Morgunblaðið - 06.10.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
37
og áhuga, en þeir urðu fleiri, fyrst
á heimamiðum en síðar bæði á
Austfjörðum og í Vestmannaeyj-
um. Ekki lét hann sjóferðina eina
nægja en vildi vita meira um sjó-
mennsku en það sem verkmennt-
unin gefur, svo hann aflaði sér
skipstj óraréttinda.
Svo eitthvað sé nefnt um félags-
málaáhuga hans var hann einn af
stofnfélögum ungmennafélags
sinnar sveitar, einnig var hann
stofnfélagi slysavarnardeildar
Þingeyrarhrepps. Eins og áður var
sagt kvæntist Steinþór 4. okt. 1930
Sigríði Guðrúnu Bjarnadóttur frá
Fjallaskaga í Djúpafirði. Eignuð-
ust þau 5 börn og öll eru þau
mesta dugnaðarfólk og vel gift.
Tvær dæturnar búa á Akureyri, sú
elsta og sú yngsta, Svala og Vig-
dís, en þær eru báðar þegnar heil-
brigðisstéttarinnar og vinna á
sjúkrahúsinu þar. Sigríður býr á
Þingeyri, gift Tómasi Jónssyni,
fyrrum skólastjóra en núverandi
sparisjóðsstjóra. Synirnir tveir
eru dýrfirskir bændur, orðlagðir
dugnaðarmenn. Svo það má með
sanni segja að þau hjón eigi
barnaláni að fagna. 16 eru barna-
börnin og langafa- og langömmu-
börnin eru nú orðin 6. Það má því
segja að Lambadalsættin sé frjó-
söm ætt sem búin er að skila þjóð-
félaginu sínum þegnum út í lífs-
baráttuna. Það er að segja eldri
kynslóðin. Alla sína búskapartíð
bjuggu þau hjónin Sigríður og
Steinþór í Lambadal og mun það
hafa verið erfitt fyrstu árin, engir
vegir sem auðvelduðu samgöngur,
túnið þýft og erfitt viðureignar,
húsakostur lélegur miðað við nú-
tímakröfur og fleira vantaði sem
telst til sjálfsagðra þæginda í dag.
Allt gekk þó vel hjá Steina því
hann hafði dugnað mikinn, hann
hafði lag á að gera mikið úr litlu.
Ekki var Sigga síðri, hún var
afbragðs húsmóðir. Þau unnu því
vel saman hjónin. Svo fljótt sem
unnt var var hafist handa við að
slétta tún, bæta húsakost og færa
á betri veg eftir því sem tími og
efni leyfðu. Sjómennsku stunduðu
þeir bræður sem hliðargrein við
búskapinn, svona sem heimilisbú-
bót og áttu þeir bát sjálfir, enda
betra því ekki var annarra kosta
völ en fara sjóleiðina til að komast
í kaupstað, engir voru vegir né bíl-
Ég vil með orðum sálmaskálds-
ins kveðja Steinþór vin minn.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt."
Að endingu bið ég góðan Guð að
blessa eftiriifandi eiginkonu
Steinþórs, Sigríði Bjarnadóttur,
og afkomendur þeirra.
Hanna Kolbrún Jónsdóttir
Minning:
Lýður Sigtryggs-
son í Noregi
Við áttum saman fjóra dásam-
lega daga í nóvember síðastliðn-
um, er ég heimsótti Lýð og konu
hans eftir að ég hafði verið á nám-
skeiði lengra norður í Noregi.
Þetta var í níunda sinn sem ég
dvaldi hjá frænda en fremur stutt
í þetta sinn. Ég var orðin 7 ára er
ég sá Lýð í fyrsta sinn, en þá kom
hann í fermingu systur minnar.
Það er ekki að orðlengja það að ég
fékk ofurást á þessum útlenda
frænda mínum og hvort sem hon-
um líkaði betur eða verr þá sat
daman öllum stundum í fanginu á
honum eða hélt í höndina á hon-
um. Það liðu fimm ár þar til ég sá
frænda næst og allan þann tíma
skrifaði ég samviskusamlega mörg
og löng bréf til hans svo ég gæti
verið viss um að hann gleymdi
mér ekki.
Bestu og skemmtilegustu endur-
minningarnar í lífi mínu eru frá
sumrinu ’75, en þá var ég þrjá og
hálfan mánuð hjá frænda í Cirkus
Merano og ferðaðist með honum
um landið endilangt. Þá breyttist
álit mitt á Lýð í meira og annað en
bara góðan frænda. Hann var
strangur og ég komst ekki upp
með neitt, enda sá ég fljótt að lífið
í sirkus er enginn leikur. Starfs-
fólki hélt hann vel og fann ég að
hann var vinsæll.
Við vorum á þönum út um allt
allan daginn en á kvöldin áttum
við oft góðar stundir saman,
Klara, Lýður og ég. Hlýddi hann
mér þá yfir norskukunnáttu mína
eða sagði mér sögur. En þær voru
ófáar sögurnar sem hann kunni,
um gömlu Akureyri, fólk og at-
burði úr stríðinu. Efnið var
kannski nauðaómerkilegt en frá-
sögnin var oftast þannig að við
veltumst um af hlátri, og þá
spurði Klara hvað væri svona
fyndið og Lýður varð að endurtaka
allt á norsku aftur og ekki varð
sagan verri við það.
Þetta sumar var landsleikur
milli Norðmanna og íslendinga og
frændi vissi ekki með hvoru liðinu
hann átti að halda, frekar þó
Norðmönnum af gömlum vana.
Við límdum okkur fyrir framan
sjónvarpið þennan dag, vel birg af
góðgæti og ekki leið á löngu þar til
fólk í næstu húsvögnum var farið
að gægjast út til að athuga hvað
gengi á. Þið hefðuð átt að sjá
hann, og trúðaatriðið í sirkusnum
fannst mér lélegt eftir þetta. Eftir
þetta sumar fór ég nærri ár hvert
til Noregs og dvaldi alltaf eitthvað
hjá þeim hjónum eða Lill-Ann
dóttur þeirra. Það verður tómlegt
næst, en þá fyrst held ég að ég
Látinn er í Reykjavík Hilmar
Kristjónsson, fyrrum yfirmaður
veiðarfæradeildar fiskveiðiaðstoð-
ar Matvælastofnunar Sameinuðu
þjóðanna (FAO) í Róm. Hilmar
lauk viðskiptafræði frá Háskóla
íslands og prófi í vélaverkfræði
frá University of California. Hann
gerðist síðan framkvæmdastjóri
Síldarverksmiðja ríkisins á Siglu-
firði um skeið í lok stríðsins. Líf
sitt helgaði Hilmar starfi við upp-
byggingu fiskveiða þróunarland-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum, og
var hann brautryðjandi í því
starfi. Hann vann hjá FAO um
þrátíu ára skeið frá 1952 til 1982
er hann lét af störfum vegna ald-
urs. Lengst af var hann yfirmaður
veiðarfæra- og veiðitæknideildar,
en einnig var hann um tveggja ára
skeið framkvæmdastjóri þróunar-
aðstoðar í Indónesíu.
Kunnastur mun Hilmar víða um
heim fyrir þrjú mikil ritverk er
hann ritstýrði, „Modern Fishing
Gear of the World“ I, II og III,
gefin út af Fishing Books Ltd.,
uppgötvi að elsku frændi er farinn
og kemur aldrei aftur, ég á mjög
erfitt með að sætta mig við þá
hugsun.
En nú vona ég bara heitt og
innilega að minn góði og elskulegi
frændi sé á góðum stað og að hon-
um líði vel og að það sé til annað
líf svo við getum hist aftur og
hlegið að nokkrum góðum sögum.
Gdda Hermannsdóttir
Lýður Sigtryggsson er ekki
lengur á meðal vor. Með honum er
genginn gegn og góðviljaður mað-
ur, dugandi starfsmaður, sem
kunni í öllu vel til verka, og mað-
ur, sem bar hlýju til samborgara
sinna. Lýður varð aðeins 63 ára
gamall. Eftir stendur opið og
ófyllt skarð öilum þeim, sem
kynntust honum og fengu tæki-
færi til að starfa með honum.
Lýður fæddist í Hrísey 6. júlí
1920 en flutti til Akureyrar á
barnsaldi með foreldrum sínum
Önnu Lýðsdóttur og Sigtryggi Sig-
urðssyni. Þar ólst hann upp til 18
ára aldurs en fór þá til náms við
Musikkonservatoriet í Osló í 4 ár.
Lýður settist að hér í Noregi og
átti hér heima til dauðadags.
Hann varð snemma kunnur
virtúós á hljóðfæri sitt, harmon-
ikkuna, og voru það þá einkum
klassísk verk, sem hann lék. Árið
1946 varð hann Norðurlanda-
meistari í samkeppni, sem haldin
var í harmónikkuleik, þar sem
komu þátttakendur frá öllum
Norðurlöndunum. Árin þar á eftir
ferðaðist Lýður víða og hélt
hljómleika og gat sér auk þess
gott orð sem frábær undirleikari
hjá kunnum norskum söngvurum.
En Lýður átti sér fjölmörg
áhugamál, og eitt af þessum
áhugamálum hans varð þess vald-
andi að hann réðst starfsmaður í
sirkus, fyrst sem hljómlistarmað-
ur en síðar sem framkvæmda-
stjóri. í norskum sirkus-heimi var
hann eins og klettur úr hafinu,
styrkur og staðfastur, allt frá því
hann hóf þar störf um 1950 og þar
til hann lést svo skyndilega. Lýður
miðlaði okkur samstarfsmönnum
sínum af þekkingu sinni og
starfsvilja. Þegar Cirkus Merano
hóf starf sitt fyrir níu árum vissi
ég, að við hlið mér hafði ég þann
starfsmann sem fremstur var í
grein sinni í öllum Noregi, og ég
fékk notið þeirrar gleði að starfa
með honum allt til dauðadags.
Hann var helsti aðstoðarmaður
minn og hægri hönd en auk þess
góður vinur. Hann naut sannrar
gleði í öllu lífi sínu og einkum
veitti tónlistin honum mikla
ánægju. Sem ungur maður í
heimalandi sínu var hann dugandi
íþróttamaður. Alla tíð var ísland
hjarta hans næst, þótt hann ynni
hinu nýja heimalandi sínu einnig.
Lýður bjó yfir mikilli þekkingu
um tónlist, sögu og menningu, og
þessi þekking hans og innsæi
gæddu sögu hans lífi og svip sem
aldrei gleymist.
Lýður Sigtryggsson var hvort
tveggja í senn, hugsjónamaður og
fjölskyldumaður, sem sinnti fjöl-
skyldu sinni af alúð en gaf sér
einnig tíma til að veita samferða-
mönnum sínum hvatningu og um-
hyggju í daglegu stríði.
Lýður kvæntist eftirlifandi
konu sinni Klöru, fædd Strand, 1.
mars 1947 á Akureyri. Þau eignuð-
ust eina dóttur, Lill-Ann, sem nú
býr í Noregi.
Allir sem þekktu Lýð Sig-
tryggsson, bæði vinir hans og ætt-
ingjar, munu sakna mannsins og
starfsbróðurins. Friður sé með
honum og minningunni um hann.
Knut Dahl, sirkus-
direktör, Noregi.
Hilmar Kristjóns-
son látinn
London, og mun hið fyrsta þeirra
rita hafa verið brautryðjandi á
þessu sviði.
Kona Hilmars er Anna Ólafs-
dóttir og lifir hún mann sinn
ásamt þremur uppkomnum börn-
um þeirra hjóna.
Útför Hilmars Kristjónssonar
verður gerð frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 6. okt. 1983 kl.
13.30.
Vid minnum á
vetrar
skoounina
0SKODA 3.0 t verð m/ssk. kr. 1.086
4.0 t kr. 1.447
. - „ 4cyl. 6cyl. 3.0 t 3.5 t kr. 1.086 kr. 1.266
|CHRYSLER 8 cyl. 4.0 t kr. 1.447
Markús Úlfsson, móttökustjóri þjónustu-
deildar. tekur við bókunum og veitir allar
frekari upplýsingar um vetrarskoðunina.
Með fullkomnum rafeindamælitækjum sem
tengd eru við vélina og rafkerfi hennar mé
mæla oll gangstig af mikitti nákvæmni
Auk þess sem „Vetrarskoðunin" ætti að
fyrirbyggja alis kyns hugsanleg óþægindi
sem óneitanlega fylgja vetrarakstri, er
ástæða tif að vekja athygli bifreiða-
eigenda á þeim bensínsparnáði sem rétt
stillt vél hefur í för með sér. Vanstillt
vél getur hæglega kostað eigandann
þúsundir króna í óþarfan bensínkostnað
á tiltölulega skömmum tíma.
JÖFUR hf
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600