Morgunblaðið - 15.11.1983, Side 39

Morgunblaðið - 15.11.1983, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 47 Beint samband við MÍIANO á Ítalíu Með nýrri þjónustuhöfn fyrir Eimskip á Ítalíu tengjum við nýtt land við vikulegarsiglingar frá meginlandi Evrópu. Árangurinn er styttri flutningstími, lægri flutnings- kostnaður, betri vörumeðferð og áreiðanlegt upplýsinga- streymi frá fyrsta til síðasta hlekks í flutningakeðjunni. Alla léió(meö u |" EIMSKIP * . Sími 27100 ----- 7 I * Haustfagnaður Átthagasamtaka Héraðsmanna ÁRLEGUR haustfagnaður Átthaga- samtaka Héraðsmanna verður hald- inn í Domus Medica, fimmtudaginn 17. nóv. og hefst hann kl. 20.30. Nú er nýlokið ellefta starfsári Átthagasamtakanna. Helstu verk- efnin hafa verið áframhaldandi endurnýjun á gamla læknisbú- staðnum á Hjaltastað og undir- búningur að gerð styttu af Sigfúsi Sigfússyni, þjóðsagnaritara. Er styttan gerð í samvinnu við aust- -firska aðila og stendur til að af- hjúpa hana á 130 ára fæðingar- afmæli Sigfúsar, sumarið 1985. í Milano starfar Eimskip með stærstu vörumóttöku- stöð Ítalíu, Eurodocks. Þar sjá þrautreyndir menn um að sækja vöruna til seljanda og setja hana í gáma áður en hún er send af stað til Rotterdam þar sem áætlunarskip Eimskips taka við. Nú er flókið mál orðið einfalt - Eimskip annast flutninginn alla leið. Umboðsmaður í Milano: Thomas Carr & Son SPA c/o Eurodocks Via Dante 132 20090 Limito Pioltello Milano Sími: 02-6701451 Telex: 334857 carrmi „Val kvikmyndagagnrýn- enda kom verulega á óvart,“ segir Egill Eðvarðsson „Eintakið af myndinni sem fór á kvikmyndahátíðina, var nýtt og með enskum texta," sagði Egill Eðvarðsson, kvikmyndagerðar- maður og leikstjóri „Hússins", er blaðamaður ræddi við hann í gær. „Við fengum þarna þrenn verð- laun, en í raun voru það aðeins ein þeirra sem komu mér verulega á óvart. Það var val kvikmynda- gagnrýnenda á þessari mynd, sem bestu mynd hátíðarinnar. Lilja Þórisdóttir, að öðrum leikurum myndarinnar ólöstuðum, skilaði sínu hlutverki á frábærlega góðan hátt og á hátíðinni vakti það veru- lega athygli að þetta er hennar fyrsta hlutverk í kvikmynd. Snorri Þórisson er frábær kvikmynda- tökumaður og á því er enginn vafi að hann er samkeppnishæfur á öðrum og enn stærri vettvangi en þessari kvikmyndahátíð." „Hef enn ekki séð íslenska mynd, sem gæti eyðilagt markaðinn“ „Viðurkenning kvikmyndagagn- rýnendanna kemur sér vel að því leyti að þarna áttu í hlut menn frá hinum ýmsu löndum. Nú halda þeir til síns heima og skrifa að sjálfsögðu um myndina, en ekki eingöngu þessa mynd, heldur á ég von á því að þeir fjalli um kvik- myndagerð á Islandi almennt. Og ið“ hlaut mjög góðar undirtektir þar og stóð síst að baki framlagi frænda okkar og félaga. Ég var í Ástralíu í þrjár vikur og kynntist sömuleiðis því helsta sem er að gerast í kvikmyndagerð þar um slóðir, en kvikmyndagerð þar hef- ur nú komist verulega á skrið, eft- ir að skattalögum var breytt í þá veru að nú geta hin ýmsu fyrir- tæki iátið hluta af eigin hagnaði renna til kvikmyndagerðar án íhlutunar skattayfirvalda. Ég held að persónuleg samskipti kvikmyndagerðarmanna séu okkur öllum til hins betra. Við lærum hver af öðrum og kynn- umst því helsta sem er að gerast hjá öðrum þjóðum. Ég er mjög ánægður að hafa fengið tækifæri til að fara í þessar tvær ferðir, þ.e. til Brússel og Ástralju, og ég lít ekki á þær ferðir sem ávinning fyrir örfáa einstaklinga, heldur fyrir íslenska kvikmyndagerð í heild." „Hósið“ hlaut þrenn verðlaun á alþjóðlegri kvikmyndahátíð ÍSLENSKA kvikmyndin „Húsið“ hlaut þrenn verðlaun á alþjóðlegri kvikmyndahátíð, sem haldin var í Briissel dagana þriðja til ellefta nóv- ember. Verðlaunin voru veitt fyrir bestu leikkonuna (Lilja Þórisdóttir), bestu kvikmyndatökuna (Snorri Þórisson) auk þess sem myndin hlaut sérstaka viðurkenningu kvik- myndagagnrýnenda sem besta kvik- mynd hátíðarinnar. Anna Bjarnadóttir, fréttaritari Morgunblaðsins í Brússel, sagði að þetta væri í fyrsta sinn, sem kvik- myndahátíðin væri haldin og fengi hún fjárhagslegan stuðning frá belgíska ríkinu og fyrirtækj- um þar í landi. Einnig sagði Anna að alls hefðu 43 myndir verið sýndar og veitt hefðu verið 15 verðlaun. „,,Húsið“ hlaut flest verðlaunin og vakti verulega at- hygli," sagði hún. „Belgíska sjón- varpið gerði sjónvarpsþátt um há- tíðina og verður hann sýndur í flæmsku sjónvarpsstöðinni þann 18. desember næstkomandi. Verðlaunaafhendingin fór fram á laugardag við hátíðlega athöfn. Hörður Bjarnason, sendiráðu- nautur í íslenska sendiráðinu í Brússel, tók á móti verðlaunum fyrir hönd aðstandenda myndar- innar.“ Þrír aðstandendur „Hússins". Frá vinstri: Sigurður Þórisson, Egill Eðvarðsson og Lilja Þórisdóttir. hvert orð sem skrifað er um kvik- myndagerð á íslandi og hver mynd, sem kynnt er erlendis hlýt- ur að vera kvikmyndagerð hér á landi til góða. Ég hef að minnsta kosti enn ekki séð neina íslenska mynd, sem gæti eyðilagt markað- inn fyrir öðrum íslenskum mynd- um. í haust hlaut ég ferðastyrk frá Kvikmyndasjóði Islands til Ástr- alíufarar. Tilgangur fararinnar var að kynna nokkrar af athyglis- verðustu kvikmyndum Norður- landa í seinni tíð ásamt með al- mennri kynningu á kvikmynda- gerð í hverju landi fyrir sig. „Hús-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.