Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 21 • Stuttgart er nú í efsta sœti í „Bundesligunni“ í knattspyrnu. Liöið sigraði Offenbach á útivelii, 2—1, um helgina. Ásgeir Sigurvinsson skoraði sigurmark Stuttgart með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig níu mínútum fyrir leikslok. Ásgeir fékk mjög góða dóma fyrir leik sinn og var sagður besti leikmaður vallarins. „Ánægjulegt að vera á toppnum" — Það er víssulega ánægju- legt að vera í efsta sæti deildar- innar, en eins og sjá má á stöð- unni þá gæti hún ekki veriö jafn- ari. Fjögur liö eru meö sömu Óli Þór með Þór! Unglingalandsliðsmaöurinn í knattspyrnu, Óli Þór Magnússon, ákvað um helgina að ganga til liös við Þór, Akureyri, og leika meö liðinu í 1. deildinní næsta sumar. Óli mun flytjast til Akureyrar í janúar og byrja þá að æfa meö Þórsurum. Hann var fyrir noröan á dögunum og ræddi þá viö forráöa- menn félagsins — og um helgina gaf hann þeim síöan ákveöiö svar. Hann mun örugglega styrkja liö Þórs — sem kom á óvart með góöum árangri í 1. deildinni t sumar — en aö sama skapi er blóötaka Keflvíkinga mikil. AS stigatölu en viö erum meö hag- stæöasta markahlutfalliö. Þetta veröur hörö keppni í vetur um efstu sætin og við hjá Stuttgart förum varlega í að gera okkur vonir. Reynum aö vera raunsæir og tökum hvern leik út af fyrir sig. Næstu leikir eru mjög þýö- ingarmikiir fyrir okkur. Viö fáum hlé núna vegna landsleikja V-Þýskalands og veröur þaö mjög kærkomið eftir strangt leikjaprógramm aó undanförnu, sagöi Ásgeir Sigurvinsson sem skoraöi sigurmark Stuttgart um helgina er liöið skaust á toppinn í 1. deild í V-Þýskalandi. . — Liö Offenbach er mjög erfitt heim aö sækja og af þeim níu stig- um sem þeir hafa fengiö í deildinni í vetur eru átta á heimavelli. Þeir léku líka vel framan af og áttu síst minna í fyrri hálfleiknum. Þeir skoruöu fyrsta mark leiksins úr aukaspyrnu. Nidermayer jafnaði svo fyrir okkur. Markið sem ég skoraöi kom ekki fyrr en niu mínút- um fyrir leikslok. Ég náöi góöu skoti fyrir utan teig og skoraöi. Sigur okkar var ekki sist ánægju- legur fyrir þaö aö viö komumst í efsta sætiö. Þaö er alltaf ánægju- legt aö vera á toppnum. Liösheild- in var sterk hjá okkur í leiknum og viö lékum vel í síöari hálfleiknum. Miöjan og vörnin kemur vel út hjá okkur og viö erum eina liöiö í deildinni sem hefur aöeins tapaö tveimur leikjum af þeim 14 sem búnir eru. Þaö er ekki svo slæm útkoma. Varnarleikurinn er góöur og viö höfum aöeins fengiö 14 mörk á okkur eöa eitt mark aö meöaltali í leik. Framherjar okkar mættu hinsvegar skora meira. Corneliusson var meö í leiknum gegn Offenbach en hann hefur ekki leikiö í langan tíma. Hann var aö visu tekinn útaf en er aö ná sér eftir langvarandi meiösl. Hann er búinn aö skora sex mörk af 28 en hinir framherjarnir aöeins þrjú mörk saman. Markatalan 28—14 er nokkuö góö. Þá hefur okkur gengiö nokkuö vel í útileikjum okkar en þeir eru jafnan mjög erf- iöir. Ásgeir sagöi aö nú væri hann oröinn alveg góöur af meiöslunum og kominn i mjög góöa leikæfingu og allt væri fariö aö ganga eöli- lega. — ÞR. Bjarni og Halldór Reykjavíkurmeistarar REYKJAVÍKURMÓTIÐ í júdó var haldið á laugardaginn í íþrótta- húsi Kennaraháskólans. Þátt- taka var fremur dræm og var því aöeins keppt ( tveimur þyngdarflokkum, þ.e. + 70 kg og + 80 kg. Júdókapparnir góö- kunnu, Bjarni Friöriksson og Halldór Guðbjörnsson, uröu Reykjavíkurmeistarar og sigr- uóu þeir alla andstæóinga sína, Bjarni í þyngri flokknum en Halldór í þeim léttari. Margar góöar glímur sáust á mótinu og er greinilegt aö júdómenn eru í góöri æfingu þessa dagana. Úr- slit mótsins uröu annars þessi: + 70 kg flokkur: 1. Halldór Guöbjörnsson Júdó- fél. Reykjavíkur. 2. Karl Erlingsson Ármanni. 3. Hilmar Jónsson Ármanni. + 80 kg flokkur: 1. Bjarni Frióriksson Ármanni. 2. Kristján Valdimarsson Ár- manni. 3. Gísli Wíum Ármanni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.