Morgunblaðið - 15.11.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
33
Hin nýkjöma stjórn Stúdentafélags Reykjavíkur ásamt fráfarandi formanni félagsins og fundarstjóra á aóalfundi. Á
myndinni eru frá vinstri: Thomas Möller, Stefán Pálsson, Stefán Friðfinnsson, Jónas Ingi Ketilsson, Ólafur Oddsson,
Tryggvi Agnarsson, Ólafur Egilsson, Jónas Elíasson, Kristinn Ragnarsson og Gestur Steinþórsson. Ljósm. Mbl. Kðe
Aðalfundur Stúdentafélags Reykjavíkur:
Tryggvi Agnarsson lögfræðing-
ur kjörinn formaður félagsins
Aðalfundur Stúdentafélags
Reykjavíkur var haldinn 14. okt.
1983, í húsakynnum Bandalags há-
skólamanna að Lágmúla 7, Reykja-
vík. Fundarstjóri var kjörinn Ólafur
Egilsson sendiherra og fundarritari
Gestur Steinþórsson skattstjóri.
Fráfarandi formaður Ólafur
Oddsson cand. mag. setti fundinn.
Hann minntist Jóns E. Ragnars-
sonar hrl. fyrrverandi formanns
félagsins. ólafur rakti sögu fé-
lagsins í stuttu máli og gat ýmissa
verka þess, en það var stofnað árið
1871. Síðan flutti hann skýrslu
stjórnar sinnar um störf liðins
starfsárs. Á hinum hefðbundna og
sívinsæla fullveldisfagnaði Stúd-
entafélagsins í des. sl. flutti dr.
Gylfi Þ. Gíslason prófessor hátíð-
arræðu og Guðni Guðmundsson
rektor var veislustjóri. Stúdenta-
félagið gekkst og fyrir stofnun
Háskólasjóðs. Sjóðurinn er sjálfs-
eignarstofnun og hefur það hlut-
verk að styrkja ýmis verkefni Há-
skóla fslands svo og stúdenta við
Háskólann, samkvæmt ákvörðun
sjóðsstjórnar. f stjórn sjóðsins
sitja 2 tilnefndir af Stúdentafélag-
inu og 2 tilnefndir af Háskólaráði.
Þessir 4 skipa sameiginlega
fimmta stjórnarmanninn. Til að
afla fjár fyrir sjóðinn gekkst
Stúdentafélagið á sl. sumri fyrir
skemmtun í Háskólabiói þar sem
fram kom margt ágætra lista-
manna, þar á meðal grínistinn
heimskunni Viktor Borge. Háskól-
asjóður Stúdentafélags Reykja-
víkur hefur nú ákveðið að hefja
sölu minningarkorta. Háskólinn
hefur tekið að sér sölu þeirra. Að
lokinni skýrslu formanns skýrði
féhirðir Stúdentafélagsins, Jónas
Elíasson prófessor, reikninga fé-
lagsins.
Eftirtaldir voru kjörnir í stjórn:
Formaður Tryggvi Agnarsson
lögfræðingur. Áðalstjórn: Friðrik
Pálsson framkvæmdastjóri, Gest-
ur Steinþórsson skattstjóri, Jónas
Elíasson prófessor, Stefán Frið-
finnsson viðskiptafræðingur.
Varastjórn: Bjarni Gunnarsson
menntaskólakennari, Kristinn
Ragnarsson arkitekt, Stefán
Pálsson hæstaréttarlögmaður,
Jónas Ingi Ketilsson hagfræðing-
ur og Thomas Möller hagverk-
fræðingur. Endurskoðendur: Sig-
urður Baldursson hrl. og Haraidur
Árnason. Til vara Einar Árnason
lögfræðingur og Kristinn Bald-
ursson.
Fullveldisfagnaður Stúdentafé-
lagsins verður haldinn í Lækj-
arhvammi, Hótel Sögu, 2. desem-
ber nk. Ræðumaður verður Stefán
Benediktsson alþingismaður og
veislustjóri Þór Vilhjálmsson
hæstaréttardómari.
Út gekk
annar maður ...
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Mannrán í El Salvador, sönn frá-
sögn manns, sem var gísl hryðju-
verkamanna í El Salvador: Fausto
Bucheli & J. Robin Maxson. Jónas
Gíslason þýddi. Útg. Bókaútgáfan
Salt 1983.
Mannrán hafa orðið æ tíðari
glæpaverk á síðustu árum í ýms-
um löndum heims. Þau eru í öllum
tilvikum framin af samtökum eða
hópum, sem telja að það gæti orð-
ið málstað viðkomandi samtaka til
framdráttar, venjulega í áróðurs-
stríði við stjórnvöld, en langoftast
eru þessir glæpir framkvæmdir til
að fá hátt lausnargjald fyrir hinn
rænda. Þær píslir og niðurlæging
sem sá handtekni má síðan sæta
af hálfu mannræningjanna er
óhugnaður meiri en svo að hægt sé
að gera sér þá raun í hugarlund.
Aukin heldur er fórnarlömbum
haldið í óttagreipum og ógnar að
minnsta kosti á meðan verið er að
semja um iausnargjaldið. Oft hef-
ur það svo gerzt, að þrátt fyrir að
gengið hafi verið að kröfum
mannræningjanna sem oftar en
ekki — eru bæði háar peningaupp-
hæðir og venjulega fylgir fleira
með, til dæmis að sleppt verði úr
haldi ákveðnum pólitískum föng-
um ellegar glæpamönnum hefur
fórnarlambið verið myrt.
í bókinni Mannrán í E1 Salvador
segir frá verkfræðingnum Fausto
Bucheli sem var sendur á vegum
bandarísks fyrirtækis til San
Salvador nokkrum sinnum til að
kanna framleiðsluörðugleika hjá
dótturfyrirtæki þess bandaríska
og reyna að endurskipuleggja
rekstur þess. Bucheli fer nokkrar
ferðir til landsins í þessu augna-
miði. Hann virðist einbeita sér að
því verkefni, sem honum hefur
verið falið, og hvergi kemur fram
að hann sé á einn né neinn hátt
flæktur í stjórnmál. Spennan 1
landinu fer vaxandi og kona Buch-
elis verður kvíðafyllri með hverri
ferð sem hann fer. Daginn áður en"
hann á að snúa heim er honum og
forstjóra nefnds dótturfyrirtækis
rænt af hópi skæruliða. Þeir eru
síðan í haldi í 47 daga og í bókinni
lýsir Bucheli veru sinni hjá
skæruliðunum, þeirri niðurlæg-
ingu sem hann sætir og er um
tíma útlit fyrir að fangavistin
muni ríða honum að fullu. Einnig
er svo brugðið upp frásögnum af
fjölskyldu hans, framvindu samn-
ingamálanna og loks er það fyrir-
ferðarmikill þáttur í bókinni þeg-
ar Bucheli finnur að lausn hans og
lífsvon liggur í því að lesa Nýja
Testamentið og hugleiða það.
Þangað sækir hann styrk og von-
arglætu þessa vondu og löngu
daga og þegar hann er loks frjáls
maður er hann annar en sá sem
hann var þegar mannræningjarn-
ir klófestu hann.
Þetta er býsna áhrifamikil bók,
mestur fróðleikur er þó í lýsingum
Buchelis sjálfs, en einnig er at-
hyglisvert að lesa um viðbrögð
umhverfisins, þ.e. bæði fjölskyldu
og samstarfsmanna. Bókin er þörf
lesning á þessum síðustu og verstu
tímum. Þýðing Jónasar Gíslason-
ar er ekki nógu þjál og undarlega
misjafnlega vel/þokkalega unnin.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
7>úsnædi~:
íboöi .1
Til leigu miðsvæðis:
1. Stór 4ra herb. íbúð. Heimilis-
gróöurhús.
2. Bílskúr m. hita og rafm. Uppl.
í sima 28156.
VEROBRÉFAMARKAOUR
HUSl VEHSLUNAHINNAR SÍMI 8 33 20
KAUP OG SALA VÍÐSKULDABHEFA
Pípulagnir — Viðgerðir
Önnumst allar smærrl viðgeröir
á bööum, eldhúsum, þvottahús-
um. Vanir fagmenn. Sími 31760.
Hilmar Foss
Lögg. skjalaþýö. og dómtúlkur,
Halnarstræti 11, sími 14824.
Víxlar og skuldabréf
i umboössölu.
Fyrirgreiöslustofan, Vesturgötu
17, sími 16233. Þorleifur Guö-
mundsson, heima 12469.
Heildsöluútsalan
selur ódýrar sængurgjafir o.fl.
Freyjugötu 9. Opiö frá kl.
13—18.
Ljóömæli Herdísar og
Ólínu og Litla skinnið
til sölu á Hagamel 42. Sími
15688.
-yvv-
*WT’
tilkynningar'
Ármenningar skíðafólk
Haustfagnaöur veröur haldlnn
laugardaginn 19. nóvember aö
Brautarholti 6 kl. 10.
Fjölmennlö.
Skiöadeild Ármanns.
handmenntaskólinn
91 - 2 76 44
FÁW KYWmWGARRIT SKíVAWS SENT HEIM |
HMÍ ct bréfaskóli nefmndur okkar um
alit iand.læn teiknimtu.útrailLskríri n£
fl.i sjnum tnm-ilftl :ó4rrl banwlámskri^
Q EDOA 598311157—1 Frl.
IOOF Rb. 4 = 1331115 E.T.
2.8% — 9 III.
IOOF OB-IP = 16511158 % =
I.E.T;I.T.
I.O.O.F. 8 = 16511168% =
□ Hamar 598311157 = 2 í R.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almennur bibliulestur i kvöld kl.
20.30. Ræöumaöur Einar J.
Gíslason.
Ad KFUK
Amtmanns stíg 2B
Fundur i kvöld kl. 20.30. Séra
Ólafur Jóhannsson hefur bibliu-
lestur um bænina. Kaffi eftir
fundinn. Allar konur velkomnar.
I.O.G.T.
Þingstúka Reykjavíkur. Fundur í
kvöld kl. 8.30. Páll Eiríksson
læknir ræöir um heilbrigöi og
vímuefni.
Þt.
Þriöjudag kl. 20.30. Fagnaöar-
samkoma fyrir majórana Sól-
veigu og Svend Björdal, æsku-
lyösleiötoga Hjálpræöishersins.
Ingibjörg og Óskar Jónsson
stjórna. Fjölmenniö á her.
jsá?
lomhjólp
Biblíuleshringur í kvöld kl. 20.30.
Samhjálp.
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna |
Starf bæjarritara Garðabæjar er laust til um-
sóknar. Umsóknum með upplýsingum um
menntun og starfsreynslu skal skilaö á skrif-
stofu bæjarsjóðs, Sveinatungu við Vífils-
staöaveg fyrir 25. nóvember nk.
Bæjarstjóri
Prentari
Hæðarprentari óskast.
Upplýsingar i síma 29540 kl. 8—17.
Húsaeinangrun
óskar eftir að ráða mann í fullt starf í 2—4
mánuöi.Um er að ræða vinnu bæði í Reykja-
vík og úti á landi.
Viðkomandi þarf að uppfylla eftirfarandi:
1. vinna sjálfstætt,
2. taka sjálfstæðar ákvarðanir,
3. vera vel inni í uppbyggingu húsa,
4. vera reglusamur,
5. vera stundvís,
6. vera úrræðagóöur.
Húsaeinangrun sf.
sími 15934, ki. 9— 16.
Auglýsinga-
síminn er224 80