritón, sem
síðan söng í mörg ár með kórnum
og er nú orðinn í tölu fremstu
söngvara landsins. Marga aðra
mætti nefna, sem hófu söngferil
sinn í Pólýfónkórnum og starfað
hafa þar lengur eða skemur, en
eru nú þekktir söngvarar hér
heima eða hafa jafnvel rutt sér
braut erlendis. Flest árin hafa
nemendur kórskólans hafa verið
um 100 manns, og hafa þeir notið
leiðsagnar hinna hæfustu kenn-
ara. Tilhögun er með því móti, að
kennt er 2 stundir á mánudags-
kvöldum í 10 vikur, og hefst
kennslan að kvöldi 10. október.
Námsgreinar eru rétt öndun og
beiting raddarinnar, en í annarri
kennslustund fer fram æfing í
nótnalestri, takt- eða rytma-
þjálfun, tónheyrnaræfingar og til-
sögn í undirstöðuatriðum tón-
mennta. Þarna verður bæði um
byrjer^dakennslu að ræða og fram-
haldsflokk. Hér bætist kórskólan-
um 'nýr starfskraftur, sem er
Helga Gunnarsdóttir, einn af
stofnendum Pólýfónkórsins, sem
að loknu almennu kennaranámi og
tónlistarkennaranámi hér heima,
hefur stundað nám í 6 ár við Há-
skólann í Uppsölum og lokið það-
an kandidatsprófi í tónlistarfræð-
um. Hún er nú starfandi kennari
við Kennaraháskóla íslands og
Leiklistarskóla íslands. Söng-
kennslu og raddþjálfun í kórskól-
anum annast Sigurður Björnsson,
óperusöngvari, Elísabet Erlings-
dóttir, sópransöngkona og kennari
við Tónlistarskólann í Reykjavík,
Margrét Pálmadóttir, söngkona og
tónlistarkennari menntuð í Vínar-
borg og á Ítalíu, ásamt söngstjór-
anum Ingólfi Guðbrandssyni, sem
hefur umsjón með starfi kórskól-
ans. Hæfileikinn til að syngja
blundar í mörgu fólki, án þess að
því sé gaumur gefinn, og löngunin
er oftast fyrir hendi til að fegra,
stækka og slípa hið göfugasta og
tjáningarfyllsta allra hljóðfæra,
mannsröddina. Einmitt núna, þeg-
ar pyngja margra er létt, er þetta
kærkomið tækifæri til auðvelds
söngnáms með ódýrasta hætti, því
að þátttökugjaldið er aðeins kr.
750 fyrir allan tímann. Innritun
nemenda í kórskólann, svo og um-
sóknir um inngöngu í Pólýfónkór-
inn fer fram í síma 26611 á skrif-
stofutíma, en eftir það og um helg-
ar í símum 82795, 43740, 45799 eða
39382.
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410