Morgunblaðið - 15.11.1983, Page 3

Morgunblaðið - 15.11.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 3 HVAÐ Á LÍF AÐ HEITA EFTIRLEIÐIS? Meiri hluti dómenda við Hæstarétt íslands hafa nú fellt þann úrskurð að Frjálsu framtaki hf sé óheimilt að nota íslenska orðið líf sem nafh á tímariti sínu þar sem erlent fyrirtæki eigi einkarétt á notkun nafnsins hérlendis. Að sjálfsögöu verður dómnum hlítt og þvi þarf að finna nýtt nafn á tímaritið. Frjálst framtak heitir nú á stuðning orðhagra íslendinga og óskar aðstoðar þeirra við að finna stutt en gott nafn á tímaritið. Vinnsla 6. tbl. þessa árgangs — jólablaðsins — er nú á lokastigi þannig að skjótra viðbragða er þörf. Finna þarf nafnið fyrir lok þessarar viku. Þeir sem leggja vilja lið og koma með tillögur um nafn eru vinsamlegast beðnir að hafa símasamband við Frjálst framtak fyrir klukkan fimm föstudaginn 18. nóvember. Verður öllum ábendingum tekið með þökkum. Meö fyrirfram þakklæti Frjálst framtak hf. Ármúla 18, sími 82300.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.