Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 Þjálfari KR: „Agaleysi algert og baráttu vantaór „ÉG ER mjög óánægöur meö þennan leik hjá okkur. Þetta var ótrúlega lélegt,“ sagöi Nedeljko Vujinovic, þjálfari og leikmaöur KR eftir Evrópuleikinn. „Flestir leikmenn okkar eru óvanir Evrópuleikjum og voru því mjög hræddir. Þaö vantaöi alla baraáttu hjá okkur og agaleysiö var algert í leik okkar,“ sagöi hann. Hann benti á aö aðalmarkmiö KR í vetur væri aö falla ekki í 2. deild, ekki aö ná langt í Evrópu- keppninni! Liöiö heföi misst svo marga leikmenn frá því á síöasta keppnistímabili. Hvers vegna reynduð þiö ekki aö leika flata vörn? Nú var liö Lux- emborgaranna algerlega skyttu- laust. „Viö höföum skoðað leik þeirra viö hollensku bikarmeistaranna á myndbandi, og hollenska liöiö lék flata vörn í þeim leik. Þá leyföu dómararnir Berchem ekki að leika eins langar sóknir og nú, sem voru oft allt of langar, heldur uröu þeir að hnoðast í gegnum vörn and- stæöinganna og þaö tókst. Þessir dómarar leyföu þeim mjög langar sóknir þannig aö ef viö heföum bakkaö í vörninni heföu þeir haldiö boltanum mjög lengi og tafiö leik- inn. Viö ætluöum aö taka þá fram- arlega en þeir komust allt of oft inn á milli varnarmanna." Ertu bjartsýnn á seinni leikinn? „Urslitin í þeim leik eru algjör- lega undir okkur sjálfum komin. Ef viö leikum eins og nú eigum viö frekar litla möguleika á aö sigra þá, en ég trúi því ekki aö viö leik- um svo lélega tvo leiki í röö.“ SH. Enginn dómari ÞÓR, Akureyri, átti aö leika tvo leiki í 1. deildinni í körfubolta á Suöurlandinu um helgina, en aö- eins annar fór fram, leikurinn viö Fram á sunnudag sem getið er annars staöar í blaöinu. Liöið átti aö leika gegn Laugdælum á Sel- fossi á laugardag, en engir dóm- arar mættu í leikinn. Liö Þórs og Laugdæla voru aö vonum mjög óánægö meö þetta. Liöin mættu bæöi á réttum tíma, leikmenn hituöu upp, en þegar engir dómarar voru komnir í húsiö þegar leikurinn átti aö hefjast fór menn aö gruna margt. Það kom líka á daginn aö englr dómarar komu á staöinn. Þaö er vissulega mjög bagalegt, sérstaklega þegar liö hefur fariö langa leiö í leikinn, eins og tilfellið var með Þórsara aö þessu sinni. Aö sögn Gylfa Kristjánssonar, þjálfara liðsins, kostar feröin suður meö hótel- og bílakostnaöi um 30.000 krónur, þannig aö þaö er ekkert spaug aö lenda í vandræö- um sem þessum. Þórsarar hafa gert kröfu til KKÍ þess efnis aö sambandið greiöi ferö fyrir liöiö til Selfoss þegar leikurinn viö Laug- dæli fer fram — og Laugdælir hafa gert kröfu um aö greidd veröi húsaleiga í íþróttahúsinu þann tíma á laugardag er leikurinn átti aö fara fram, svo og feröir þeirra leikmanna liösins tíl Selfoss, sem búa í Reykjavík. Vissulega slæmt fyrir KKl — þó ekki sé hægt aö kenna sambandinu um þetta. Mis- tök sem þessi á aö vera hægt aö koma i veg fyrir — og kemur þetta vonandi ekki fyrir aftur. Guðmundur Albertsson reynir skot framhjá varnarmönnum Berchem. Guðmundur var einna skástur KR-inga í leiknum. Hörmulega slakur leikur KR-inga ÞAÐ MÁ mikiö vera ef leikur KR gegn HC-Berchem er ekki slak- asti Evrópuleikur í handknattleik sem fram hefur fariö hér á landi. Og ekki er tekiö of djúpt í árinni þegar sagt er aö á löngum köflum hafi leikur liðanna veriö tóm endaleysa og átt lítiö skylt viö al- mennilegan handknattleik. Liö Berchem var óvenju slakt enda munu leikmenn liðsins æfa aö- eins einu sinni til tvisvar í viku hverri, en þaö er öllu sorglegra aö liö KR lék lítiö betur og meö ólík- indum var hversu slakir leikmenn liösins voru. Einn áhorfenda lét þau orö falla aö þaö mætti varla á milli sjá hvort þetta væri eins og slakur 2. deildar leikur eöa þokkalegur 3. deildar leikur, og þeir voru ekki ófáir sem líktu leiknum viö firmakeppni í hand- knattleik. Já, sorgleg staöreynd en því miður sönn. KR sigraöi í leíknum með 17 mörkum gegn 12. Eftir aö hafa haft þriggja marka forystu í hálfleik, 8 mörk gegn 5. KR 17. Berchem ■* Vitleysa langtímum saman: I síöari hálfleiknum lék liö KR alveg hörmulega illa. Og á fyrstu 21 mínútu hálfleiksins þá skoraði KR-liöið aöeins 4 mörk. Og er þaö nú lítiö til aö hrópa húrra fyrir þeg- ar litið er á það hversu slakir leikmenn Berchem voru. Þegar 9 mínútur voru eftir af leiknum var staöan 12—10 fyrir KR. Leikmenn Berchem höföu því í síöari hálfleik fram aö þessum tíma skoraö fimm mörk gegn fjórum mörkum KR-inga. Langtímum saman í síöari hálf- leik var um algjöra leikleysu aö ræöa hjá báöum liðum. Leikmenn köstuöu boltanum eitthvaö út í bláinn, gripu mjög illa og virtust alls ekki vera meövitaöir um hvaö þeir voru yfir höfuö aö reyna að gera. Og vart mátti á milli sjá hvor aöilinn var slakari. Á lokamínútu síöari hálfleiksins rétti lið KR aöeins úr kútnum og tókst aö laga stööu sína örlítið og sigra meö fimm marka mun 17— 12. En engu skal spáö um þaö hér hvort þaö nægir liöinu til þess aö komast áfram í Evrópukeppni bik- arhafa. Ekki er hægt aö hrósa einum einasta KR-ingi fyrir leikinn, en Guðmundur Albertsson var einna skástur í mjög slöku liöi KR. Leikur KR var mjög einhæfur allan tím- ann. Leikmenn léku án áhuga og þaö virtist skipta þá litlu hvort þeir geröu hlutina af einhverju viti eöa ekki. Mörk KR: í leiknum skoruöu þessir: Guömundur Albertsson 5, Friörik Þorbjörnsson 4, Jakob Jónsson 4, Haukur Geirmundsson 3 og Jóhannes Stefánsson 1. Liö Berchem er án efa meö þeim slak- ari sem hingaö hafa komiö. Mikið var um hnoö hjá leikmönnum liös- ins inni á miöjunni og allur leikur mjög ráöleysislegur. Markvöröur liösins var sæmilegur. Markhæstir í liöi Berchem voru Sinner meö 4 mörk og Jaruski meö 3. — ÞR. Haukur Geirmundsson reynir gegnumbrot úr horninu. „Vinnum í Luxemborg með sex marka mun“ - sagði þjálfari Berchem — Þrátt fyrir tap okkar í ieikn- um þá tel ég að viö eigum góða möguleika á aö komast áfram í keppninni. Viö lékum afar illa í dag og getum gert miklu betur sagði þjálfari HC-Berchem. Við lékum án besta leikmanns okkar. Hann er meiddur á hné og okkur munar mikiö um hann. Ég tel ekki óraunhæft aö viö vinnum leikinn í Luxemborg meö sex marka mun. Þaö kom nefnilega mér og reyndar öllum leikmönnum Berchem mjög á óvart hversu slakt íslenska liöið var. Viö höföum reiknað meö því fyrirfram aö mæta sterku létt leikandi liöi en þess i staö mættum viö liöi sem er síst sterkara en lið okkar. Aö vísu sigr- uöu þeir en viö eigum eftir að taka þá í síöari leiknum á heimavelli okkar. — Leikur liöanna var alls ekki svo ójafn og þaö var aöeins tveggja marka munur á liöunum þegar 6 mínútur voru til leiksloka, 12—10 fyrir KR. En þá misstum viö alveg tök á leiknum, þeim heppnaöist allt og tókst aö ná 5 marka forskoti. Það forskot ætlum viö aö vinna upp t leiknum úti í Luxemborg. — ÞR. Jakob Jónsson var frekar at- kvæöalítill í leiknum gegn Berch- em. „Slakt hjá okkur.inná milli“ Fyrirliði KR-inga, Friörik Þor- björnsson, var ekki svo mjög óánægöur meö leik KR eftir leik- inn og hann sagöi: — A köflum var þetta slakt hjá okkur en inná milli komu góðir kaflar. Leikkerfi okkar gengu upp þegar þau voru spiluð. Liö Berch- em var þvæliö og þaö er erfitt að leika mikiö uppá það aö fiska aukaköst. Ég vil engu spá um úr- slit í útileiknum. En þaö er óneit- anlega ágætt veganesti aö hafa fimm marka forskot. Portúgal í úrslit LANDSLIÐ Portúgal í knatt- spyrnu sigraði Rússland í 2. riðli í Evrópukeppni landsliða um helg- ina 1—0. Sigur þessi kom liöi Portúgal í úrslitakeppnina í Frakklandi næsta sumar. Portú- gal sigraði í riðlinum, hlaut 10 stig, en Rússland 9. 60 þúsund áhorfendur sáu leikinn sem ein- kenndist af mikilli taugaspennu. Mark Portúgal skoraöi Jordao úr vítaspyrnu á 44. mínutu leiksins. Lokastaðan í 2. riöli varö þessi. Portúgal 6 5 0 1 11—6 10 Sovétriltin 6 4 11 11—2 9 Pólland 6 1 2 3 6—9 4 Finntand 6 0 1 5 3—14 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.