Morgunblaðið - 06.10.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.10.1983, Blaðsíða 48
Tölvupappír ^^^skriftar- síminn er 830 33 jrcgtfttlrliifrifr FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983 llll FORMPRENT Hvertisgotu 78. simar 25960 - 25566 Bergmálsmæl- ingar á þorski FYRIR skömmu komu Hafþór og Rjarni Sæmundsson til hafnar eftir 20 daga rannsóknir á stofnstærö þorsks. í fvrsta sinn voru gerðar til- raunir með bergmálsmælingar á þorski hér viö land, en einnig voru geröar stofnmælingar á þorski, sem byggðust á því aö fariö var meö troll vítt og breitt um landgrunniö og heildarmagnið reiknaö út eftir ákveðinni formúlu. Þetta var í fjórða sinn á tveimur árum að stofnmælingu hefur verið beitt. Nú eru fimm ár síðan bergmálsmælingum var fyrst beitt í nágrannalöndum okkar og þykja þær hafa gefið góða raun. Að sögn Einars Jónssonar, fiski- fræðings, þá er enn of snemmt að segja til um niðurstöður, en með þessum aðferðum er verið að þreifa sig áfram og styðja við eldri aðferðir til að mæla stofnstærð þorsks. Á annað hundrað lestir af selkjöti í loðdýrafóður: Veiðilaun nema hálfri milljón kr. HRINGORMANEFND hefur nú greitt veiöilaun fyrir um 3.000 seli á þessu ári og er þaö nokkru meira en á sama tíma í fyrra. Þá hafa nú mun 11 Þjófurinn“ varð því fegn- astur þegar lögreglan gómaði hann MAf)UR nokkur að noröan hugöist heimsækja vin sinn vestur á Seltjarnarnes á föstu- dag. Honum gekk erfiðlega að finna rétta húsiö og endaði með því, að hann fór inn í mannlaust íbúöarhús. Krakkar í nágrenn- inu uröu þessa varir og gerðu sér Ijóst að þar fór óboðinn gest- ur. Þeir hringdu umsvifalaust á lögregluna og tilkynntu aö inn- brotsþjófur væri á feröinni. Hinn óboðni gestur gerði sér grein fyrir mistökum sín- um og gekk út. Þar voru þá fyrir sex vaskir strákar, um 12 ára gamlir og þeir voru ekki á þeim buxunum að láta „þjóf- inn“ sleppa heldur veittu hon- um eftirför. „Innbrotsþjófur- inn“ tók til fótanna en náði ekki að hrista strákana af sér. Þreyttur og slæptur varð hann því fegnastur þegar lögregluna bar að garði og bjargaði honum frá hinum öt- ulu „lögreglumönnum" á Seltjarnarnesi. fleiri fullorðnir selir veriö veiddir en í fvrra eða um helmingur alls og er þaö þegar meira en allt árið í fyrra. Greiðslur fyrir kjöt og veiöilaun nema nú um hálfri milljón króna og er reiknað með, aö loödýrabændur hafi fengið á annað hundraö lesta af selkjöti til fóöurgeröar. Að sögn Björns Dagbjartssonar, formanns Hringormanefndar, eru veiðilaun annaðhvort greidd sam- kvæmt þunga skrokkanna eða samkvæmt sýnishornum. Síðan greiddu loðdýrabændur frystihús- unum fyrir frystingu og geymslu skrokkanna og næmi það um 2 krónum á hvert kíló. Reiknaði Björn með því að mikill meirihluti skrokkanna hefði farið til vinnslu loðdýrafóðurs. Selkjötið væri talið mjög gott loðdýrafóður og fengju bændur það ódýrara en sláturúr- gang. Það mætti því segja að sel- veiðarnar væru loðdýrabændum talsverður búhnykkur, en þeir hefðu nú fengið á annað hundrað lesta af selkjöti. Veiðilaun og greiðsla fyrir kjöt gæti nú verið um hálf milljón króna. Morgunblaðið/Ævar Auðbjörnsson. Síldarstemmning á Austfjörðum UM TVEIR tugir báta voru aö sfld- veiöum viö Austurland í gær. Þeg- ar Mbl. haföi síðast fréttir aö aust- an í gærkvöldi höföu 5 bátar til- kynnt afla, alls um 400 tonn, en í fyrradag veiddust um 500 tonn. Ágúst Guðmundsson var þá á leið til Hornafjarðar með 140 tonn, sem hann hafði veitt í hringnót í Vopnafirði. Ólafur Magnússon var kominn til Seyð- isfjarðar með 70 tonn og Jón Finnsson til Neskaupstaðar með 130 tonn, sem þeir höfðu veitt ( hringnót í Vopnafirði. Þá var Þinganes komið til Seyðisfjarðar með 35—40 tunnur af síld, sem veiðst hafði í reknet í Norðfjarð- arflóa. Einnig hafði Jakob Val- geir tilkynnt 40 tonn sem hann ætlaði að landa á Eskifirði. Ævar Auðbjörnsson fréttaritari Mbl. tók meðfylgjandi myndir á Eskifirði í gær er verið var að salta fyrstu síldina sem þar hef- ur verið landað á vertíðinni. Vanskil 20—30 skipa viö Fiskveiðasjóð: Krafíst uppgjörs eöa tryggingar — uppboð ella Dregið í getraun DREGH) var í verölaunagetraun Morgunblaösins í gær, en 4.368 lausnir bárust frá börnum alls staö- ar á landinu og ein lausn kom er- lendis frá. Nöfn vinningshafanna 50 verða birt í Morgunblaðinu á morgun, en á íþróttasíðu blaðsins í dag er mynd af því er ein starfsstúlka blaðsins dró úr réttum lausnum og sagt nánar frá keppninni. STJÓRN Fiskveiðasjóös hefur nú tekiö þá ákvöröun að senda eigend- um þeirra skipa, sem eiga 9 milljónir eöa meira í vanskilum hjá sjóðnum, kröfu um uppgjör innan tilskilins tíma eöa greiðslutryggingar, sem sjóöurinn telur fullnægjandi, að öör- um kosti verði viðkomandi skip sett á uppboö. Samkvæmt heimildum Morgunblaösins mun hér vera um á þriöja tug skipa aö ræöa og vanskil þeirra eru á bilinu 9 til 42 milljónir. Alls er hér því um hundruö milljóna króna aö ræöa. Morgunblaðið bar þetta undir Óskar Vigfússon, fulltrúa Sjó- mannasambandsins í stjórn sjóðs- ins. Sagði hann þetta rétt, væri þetta fyrsta skrefið í þessa átt og síðan kæmi að skipum, sem skuld- uðu undir 9 milljónum króna. Þetta væri mjög alvarlegt ástand og hann hefði ekki trú á því að nokkur gæti keypt þessi skip, en eitthvað yrði að gera. Hæpið væri að grípa til þeirra ráðstafana að gera eigendum þessara skipa kleift að gera þau út með afskrift- um á skuldum eða einhverju þess háttar. Hvers ættu þá þeir, sem í skilum stæðu, að gjalda. Þetta væri hið versta mál og vart ábæt- andi á þessum síðustu og verstu dögum hjá okkur. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins í gærkvöldi munu eftir- talin skip vera meðal þeirra, sem hér er rætt um: Ottó N. Þorláks- son RE, Hilmir SU, Kolbeinsey ÞH, Sölvi Bjarnason BA, Sigur- björg ÓF, Sjávarborg GK, Arin- björn RE, Óskar Magnússon AK, Elín Þorbjarnardóttir ÍS, Bjarni Herjólfsson ÁR, Eldborg HF, Júpíter RE, Sigurfari II SH, Gígja RE og Heiðrún ÍS. Tjón í hvassviðrinu í GÆRKVÖLDI gekk upp í suö- austan hvassviöri sunnan- og suö- vestanlands. Þakplötur og ýmis- legt lauslegt var farið að fjúka undir miðnætti í Árbæ og Breið- holti en engar skemmdir höföu orðiö, þegar Mbl. fór í prentun í nótt. Þakplötur fuku af nýbygg- ingu Byggingarvöruverslunar Kópavogs en ekki urðu skemmdir af þeirra völdum. Sama var upp á teningnum á Suðurnesjum. Ymislegt lauslegt hafði fokið í hvassviðrinu án þess þó að valda skemmdum, það frést hafði. Spáð var suð-austan stormi og búist við að veðurhæð- in næði hámarki um miðja nótt, en í dag er spáð suð-vestan stinningskalda með rigningu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.