Morgunblaðið - 15.11.1983, Qupperneq 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
NGER ER ALLTAF
SPORIFRAMAR
. | - _ TT
Singer skapar meiri saumagleði
Singer 7184
Einfold saumavél; Blindsaumur,
fjölspora Zig-Zag og teygjanlegur
saumur, sjálfvirkur hnappagata-
saumur og fríarmur.
Staðgreiðsluverð Kr. 8.730,-
Singer 7110
Alhliða saumavél; Styrktur teygju-
saumur, blindsaumur fyrir falda,
Qölspora Zig-Zag, sjálfvirkur
hnappagatasaumur, nokkur
munstur fyrir útsaum og fríarmur.
Staðgreiðsluverð Kr. 9.962,-
Singer 2010
Fullkomin saumavél; Rafeindastýring,
með minni fyrir 29 munstur, þræðari,
stillanlegur blindsaumsfótur auk
alls sem prýðir hinar þrjár.
Staðgreiðsluverð Kr. 23.243,-
Singer 7146
Fjölhæf saumvél; Rafeindastýring,
auk alls sem prýðir Singer 7184
og 7110.
Staðgreiðsluverð Kr. 11.510,-
Rafeindastýring þýðir í raun
aðeins eitt: Áreiðanleika.
Góðir greiðsluskilmálar
nm{oún
(ÍHlUÚú
SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 38900-38902
Björgvin Björgvinsson
sýnir í Ásmundarsal
BJÖRGVIN Björgvinsson, opnaði í
gær sýningu í Ásmundarsal í
Reykjavík. Á sýningunni eru 20
myndir og eru þær allar til sölu.
„Þetta er mín fyrsta einkasýn-
ing,“ sagði Björgvin, er blaðamað-
ur ræddi við hann í gær. „Áður hef
ég tekið þátt í samsýningum í
þeim skólum, sem ég hef lært
myndlist í. Ég var í Myndlista- og
handíðaskólanum frá 1975—1979.
Síðustu tvö árin var ég í kennara-
deild, þannig að ég útskrifaðist
þaðan sem myndlistarkennari.
Árið 1980 fór ég til London og
stundaði nám í Byam Shaw School
of Art. Ég var þar í frjálsri deild
og gat byggt námið upp að miklu
leyti sjálfur. Kennararnir þar
kenndu ekki í orðsins fyllstu
merkingu, en þeir skoðuðu hjá
manni verkin og gagnrýndu þau.
Ég var eitt ár í Englandi og hélt
þá til Júgóslavíu og innritaðist í
Listaháskólann í Belgrad. Námið
þar var mjög frjálslegt og mér
fannst gaman að stunda nám þar.
Það eru líka margar nýjungar í
myndlist, sem koma upp í Belgrad,
en margir halda að þarna fyrir
austan sé allt svo einangrað að
ekki sé möguleiki að koma þar að
nýjungum á neinu sviði. Stað-
reyndin er hins vegar sú, að
Belgrad er orðin svo alþjóðleg
borg að hún er svolítið sér á báti,
hvað þetta varðar.
Á þessari sýningu er ég með
collage-myndir, eða klippimyndir.
Síðan eru 14 myndir, þar sem ég
nota blandaða tækni, akrílliti,
pappír og svo eru collage-myndir
þar sem akríllitir eru notaðir með.
Það má kannski geta þess,
svona í leiðinni, að meðan ég var
við nám erlendis, vann ég töluvert
við skúlptúra. Á þessari sýningu
gætir þessara skúlptúráhrifa að
nokkru leyti. Sýningin flokkast
eiginlega undir popplist en er með
abstrakt ívafi. Að öðru leyti get ég
nú ekki skilgreint hana. Ég segi
bara þess í stað að sjón sé sögu
ríkari," sagði Björgvin að lokum.
Sýningin verður opin til 20. nóv-
ember, á virkum dögum kl. 16—22
og um helgar kl. 14—22.
Bókaútgáfan Iðunn:
Sex nýjar teiknimyndasögur
HJÁ bókaútgáfunni Iðunni eru
komnar út sex nýjar teiknimynda-
sögur. Þrjár þeirra eru um Sval og
félaga hans og nefnast þær Með
kveðju frá Z, Svamlað í söltum sjó
og Sjávarborgin. Þá eru komnar
út tvær bækur um Viggó viðutan
og eru nú alls komnar út níu bæk-
ur um hann. Nefnast þær Með
kjafti og klóm og Mallað og brall-
að. Sjötta bókin er um þá félaga
Samma og Kobba og heitir hún
Aldraðir æringjar. í bókinni eru
tvær sögur, í annarri gerast þeir
félagar gæslumenn á fjörugu elli-
heimili, en seinni sagan nefnist
Vélmenni í vígahug.
Bjarni Fr. Karlsson hefur þýtt
allar teiknimyndasögurnar og eru
bækurnar gefnar út í samvinnu
við a/s Interpresse.
Úr fréttatilkynningu.
BlLBELTI AFTURf BJARGAR!
Samkvæmt skýrslum Umferðarráös slösuðust 166 farþegar í bílum fyrstu 9 mánuöi 1983, þar af sátu 79 í aftursæti — án bílbelta. Ljóst er
að margir hefðu sloppið við meiðsli, ef þeir hefðu notað bílbelti. Til þess að örva notkun bílbelta í aftursæti og þar með fækka slysum á
farþegum, býöur ÁBYRGÐ HF., fyrst tryggingarfélaga, ennþá betri tryggingarvemd þegar aftursætisfarþegar nota bílbelti.
Framyfir aðrar tryggingar greiðum við 50.000 krónur við dauðsfall og allt
að 150.000 krónur við örorku ef farþegar í aftursæti í einkabílum, tryggð-
um hjá ÁBYRGÐ HF., slasast alvarlega þrátt fyrir notkun bílbelta.
Þessi aukatrygging gildir einnig um ökumenn og farþega í framsæti í
einkabílum með ökumanns- og farþegaslysatryggingu hjá ÁBYRGÐ HF.,
slasist þeir alvarlega þrátt fyrir notkim bílbelta.
Tryggingafélag bindindismanna