Morgunblaðið - 15.11.1983, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
SIEMENS
Vestur-þýzk í húð og hár!
Nýja
S/WAMAT
SIWAMAT 640
SIEMENS
þvottavélin
fyrirferöarlítil en fullkomin
og tekur 4,5 kg.
Aöeins 67 cm á hæö.
45 cm á breidd.
Sparnaöarkerfi.
Frjálst hitastigsval.
Vinduhraöar:
350/700/850 sn./mín.
SIEMENS EINKAUMBOÐ
SMITH & NORLAND H/F.,
Nóatúni 4,105 Reykjavík.
Sími 28300.
LADA
Vetrarskoðun
4983—198-
Nú er rétti tíminn fyrir
Ladaeigendur að koma
með bifreiðir sínar
í vetrarskoðun
1 Athuga ástand ökutækisins.
2 Athuga olíu á vél, stýrisvél og vökva á raf-
geymi, kælikerfi, rúðusprautum, bremsum og
kúplingu.
3 Mæla frostlög og bæta á ef þarf.
4 Mæla rafgeymi og hleðslu og hreinsa geyma-
sambönd.
5 Hreinsa síur í bensíndælu og blöndungi.
6 Athuga og skipta um ef þarf, þétti, platínur,
kveikjuhamar, kveikjulok, kertaþræöi, kerti,
loftsíu og viftureim.
7 Athuga ventlalokspakkningu og viöbragðs-
dælunál.
8 Strekkja tímakeðju.
9 Stilla kveikju og blöndung.
10 Athuga sviss, startara, mæla, kveikjara, þurrk-
ur og miöstöö.
11 Athuga öll Ijós.
12 Stilla Ijós.
13 Athuga huröir, þéttikanta og smyrja læsingar.
INNIFALIÐ ^ 1.690
Hver man ekki eftir síöasta vetri?
Bein lína á verkstæði 39760
LÁTIÐ FAGMENN YFIRFARA ÁSTAND
BIFREIÐARINNAR____________________________
Z Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf Z!
■I JIIi sJiLl Suöurlandsbraut 14 — Síml 38600 — 31236. ■ I
Séð yfir hluta stíflugarðsins. Morgunblaðift/ KEE.
Sultartangastífla tekin í
notkun síðasta sunnudag
Lokubúnaður stíflunnar.
Stíflan
efnismesta
mannvirki
á íslandi
Framkvæmdum Lands-
virkjunar við Sultartanga-
stíflu er nú að mestu lokið
samkvæmt áætlun og var
hún tekin í rekstur á sunnu-
dag að viðstaddri stjórn
Landsvirkjunar. Stíflan er
jarðstífla og byggð á ármót-
um Þjórsár og Tungnaár.
Hún liggur frá Sandafelli
austur yfír farveg Þjórsár
og þvert yflr Sultartanga,
síðan áfram yflr farveg
Tungnaár og á suöurbakka
hennar í átt að Haldi. Við
vesturenda stíflunnar við
farveg Þjórsár er steypt
lokuvirki með tveimur
geiralokum, en nálægt aust-
urenda stíflunnar er yfirfall
úr steinsteypu, sem mun
veita flóðvatni í farveg
Tungnaár, þar sem hann
mætir Þjórsá.
Ofan stíflunnar myndast
miðlunarlón, sem verður allt að
19 kmz og 70 Gl. Verður fyllt í
lónið smátt og smátt og er reikn-
að með að það verði komið í fulla
hæð um miðjan janúar nk. Lónið
mun draga mjög úr ísmyndun í
ánum ofan Búrfellsvirkjunar og
auka rekstraröryggi hennar til
muna.
Við tilkomu Sultartangastíflu
og miðlunarlónsins mun orku-
vinnslugeta Landsvirkjunar-
kerfisins aukast um allt að 130
GWst. á ári eða um 3,5% sem
svarar til um það bil árlegrar
aukningar í orkueftirspurn
almenningsrafveitna.
Stíflan er efnismesta mann-
virki á íslandi. Heildarlengd
stíflunnar er um 6 km og meðal-
hæðin um 10 metrar, en mest er
hæðin um 20 metrar í farvegi
Þjórsár. Gert er ráð fyrir að síð-
ar megi hækka stífluna, ef t.d.
verður virkjað frekar á þessum
stað. Alls þurfti að grafa um 560
þúsund rúmmetra í stíflu-
stæðinu og fyrir lokuvirki og
leggja um 2 milljónir rúmmetra
af jarðefnum í stífluna. Stein-
steypa í lokuvirki og yfirfalli er
rúmir 8 þúsund rúmmetrar.
Undirstaða stíflunnar, en hún
stendur að mestu leyti á hrauni,
var styrkt og þétt með steypu-
dælingu í bergið.
Að undangengnum útboðum
fyrri hluta ársins 1982 var und-
irritaður verksamningur við
Hagvirki hf. um byggingarvinnu
við stiflugerðina og annar samn-
ingur við Framleiðslusamvinnu-
félag iðnaðarmanna s.v.f. um
smíði og uppsetningu á lokum og
lokubúnaði. Undirverktaki við
smíði á lokum er finnska fyrir-
tækið Tampella.
Bygging stíflunnar hófst í apr-
íl 1982 og á því ári var lokið við
um 40% af verkinu. Unnið var
við að steypa lokuvirkið yfir
vetrartímann og tekið til við
jarðvinnu, þar sem frá var horf-
ið um haustið, strax og aðstæður
leyfðu í vor.
Lokurnar í lokuvirkið voru
smíðaðar í Finnlandi í vetur sem
leið og fluttar til landsins og
settar upp í sumar og haust.
Hinn 8. nóvember sl. var
verkinu lokið að því marki að
byrjað var að fylla í lónið sem
myndast á bak við stífluna.
Tímaáætlanir um framkvæmdir
hafa staðist, og munu verktakar
ljúka ýmsum frágangi fyrir árs-
lok.
Ráðunautar um hönnun og
byggingu Sultartangastíflu eru
Verkfræðistofa Sigurðar Thor-
oddsen hf. um byggingarmann-
virki og lokur og Rafteikning hf.
um rafbúnað í lokuvirki.
Eftirlit með framkvæmdum
við Sultartangastíflu hefur
Landsvirkjun annast með eigin
mannafla og aðstoð frá ráðu-
nautum.
Vinnubúðir vegna fram-
kvæmdanna lagði Landsvirkjun
til að mestu leyti. Flestir voru
skráðir starfsmenn hjá verktök-
um og byggingareftiríiti um 400.
Byggingarkostnaður eins og
hann er bókfærður á hverjum
tíma mun nema samtals 480
milljónum króna og eru vextir
þá ekki taldir með. A núgildandi
verðlagi miðað við breytingar á
vfsitölu byggingarkostnaðar
svarar það til um 595 milljóna
króna.