Morgunblaðið - 15.11.1983, Síða 35

Morgunblaðið - 15.11.1983, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 43 „Athöfn og Orð“ til heiðurs dr. Matthíasi Jónassyni áttræðum Forseti ICD, hárgreiðslumeistarinn Uexandre, med frönskum hár- greiðslumönnum úr keppnishópi sín- um í Ríó. Annar frá vinstri er Gérard Vintin, Þessi mynd er birt í ítalska hárgreiðslublaðinu Estetica. Kringum forseta ítalska hárgreiðslusambandsins og listrænan ráðunaut þar, eru nokkrir er- lendir gestir frá Ríó. Þar á meðal (nr. 2 og 3 frá hægri) íslendingarnir Guðbjörn Sævar og Elsa Haraldsdóttir. Hárgreiðslusýning á Broadway: Franskur meistari gestur f KVÖLD, þriðjudaginn 15. nóvem- ber, gangast íslenskir félagar í alþjóðasamtökum hárgreiðslumeist- ara, Intercoiffure, fyrir hárgreiðslu- sýningu í Broadway í Breiðholti. í tilefni þess er kominn til landsins kunnur franskur hárgreiðslumeist- ari frá samtökunum, en hann starfar með meistaranum Alexandre í París. Mun hann sýna gala-hárgreiðslur á sýningunni. Að öðru leyti munu íslenzku hárgreiðslumeistararnir, sem eru þátttakendur í Intercoiffure, sýna tilbrigði við tískulínuna í hár- greiðslu fyrir árið 1983—84. Þá verður skemmtiþáttur. Og hár- greiðsluhópurinn frá Islandi, sem sýndi í Rio de Janeiro í fyrra við mjög góðar undirtektir mun nú í Broadway setja upp sömu sýningu og þeir voru með þar. En myndir af þeirri sýningu hafa birst I blöð- um víða um heim, þar sem ís- lenzka ullin og gærur voru uppi- staðan í búningum. M.a. eru í ít- alska blaðinu Estetica, sem var að Hugtök og heiti í bók- menntafræði ÚT ER komin á vegum Bók- menntafræðistofnunar Háskóla íslands handbókin Hugtök og heiti í bókmenntafræði. Mál og menning gefur bókina út. Hér er fjallað um helstu hug- tök í bókmenntafræði í víðri merkingu, að meðtöldum skyld- um greinum svo sem bók- menntasögu, leiklistarfræði, bragfræði, stílfræði og þjóð- fræði. Margir sérfróðir menn leggja hönd að þeim rösklega 700 greinum sem í bókinni eru, en ritstjóri hennar er dr. Jakob Benediktsson. Áhersla er lögð á að gera grein fyrir ýmsum nýj- ungum í bókmenntafræði sem lítið hefur birst um áður á ís- lensku, en einnig er fjallað ítar- lega um atriði úr íslenskri bók- menntasögu. Þetta er ekki handbók sér- fræðinga heldur er hún ætluð öllu áhugafólki um bókmenntir, almennum lesendum, kennur- um, nemendum og rithöfundum. Bókin er 318 bls., sett og prentuð hjá Prentstofu G. Bene- diktssonar en bundin hjá Bók- felli. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! koma út, myndir frá sýningunni í Ríó og á einni þeirra mynd af tveimur af íslenzku hárgreiðslu- meisturunum. Sýningin í Broadway hefst kl. 21.00. Meðlimir ICD á íslandi eru Elsa Haraldsdóttir, Guðbjörn Sævar, Hanna Kristín Guðmunds- dóttir, Bára Kemp, Marteinn Guð- mundsson, Sigríður Finnbjörns- dóttir, Lovísa Jónsdóttir, Pálína Sigurbergsdóttir, Helga Jóa- kimsdóttir, Sigurður G. Benónýs- son. Dr. Matthías Jónasson uppeld- isfræðingur varð áttræður fyrir rösku ári og af því tilefni er nú komið út ritið Athöfn og orð til heiðurs honum. Að útgáfunni standa: Háskóli íslands, Kenn- araskóli íslands, Kennarasam- band fslands, Hið íslenska kenn- arafélag, Sálfræðingafélag ís- lands og Skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins, en þessi samtök og stofnanir hafa lengi notið starfskrafta dr. Matthíasar. Var afmælisbarn- inu afhent ritið í húsakynnum háskólans hinn 13. okt. síðastlið- inn við hátíðlega athöfn. Athöfn og orð er 287 síður í stóru broti, gefið út hjá Máli og menningu. I ritinu eru alls sautján greinar af fræða- og áhugasviði Matthísar eftir kunna fræðimenn, auk skrár um rit hans eftir Einar Sigurðsson háskólabókavörð. Um uppeldis- og skólamál skrifa Andri ís- aksson, Edvard Befring, Gerður G. Óskarsdóttir, Hrólfur Kjart- ansson, Jónas Pálsson, Margrét Margeirsdóttir, Ólafur J. Proppé, Sigmar Ólafsson, Sig- ríður Þ. Valgeirsdóttir, Sigurjón Björnsson, Þórólfur Þórlindsson og Þuríður J. Kristjánsdóttir. Um sálarfræði skrifa Grétar Marinósson, Kristinn Björnsson og Magnús Kristjánsson. Sagn- fræðilegar greinar skrifa Loftur Guttormsson og Lýður Björns- son. Grein um málþroska barna eiga saman Indriði Gíslason, Randa Mulford og Ásgeir S. Björnsson. Fremst í ritinu er greinin Athöfn og orð eftir Brodda Jóhannesson um ævi og störf Matthíasar Jónassonar. Ritstjóri verksins var Sigur- jón Björnsson prófessor. Það er unnið að öllu leyti í Prentsmiðj- unni Odda hf. Cr rréUatilkxnningu Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! m ^OffWíl Beint samband við París og Bordeaux Með beinu sambandi við nýjar þjónustuhafnir í París og Bordeaux höfum við enn á ný bætt nýju landi í vikulega siglingaþjónust Eimskips til meginlands Evrópu. Alhliða flutningaþjónustan „alla leið heim á hlað” er að sjálfsögðu í fullu gildi í Frakklandi. Við sækjum vöruna til verksmiðjudyra eða skilum henni' beint í hendur kaupanda hvar sem er í Frakklandi. Hagstæðir samningar við þrautreynda og örugga umboðsmenn og flutningafyrirtæki auka afgreiðsluhraða og lækka heildarkostnaðinn. Einmitt þannig á góð flutningaþjónusta að vera! Umboðsmaður í Bordeaux: Alfred Balguerie S.A. 447 Bd. Alfred Daney 33075 Ðordeaux Cedex Sími: (56) 393333 Telex: 560031 Umboðsmaður í París: Alfred BalguerieS.A. c/o Jean Faucher Bassin N1 - Hall A8 92230 Gennevilliers Sími: 5620343 Telex: BALAN 650461 Allar nánari upplýsingar um Frakklandsþjónustuna eru veittar í meginlandsdeild Eimskips Flutningur er okkar fag ■ I r E ir AS\ K P 1 h Sími 27100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.