Morgunblaðið - 15.11.1983, Síða 22

Morgunblaðið - 15.11.1983, Síða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra: Ekki kemur til greina upp- setning eldflauga á íslandi Ekki ágreiningur milli stjórnar og stjórnarandstöðu, sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra Að gefnu tilefni fyrirspurnar Svavars Gestssonar þá svara ég því eindregið, að ég tel ekki koma til greina eða vera á dagskrá uppsetningu eldflauga hér á fslandi. Þannig svaraði Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, í neðri deild Alþingis, er Svavar Gestsson bar fram fyrirspurn, í tilefni sjónvarps- fréttar, hvort það væri innan ramma gildandi varnarsamnings að hér yrðu settar upp eldflaugar? — Uppsetning slíkra eldflauga myndi breyta eðli varnarstöðvarinnar, sagði utanríkisráðherra, og því sé ég ekki efni til þess á grundvelli varnarsamningsins að slíkt verði gert. Varnarsamningurinn felur íslendingum algert og óskorað vald varðandi það, hvaða ráðstafanir eru gerðar í landi okkar. Ég tek undir það með Sverri Hauki Gunnlaugssyni, deildarstjóra varnarmáladeildar, að varnarliðið gegnir hér tvíþættu hlutverki, annars vegar að annast beinar varnir landsins og hinsvegar eftirlit umhverfis það. Ég svara því fyrirspurn þingmannsins um það, hvort ég teldi koma til mála að setja slíkar eldflaugar upp á íslandi, neitandi. Eldflaugar á íslandi Svavar GesLsson (Abl) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á Al- þingi í gær í tilefni sjónvarps- fréttar (Ögmundar Jónassonar) um hugmynd, sem fram hafi ver- ið sett í Bandaríkjunum, þess efnis, að loka GÍUK-hliðinu (Grænland/ ísland/ Skotland) með eldflaugakerfi. Fréttamaður sjónvarps vitnaði til greina í brezka blaðinu Sunday Times og skoska blaðinu Scotsman, þar sem fyrst og fremst er fjallað um hugmyndir Bandaríkjamanna um smíði skipa, er borið geti eldflaugar, en í leiðinni^ vikið að möguleika á að loka GÍUK-hlið- inu með framangreindum hætti. Scotsman nefnir Keflavík sem hentugan stað fyrir slíkar eld- flaugar. Svavar sagði upplýsingar þessara blaða komnar úr skýrslu, sem unnin hafi ver- ið í þágu deild- ar í bandaríska varnarmála- ráðuneytinu, en sú skýrsla hafi verið stytt af ör- yggisástæðum, og kaflar hennar hafi enn ekki verið kunngjörðir. Svavar vitnaði til orða frétta- manns, „að hér sé um að ræða athuganir og uppástungu, sem ekkert bendi til að hafi komizt á framkvæmdastig", og deildar- stjóra í varnarmáladeild íslenzka utanríkisráðuneytisins, „að skýrsla þessi hafi ekki komið til tals í varnarmáladeild, enda fjarri lagi að hugmyndum af þessu tagi yrði fylgt í fram- kvæmd“. Þá sagði Svavar að í skýrsl- unni væri varpað fram þeirri hugmynd, að ekki væri úr vegi að koma þessum kerfum fyrir í þeim löndum, þar sem ekki eru kjarnorkuvopn og andstaða gegn slíkum vopnum, því að það gæti stuðlað að því að íbúarnir ættu auðveldara með að sætta sig við þau síðar ... venja menn við til- hugsunina um kjarnorkuvopn. Svavar fór þess á leit við utan- ríkisráðherra að hann útvegaði umrædda skýrslu, óstytta, til umfjöllunar í utanríkismála- nefnd þingsins. Síðan spurði Svavar efnislega: 1) Er hægt að koma slíkum eld- flaugum hér fyrir að óbreyttum varnarsamningi, 2) Er ekki nauð- synlegt að setja hér lög sem taka af tvímæli um, að ekki sé hægt að staðsetja hér slík tól, 3) taldi fyrirspyrjandi óhjákvæmilegt að Alþingi mótmælti þeim vinnu- brögðum að bandaríska hermála- ráðuneytið fjalli um slík mál, er Island varðar, án þess að íslenzki utanríkisráðherrann eða ríkis- stjórn hefði hugmynd um. Marklaus skýrsla, unn- in af einkafyrirtæki Geir Hallgríms- son, utanríkis- ráðherra, svar- aði efnislega: Mér var ekki kunnugt um þessa skýrslu, sem greint er frá í sjónvarps- fréttum. Að vísu hafði fréttamaður sagt mér lauslega frá blaðafregnum um hana og að loknum fréttunum var hann reiðubúinn að láta mér hana í té. Þetta er skýrsla, sem gerð er af einkafyrirtæki að því er virðist að nafni Science Appli- cations, Inc. 1710 Goodridge Drive, McLean, Virginia Banda- ríkjunum. Það segir svo á forsíðu þessarar skýrslu: Drög að loka- skýrslu fyrir tímabilið septem- ber 1982 til júlí 1983, vitnað í samning og undirbúin fyrir for- stjóra Defence Nuclear Agency í Washington. Ég hef gert ráðstafanir til þess að sendiráð okkar í Washington aflaði sér upplýsinga um þessa skýrslugerð, hvernig hún er til- komin og í hvaða tilgangi. Sömu- leiðis hef ég látið spyrjast fyrir um það í sendiráði Bandaríkj- anna hér á landi, hvernig á þess- ari skýrslu standi og í hvaða til- gangi hún sé gerð. Sendiherra Bandaríkjanna hefur tjáð ráðu- neytisstjóra utanríkisráðuneyt- isins, að það væru margir tugir eða hundruð slíkra skýrslna á ferðinni, m.a. í skrifstofunum í Pentagon, sem ekkert væri gert með í raun og veru og þessi skýrsla væri algerlega marklaus. Nú skal ég ekki frekar fjalla um það, en leggja þó áherslu á það, sem fréttamaður gerði sjálf- ur í sjónvarpinu, þar sem hann sagði orðrétt: „Rétt er að leggja áherslu á að hér er um að ræða athuganir og uppástungur, sem ekkert bendir til að hafi komist á framkvæmdastig og einnig er rétt að hafa í huga, að sífellt er verið að gera rannsóknir af þessu tagi, sem aldrei koma til fram- kvæmda." Ég held, að það sé alveg nauð- synlegt, að við gerum okkur grein fyrir því að hér er um að ræða mál, sem aldrei hefur kom- ið á dagskrá hjá íslenzkum stjórnvöldum, að hér yrði komið fyrir landföstum eldflaugum, hvorki með kjarnaoddum né án. Og ég er þeirrar skoðunar, sem fram kemur hjá deildarstjóra varnarmáladeildar, Sverri Hauki Gunnlaugssyni, og haft var eftir honum í umræddri sjónvarps- frétt, að þessi skýrsla hefði ekki komið til tals í varnarmáladeild, enda fjarri lagi, að hugmyndum af þessu tagi yrði hrint í fram- kvæmd. Afstaða íslenzkra stjórnvalda væri og hefði verið sú að varnarliðið gegndi tvíþættu hlutverki, annars vegar að ann- ast beinar varnir landsins og hins vegar eftirlit umhverfis það. Svona hugmyndir eins og fram kæmu í skýrslunni mundu aug- ljóslega brjóta í bága við þetta tvíþætta hlutverk. Eg svara því fyrirspurninni um það, hvort ég teldi til mála koma að setja slík- ar eldflaugar upp á íslandi, neit- andi. Ég er sömuleiðis þeirrar skoð- unar, að uppsetning slíkra eld- flauga mundi breyta eðli varnar- stöðvarinnar; og því sé ekki efni til þess á grundvelli varnarsamn- ingsins, að slíkt verði gert. Varn- arsamningurinn hefur hins veg- ar það í för með sér, að hann er alveg skýr og ótvíræður að því leyti til, að hann felur íslending- um algert og óskorað vald varð- andi það hvaða ráðstafanir eru hér á landi gerðar, hvaða vopn eru hér til staðar eða hvernig þau eru notuð. Það er á valdi ís- lendinga fyrst og síðast að kveða á um það. Ég get verið sammála fyrir- spyrjanda um það, að ég tel óvið- urkvæmilegt að verið sé að gera skýrslur varðandi þátt íslands í varnarsamvinnu vestrænna þjóða án þess að fslendingar fylgist með því. Ég er þeirrar skoðunar, að íslendingar hafi verið of afskiptalitlir í þessum efnum, að okkur fslendingum beri að fylgjast með umræðum um varnarumbúnað mun betur en við höfum gert og við eigum sjálfir að vega og meta hvaða ráðstafanir eru gerðar hér á landi okkur til varnar, öryggis okkar til halds og trausts. í því felst að við hljótum að byggja upp innan okkar eigin vébanda meiri og betri sérfræðiþekkingu en við höfum enn yfir að ráða eða höfum notfært okkur a.m.k. Það fer ekki hjá því að innan vébanda Atlantshafsbandalagsins og í umræðu milli manna og fulltrúa landa og í stofnunum er fjalla um utanríkis- og öryggismál séu gerðar ýmiss konar skýrslur og varpað fram margs konar hug- myndum, sem ætlaðar eru til að skýra viðhorfin í alþjóðamálum og stöðu einstakra landa hvað snertir öryggi þeirra ef til átaka kæmi eða til þess að koma í veg fyrir átök. Okkur íslendingum ber skylda til að fylgjast mun betur en við höfum gert með öll- um þessum umræðum og gera okkar hug upp með tilvísun til okkar eigin hagsmuna að þessu leyti. Það er ekki hægt í opnum þjóðfélögum vestrænna ríkja að koma í veg fyrir það að einstakar stofnanir, félagasamtök, ein- staklingar, fræðimenn eða jafn- vel opinberar stofnanir, sem láta einkafyrirtæki fyrir sig vinna, fjalli um öryggismál á breiðum grundvelli og þar geti komið fram ábendingar um stöðu ís- lands í einu eða öðru formi eða í einu eða öðru efni. En hitt er al- veg ljóst, að samkvæmt varnar- samningnum höfum við íslend- ingar fyrsta og síðasta orðið um allar ákvarðanir og í þessu tilviki er þessi skýrsla ein af mörgum, mörg hundruð, mörg þúsund skýrslum sem eru á sveimi og ber að líta á hana sem slíka og hún er því ekki marktæk. En að gefnu tilefni þessara fsp. sem hér er um að ræða, þá svara ég því ein- dregið, að ég tel ekki koma til greina eða vera á dagskrá upp- setningu eldflauga hér á íslandi. Ein milljón dollara á mínútu í vígbúnað Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.) sagði rétt að taka þessar hug- myndir strax föstum tökum; hugsunin að baki þeim sé hættu- leg. Hér sé um að ræða meðal- drægar stýrieldflaugar, sem í eðli sínu séu árásarvopn. f annan stað sé hér um að ræða vopn sem búa megi kjarnaeldflaugum. Um- framgeta stórveldanna til að eyða hvort öðru sé það mikil í reynd, „að þau eiga erfitt með að finna ný áhugaverð skotmörk". Guðrún sagði 60-80% af fólki í Evrópu- ríkjum andvígt kjarnavopnum. Samt á að senda slík vopn til Evrópu inn- an skamms með vilja stjórnvalda. Hafa stjórnmála- menn efni á því að láta varnaðar- orð 14.000 eðlisfræðinga og um 30.000 lækna sem vind um eyru þjóta? í þágu hvers eyða stjórnmála- menn einni milljón dollara á mínútu í vígbúnað í heiminum? í þágu hvers tryggja þeir hverju barni 4 tonn af sprengiefni í vöggugjöf? Á sama tíma eru 600 milljónir manna vannærðar og 900 milljónir ólæsar. Hernaðar- útgjöld í xh dag myndu nægja til að útrýma malaríu og einn skriðdreki kostar jafn mikið og skóli fyrir 30.000 börn. Væri ekki nær að byggja upp friðsöm samskipti? Eyða ótta og tortryggni? Þar er framlag hvers og eins mikilvægt. Lika Islend- inga. Keflavíkurflugvöllur er árásarstöð Steingrímur Sigfússon (Abl.). Ég fagna þeirri yfirlýsingu utan- ríkisráðherra að staðsetning eld- flauga komi ekki til greina hér á Iandi. Ég er hins vegar ósam- mála honum um „eðli“ Keflavík- urflugstöðvar. Það mál, sem við hér ræðum, er aðeins eitt dæmið til viðbótar sem sannar árásar- hlutverk þeirrar stöðvar. Stein- grímur fór nokkrum orðum um sjóndeildarhring ratsjárflugvéla, þar staðsettra, 390 þús. ferkm þegar þær væru í háflugi, og taldi það koma heim og saman við árásarhlut- verk, enda hafi þessar flugvél- ar verið svo skilgreindar þá til umræðu hafi verið á Bandaríkjaþingi. Steingrímur taldi þær fram- kvæmdir, sem fram hefðu farið á Vellinum, endurnýjun svo til alls búnaðar, sprengjuheld flugskýli, jarðstöð til móttöku upplýsinga frá gervihnöttum, fljúgandi stjórnstöðvar o.fl. falla undir árásarhlutverkið. Bandaríkja- menn eru að færa vígbúnað sinn úr eigin landi til Evrópu og N-Atlantshafs. Þurfum að setja lög um málið Svavar Gestsson (Abl.) þakkaði utanríkisráðherra skýr svör. Aldrei kæmi til mála að setja upp eldflaugar á fslandi, hvorki með eða án kjarnavopna. Hann væri hins vegar ósammála því, að sú skýrsla, sem þessi utan- dagskrárumræða væri reist á, væri markleysa ein. Þrátt fyrir þessi svör tel ég einsýnt að íhuga vel, hvort ekki sé rétt að setja lög til að taka af tvímæli um að engin ríkisstjórn geti heimilað uppsetningu kjarnavopna á íslandi. Svavar taldi öryggismála- nefnd, sem hér starfaði, hafa skilað góðu verki. Rétt væri, að við þyrftum að afla okkur meiri þekkingar um öryggismál, en sú þekking má ekki vera vörumerkt NATO og á fremur að spanna friðarmál en hermál. Hann ítrek- aði beiðni til utanríkismálaráð- herra um útvegun umræddrar skýrslu, óstyttrar. Einnig það, sem hann hafði áður sagt, um nauðsyn þess að Alþingi Islend- inga mómælti þessum vinnu- brögðum hermálaráðuneytis Bandaríkjanna. Allir stjórnmála- flokkar sammála Halldór Ás- grímsson, sjáv- arútvegsráð- herra, tók und- ir það að við sem sjálfstæð þjóð þyrftum að efla eigin þekkingu og dómhæfni á öllu því er varðaði eigin örygg- ishagsmuni. Hann tók undir orð utanríkisráðherra að staðsetning flauga af því tagi, sem nú væri um rætt, kæmi aldrei til greina á fslandi. Þessi umræða hefur leitt í ljós að allir stjórnmálaflokkar eru sammála um þetta efni, sagði sjávarútvegsráðherra. Löggjöf er' því með öllu óþörf. Eflum sérfræði- þekkingu okkar Gunnar G. Schram (S) taldi yf- irlýsingar utanríkis- og sjávar- útvegsráðherra taka af öll tví- mæli um afstöðu ríkisstjórnar- innar. Það er ekki ágreiningur milli stjórnar og stjórnarliða um þetta efni. Gunnar vitnaði til 1. greinar í varnarsamn- ingi við Banda- ríkin, sem fæli ótvírætt í sér, að íslendingar hefðu fullt vald í þessu máli. Ekki væri hægt að gera neitt nema „báðir aðilar séu sammála" um nauðsyn gjörn- ingsins. Gunnar taldi hins vegar að við íslendingar værum ekki nógu vel í stakk búnir til að meta það, sem við þyrftum sjálfir að meta, varðandi öryggishagsmuni okkar, þrátt fyrir 35 ára veru í NATO. Þetta mál ýtti því við okkur um öflun sérfræðilegrar þekkingar. Um þetta efni hafi þeir Geir og Svavar í raun verið sammála, þó orðað hafi hver á sinn hátt. Öryggismálanefndin hefur unnið gott starf, en þar þarf fleira til að koma. Agæt yfirlýsing og sjálfsögð Kjartan Jóhannsson (A) þakk- aði yfirlýsingu utanríkisráð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.