Morgunblaðið - 15.11.1983, Side 2
2
Kveikt í glugga-
tjöldum í fjöl-
býlishúsum
KLDUR var borinn að glugga-
tjöldum í þremur fjölbýli.shúsum
í Breiðholti á sunnudagskvöldið
og hafði slökkviliðiö í nógu að
snúast. Fyrst var kveikt í glugga-
tjöldum í stigagangi í fjölbýlis-
húsinu að Kötlufelli 1 laust fyrir
miðnætti. Síðan í Gyðufelli 4
skömmu síðar og lokst Gyðufelli
16. I*á var kveikt í ruslatunnum
við verslunina KRON. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn í öllum
tilvikum og reyndust skemmdir
ekki miklar.
Tveir piltar voru handteknir
vegna þessa máls, 13 og 14 ára
gamlir, en þeim var sleppt í
gær.
Þá var slökkviliðið í Reykja-
vík kallað að húsinu Aðal-
stræti 16 í Reykjavík á laug-
ardagskvöldið. Allt tiltækt lið
var sent á vettvang þar sem
óttast var að mikill eldur væri
laus, en Aðalstræti 16 er stórt
timburhús. En ótti manna
reyndist ekki á rökum reistur.
Búið var að slökkva eldinn þeg-
ar slökkviliðið kom á vettvang.
Hæstiréttur:
Gæzluvardhald
staðfest í Lagar-
fossmálinu
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
45 daga gæzluvarðhald yfir 26
ára gömlum manni, sem í síðustu
viku var kveðið upp í Sakadómi í
ávana- og fíkniefnamálum, en úr-
skurðurinn var kærður til Hæsta-
réttar.
Maðurinn var úrskurðaður í
gæzluvarðhald vegna rann-
sóknar fíkniefnadeildar lög-
reglunnar á umfangsmiklu
fíkniefnamáli, sem upp kom
þegar liðlega 5 kíló af hassi,
240 grömm af amfetamíni og
20 grömm af kókaíni fundust í
Lagarfossi. Einn skipverja var
handtekinn og hefur hann við-
urkennt að hafa reynt að
smygla fíkniefnunum inn í
landið.
Samkvæmt heimildum Mbl.
er talið að fíkniefnin hafi verið
keypt í Hollandi. Maðurinn
sem var úrskurðaður í gæzlu-
varðhald var staddur í Hol-
landi þegar Lagarfoss lá við
festar í Rotterdam og liggur
undir grun að hafa átt þátt í að
fjármagna kaupin. Talið er að
söluverðmæti fíkniefnanna sé
á markaði hérlendis um 4,4
milljónir króna.
Sprengjuhótun í
Stjórnarráðinu
ADFARANÓTT mánudagsins
var hring til lögreglunnar í
Reykjavík og tilkynnt að
sprengju hefði verið komið fyrir í
Stjórnarráðinu og að hún spryngi
klukkan fjögur um nóttina.
Gerðar voru viðeigandi ráðstaf-
anir en upphringingin reyndist
gabb. Þeir sem verða uppvísir að
slíku eiga yfir höfði sér háar fjár-
sektir og fangelsi.
Lýst eftir bifreið
LÖGREGLAN í Reykjavfk lýsir
eftir Lada-skutbíl, árgerð 1976.
Bifreiðin ber einkennisstafina
R—46270 og er Ijósgul að lit. Bif-
reiðinni var stolið aðfaranótt
mánudagsins 7. nóvember frá
Safamýri 27. Þeir sem kunna að
vita um afdrif bifreiöarinnar eru
vinsamlega beðnir að hafa sam-
band við lögregluna.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
Janúar — september:
Um 12,7% aukning á
flutningum Eimskips
Heildarflutningsmagn hefur dregizt saman
HKILDAKKUTNINCAR Kimskipafélags íslands fvrstu níu
mánurti ársins jukust um 12,7'i, |>egar flutt hiil'ðu verirt lirt-
lega 4!I2 þúsund tonn, borið saman við 436,5 þúsund tonn á
sama tíma í fyrra, að sögn Harðar Sigurgestssonar, forstjóra
Eimskips.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason.
Flutningaskipið Mávur, sem strandaöi í Vopnafirði fyrir nokkrum árum, er
smám saman að brotna og grafast niður í sand. Væntanlega líða ekki mörg
ár uns Ægir konungur hefur afmáð öll merki um strandið.
Varaformannskjör landsfundar Alþýðubandalags:
Konur sameinaðar um kjör
Vilborgar Harðardóttur
ALÞÝÐUBANDALAGSKONUR hafa komiö sér saman um að standa samein-
aðar að kjöri Vilborgar Harðardóttur til varaformanns Alþýðubandalagsins á
landsfundi flokksins um næstu helgi. Þessi ákvörðun var tekin eftir að Gerður
Óskarsdóttir hafði lýst yfir að hún gæfi ekki kost á sér. Þröstur Ólafsson
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar tjáði blaðamanni Mbl. í gær, að hann væri ekki
í neinum framboðshugleiðingum. Þá staðfesti Guðmundur J. Guðmundsson
það í viðtali við Mbl. í gær, að hann myndi ekki sitja fundinn, en hann var
kjörinn landsfundarfulltrúi á hlutkesti.
Gerður Öskarsdóttir sagði í við-
tali við blaðamann Mbl. í gær, að
hún hefði gefið neikvætt svar við
beiðni um að hún gæfi kost á sér til
varaformanns. Mbl. er kunnugt um
að gengið hefur verið frá því við
Vilborgu Harðardóttur að hún
verði fulltrúi kvenna í varafor-
mannskjörinu, en konur hafa lagt
mjög mikla áherslu á að fá vara-
formann úr sínum röðum, og unnið
sleitulaust að því að ná þessari
samstöðu.
Eins og Mbl. hefur einnig skýrt
frá fór Guðmundur J. Guðmunds-
son eindregið fram á að Þröstur
Ólafsson yrði í framboði til vara-
formanns fyrir hönd verkalýðs-
hreyfingarinnar, en honum hefur
Guðmundur treyst bezt til að rétta
hlut verkalýðsarms flokksins, sem
Guðmundur telur að sé að þurrkast
út. Miklar deilur urðu í kjölfar
þessarar kröfu Guðmundar, enda
hafði Ásmundur Stefánsson mælt
með Grétari Þorsteinssyni til
framboðs úr hópi verkalýðsforust-
unnar. Þröstur sagði í samtali við
Mbl. í gær, að hann væri ekki í
neinum framboðshugleiðingum,
hann hefði nógu að sinna í sínu
starfi.
Staða kvennanna virðist sterk
þar sem þær hafa náð saman um
Þessi aukning á flutninfþim vek-
ur athygli, þegar höfð er hliðsjón
af því, að heildarflutningar um ís-
land hafa dregizt nokkuð saman á
árinu. Sem dæmi um það má
nefna, að samdrátturinn í inn-
flutningi er talin vera á bilinu 20-
25%. Hins vegar hefur útflutning-
ur landsmanna aukizt um 10% á
árinu.
Samkvæmt upplýsingum Harð-
ar jókst útflutningur Eimskips á
einn frambjóðanda. Vilborg virðist
þó, samkvæmt viðtölum við Al-
þýðubandalagsfólk, eiga á brattann
að sækja meðal ýmissa landsfund-
arfulltrúa. Nöfn Steingríms Sig-
fússonar og/eða Hjörleifs Gutt-
ormssonar eru enn til umræðu, en
ekki ljóst hvort þeir draga sig til
baka eða láta reyna á kjörfylgið.
Eins og Mbl. hefur skýrt frá er
Guðmundur J. Guðmundsson mjög
óánægður með afstöðu flokks síns
til verkalýðshreyfingarinnar og
hefur hann m.a. sagt, að flokkurínn
sé orðinn „kjaftaklúbbur her-
stöðvaandstæðinga og gamalla
rauðsokkukerlinga". í viðtali við
Mbl. í gær sagði Guðmundur það
rétt vera að hann myndi ekki mæta
á þennan landsfund, „og ég mun
heldur ekki koma á þing á næst-
unni“, bætti hann við. Hann kvaðst
reikna með því að Ólafur Ragnar
Grímsson tæki sæti sitt sem vara-
maður í dag eða á næstu dögum.
umræddu níu mánaða tímabili um
tæplega 38%, þegar út voru flutt
um 263 þúsund tonn, borið saman
við tæplega 191 þúsund tonn á
sama tíma í fyrra.
Innflutningur Eimskips var um
220 þúsund tonn fyrstu níu mán-
uði ársins, borið saman við 239
þúsund tonn á sama tíma í fyrra.
Samdrátturinn milli ára er liðlega
9%. „Samdrátturinn í innflutningi
hefur aðallega komið fram í var-
anlegum neyzluvörum, eins og bíl-
um og heimilistækjum," sagði
Hörður.
Þá kom það fram hjá Herði Sig-
urgestssyni, forstjóra Eimskipafé-
lagsins, að flutningur félagsins
milli hafna erlendis hefði nær
fjórfaldast fyrstu níu mánuði árs-
ins, en samtals voru flutt liðlega
3.500 tonn. Strandflutningar stóðu
hins vegar nokkurn veginn í stað.
Happdrætti
Sjálfstæðis-
flokksins
ÚTDRÁTTUR í Hausthapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins
fór fram síðastliðinn laugar-
dag hjá borgarfógetanum í
Reykjavík. Þar sem þá höfðu
ekki enn borist allar skila-
greinir í happdrættinu voru
vinningsnúmerin innsigluð og
verða birt næstkomandi
fimmtudag.
Fréttatilkynning.
Frjálsu framtaki óheimilt að kalla tímarit sitt „Líf“:
Samkeppni um nýtt nafn á ritið
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt, aó útgáfufyrirtækinu Frjálst framtak sé
óheimilt aó nota oröið líf, sem nafn á tímaritinu „Líf“ og var dómurinn
kveðinn upp síóastlióinn fimmtudag.
Dómur Hæstaréttar er svo-
hljóðandi: „Mál þetta dæma
hæstaréttardómararnir Þór
Vilhjálmsson, Guðmundur Jóns-
son, Halldór Þorbjörnsson, Sigur-
geir Jónsson og Jónatan Þór-
mundsson, prófessor.
Áfrýjandi hefur skotið máli
þessu til Hæstaréttar með áfrýj-
unarstefnu 16. september 1981 og
gert þá dómkröfu að stefnda
verði dæmt óheimilt að nota orð-
ið „líf“ sem titil á tímaritinu
„Líf“. Þá krefst hann málskostn-
aðar úr hendi stefnda í héraði og
fyrir Hæstarétti.
Stefndi krefst þess að hinn
áfrýjaði dómur verði staðfestur
og áfrýjandi dæmdur til greiðslu
málskostnaðar fyrir Hæstarétti.
f máli þessu er deilt um það
hvort hætta sé á að villst verði á
vörumerki því, sem áfrýjandi
fékk skráð hér á landi 14. sept-
ember 1949 og hefur að aðalatriði
orðið LIFE og nafn tímarits
stefnda, „Líf“.
Enska orðið life og íslenzka
orðið líf eru að rithætti mjög lík,
enda að uppruna til sama orðið.
Þau merkja nokkurn veginn hið
sama og merking hins enska orðs
má teljast alkunn hér á landi.
Áfrýjandi notar vörumerki sitt
sem nafn á tímariti, enda var það
upphaflega skráð í Washington 4.
maí 1937 fyrir vikurit. Tímaritið
LIFE er þekkt hérlendis, og
framkvæmdastjóra stefnda var
kunnugt um það. Verður sam-
kvæmt þessu að telja hættu á að
villst verði á nafni tímarits
stefnda og hinu skráða vöru-
merki. Ennfremur ber á það að
líta að ætla má að vörumerki
áfrýjanda hafi náð slíkri mark-
aðsfestu að heiti tímarits stefnda
sé til þess fallið að vekja hjá al-
menningi þá trú að um viðskipta-
tengsl milli aðilja sé að ræða.
Samkvæmt því sem nú hefur
verið rakið og samkvæmt 37. gr.
sbr. 1. og 4. gr. laga nr. 47/1968
um vörumerki, ber að taka til
greina dómkröfur áfrýjanda.
Málskostnaður til áfrýjanda í
héraði og fyrir Hæstarétti verður
ákveðinn 30.000 krónur.
Dómsorð:
Stefnda, Frjálsu framtaki hf.,
er óheimilt að nota orðið „líf“,
sem nafn á tímaritinu „Líf“.
Stefndi greiði áfrýjanda, Time
Incorporated, samtals 30.000
krónur í málskostnað í héraði og
fyrir Hæstarétti að viðlagðri að-
för að Iögum." Þór Vilhjálmsson
og Guðmundur Jónsson skiluðu
séráliti og töldu að ekki yrði um
villst á vörumerkjum áfrýjanda
og tímaritsheiti stefnda og því
bæri að staðfesta hinn áfrýjaða
dóm. Að Frjálsu framtaki sé
heimilt að nota orðið líf sem nafn
á tímariti sínu.
Mbl. ræddi við Magnús Hregg-
viðsson, framkvæmdastjóra
Fráls framtaks. „Þessi niðurstaða
er tvíþætt áfall fyrir okkur. í
fyrsta lagi getum við ekki notað
nafnið „líf“ áfram, jafnt þekkt og
gott það var orðið, og I öðru lagi
særir það okkur sem íslendinga
að erlend fyrirtæki geti fengið
einkarétt á að nota íslenzkt nafn
sem er jafn algengt og viðurkennt
orð og „líf“ er.
Dómur féll í undirrétti 13. júlí
1981. Þá voru allir dómarar sam-
mála um að dæma okkur í hag,
þeir Gaukur Jörundsson, Knútur
Hallsson og Hrafn Bragason.
Þeir voru allir sammála um að
enska orðið life og íslenzka orðið
líf væru ólík — að islenzka orðið
líf einkenni íslenzka tungu en life
enska.
Þeir álitu hverfandi líkur að
hægt væri að rugla þessu saman.
Hæstiréttur telur hins vegar
verulegar líkur á að fólk rugli
saman Life Magazine og Líf.
Við erum með jólablað Lífs á
lokastigi, en munum að sjálf-
sögðu hlíta dómi Hæstaréttar.
Því höfum við ákveðið að finna
nýtt nafn á blaðið og vonumst til
að sem flestir hjálpi okkur við
það og höfum ákveðið að efna til
hugmyndasamkeppni. Nýtt nafn
verður að vera til fyrir helgi og
eftir undirtektum fólks að dæma
í dag, þá er ég sannfærður um að
það tekst. Símalínur hafa verið
rauðgióandi hjá okkur og hefur
fólk undantekningalaust lýst
furðu sinni á dómi Hæstaréttar,"
sagði Magnús Hreggviðsson að
lokum.