Morgunblaðið - 06.10.1983, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
Gólfflísar og sólbekkir
Standard stæröir, einnig smíöaö eftir máli
BYGGIR hf. Grensásvegi 16, sími 37090.
TOLVU
l U LVUVFElj IN G
undirbúningur og f ramkvæmd
Stöðugt fleiri fyrirtæki taka ákvörðun um kaup á tölvubúnaði til notk-
unar við fjárhags-, viðskipta-, launa-, birgðabókhald og framleiðslu og
verkstýringu.
Dæmin sýna og sanna að fátt er mikilvægara en réttur undirbúningur
þegar tekin er ákvörðun um með hvaða hætti sé ráðlegast að tölvuvæða
fyrirtækið.
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS
er að gera þátttakendur færa um að skilgreina kröfur og þarfir eigin fyrir-
tækis og kynna fyrir þeim helstu lausnir sem koma til greina.
EFNI:
- Hvað er tölva - hvernig vinnur tölva.
- Hvaða rekstrarþætti er hagkvæmt að tölvuvæða - stjómun, fjármála-
svið, birgðastýring, framleiðslustýring.
- Undirbúningur tölvuvæðingar - úttekt á þörfum fyrirtækisins, skil-
greining á kröfum fyrirtækisins til tölvulausnar.
- Söfnun upplýsinga - gerð útboðsgagna, samanburður tilboða, val hug-
búnaðar og vélbúnaðar.
- Framkvæmd tölvuvæðingar - fjármögnun, námskeið, samningur við
seljendur.
- Áhrif tölvuvæðingar á starfsfólk og stjómun.
- Sýning á nokkrum tölvukerfum.
Sérstaklega verður fjallað um framboð á hugbúnaði og vélbúnaði á ís-
lenska markaðnum.
ÞÁTTTAKENDUR:
Stjómendur og starfsmenn fyrirtækja og stofnana er hafa með höndum
ákvörðun um val tölvubúnaðar og umsjón með framkvæmd tölvuvæð-
ingar.
LEIÐBEINENDUR:
Gunnar Ingimundarson, við-
skiptafræðingur, próf í við-
skiptafræði frá Háskóla ís-
lands, 1981, starfar sem ráð-
gjafi hjá Félagi fslenskra iðn-
rekenda við undirbúning og
framkvæmd tölvuvæðingar.
Páll Kr. Pálsson, hagverkfræð-
ingur, próf f hagverkfræði frá
Tækniháskólanum f V-Berlín
1980, deildarstjóri tæknideild-
ar Félags fslenskra iðnrekenda
og stundakennar við Háskóla
íslands.
TÍMI:
17.-19. október 1983 kl. 13-18, samtals 15 klst.
TILKYNNIÐ ÞATTTOKU
ÍSÍMA 82930
ATH: Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfsmenntunnarsjóður
Starfsmanna ríkisstofnanna greiðir þátttökugjald fyrir félaga sína á
þessu námskeiði. Upplýsingar gefa viðkomandi skrifstofur.
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSLANDS !S«23
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir BJÖRN BJARNASON
SAMBÚÐ ÞÝSKU
RÍKJANNA BATNAR
SKIPTING l'ýskalands í tvo hluta á milli austurs og vesturs er
þungamidjan í valdakerfi sem varð til í Evrópu eftir síðari heims-
styrjöldina. Fram undir lok sjöunda áratugarins kölluðu Sovét-
menn og fylgifiskar þeirra stjórnendur Vestur-Þýskalands „hefnd-
arsinna“ og gáfu þar með til kynna að þeir ætluðu að feta í fótspor
Hitlers og hefna ófara hans í styrjöldinni. „Ostpolitik" eða „austur-
stefnan" sem mótuð var undir forystu jafnaðarmannsins Willy
Brandt með stuðningi kristilegra demókrata í kringum 1970 breytti
samskiptum Vestur-Þjóðverja við kommúnistaríkin.
í Vestur-Þýskalandi líta
stjórnmálamenn hvar 1 flokki
sem þeir standa svo á að mikið
skuli á sig leggja til að treysta
tengslin við Austur-Þýskaland.
Þetta sannaðist gleggst í júní sl.
þegar ríkisstjórn Helmut Kohl,
fyrsta kanslara kristilegra
demókrata í rúman áratug,
veitti Austur-Þjóðverjum stór-
lán, 1 milljarð marka eða rúma
10 milljarða ísl. króna.
Lánveitingin sem slík vakti
ekki einungis alheimsathygli
heldur einnig aðferðin sem
Helmut Kohl beitti við hana, að
fá Franz Josef Strauss, forsæt-
isráðherra í Bæjaralandi og
formann bræðraflokks kristi-
legra demókrata þar, til að
beita sér fyrir að fé fékkst hjá
einkabönkum i lánið, fara til
Austur-Þýskalands og ræða
málin við Erich Honecker, leið-
toga austur-þýskra kommún-
ista. Hafi einhver verið illi and-
inn í vestur-þýskum stjórnmál-
um undanfarin ár og síðustu
áratugi að mati Kremlverja er
það Franz Josef Strauss, sem nú
er orðinn bjargvættur Austur-
Þýskalands. En fjárhagur þessa
kommúnistaríkis er bágborinn
eins og annarra sovéskra lepp-
ríkja, skulda Austur-Þjóðverjar
vestrænum bönkum 6,3 millj-
arða doilara eða 180 milljarða
íslenskra króna.
Vestur-Þjóðverjar meta ekki
fjárútvegun fyrir Austur-
Þjóðverja einvörðungu með
peningalegri mælistiku heldur
líta á fyrirgreiðsluna sem fjár-
festingu í mannúðlegri stjórn-
arháttum í kommúnistaríkinu
og þar með sem stiklu á leiðinni
að því sameiginlega markmiði
allra vestur-þýskra stjórnmála-
flokka að þýsku ríkin tvö sam-
einist í eitt. Nú virðist vera að
koma í ljós, að lánið frá því í
júní hefur haft mildandi áhrif á
austur-þýsk stjórnvöld. Sjálf-
virkar byssur að austanverðu
við „innri“ þýsku landamærin
hafa verið fjarlægðar og sú
regla hefur verið afnumin að
börn og unglingar undir fjórtan
ára aldri sem koma frá Vestur-
Þýskalandi til Austur-Þýska-
lands þurfi að greiða 25 mörk
eða rúmar 250 krónur fyrir
hvern dag sem þau dveljast
fyrir austan.
Um miðjan september birtist
í bandaríska blaðinu Wall
Street Journal grein sem sögð
var byggja á leynilegu skjali um
framtíðaráform austur-þýskra
stjórnvalda í samskiptum við
Vestur-Þjóðverja. Þar kom m.a.
fram:
— Haldið verður áfram að
selja pólitíska fanga til Bonn.
Erich Honecker
Um 1000 til 1500 eru seldir ár-
lega, fyrir 40 til 100 þúsund
mörk hver (400 þús. til 1 millj.
ísl. kr). Stjórnvöld í Bonn segj-
ast ekki vilja kaupa afbrota-
menn sem voru um 30% af þeim
fjölda sem stjórnin undir for-
ystu jafnaðarmanna keypti.
— Hraðbrautin frá Berlín til
Vestur-Þýskalands verður
endurbætt og einn af járnbraut-
arteinunum til Berlínar verður
rafvæddur.
— Haldið verður áfram að
efla tengslin milli löggjafar-
þinga Vestur- og Austur-Þýska-
lands. Kristilegum demókrötum
er í nöp við þetta þingmanna-
samstarf. Þeir telja austur-
þýska þingið ekki sambærilegt
við hið vestur-þýska og segja
sem svo að 17 milljónir Aust-
ur-Þjóðverja megi ekki um
frjálst höfuð strjúka fyrir af-
skiptum Sovétmanna.
— Póstþjónusta milli ríkj-
anna verður endurbætt
— Fallist verður á tillögu
Vestur-Þjóðverja um að þeir
leggi fram 18 milljónir marka
(180 millj. kr.) til að byggja
hreinsistöð við Rödená skammt
frá þorpinu Grenzlust við norð-
austurlandamæri Bæjaralands.
Mengunin í þessari á hefur
eyðilagt rækv.að land í Vestur-
Þýskalandi.
— Viðræðum um afvopnun-
armál verður haldið áfram.
— Viðræður um menningar-
samskipti hefjast að nýju.
Heinrich Windelen, ráðherra
þýskra samskipta í Bonn, benti
á það nýlega að fleiri mennta-
skólanemendur frá Vestur-
Þýskalandi færu nú yfir til
Austur-Þýskalands í stuttar
ferðir en áður. 800 tóku sér
slíka ferð á hendur árið 1979 en
um eða yfir 6000 í ár. Og í ár
Franz Josef Ntrauss
heimsækja um 1200 austur-
þýskir skólanemendur Vestur-
Þýskaland. Vestur-Þjóðverjar
vilja efla slík tengsl og telja þau
besta merkið um að sambúð
þýsku ríkjanna sé viðunandi.
í grein sem James M. Mark-
ham, fréttaritari New York
Times, ritaði nýlega um þetta
mál sagði hann, að í Vestur-
Þýskalandi teldu menn, að Er-
ich Honecker, kommúnistaleið-
togi Austur-Þjóðverja, hefði
meira svigrúm nú en áður til
sjálfstæðra ákvarðana án af-
skipta Moskvu vegna óvissunn-
ar í Póllandi. Kremlverjar líti á
Austur-Þjóðverja sem besta
bandamann sinn í hernaðar-
málum og efnahagsmálum í
Austur-Evrópu.
Um þessar mundir er litið á
allar hræringar í samskiptum
austurs og vesturs i samhengi
við Evrópueldflaugarnar. Er
talið að sú áhersla sem nú er
lögð á að bæta samskipti þýsku
ríkjanna sé staðfesting á því að
hvað svo sem gerist í eldflauga-
málinu muni það ekki spilla
þessu sérstaka sambandi.
Heinrich Windelen, vestur-
þýski ráðherrann, sagði að
Austur-Þjóðverjar hefðu engan
sérstakan áhuga á því að eld-
flaugaandstæðingar settu allt á
annan endann í Vestur-Þýska-
landi. „Þeir þurfa á okkur að
halda," sagði ráðherann.