Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 31 Morgunblaóió/I'riftþjórttr. Hárgreiðslustofan Ýr flytur Ferðaþjónusta bænda: Aðalfundur í Stykkis- hólmi nk. laugardag AÐALFUNDUR Ferdaþjónustu bænda veröur haldinn í Hótel Stykkishólmi laugardaginn 19. nóvember n.k. og hefst hann kl. 10.30 árdegis. Á fundinum veröur fjallaö um flest þau mál sem falla undir ferðaþjónustuna. herra, sem verið hafi ágæt og sjálfsögð. Eðlilegt væri að ís- lendingum brygði í brún þá heyrðu sjónvarpsfréttir eins og þær, er yfir þeim voru lesnar í gærkveldi. Hins vegar væru þær blaðafréttir, sem fréttin væri byggð á, ekki nýjar af nálinni, sú elzta frá í marzmánuði, sú yngsta frá í október. Kjartan taldi ástæðu til að mótmæla túlk- un Steingríms Sigfússonar, þ.e. að hér á landi væri árásarstöð en ekki varnar- og eftirlitsstöð, eins og varnarsamningurinn kvæði á um. Þetta er röng kenn- ing. Þetta fyrirkomulag hefur gefizt okkur vel, tryggt okkur frið, og sæi ekki ástæðu til að rugga þeim báti. Fréttafjöldi og skýrslumergð Geir Haligrímsson, utanríkis- ráðherra, sagði að sér hefði i dag verið bent á frétt, sem birzt hafi í Morgunblaðinu 3. nóvember sl., þess efnis, að hugsanlegt væri að kafbátur, er heyrði til land- gönguliði, hefði höggvið sundur kapal hér við land, er nýttur væri m.a. til að fylgjast með kafbáta- ferðum Rússa. Fréttafjöldi og skýrslumergð, sem að einhverju leyti snerti Island, væri mjög mikil, og erfitt að henda reiður á því öllu. Mikið af þessu er enda ekki marktækt, þó innan um kunni að leynast hlutir sem máli skipta, og því þurfum við að halda vöku okkar, einnig í þessu efni. Geir kvaðst geta að mörgu leyti tekið undir orð Guðrúnar Agnarsdóttur, hvað varðaði fjár- mögnun vígbúnaðar og þörf fyrir fjármagn í önnur æskilegri við- fangsefni. En ef við viljum lifa við frelsi þá verðum við að búa þannig um hnúta, að það verði ekki fótum troðið. Ef viðlíka varnarstyrkur og varnarsam- starf hefði verið til staðar á fjórða áratugnum, þegar einræði þess tíma vígbjóst sem mest, þá hefði hugsanlega verið hægt að koma í veg fyrir síðari heims- styrjöldina og það, sem henni fylgdi. Við þurfum að gera okkur grein fyrir þeim heimi sem við heyrum til. Vesturveldin buðu þá sátt að allar meðaldrægar eldflaugar væru niður teknar, svonefnda núlllausn, en Sovétríkin höfnuðu henni. Þau hafa sett niður eina eldflaug með þrem kjarna- sprengjum hverja í viku hverri síðan núlllausnin var boðin. Það er þessi staðreynd, kjarnaeld- flaugarnar austan járntjaldsins, sem vóru orsök þess að Helmut Schmidt, þýzki jafnaðarmanna- leiðtoginn, hafði frumkvæði um hliðstæð viðbrögð af hálfu V-Evrópuríkja. Við Islendingar, sem viljum ekki slíkar eldflaugar í okkar landi, skiljum afstöðu fólks, sem er sama sinnis, en af hálfu NATO-ríkja á meginlandi Evr- ópu er hér um nauðvörn að ræða. Utanríkisráðherra varaði mjög eindregið við þeim hættulega málflutningi, sem fram hefði kómið hjá Steingrími Sigfússyni (Abl.), að hér væri árásarher- stöð. Þetta er ekki aðeins röng fullyrðing, sagði ráðherra, held- ur hættuleg íslenzkum öryggis- hagsmunum. Hér er einvörðungu varnar- og eftirlitsstöð. Ráðherra sagði að flest það, sem Steingrímur Sigfússon hefði tínt til, sem rökstuðning fyrir meintu árásarhlutverki Kefla- víkurflugvallar, ætti þar að auki rætur að rekja til þeirra ára, er Alþýðubandalagið sat í ríkis- stjórn, vopnað neitunarvaldi. Framangreindir ræðumenn tóku, sumir hverjir, oftar til máls, þó hér verði ekki frekar rakið. HÁRGREIÐSLUSTOFAN Ýr hefur nýlega verið flutt í nýtt og vistlegt húsnæði í Hólagarði í Breiðholti úr Dúfnahólum 2. Fyrr í haust var hald- ió upp á fimm ára afmæli stofunnar. Þar verður veitt öll almenn hár- greiósluþjónusta af vönu fagfólki. Auk þess er sóllampi á stofunni til afnota fyrir viöskiptavini. Eigandi hárgreiðslustofunnar Ýr er Guðfinna Jóhannsdóttir hárgreiðslumeistari en auk henn- ar vinna á stofunni þrír aðrir hár- greiðslumeistarar og tveir hár- Mývatnssveit, 14. nóvember. KÁRI Sigurðsson frá Húsavík hélt myndlistarsýningu í Barnaskólanum í Reykjahlíð um síðustu helgi. Hófst hún á fostudag og lauk kl. 20 í gærkvöldi. Á sýningunni voru alls 25 myndir, flestar gerðar árið 1982 greiðslunemar. Meðfylgjandi mynd var tekin af starfsfólki hár- greiðslustofunnar Ýr skömmu eft- ir flutninginn. Frá vinstri eru: Að- alheiður Steinadóttir, hár- greiðslunemi, Inga Gunnarsdóttir, hárgreiðslumeistari, Kristín Guð- mundsdóttir, hárgreiðslunemi, Ásta Jóhannsdóttir, hárgreiðslu- meistari, Dagmar Agnarsdóttir, hárgreiðslumeistari, og Guðfinna Jóhannsdóttir, hárgreiðslu- meistari og eigandi stofunnar. og á yfirstandandi ári. Eru mynd- irnar víða af landinu og margar gullfallegar. Aðsókn að sýning- unni var mjög góð. Kári Sigurðs- son hefur áður haldið myndlistar- sýningar bæði á Húsavík og í Vopnafirði. Kristján Ferðaþjónustan gaf á síðasta ári út bækling á ensku og ís- lensku þar sem tilgreindir eru þeir bæir á landinu er veita ferðafólki gistiþjónustu, einnig eru nokkrar hestaleigur starf- ræktar. 1 bæklingnum er einnig skrá yfir öll viðurkennd tjald- stæði landsins, sem eru 57 að tölu. Merki samtakanna er bursta- bærinn og verða þeir bæir sem gistiþjónustu veita merktir við afleggjara frá þjóðvegi. Þá hafa á vegum samtakanna verið gerðir samræmdir samningar fyrir þá félagsmenn sem leigja vilja fólki úr þéttbýli lönd undir sumarbú- staði. Samningurinn gerir ráð fyrir verðgildi þriggja lamba á EgilssUðir, 14. nóvember. LAUST fyrir klukkan 22 á fostu- dagskvöld urðu tveir drengir 11 og 14 ára fyrir bifreið á svonefndum Vallavegi skammt frá Shellstöðinni á Egilsstöðum. Annar drengjanna lærbrotnaði og handleggsbrotnaði og var þegar fluttur á sjúkrahús í Neskaupstað, en hinn skarst á höfði og var gert að sárum hans á sjúkra- húsinu hér. Tildrög slyssins voru þau að langferðabifreið ók inn eftir Vallavegi og fast á eftir henni kom fólksbifreið. Ökumaður fólks- ári fyrir sumarbústaðarland. Einnig hefur verið komið á við- miðunarverði fyrir aðra þjónustu sem samtökin annast fyrir sína félaga. Ferðaþjónustan er með upplýs- ingamiðstöð í húsi Búnaðarfélags íslands að Hótel Sögu og veitir Oddný Björgvinsdóttir henni for- stöðu. í fréttatilkynningu frá Ferðaþjónustunni segir að stjórn Samtakanna vonist eftir að sjá sem flesta félagsmenn á aðal- fundinum á laugardag, einnig að allir þeir sem áhuga hafa á ferða- málum séu velkomnir, en fundur- inn er öllum opinn. Formaður samtakanna er Björn Sigurðsson bóndi í Úthlíð. bifreiðarinnar hugðist fara fram úr langferðabifreiðinni, en þá kom á móti hópur gangandi ungmenna og urðu tveir þeirra fyrir bifreið- inni með fyrrgreindum afleiðing- um. Að sögn lögregluvarðstjórans á Egilsstöðum, Björns Halidórs- sonar, er mikil umferð gangandi ungmenna á þessum slóðum er shyggja tekur, en vegarkafli þessi, sem er hluti af þjóðvegakerfinu, er óupplýstur og gangbrautir engar. Taldi Björn brýna þörf á sérstakri varúð vegfarenda á þessum veg- arkafla í skammdeginu. ólafur Mývatnssveit: Góð aðsókn að sýningu Kára Egilsstaðir: Tveir drengir slasast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.