Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
41
Kaupmannahöfn:
Fréttabréf úr Jónshúsi
Jónshúsi, 3. nóvember.
ER HAUSTA tekur fær lífið í Jónshúsi á sig nokkuð annan blæ. Heim-
sóknum ferðamanna fækkar, félagsheimilið opnar seinna, það koma
færri í minjasafn Jóns Sigurðssonar, en unga fólkinu fjölgar, námsmenn
streyma að og láta skrá sig í félag sitt og Rússagilli er haldið. Þá hefjast
einnig nokkrir fastir liðir í starfi íslendingafélagsins, bókasafnið er
aftur opið á sunnudögum, konukvöldin byrja í október, einnig félagsvist,
hraðskákmót og þrjú-bíó fyrir börn á sunnudögum. Enn standa þó
rósirnar í Austurgarði og Konungsgarði og trén skarta haustlitum.
Oft er margt um manninn í fé-
lagsheimilinu, einkum þá er is-
lenzkur matur er í boði hjá gest-
gjafa. Si. laugardagskvöld borð-
uðu þar um 70 manns nýtt slátur
með rófustöppu og næst verða þar
svið og er slík tilbreyting að von-
um vinsæl. Þá er jurtamatur fram
borinn á miðvikudagskvöldum.
Félagsheimilið opnar nú kl. 17
nema á laugar- og sunnudögum
kl.14 eins og var í sumar. Þar er
nú málverkasýning Hjálmars
Þorsteinssonar eins og frá hefur
verið sagt í Mbl. Aðalfundir
beggja félaganna, Námsmanna-
og íslendingafélagsins, voru
haldnir í október og 5. tbl. Þór-
hildar í þessum fyrsta árgangi
kom út.
Fyrsta félagsvist haustsins var
fásótt og munaði þar mest um
skipverja af Mælifellinu. En konu-
kvöldið svokallaða, sem er annan
þriðjudag í hverjum mánuði, var
fjölmennt og mikið spjallað, sung-
in íslenzk lög, undirrituð talaði
um mun þess að vera prestskona í
sveit og stórborg, og Sæunn Andr-
ésdóttir kynnti starf málfreyja á
íslandi, en sá félagsskapur mun
ekki til hér í Danmörku, enda
kominn vestan frá Bandaríkjun-
um heim til íslands. Á næsta
konukvöldi mun Kjartan ólafsson
ritstjóri, sem dvelur í fræði-
mannsíbúðinni, segja frá.
Sl. sunnudag var fjölmenn guðs-
þjónusta í St. Paulskirkjunni, en
þar er messað á fslenzku síðasta
sunnudag í hverjum mánuði auk
stórhátíðardaga. Lék Guðrún
Kristjánsdóttir organisti á Stað í
Hrútafirði nú á orgelið og er mik-
ill fengur að aðstoð hennar, einnig
við æfingar kirkjukórsins, sem nú
telur orðið 10 félaga og eru fleiri
nýir væntanlegir. Þá var nýr með-
hjálpari við guðsþjónustuna Hall-
dór Leifsson, sem nemur uppeldis-
fræði hér í borg. Á eftir var sam-
koma fyrir aldraða fólkið í félags-
heimili Jónshúss og voru þar
rúmlega 60 manns, sem tóku lagið
við undirleik Guðmundar Eiríks-
sonar og hlýddu á upplestur
Sverris Hólmarssonar og á frá-
sögn af Guðrúnu Lárusdóttur al-
þingismanni og rithöfundi. For-
söngvari var Steinn Stefánsson
frá Seyðisfirði, en síra Finnur
Tulinius, sem meðfylgjandi mynd
er af, var aldursforseti og heið-
ursgestur samkomunnar, 95 ára,
og ávarpaði hann gesti, en síra
Ágúst Sigurðsson stýrði skemmt-
uninni. Ólík er æfisaga margra ís-
lendinga hér sögu þeirra, sem ætíð
hafa dvalið í sinni fæðingarsveit,
en margir hafa átt hér heima í um
og yfir 50 ár, en tala þó móður-
málið óaðfinnanlega. Sögu þeirra
sumra mætti gjarnan skrá líkt og
frásagnir af Vestur-íslendingum
og væri verðugt verkefni að gefa
öldnum íslendingum í Höfn orðið,
jafnvel á bók.
G.L.Ásg.
höfná
Vikulegar siglingar
til Immingham
Eimskip hefur nú hafið vikulegar siglingar til Immingham
á Bretlandi, nýrrar hafnar sem í sívaxandi mæli gegnir
lykilhlutverki í öllum flutningi frá Humbersvæðinu. Þannig'
spörum við íslenskum inn- og útflytjendum bæðitímaog
kostnað, varan fer beint um borð í ekjuskip og er komin til
áfangastaðar á örfáum dögum, - milliðliðalaust. Nú siglum við
vikulega til Felixstowe og Immingham og á 2ja vikna fresti til
Weston Point. Vikulegur flutningur frá þjónustuhöfnum í London,
Leeds og Birmingham og að sjálfsögðu sækjum við eða
sendum heim á bæjarhlað hvar sem er í Bretlandi.
Felixstowe London
M.G.H. Lld. McGregor Cory Cargo Services
Trelawny House Unit 2
The Dock, Felixslowe Fairview Estate
Suftolk IP 118TT Gascoigne Road
Sími: 0394-285651 Barking
Telex: 98557 Essex, IG11 7NQ Simi: 01-594-7171 Telex: 896416
Immingham Leeds
M.G.H. Ltd. Archbold Freightage Ltd.
Dock Office Albert Road
Immingham Dock Morfey
Sími: (0469) - 72261 Nr. Leeds, LS 27 8TT
Telex: 527451 Sími: Morley 538716 Telex: 557555
Weston Point Birmingham
C. Shaw Lovell and Sons Ltd. Guymers (Transport) Ltd. 1
Dockside Ten Acres !
Weston Point Docks Station Road j
Runcorn Cheshire. WA 7 4HG Rushall Bj
Sími: 09285-75945/6/7 Statfs |
Telex: 629205 Sími: 0922-24651 H Telex: 336663 W
Flutningur er okkar f ag
EIMSKIP
Sími 27100
Leikffangakassar
Þrjár stærðir
" ÁRMÚLA 42 i
STOFNAO 1903
ARMÚLA 42 . HAFNARSTRCTI 21
oc
ALFA-LAVAL
VAKMA
SKirrvK
LANDSSMIÐJAN vekur
athygli a ALFA-LAVAL
varmaskiptum til notkun-
ar vid upphitun á vatni til
neyslu og fyrir midstödv-
arkerfi. ALFA-LAVAL er
sænsk gæðavara. Um
þad eru allir sammála
sem reynt hafa.
Helstu kosti ALFA-LAVAL
varmaskipta teljum vió vera:
X Þeireru virkir og einfaldir
X Plöturnar úr ryðfrlu stáli
semtaerast ekki viðöll
venjuleg skilyrði
X Hreinsun auðveld
X Þrýstiþol mikið
X Breytingar auðveldar
X Þeirtaka Iftið pláss
X Nýtingin mjög góð
LANDSSMIÐJAN hefur
einkaumboö fyrir ALFA-
LAVAL á íslandi, og get-
ur vottað um að áratuga
löng reynsla á hitaveitu-
svæðum um allt land
hefur sannað ágæti
þessara varmaskipta.
Við veitum allar tækni-
legar upplýsingar, svo
og hvers konar upplýs-
ingar aðrar um ALFA-
LAVAL varmaskiptana.
LANDSSMIDIAN
ö 20 6-80