Morgunblaðið - 06.10.1983, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
14
Norröna í siglingar
milli Kiel og Korsör
UM MIÐJAN mánuðinn hefur fær-
eyska ferjan Norröna áætlunar-
siglingar milli Korsör í Danmörku
og Kiel í V-Þýskalandi. Verður hald-
ið uppi reglubundnum siglingum þar
á milli tvisvar á dag í vetur og fram-
vegis. Norröna mun næsta sumar
sigla á milli íslands og Danmerkur,
með viðkomu í Færeyjum, Noregi og
Skotlandi, eins og sl. sumar og
Smyrill gerði mörg undanfarin ár. A
meðan verður fengið annað skip í
siglingarnar á milli Korsör og Kiel,
að sögn Jónasar Hallgrímssonar,
bæjarstjóra á Seyðisfirði, en hann
hefur komið fram fyrir hönd aust-
firskra hluthafa í útgerðarfélaginu
Smyril Line.
„Það er verið að ganga frá nokk-
urra ára framhaldi á þessum
áætlunarferðum," sagði Jónas,
„enda hugsum við Austfirðingar
og Færeyingar til lengri tíma, lát-
um okkur ekki nægja að líta rétt
fram fyrir nef okkar. Færey-
ingarnir hafa haft um þetta sam-
vinnu við aðila í Korsör og í Kiel
og vænta góðs af þessu starfi. Þeir
telja þetta árennilegan kost — á
milli Danmerkur og Þýskalands er
mikil umferð, bæði vöruflutn-
ingabílar, fólksflutningabílar og
svo einstakir ferðamenn. Þetta er
ekkert síðri kostur en að fara til
Travemíinde. Ferðin þennan legg
tekur um fjóra tíma og frá Kaup-
mannahöfn til Korsör er um
klukkustundar akstur eftir
hraðbrautinni, svo þetta er í þjóð-
braut."
Jónas sagði að rekstur Norröna
í sumar hefði gengið vel, farþegar
hefðu verið um sextíu þúsund og
þeir ekki kvartað yfir aðbúnaði
um borð. Skipið myndi hefja sigl-
ingar milli Islands og Danmerkur
næsta vor, og líkur væru á að þeg-
ar væri búið að tryggja annað skip
til að sigla milli Danmerkur og
Þýskalands yfir sumarið. Fyrsta
ferðin yrði farin 14. október en
Norröna væri nú í slipp í Flens-
borg.
Tilkynninga-
skyldan sjó-
mönnum mikið
öryggistæki
— segir Haukur Bergmann, sjómaður, sem
í sumar hefur unnið í Tilkynningaskyldu
íslenzkra skipa í afleysingum
„ÞAÐ skiptir mig engu hvort ég er á sjó eða að vinna við Tilkynningaskyld-
una. Ég er alltaf sama sinnis, hún á fullan rétt á sér. Tilkynningaskyldan er
sjómönnum mikið öryggistæki og hefur vissulega orðið til þess að koma í veg
fyrir slys. Þó stundum sé erilsamt að vinna hér hef ég kunnað vel við mig og
verið með góðu fólki,“ sagði Haukur Bergmann, sjómaður, sem í sumar
leysti af hjá Tilkynningaskyldu íslenzkra skipa, í samtali við Morgunblaðið.
„Ég hef verið um 35 ár á sjó og
þekki því vel til öryggismála og
veit hve mikið öryggi Tilkynn-
ingaskyldan veitir okkur sjómönn-
um. Ég var til dæmis á sjónum,
þegar leitað var að Stíganda árið
1967 að mig minnir. Ekkert var
vitað um staðsetningu skipsins, en
þegar var farið að óttast um það í
landi var farið að leita. Þegar
áhöfn skipsins fannst loksins
hafði hún verið um fjóra sólar-
hringa í björgunarbátum. Hefði
Skyldan verið komin til, hefðu
þeir örugglega fundizt fyrr og í
þessu tilfelli var bara blíðviðri að
þakka að ekki fór verr. Það var
upp úr þessu, sem Skyldan var
sett á laggirnar og þá að tilhlutan
sjómanna.
Það er oft erilsamt hjá okkur og
mikið um það að við veitum út-
gerðum og ástvinum sjómanna í
landi upplýsingar um ferðir og
staðsetningu skipanna. Það er
anzi algengt að við veitum þessar
upplýsingar, þegar þarf að ná
símasambandi við skipin, því ekki
er sama um hvaða strandstöð er
farið. Þá er oftast mikið að gera
þegar skipin og bátarnir tilkynna
sig, frá 10 á morgnana til 13.30 og
20 til 22 á kvöldin. Auk þess er
okkur ætíð tilkynnt um það hve-
nær skipin koma til hafnar og
halda út. Það er því margt á okkar
könnu og nánast orðið ómögulegt
að handvinna þetta allt saman.
Daglegar tilkynningar skipta
hundruðum. Þá er auðvitað enn
við lýði gamli vandinn vegna hinn-
ar mannlegu gleymsku. Það kem-
ur allt of oft fyrir að menn gleyma
að láta vita af sér og veldur það
w r
JUDO
r /Efingar fyrir byrjendur og lengra l komna eru aö hefjast. Upplýsingar l í símum 39414 og 36331.
) Júdófélag Reykjavíkur
<5^ I* Brautarholti 18.
Henan-listfimleikahópurinn
frá Kína
sýnir í Laugardalshöll
Laugardaginn 8. október kl. 20.30
Sunnudaginn 9. október kl. 1^.00 og 20.30
Þriöjudaginn 11. október kl. 20.30
Miövikudaginn 12. október kl. 20.30
Forsala aðgömgumiða er á Lækjartorgi í dag, 6. október.
Verð 250 kr. fyrir fullorðna og 100 kr. fyrir 12 ára og yngri.
Fimleikasamband íslands. Kínversk-íslenska menningarfélagið