Morgunblaðið - 06.10.1983, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
46
Á fimmta
þúsund
úrlausnir
GÍFURLEG þátttaka var í verft-
launagetraun Morgunblaðsins
sem lauk nú í vikunni. Alls bárust
okkur 4.368 seftlar og var mikill
meirihluti þeirra meö rétt svör.
í gær var dregið úr réttum
lausnum og í blaöinu á morgun
munum við birta nöfn þeirra
heppnu — sem unnu sór íþrótta-
búning aö eigin vali.
Það bréf sem kom lengst aö
kom alla leið frá Þýskalandi, þann-
ig aö greinilegt er aö getraunin
hefur veriö vinsæl og nokkuö á sig
lagt aö taka þátt í henni. Viö feng-
um mikið af skemmtilegum bréfum
meö getraunaseðlunum og þökk-
um við fyrir þau. Margt af unga
fólkinu lýsti yfir ánægju sinni meö
getraunaleik þennan og gat þess
aö þaö heföi áhuga á aö fleiri slíkir
fylgdu í kjölfariö. Bréf bárust alls
staöar aö af landinu — og voru
bæöi drengir og stúlkur dugleg aö
senda okkur úrlausnir. Fyrsti seö-
illinn sem dreginn var úr bunkan-
um var frá Albert Þorbergssyni,
Holtaseli 22, Reykjavík, en Albert
er níu ára gamall. Hann er því einn
þeirrra heppnu, en nöfn hinna 49
veröa birt í blaöinu á morgun.
Íþróttahátíð á Selfossi:
Margt til
skemmtunar
SAMTÖK íþróttafréttamanna
halda á sunnudagskvöldift veg-
lega hátíft í íþróttahúsinu á Sel-
fossi. Þar verður keppt í innan-
hússknattspyrnu, og verða flestir
bestu knattspyrnumenn þjóðar-
innar þar á meðal þátttakenda.
Þá veröa skemmtlatriði á
dagskrá.
Þarna fer fram hraömót í
knattspyrnu og eru átta liö sem
þátt taka i því. Eru þaö Fram, Sel-
foss, KR, Valur, UBK, Víkingur og
ÍA, auk þess sem íþróttafrétta-
menn munu mæta galvaskir til
keppni. Leikiö veröur í tvisvar
sinnum tíu mínútur, og er þegar
búiö aö draga hvaöa liö leika sam-
an. Fram mætir Breiöabliki, Sel-
foss leikur gegn KR, Valur gegn
Víkingi og Akurnesingar fá þaö
erfiöa hlutverk(l) aö leika gegn
íþróttafréttamönnum. Leikiö verð-
ur meö útsláttarfyrirkomulagi —
lið fellur úr keppni viö fyrsta tap.
Verðlaun eru ekki af lakara taginu,
en keppt er um glæsilegan
ADIDAS-bikar.
Hátíöin hefst kl. 19.30 á sunnu-
dagskvöldiö og er aögöngumiöa-
veröi stillt í hóf, 100 krónur fyrir
fulloröna og 50 krónur fyrir börn.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon.
í gærkvöldi var dregiö í verölaunagetraun Morgunblaösins. Þaö var Ásdís Höskuldsdóttir,
starfsstúlka á blaðinu, sem dró 50 réttar lausnir. Á myndinni hefur hún dregið fyrsta miöann og
á honum stóð Albert Þorbergsson, Holtaseli 22. Albert er níu ára gamall. í blaðinu á morgun
verða nöfn þeirra 50 sem fá knattspyrnubúning í verðlaun fyrir réttar lausnir.
David Turner, körfuknattleiksdómari, hélt dómaranámskeið hér á landi á dögunum eins og sagt var frá
í gær og heppnaðist þaö mjög vel. Turner þessi, sem nú er hættur að dæma á alþjóöavettvangi, hefur
verið einn besti dómari í heimi undanfarin ár. Hann dæmdi t.d. úrslitaleik ólympíuleikanna í Moskvu,
úrslitaleik í Evrópukeppni landsliða síðast, svo og í Evrópu-keppni félagsliða svo nokkrir leikir séu
nefndir. í kveöjuskyni færöi Körfuboltasambandið honum íslenska lopapeysu og minjagrip „til að taka
svolítið af íslandi með þér heim,“ eins og Einar Bollason sagði er hann færði Turner peysuna.
Turner kvaddur.
Morgunblaðiö/F r i d þ jóf u r.
Leikur Sigurlás
í Svíþjóð?
SIGURLÁS Þorleifsson, knatt-
spyrnumaöur úr Vestmannaeyj-
um sem lék meö liði Selfoss síð-
asta keppnistímabil, mun halda
utan til Svíþjóðar á föstudag. Sig-
urlás hefur fengið boð frá
sænsku 2. deildar liði til þess aö
koma og skoða aðstæður. Liðið
sem er frá Stokkhólmi vantar til-
finnanlega mikinn markaskorara
og hafði samband við Sigurlás.
hann ætlar út að skoða aðstæður
þar sem hann fær feröina og upp-
ihald sér aö kostnaöarlausu.
Sigurlás Þorleifsson
Bruch kastaði 67.08
SÆNSKI kringlukastarinn Ricky
Bruch, sem er talinn til þekktari
íþróttamanna seinni tíma, eink-
um þó á Noröurlöndum, geröi sér
lítiö fyrir og kastaði kringlu 67,08
metra á miövikudag, sem er hans
langbezti árangur um langt ára-
bil.
Ricky var frá æfingum og
keppni um árabil, en hóf æfingar
að nýju í fyrra. Hann var upp á sitt
| bezta fyrir áratug og jafnaði
heimsmetið á sínum tíma, fyrir 11
árum.
Eftir kastið góöa í Malmö á miö-
vikudag sagðist Ricky telja sig
jafnvel betri en nokkru sinni fyrr og
lýsti yfir því aö næsta ár, Ólympíu-
áriö, yröi sitt bezta. Ricky er fræg-
ur fyrir yfirlýsingar af ýmsu tagi, og
nú er aö sjá hvort hann reynist
sannspár, en hann verður 38 ára á
næsta ári.
— ágás