Morgunblaðið - 15.11.1983, Síða 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
„Ósanngjarnt
ef annað liðið
hefði tapað“
- sagði Keith Burkinshaw eftir
frábæran leik Spurs og Liverpool
Fré Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaösins í Englandi.
MEISTARAR Liverpool vörðust vel síðustu tuttugu mínúturnar gegn
Tottenham á White Hart Lane í London á laugardaginn. Eftir aö hafa
tvívegis tekið forystuna í leiknum stóðst Liverpool mikla pressu Tott-
enham í lokin og endaði leikurinn meö jafntefli. Liverpool er því enn á
toppnum þar sem Manchester United gerði jafntefli í Leicester, og
datt liðið niöur í þriðja sœti. West Ham skaust upp í annað sætið í
staðinn meö sigri í Wolverhampton.
„Til aö sigra i deildinni veröa liö
aö sigra Liverpool á heimavelli. En
þeir eru í mjög góöu formi um
þessar mundir. Fyrir tveimur árum
á sama tíma heföu þeir burstaö
okkur meö leik sem þessum,“
sagöi Keith Burkinshaw, stjóri
Spurs eftir leikinn. „Þaö heföi veriö
ósanngjarnt ef annaö liöiö heföi
tapaö. Bæöi léku þau opinn sókn-
arleik allan tímann og geröu allt til
aö ná sigri," sagöi Burkinshaw.
Liverpool hefur nú leikiö viö Lund-
únaliðin í höfuöborginni og er
þetta eina stigiö sem liðiö hefur
tapaö þar í vetur.
Stórgóður leikur
Leikur liöanna var stórkostleg-
ur, en enginn lék þó betur en
Glenn Hoddle. „Loksins sáum viö
hinn sanna Hoddle gegn Liver-
pool,“ sagöi Joe Fagan, stjóri Liv-
erpool, eftir leikinn. „Hann hefur
harðnaö og hann hefur þroskast.
Hann er á toppnum." Mike Robin-
son kom Liverpool á bragðið meö
marki á fimmtu mín. og lan Rush
fékk dauöafæri einni mín. síöar en
brenndi af. Steve Archibald jafnaöi
fyrir Spurs eftir frábæra sendingu
Hoddle gegnum vörnina, og áöur
en Liverpool náöi forystu á ný
varöi Bruce Grobbelaar tvívegis
glæsilega og einu sinni bjargaöi
varnarmaöur Liverpool á línu. Á
68. mín. átti Kenny Dalglish
þrumuskot aö marki Spurs — Ray
Clemence varöi en hélt ekki bolt-
anum, og þaö hefur sýnt sig oftar
en einu sinni aö slíkt er stórhættu-
legt þegar lan Rush er nálægur.
Hann skaust aö boltanum og skor-
aöi örugglega. Aöeins tveimur mín.
síöar togaöi Alan Kennedy Gra-
ham Roberts niöur inni í teignum
og dæmd var vítaspyrna. Glenn
Hoddle skoraöi af öryggi úr henni:
sendi Grobbelaar í öfugt horn. Eft-
ir markið sótti Spurs meira, og Liv-
erpool mátti þakka fyrir annaö
stigið. Bobby Robson, landsliös-
einvaldur Englands, var á leiknum,
og var hann ánægöur meö stór-
góöan leik Glenn Hoddle, en á
morgun á England aö leika í Lux-
emborg. Áhorfendur voru 45.032.
Devonshire hinn
dásamlegi
Annar enskur landsliösmaöur
var í sviösljósinu á laugardag: Alan
Devonshire hjá West Ham. Hann
átti frábæran leik er liöiö sigraöi
Wolves 3:0 á Molyneux. Devon-
shire byggöi upp mörkin þrjú og
John Lyall, stjóri Hammers, sagöi
eftir leikinn aö hann heföi leikiö
„dásamlega. Hann er stórgóður
leikmaöur." Hawkins, stjóri Wolv-
es, sagöi: „Devonshire var stór-
kostlegur.“
West Ham-liðiö lék mjög vel í
Wolves og sigurinn var öruggur.
Trevor Brooking skoraöi fyrsta
markiö á fimmtu mín. Devonshire
sendi fyrir og David Swindleshurst
skallaöi til Brooking. Eftir undir-
búning Devonshire gaf Frank
Lampard svo fyrir mark Wolves er
Swindlehurst skoraði annaö mark-
iö á 58. mín. — hans fjóröa mark á
átta dögum. Paul Bradshaw hélt
Wolves á floti meö frábærri mark-
vörslu, hann varöi m.a. vítaspyrnu
frá Ray Stewart á 79. mín., en
hann réö ekki viö skot Tony Cottee
á síöustu mín. Áhorfendur: 12.062.
United yfirspilað í
fyrri hálfleik
Leicester hefur nú fengiö sex
stig úr síðustu fjórum leikjum. Liö-
iö yfirspilaöi Manchester United í
fyrri hálfleiknum, en heppnin er
ekki oft meö neöstu liöunum.
Dauöafæri fóru forgöröum og til
að kóróna allt saman skoraöi Bry-
an Robson eina mark hálfleiksins
fyrir Manchester United eftir
sendingu Arthur Graham á síöustu
mínútunni. Steve Lynex jafnaöi svo
fyrir Leicester á 53. mín. eftir
hroöalegan misskilning milli Kevin
Moran og Gary Bailey. Leicester
missti Peter Eastoe útaf meiddan
á 71. mín. og eftir þaö réö United
lögum og lofum á vellinum en
Mark Wallington í marki Leicester
sá um aö mörkin yröu ekki fleiri.
Áhorfendur voru 23.012.
Mark Chamberlain iék laglega á
tvo varnarmenn Aston Villa og
skoraöi mark Stoke einni mín. fyrir
• Bruce Grobbelaar, markvörður Liverpool, er fyrri til að ná til boltans og kýla hann frá áður en Totten-
ham-leikmaöurínn Mark Falco nær að skalla. 40 þúsund áhorfendur voru á White Hart Lane, leikvelli
Tottenham, er liðin léku þar á laugardag. MorgunbiaMö/símamynd ap
leikhlé. Peter Withe jafnaöi á 52.
mín. Villa missti Colin Gibson
meiddan útaf, en þrátt fyrir þaö
sótti liöiö án afláts. Vörn Stoke var
föst fyrir og stóöst öll áhlaup.
Áhorfendur: 19.272.
Gott gengi Southampton
þrátt ffyrír mikil meiðsli
Þrátt fyrir aö mikiö sé um
meiðsli hjá Southampton er liöiö í
fjóröa sæti í deildinni — sigraði
WBA á The Dell á laugardag.
Steve Moran skoraöi eina markiö
á 19. mín. úr víti. Vítiö var dæmt er
Romeo Zondervan braut á Moran í
teignum. Áhorfendur voru 16.450.
Robert Hopkins skoraði fyrir
Birmingham snemma í leiknum
Corrigan fékk góðar móttökur
- en þurfti að hirða knöttinn fjórum sinnum úr netinu
Frá Bob Henneasy, tráttamanni MorgunblaOains í Englandi
SHEFFIELD Wednesday gerði
1:1 jafntefli viö Fulham á föstu-
dagskvöldiö og er enn í efsta
sæti 2. deildar. Man. City gjör-
sigraði Brighton 4:0 á laugar-
dag, og Newcastle steinlá á
Stamford Bridge í London gegn
Chelsea með sömu markatölu.
24.562 áhorfendur voru á
Maine Road í Manchester er
Brighton kom í heimsókn. Joe
Corrigan, sem lék um árabil meö
City viö frábæran oröstír, stend-
ur nú í marki Brighton og tóku
áhorfendur vel á móti honum.
„Eftir þessar frábæru móttökur
vildi ég standa mig vel, en ég átti
ekki möguleika á aö koma í veg
fyrir neitt þessara marka," sagöi
Corrigan eftir leikinn. Baker 2,
Tolmie og Parlane skoruöu fyrir
City.
Spackman, Rhodes-Brown og
Speedie 2 skoruöu fyrir Chelsea.
Lítiö fór fyrir Kevin Keegan í
leiknum, en ungur skoti i
Chelsea-liöinu, Pat Neven að
nafni, stal algerlega senunni.
Hann var keyptur í sumar frá
Clyde fyrir 90.000 pund og
Newcastle-vörninni var líkt viö
taugahrúgu í leiknum vegna stór-
leiks hans. „Viö lékum sérstak-
lega vel í dag. Pat sýndi vel hvers
hann er megnugur meö knöttinn
þegar hann fær tækifæri til
þess,“ sagöi John Neai, stjóri
Chelsea. Áhorfendur á Stamford
Bridge voru 30.628.
gegn Luton en Brian Stein jafnaöi
á 16. mín. Stein fékk gulliö tæki-
færi til aö tryggja Luton sigur á 53.
mín. en skoti hans var bjargað á
línu. Luton hefur ekki enn tapaö á
heimavelli á tímabilinu. Áhorfendur
voru 11.111. Skemmtileg talal!
Slæm mistök O’Leary
Eric Gates tryggöi Ipswich sigur
á Arsenal. Hann skoraöi eina mark
leiksins á 53. mín. eftir aö hafa
komist inn í hræöilega sendingu
David O’Leary, fyrirliöa Arsenal,
aftur til Jennings í markinu.
George Burley braut á Charlie
Nicholas í teignum í fyrri hálfleik,
en dómarinn dæmdi ekki víti, öll-
um á óvart. Áhorfendur voru
21.652.
Rafvirkinn í stuði!!!
Coventry, sem komiö hefur
mest allra liöa á óvart í vetur, sigr-
aöi QPR, og er nú í sjötta sæti.
Dave Bamber skoraöi eina mark
leiksins á elleftu mín. og Rangers
mátti þakka Peter Hucker í mark-
inu fyrir aö tapa ekki mun stærra.
Stuart Pearce lék frábærlega í liöi
Coventry, en þetta var hans fyrsti
leikur. Hann er vinstri bakvörður,
en aöeins eru þrjár vikur síöan
hann hætti sem rafvirki hjá borg-
inni!! Áhorfendur: 11.755.
Sunderland hefur ekki tapaö
nema einum af síöustu níu leikjum,
og á laugardag burstaöi liöiö Wat-
ford. „Mína menn skortir sjálfs-
traust," sagöi Graham Taylor,
stjóri Watford, eftir leikinn. Liöinu
gengur vel í Evrópukeppninni, en í
deildinni gengur því allt í óhag um
þessar mundir. Gamla kempan
Leighton James var stjarna Sund-
erland í leiknum og lagöi hann upp
öll mörkin þrjú. Colin West skoraöi
þaö fyrsta meö skalla á 26. mín.,
Mark Proctor geröi annaö markiö
— hans fyrsta deildarmark fyrir
liðið — á 47. mín., og Gordon
Chisholm geröi þriöja markið á 72.
mín. Sunderland átti tvö skot í
stangir Watford-marksins, en þess
má geta aö á síðasta keppnistíma-
bili sigraöi Watford Sunderland
8:0. Áhorfendur: 15.407.
Sigur en vonbrigöi!
Andy Gray lék sinn fyrsta leik
meö Everton og lagöi upp eina
mark leiksins sem Adrian Heath
skoraöi á elleftu mínútu. Gray
hafði aöeins æft meö sínum nýju
félögum í eina klukkustund fyrir
leikinn. Hann kom bara á föstu-
dagsæfinguna. Þrátt fyrir sigurinn
sagöist hann hafa oröiö fyrir viss-
um vonbrigöum: „Þetta er í fyrsta
skipti sem ég skora ekki í mínum
fyrsta leik hjá nýju félagi. En ég hef
trú á því að þetta eigi eftir aö
blessast og vona bara aö áhang-
endur liðsins muni taka mér vel.“
Áhorfendur voru 17.546.
Norwich heppið
Mark Barham skoraöi fyrir
Norwich á 18. mín. gegn Notts
County. County var meö ólíkindum
óheppiö í leiknum. Dómarinn
sleppti augljósri vítaspyrnu á
Norwich og þrívegis átti Justin
Fashanu skot í stöng. Hann skor-
aöi eina mark County aöeins
þremur mín. eftir aö Barham skor-
aöi. Áhorfendur: 7.882.