Morgunblaðið - 06.10.1983, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
Combi Camp
Hausttilboð
Bjóðum nokkur stykki af tjaldvögnum á sérstöku haust-
tiiboöi. Verö frá 45.000.- Hagstæðir greiösluskilmálar.
Benco
Bolholti 4.
Sími 21945 — 84077.
MARKAÐSOG
SOLUSDORNUN
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að gera grein fyrir helstu verkefnum við
markaðs- og sölustjórnun í fyrirtækjum og hvernig vinna má skipulega
að markaðsmálum. Stefnt er að því að þátttakendur geti tileinkað sér
helstu hugtök í markaðsstjörnun ogsjái dæmi um hvernig virk sölustjórn-
un skilar góðum árangri.
EFNI:
A námskeiðinu verður m.a. fariðyfir eftirfarandi:
- (írundvallarþættir markaðsstjórnunar.
- Skipulagning sölustarfseminnar.
- Persónuleg sölumennska í ljósi nýrrar sjónarmiða í markaðsmálum.
Mótun markaðsáætlunar.
Raunvt*rkefni og hópæfingar.
Ný viðhorf í markaðsmálum.
PÁTTTAKENDUR:
Námskeið þetta er einkum ætlað síilustjórum og þeim aðilum sem ábyrgð
bera á undirbúningi og framkva*md markaðsmála í fyrirtækjum.
LEIÐBEINENDUR:
Johannes Bred«.l cand. jur.
Hann hefur starfað við inn-
kaupa- og síilustjórnun í ýms-
um dönskum fyrirtækjum.
stjórnað nániskeiðahaldi fyrir
danska iðnrekendafélagið og
v i n n u mál asamband ið og re k u r
nú eigin raðgjafaþjonustu
ásamt öle Hvidt Jensen.
Ole Hvidt Jensen H.I). Hann
hefur starfað við markaðs-
stjórnun bæði í stórum og
smáum fvrirtækjum, og á ár-
unum 1967-1979 sá hann um
námskeiðahald i markaðs-
málum fyrir danska iðnrek-
endafélagið og danska vinnu-
veitendasambandið. Hann
rekur nú eigin ráðgjafaþjón-
ustu ásamt Johannes Bredal.
Námskeiðið fer fram á dönsku.
STAÐUR OG TIMI:
Kristalssalur Hótels Diftleiða 17.-18. október kl. 8.30-16.30.
TILKYNNIÐ PÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
AIH Verslunarmannafélag Reykjavikur og Starfsmenntunnarsjoður
Starfsmanna nkisstolnanna greiðir þatttökugjald fýrir félaga sina a
þt'ssu namskeiði. Upplvsiíigar gefa \ iðkomandi skrifstofiir.
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSIANDS ifiá23
Afmæliskveðja:
Margrét Jóns-
dóttir - Ferstiklu
í sumar varö 90 ára Margrét
Jónsdóttir fyrrum húsfreyja á
Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd.
Hún var fædd 4. júlí 1893 á
Þverá í Norðurárdal í Austur-
Húnavatnssýslu. Foreldrar henn-
ar voru Jón Ágúst Jónatansson og
Björg Jónsdóttir, er síðar bjuggu á
Núpi í Laxárdal. Þar ólst Margrét
upp, ásamt sjö systkinum sínum.
En fermingarárið hennar dundi
reiðarslag yfir heimilið, faðir
hennar drukknaði í sjónum fram-
an við Blönduós, ásamt tveimur
öðrum mönnum, hvolfdi bátnum
með þeim í stjórsjó og í nátt-
myrkri. Eftir þetta slys kom los á
heimilið og varð Margrét að fara
að vinna fyrir sér. Hún réð sig sem
kaupakonu að Snæringsstöðum í
Svínadal, og lofaði hún það heimili
mikið síðan.
Veturinn 1914 fór hún svo í
Kvennaskólann á Blönduósi og var
þar í tvo vetur. Þaðan fékk hún
gott veganesi fyrir lífsstarfið.
Blönduósskóli var talinn mjög
góður skóli og var því viðbrugðið
hvað þangað völdust góðar
kennslukonur. Þar lærði Margrét
m.a. karlmannafatasaum og
stundaði hún saumaskap á vet-
urna, en var í kaupavinnu á sumr-
in.
Vegna gamalla kynna við Mar-
gréti er mér ljúft að minnast
hennar, en þau kynni byrjuðu þeg-
ar ég var drengur innan við ferm-
ingu á Stóru-Borg í Víðidal. Þang-
að réðst hún kaupakona sumarið
í NÆSTA mánuði er væntanleg á
bókamarkaðinn önnur minningabók
Jóhannesar R. Snorrasonar flug-
stjóra, en fyrri bók hans, Skrifað í
skýin, kom út árið 1981 og var með
söluhæstu bókum það ár. Þessi bók,
sem ber sama nafn og fyrri bókin, er
335 blaðsíður og prýdd miklum
fjölda mynda, þ.á m. mörgum fögr-
um litmyndum frá Grænlandi. Efni
þessarar bókar hefst þar sem frá var
horfið í fyrri bókinni, árið 1946, og
nær allt fram til upphafs sjöunda
áratugsins.
í þessari bók er m.a. fjallað um
upphaf millilandaflugs íslendinga
1916 og átti þar heima í fimm ár.
Frá þeim tíma hélst alltaf vin-
skapur við foreldra mína og
frændfólk á því heimili.
Margrét var glæsileg stúlka,
glaðlynd og skemmtileg, sem alla
laðaði að sér og ekki síst okkur
krakkana, meðal annars vegna
þess að hún notaði sína frítíma
einn veturinn, til þess að kenna
okkur að dansa.
Ég hefi oft hugsað um það síð-
an, hvað þessi danskennsla hafði
mikla þýðingu fyrir mig, þegar ég
fór að fara á skemmtanir. Þá öf-
unduðu jafnaldrar mínir mig af
því. Þeir voru feimnir að bjóða
stelpunum upp, af því þeir kunnu
svo lítið að dansa.
Árið 1921 fer Margrét alfarin úr
Norðurlandi, til Reykjavíkur. Þar
starfaði hún við saumaskap í tvö
ár. En árið 1923 fer hún í kaupa-
vinnu að Ferstiklu og þar með var
hennar framtíð ráðin. Því árið
1925 giftist hún bóndasyninum
þar, Búa Jónssyni. Hann var mik-
ill myndar- og dugnaðarmaður og
þau mjög samtaka við búskapinn.
Jörðin er í þjóðbraut og var þar
mikill gestagangur og komu marg-
ir þangað þreyttir og svangir. Sér-
staklega á fyrri árum, áður en bíl-
arnir komu til sögunnar, þar sem
aðalfarartæki.
Þá reyndi oftast mest á húsmóð-
urina og létu þau hjón ekki sitt
eftir liggja, að veita gestum sínum
alla þá aðhlynningu sem hægt var,
og greint frá nokkrum æfintýra-
legum ferðum á frumbýlisárum
þess, tveim eftirminnilegum
sjúkraflugum, lendingu á hafísn-
um nálega miðja vegu milli Græn-
lands og íslands, birgðaflutning-
um upp á hájökul Grænlands og
upphafi Grænlandsflugsins á
Katalinaflugbátunum, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Bókin er prentuð og bundin í
Prentsmiðjunni Odda hf., kápan
gerð á teiknistofu Gísla B.
Björnssonar. Snæljós sf. gefur
bókina út.
Kréttatilkynning
og stundum varð að leggja nótt við
dag.
Það sagði mér gamall maður,
sem oft kom að Ferstiklu, þreyttur
eftir langa dagleið: „Það var eins
og öll þreyta færi úr mér þegar ég
for að tala við hjónin, því þau voru
bæði svo kát og hress í viðmóti."
Margrét og Búi eignuðust þrjú
börn, tvo syni, þá Ágúst Gísla og
Vífil, sem báðir eru bændur á föð-
urleifð sinni og eina dóttur, sem
heitir Kristín Ríkey og er hún bú-
sett í Kópavogi. Barnabörnin eru
sextán.
Á afmælisdaginn var Margrét
stödd í félagsheimilinu Hlöðum á
Hvalfjarðarströnd. Þangað heim-
sóttu hana hátt á annað hundrað
manns, sveitungar og aðrir vinir
og vandamenn víðsvegar að, til að
þakka henni og samgleðjast.
Margrét hefir alltaf unnað
æskustöðvum sínum fyrir norðan,
og áttu allir Húnvetningar góðu
að mæta á hennar heimili.
Þau hjónin komu líka stundum
á skemmtanir, sem Húnvetninga-
félagið í Reykjavík hélt, og sýndu
með því hug sinn til sýslunnar.
Við mér blöstu birkihlíðar
blikuðu fjöll í sólareldi,
telur skáldið Helgu Haraldsdóttur
hafa sagt, þegar hún var stödd í
Harðarhólma, sem er í Hvalfirði
skammt frá Ferstiklu. Gæti mað-
ur ekki látið sér detta í hug, að
unga húsmóðirin hafi hugsað
eitthvað svipað þegar hún kom í
þetta sérkennilega og fagra um-
hverfi og sólarlagið á vorin hafi
minnt hana á björtu vornæturnar
fyrir norðan.
Þessi síðbúna afmælisgrein á
fyrst og fremst að vera þakklæti
fyrir gömul kynni og óskir um
bjart ævikvöld.
Margrét býr nú á dvalarheimil-
inu Höfða á Akranesi. Hún er
heilsugóð, létt í spori og stálminn-
ug og heldur bæði sjón og heyrn.
Þótt hún hafi að baki 90 árin, má
enn sjá á andliti hennar bros ungu
stúlkunnar, sem ég sá fyrir rúm-
um 60 árum, og kenndi mér að
dansa.
Við hjónin sendum henni okkar
bestu afmæliskveðjur.
Dýrmundur Ólafsson
Önnur minningabók
Jóhannesar R. Snorra-
sonar flugstjóra
Aðeins
á gólfinu
______er
ódýrara
að sofa
Hagsýnn velur þaö bezta
HÚSGAGNAHÖLIIN
BlLDSHÖFOA 20-110 REYKJAVfK S 91-81199 og 81410
Verö með dýnum og
náttboröi
13.510
3ja ára ábyrgð.